Þjóðviljinn - 08.01.1955, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 08.01.1955, Blaðsíða 7
Laugardagur 8. janúar 1955 — ÞJÖÐVILJINN — (7 * ★ * Elías Guðmundsson: Minningar frá krvsuvík Skúla Árnasonar, héraðslæknis, minnzt ★ ★ * Fyrrverandi héraðslæknis, Skúla Árnasonar, er lézt að heimili dóttur sinnar og tengdasonar hér í bænum 17. sept. sl., var getið í blöðum bæjarins um og eftir útför hans í stuttum eftirmæla- greinum, skráðum af mennta- mönnum er þekktu hann per- sónulega. I greinum þessum er Skúla lýst sem lærdóms- manni og lækni, einnig að nokkru sem bónda og dýra- vini, er fór sömu mjúku líkn- arhöndunum um manninn og málleysingjann, lá aldrei á liði sínu en gerði ætíð sitt bezta. Af því að' svo undar- lega vill nú til að engin af þessum Skúlagreinum á neitt skylt við venjulegt líkræðulof né eftirmælaöfgar, eins og öll- um. kunnugum er ljóst þá hlýtur sú spurning óhjá- kvæmilega að vakna, hvað þar var, sem gerði Skúla þannig. Svona góðan, svona sannan og raunverulega mik- inn mann. Ég fullyrði að það var ekki presturinn sem kenndi honum undir skóla, ekki menntaskólinn hér í Reykjavík né læknaskólinn og ekki heldur sú stofnun er hann hlaut framhaldskennslu í erlendis og hef ég þó ekki neina löngun til að kasta hinni minnstu rýrð á neinn af þessum fjórum framan- greindu aðilum. Heiðurinn og þökkina fyrir það hvernig Skúli var ber engum öðrum en foreldrum hans og heimili þeirra. Þar dvaldi hann öll sín bemsku- og uppvaxtar- ár. Þama mótaðist maðurinn. Hús og heimili foreldranna voru meðal annars hans bún- aðarskóli, eins og verkin sönn- uðu síðar meir og sýndu ríku- lega ávexti af. Þegar litið er um öxl 60-80 ár aftur í tímann, til bernsku-, unglings- og námsára Skúla læknis er það tvennt sem ekki verður hjá komizt að athuga, en það er hinn stórfenglegi búferlaflutningur sýslumanns- ins Árna Gíslasonar, föður Skúla, frá Kirkjubæjarklaustri á Síðu í Skaftafellssýslu, til Krýsuvíkur í Gullbringusýslu, og svo hið dæmafáa illæri, fjárfellir og þar af leiðandi hvers konar hörmungar er þá gengu yfir landið árum sam- an. Rúferlaflutningur Áma Gíslasonar frá Klaustri að Krýsuvík fór fram á tveim árum, 1879 og 1880. Fyrra vorið, þ.e. 1879, fluttist nokk- uð af heimilisfólkinu, aflaði heyja og fleira um sumarið, en svo um haustið var féð rekið, 1265 fjár, á stað að austan en eitthvað týndi það nú tölunni á leiðinni sem von var til, þvi margar og illar eru torfæmr á þeirri löngu leið. Þá voru ekki brýrnar komnar. Næsta vor, þ.e. 1880, fluttist svo það sem eftir var af fólkinu, stórgripir allir og búslóð. Síðastur frá Klaustri og í einskonar sérfylkingu fór sýslumaður sjálfur ásamt þá- verandi síðari konu sinni, Elínu Ámadóttur ættaðri frá Dyrhólum í Mýrdal, og þeim tveim bömum þeirra er til fullorðinsára komust, Ragn- heiði og Skúla, en þau vom bæði fermd saman í Prest- bakkakirkju á Síðu rétt áður en lagt var af stað að aust- an. Þáttur nýfermda drengsins, Skúla, í þessu ferðalagi var sá að hann rak stóðhross föð- ur síns, eitthvað innan við tuttugu að tölu, flest ung. Þó voru í þessum hópi tvær nokkuð gamlar hryssur, báð- ar fylfullar og verður þeirra að nokkm getið síðar. Þrátt fyrir dugnað sinn og kappgirni virðist roskni sýslu- maðurinn hafa tekið þetta ferðalag vestur um Suður- landsundirlendið