Þjóðviljinn - 08.01.1955, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 08.01.1955, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐYILJINN — Laugardagur 8. janúar 1955 Edv. Grieg ★ 1 dag- er laugrardagurinn 8. janúar — Erhardus — 8. dag- ur ársins — Hefst 12. vika vetr- ar — Fullt tungl kl. 11:44; í há- suðri kl. 0:08 — Árdegisháflæði kl. 5:51 — Síðdegisháflæði kl. 17:23. Bamaspítalasjóður Hringsins. Kvenfélagið Keðjan færði barna- spítalasjóði að gjöf kr. 10.000.00 — Þakkar Kvenféiagið Hringur- inn innilega þessa höfðinglegu gjöf og árnar félaginú allra heilla. f.h. Kvenféi/ Hringurinn, - I. Cl. Þorláksson. ÁgamláVídag vorU gé'fin " sáman í hjónaband af kaþ- ólska biskupnum Jóhannesi Gunn- arssyni Guðrún Sigurgeirsdóttir Meðalholti 13 og Friðrik Hjaitason Hæðargerði 24. Heimili brúðhjónanna verður fyrst uni sinn að Meða'.holti 13. Hjónadansleikur Kópavogsbúa verður í barnaskólív húsinu i kvöld og hefst kl. 9. Dansaðir verða gömlu og nýju dansarnir. Aðgöngumiðar eru seld- ir við innganginn. Húsmæðrafélag Beykjavíkur Mánaðar-kvö’dnámskeið félags- ins hefjast í næstu viku. 1 kvöid verður flutt í útvarpið tónlist úr Pétri Gaut — leikrit- ið eftir Iþsen, tónlistin eftir Edvard Grieg. Hollenzk hljóm- sveit leikur, en einsöngvari er Erna Spooren- berg. — Skyldi hún ekki syngja Söng Sólveigar, sem sumum þykir fegursta lag sem þeir þekkja — þeirra á meöal er sá sem þetta skrifar; og öll er hljómlist Griegs við verkið með þeim hætti að liún eykur á gildi þess á leiksviði. Og er þó Pétur Gautur af sumum íalinn mesta verk þessa höfundar, sem aðrir telja mesta rithöfund sem uppi hafi verið á Norðurlöndum. KvöSdskóSi[ alþýSu Stundaskrá Mánudagur: Kl. 20:30—21:15 Þýzka Kl. 21:20—22:05 Islandssaga J>riðjudagur: Kl. 20:30—21:15 Félagsmál Miðvikudagur: Kl. 20:30—21:15 Verkalýðsfélög og stjórnmál íslenzku verka’ýðshreyfing- arinnar. Kl. 21:20—22:05 Marxisminn og saga alþjóðlegu verkalýðshreyf- ingarinnar. Fimmtudagur: Kl. 20:30—21:15 Enska. Kl. 21:20—22:05 Teikning og lita- meðferð. Föstudagur: Kl. 17:00—19:00 Leiklist og upp- lestur. Kl. 20:30—21:15 Þýzka. Kl. 21:20—22:05 Upplestur. Kennsla fer fram í Þingholtsstræti 27 (2. hæð). Kvöld- og næturlæknir er í læknavarðstofunni í Austur- bæjarskólanum frá kl. 18-8 í fyrra málið. — Sími 5030. Næturvörður er í læknavarðstofunni Austur- bæjarskólanum, sími 5030. Næturvarzla er í Ingólfsapótelci, sími 1330. ETFJABÚÐIB Holts Apótek | Kvöldvarzla til Apótek Austur- | kl. 8 alla daga bæjar | nema laugar- | daga til kl. 6. Swmir með öllu vel drukknir Þegar vor allra náðugasti herra kóngur heyrði að margt mundi í veraidlegri stjórn öðrnvísi tilganga hér í landi en vel sómdi, þá sendi hann með velbyrðugum Herluf Daa sitt opið mandat inn í landið, að állir sýslumenn í landinu skyldu eið vinna að sinni sýslu- mennsku, en valdsmenn mæltu því á móti á alþingi, svo það hans fyrsta náðarbréf fékk ei framgang. Anno 1619 sendi hann annað bréf með veíbyrðugum Friedrich Friis sömu