fremur ró- lega. Gistingastaði hans alla hirði ég ekki að telja, en skal þó geta þriggja þeirra, en á þeim hverjum um sig sat hann einn dag um kyrt, hvíldi fólk sitt og hesta og gisti tvær nætur. Á vali þessara gististaða má sjá það að hann hefur eink- um gist frændur og venzla- fólk, en ekki valið sérstaklega úr þá staði er mesta höfðu björg í búi. Þeir þrír staðir er Árni dvaldi á daglangt á vestur- leiðinni vom þessir: Dyrhólar í Mýrdal, æskuheimili frú Elínar, Breiðabólstaður í iFljótshlið, hjá séra Skúla bróður sínum, en þriðji og síðasti gististaðurinn var kot eitt vestarlega og neðan til í Flóanum, í grennd við Eyr- arbakka, nafn á því man ég ekki, en þar bjó frændkona hans fátæk. í þeim litla flutn- ingi er Árni hafði með sér í þessari ferð, er var lítið annað en nauðsynlegt nesti, var kistill einn er hann geymdi í peninga sina. Kistilinn, sem vitanlega var læstur, opnaði hann einu sinni í ferðinni, en það var áður en hann fór úr kotinu frá fátæku frændkonunni. Ekki opnaði hann kistilinn svo mikið að neinn sæi ofan í hann, en þó nógu mikið til þess að hann kom hægri hendi sinni inn undir lokið, en und- an lokinu kom svo hnefinn fullur af silfurpeningum, þeim er þá giltu hér sem gjald- miðill. Þetta lagði hann á Skúli Árnason héraðslæknir borðið hjá fátæku frænkunni að skilnaði, mælt í hnefum en ekki talið. Annarri fátækri frændkonu, systurdóttur sinni, þama í Eyrarbakkanágrenninu, þurfti Árni að líta eftir um leið og hann fór vestur um. Gjafir til hennar veit ég ekki um, en af henni tók hann sex ára gaml- an dreng með sér til Krýsu- víkur, ól hann upp og kom til manns. Piltur þessi var Ste- fán Stefánsson og var á full- orðinsárum oft nefndur túlk- ur. Á þessari löngu ferð Árna Gíslasonar og f jölskyldu hans, var lokaáfanginn að sjálf- sögðu hin 16 km langa bæj- arleið, sem er á milli Herdís- arvíkur og Krýsuvíkur. Að sjálfsögðu eru landamerkin milli þessara jarða þarna á milli bæjanna og eru þau um leið sýslumörkin á milli Ár- nessýslu að austan en Gull- bringusýslu að vestan. Þegar komið er spölkorn vestur fyrir sýslumörkin, þ.e. inn í Krýsuvíkurland, þá er fyrsta verulega gróna landið á þeirri leið svonefndir Klofn- ingar, en þar fækkaði tveim- ur í hrossarekstrinum hjá Árna. Fylfullu hryssurnar voru orðnar æði þunglamaleg- ar svo hann skildi þær eftir þar í Klofningunum, næsta dag fór hann svo og vitjaði Bærinn í lirýsuvík þeirra, var þá sitt folaldið komið hjá hvorri. Ljóst má það vera þeim er hugleiðir að koma Árna Gísla- sonar og fjölskyldu hans að Krýsuvík þetta vor hafi ekki verið sem ánægjulegust að afstöðnum einum mesta fjár- fellisvetri er yfir landið kom á sl. öld og er þá langt til jafnað. Sauðfjártala Árna breyttist þennan vetur og um vorið úr rúmum 1200 niður í rúmlega 600. Jörðin Krýsuvík hafði þá að undanförnu verið illa hirt og setin. Húsakostur hraklegur og annað eftir því. Þegar nú að þama var komið til hins fyrirheitna lands, Krýsuvíkur, virðist svo sem Árni hafi fundið einhverja hv"L hjá sér til þess að beina huga konu sinna og barna að öðru en heimilisástæðunum og búskaparafkomunni og er mér sagt að hann hafi þá kastað fram eftirfarandi stöku: Vorið blíða lifgar lýð lengist óðum dagur. Gyllir fríða Geitarhlíð geisiinn sólar fagur. Geitarhlíð heitir fjall eitt fagurt, skammt