meiningar, en af því höfuðsmað- urinn burtkallaðist stra,x hann kom í landið, varð ekki af þeim eiðum það árj; Anno 1620 tók velbyrðugur Holgeir Rósenkranz við Iandinu. Þá sóru velflestir sýslumenn í lögréttu (sumir með öllu ódrukknir, sumir með öllu vel drukknir). Eiðs inntakið sérlegasta var, að þeir lofa guði og kóng- inuin að þeir skuli í allri sinni lögsögn hafa guð og réttlæíið sér fyrir augum og dæma réttilega í öllum málum, hvort heldur þau áhræra Iíf, góðs eða æru, svo sannarlega hjálpi þeim guð og hans heilaga orð. (Alþingisbækur,, Anno 1620). Á ga.mlárskvöld opinberuðu trúlof- ún sína María Jónasdóttir verzl- unarmær Álfa- skeiði 35, Hafnar- firði og- Sverrir Jónsson iðnnemi, Hverfisgotu 48 Hafnarfirði. Bóndinn: Ég hef aldrei vitað annað eins árferði: kornið hjá mér er enn ekki orðið þumlungshátt. Granninn: Ég er ekkert hissa á því — spörfuglarnir verða að krjúpa á kné hjá mér til að tína það. Millilandaflug Gull- faxi íór í morgun til Kaupmanna- hafnár og er vænt- anlegur aftur til Reykjavikur kl. 16:45 á morgun. Innanlandsflug 1 dag eru ráðgerð- ar flugferðir til Akureyrar, Blönduóss, Egilsstaða, Isafjarðar, Fatreksfjarðar, Sauðárkróks og Vestmannaeyja; á morgun til Ak- ureyrar og Vestmannaeyja. Gengisskráning: Kaupgengi 1 sterlingspund .... 1 Bandaríkjadollar .. 1 Kanadadollar ..... 100 danskar krónur ... 100 norskar krónur ... 100 sænskar krónur ... 100 finnsk mörk ..... 1000 franskir frankar 100 belgískir frankar . 100 svissneskir írankar 100 gyllini ......... 100 tékkneskar krónur 100 vestur-þýzk mörk . 45,55 kr 16,28 — 18,26 — 235.50 - 227,75 — 814,45 — 46,48 — 32,65 — 873,30 — 429,70 — 225,72 — 387,40 — Frá Skóla ísaks Jónssonar. Skólahúsið verður til sýnis fyrir foreldra skólabarnanna, styrktarfélaga og aðra, er fýsir að sjá það, n.k. laugardag og sunnudag kl. 10—12 og 1—6 báða dagana. Skólavinna barnanna fram að jólaleyfi liggur frammi til sýnis og áhöld skólans. Kennsla hefst mánudaginn 10. janúar næst komandi. Ultbreiðið Þjóðviljann 3>- Sögnin hermir að Emiliano Zapata, mexíkanski baenda- of byltingarforingirtn, "hafi ekki verið læs. Á þeim 35 árum sem liðin eru frá morði hans hefur fólk hans gert hann að þjóð- sagnarpérsónu, spunnið um hann vef sevíntýris og riddaraskapar. Það vill hafa söguna um hann þanníg að sjálf hin nakta neyð bændanna i byggðum hans hafi vakið hann til baráttu, ást hans á fólkínu hafi knúíð hann fram í fylkingarbrjóst — hann hafi orðið stórmenni fyrir áskapaða réttlætistilfinning sína, eld inn- fæddrar hugsjónar í brjósti sér. Og það er sagt að sumir trúi því enn að hann sé ekki dáinn. Hann fæddist 1866, og hann var myrtur 1919. Hann ólst upp á valdatímabili Diazar forseta; og þó það væri tími ýmiskonar fram- kvæmda í landinu, var það um leið skeið sívaxandi örbirgðar alþýðu manna, gleðiöld erlends fjármagns og útlendrar íhlutunar í Mexíkó — þá voru bændur rændir löndum, hinum svonefndu almenningum sem enginn var skráður eigandi að, en bændurn- ir höfðu nytjað. Árið 1911 var Díazi þessum steypt af stóli, og í hönd fóru mikil baráttuár sem nefnd hafa verið einu nafni „Bylt- ingin“. Þar var Zapata ósveigj- anlegastur málsvari bændanna; og hlaut fyrir staðfestu sína, Kl. 8:00 Morgunút- varp. 9:10 Veður- fregnir. 12:00 Há- degisútvarp. 12:15 Óskalög sjúklinga. (Ingibj. Þorbergs). 13:45 Heimilisþáttur (Frú Elsa Guðjónsson). 15:30 Miðdegisútvarp. 16:30 Veðurfregnir. Endurtekið efni. 18:00 Útvarpssaga barnanna: Possinn eftir Þórunni Elfu Magn- úsdóttur. 18:25 Veðurfregnir. 18:30 Tómstundaþáttur barna og ung- linga. 18:50 Úr hljómleikasalnum (pl): a) Pétur Gautur, svítur nr. 1 og 2 eftir Grieg (Hollenzk hijómsveit leikur; Willem van Ott- erloo stjórnar: Einsöngvari: Erna Spóörenberg). b) Lög úr óperum eftir Weber. 19:40 Auglýsingar. 20:00 Fréttir. 20:30- Kórsöngur: Hollenzki karlakórinn Maastrecht- er Staar syngur bandarisk lög; Martin Koekelkoeren stj. (pl). 20:45 Einar Frímanns, — aust- firzkt skáld: Nokkur orð um höfundinn og smásögur, kvæði og lausavísur eftir hann. — Flytj- endur: Bjarni Þórðarson og Jón Lundi Baldursson (Hljóðritað i Neska.upstað sl. vor). 21:30 Suð- ur um höfin. — Hljómsveit und- ir stjórn Þorvalds Steingrímsson- ar leikur suðræn lög. 22:00 Frétt- ir og veðurfregnir. 22:10 Danslög af plötum til kl. 24:00. Búkarestfarar Þeir sem hafa pantað myndjr..úr Búkarestförinni geta vit/að þeirra í skrifstofu Þjóðviljans, Skóla- vörðustíg 19. Það ber ekki viö á hverjum degi að sýnt sé nýtt íslenzkt leikrit; r«og þó er það enn sjaidgæfara að sýnt sé fyrsta sinn leikrit eftir ; nýlegan höfund. /j En þetta gerist þó hér í Beykja- vík í kvöld, nán- ar tiltekið í Þjóð- leikhúsinu þar sem er leikrit Agn- ars I*órðarsonar, Þeir koma í haust. Nýiega hefur verið sagt frá þessum tíðindum hér í blað- inu, og þegar eftir helgina kemur leikdómur — og verða hér því engar málalengingar._ Vildum að- eins minna á sjaldgæfan viðburð, sem síðar kynni að verða talinn mjög merkur. •Trj hóísiiiini EIMSKIP: Brúarfoss er í Reykjavík. Detti foss er í Ventspils; fer þaðan til Kotka. Fjallfoss fór frá Vest- mannaeyjum í gær til Rotterdam og Hamborgar. Goðafoss fer frá Hafnarfirði i kvöld til New York. Gullfoss fer frá Kaupmánnahöfn í dag til Leith og Reykjavíkur. Lagarfoss kemur til Reykjavíkur um hádegi í dag frá Rotterdam. Reykjafoss fer frá Hamborg í dag til Antverpen og Rotterdam og þaðan til Reykjavíkur. Sel- foss kom til Falkenberg 5. þm; fer þaðan til Kaupmannahafnar. Tröllafoss fór frá New York í gær til Reykjavíkur. Tungufoss fór frá Reykjavík 27. fyrra mán- aðar tii New York. Katla fer frá Isafirði í dag áleiðis til Lundúna og Póllands. j Sambandsskip Hvassafell kemur til Árósa í dag. Arnarfell er i Reykjavík. Jökul- fell fer frá Gufunesi í dag til Ska.gastrandar. Dísarfell fer frá Aberdeen í kvöid til Reykjavíkur. Litlafell er i olíuflutningum. — Helgafeli er á Akranesi. Elín S affermir á Hornafirði i dag. Bíkisskip Hekla fer frá Rvík kl, 23 í kvöld austur um land í hringferð. Esja er á Austfjör&um 4'JsuðúKleið. Herðubr^ið er á Augtf-jörðum. á norðurleið. Skjaldbreið var 4 Eyjafirði í gærkvöld. Þyrill er norða.nlands. Krossgáta nr. 548 Agnar -ú> Viva Zapata! manndóm og eldhuga þau eftir- mæli alþýðunnar er lýsa sér í sögnunum um hann. Bandaríska kvikmyndafé- lagið 20th Century-Fox gerði fyr- Marlon Brando í hlutverki Zapatas ir nokkrum árum mynd „um ævi“ þessa manns, og var hún frumsýnd hér í Nýja bíói í gær. Einstök æviatriði hans eru mér ekki svo kunn að ég megi dæmi, um sannsögulegt gildi myndar- innar. En hún gæti verið sagn- fræðilega sönn, og það virðist engin áberandi tilhneiging til pólitískrar sögufölsunar, nema sleppt er þætti bandariskra kapí- talista í kúgun alþýðunnar. Er til dæmis engin fjöður dregin yf- ir það, hvernig hershöfðingjarn- ir ráða Madero, forseta „fólks- ins“ af dögum, brugðið er upp allskýrum myndum af eymdar- kjörum fólksins, og trúnaður þess við foringja sinn og málstað er fagurlega túlkaður. Ef til vill eru of margir góðar hestar í mynd- inni, atriðið þegar Zapata er „út- nefndur“ forseti er barnalegt, og kannski mætti hann stundum vera ofurlítið liprari um munn- inn. En hann bætir þann stirð- leika upp með augunum, og vart verður því neitað að leikur Mar- lons Brandos í aðalhlutverkinu sé afrek. Flestar persónur aðrar eru einnig ágæta vel leiknar; er Ijþst af öllu að góðir listamenn hafa vélt um þessa mynd. John Steinbeck samdi handritið, Elia Kazan er leik- stjóri, en nafni hins ágæta Ijósmyndara hef ég gleymt. Það ættu allir að sjá mynd- ina um Emiliano Zapata. Við höfum svo mörg dæmi þess hvernig ríkir menn verða fátæk- ir í persónulegri streitu. Hér er því lýst hvemig snauðir menn verða auðugir í baráttu sinni, og trúnaði við tiginn málstað. — B. Lárétt: 1 plöntur 7 líkamspartur 8 forfeðurna 9 lemja 11 op 12 skst 14 guð 15 hestur 17 upp- hrópun 18 óþrif 20 karlmannsnafn Lóðrétt: 1 bifa 2 þel 3 k 4 át 5 æðir áfram 6 kemst leiðar sinn- ar 10 fiskur 13 ungan nautgrip 15 hyggin 16 féfietti 17 tveir eins 19 skst Lausn á nr. 247 Lárétt: 1 nisti 4 sú 5 næ 7 efi 9 api 10 net 11 Rán 13 lá 15 er 16 tunna Lóðrétt: 1 nú 2 sef 3 in 4 skáll 6 æstur 7 eir 8 inn 12 áin 14 át 15 EA Söfnin eru opin Bæjarbókasafnlð Útlán virka daga kl. 2-10 síðdegis. Laugardaga kl. 2-7. Sunnudaga kl. 5-7. Lesstofan er opin virka daga kl. 10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar- daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga kl. 2-7. Landsbókasafnið kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka daga nema laugardaga kl 10-12 og 13-19. Náttúrugripasafnið kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 4 þriðjudögum og fimmtudögum. Þjóðminjasafnið kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15 á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Þjóðskjalasafnið á virkum dögum kl. 10-12 og 14-19. ( Spilar sonur þinn á píanó? Nei, hann er ekki farinn að klifrast svo hátt ennþá.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.