til austurs frá Krýsuvík, sem hér er um kveðið. Hvort vísan er ort fyrsta kvöld Árna í Krýsuvík, veit ég ekki með vissu, en hitt er víst að hún er ort á vor- kvöldi í Krýsuvik og að Árni er höfundurinn. Árni Gíslason var skemmti- legur tækifærisvísnahöfundur. Stökur hans oft svipmiklar. Kímnigáfu var Árni gæddur og henni góðri. Þann eigin- leika tók Skúli í arf. Báðir fóru þeir feðgar vel með skop- hneigð sína. Það er hverjum manni auð- skilið mál að búferlaflutning- ur Áma Gíslasonar hlaut ó- hjákvæmilega að draga á eftir sér marga illa dilka. Fyrst og fremst það að flytja milcinn fjölda sauðfjár úr góðu sauð- fjárplássi í annað miklu lak- ara, en það hefur engum manni tekizt án þess að verða fyrir stórtjóni, þegar svo þar ofan á bætist það ólán að þurfa fyrstu árin að mæta einhverjum þeim verstu harð- inda- og fellisvetrum sem komið hafa. Svo var nú bráða- pestin á einu leitinu, mjög mögnuð orðin hér um suður- kjálkann þá og hið óhag- vana fé að austan mjög næmt fyrir henni. Þá má geta tófu- bitvargsins er þá var svo magnaður hér um Reykja- nesskagan að slíks eru engin dæmi. Fj'rsta vorið sem Ámi átti fé sitt í Krýsuvík fund- ust tíu tófugreni í Krýsuvík- urlandareign og er þó ekki trúlegt að öll kurl hafi komið til grafar, svo margar eru holurnar í Krýsuvíkurhraun- unum. Þegar við Skúli heitinn læknir ræddum um þessa tíma og þá erfiðleika er við var að stríða, heyrðist mér ævinlega á honum að hann hefði talið tófupláguna versta. Til skiln- ingsauka á þessum málum vil ég greina hér frá tveimur atvikum er Skúli sagði mér frá persónulegum viðskiptum sínum við tófur. Þetta umtalaða vor er fjöl- skyldan flutti til Krýsuvíkur, skeði það að áliðnu vori að Skúli var að smala í áður- nefndum Klofningum, en er leið hans lá yfir laut eina grasigróna verður hann var tófuyrðlinga nokkurra í gras- inu þar í lautinni. Það varð fangaráð Skúla að hann fór úr utanyfirbuxunum, batt með snærisspottum utanum skálm- arnar neðst, tíndi svo yrð- lingana, sem reyhdust vera 9 talsins, upp í buxurnar og labbaði svo með feng þennan á bakinu heim að Krýsuvík. Þegar Skúli kemur í hiaðið mætir hann Guðmundi Hann- essyni bónda á Isólfsskáia, er þá var að koma neðan af svo- kallaðri Skriðu, frá því að vinna gren þar. Guðmundur þessi var orð- lögð ágætisskytta, en er hann hafði heyrt sögu Skúla úr Klofningunum, varð hann æfareiður honum fyrir það að hafa tekið yrðlingana. Taldi Guðmundur það tiltæki Skúla geta valdið því að hann næði ekki tófunni. En livað um það, þrátt fyrir reiði Guð- mundar leggja þeir báðir af stað austur eins og leið ligg- ur, allt þar til er þeir finna hina áður umgetnu laut, þar sem Skúli fann yrðlingana. En er þeir félagar höfðu hreiðrað um sig og legið einn klukkutíma í hraungjótu einni að austanverðu við lautina, sjá þeir allt í einu tvær tófur á hraunbrúninni vestan laut- arinnar, en þá varð Guðmundi að orði: „Þurftu þær nú að koma báðar í einu, bölvaðar“. Lét hann samt fjúka þarna á þær og báðar lágu. Annað atvik, sem ég vil geta gerðist 6-7 árum síðar; var Skúli þá kominn í Latínu- skólann en dvaldi að venju heima í Krýsuvík í jólafriinu. Var það þá venja hans utan sjálfra hátíðisdaganna, þegar veður leyfði það, að ganga með byssu um Krýsuvíkur- land, skjóta rjúpur og eitra fyrir tófuna. 1 einum slíkum Framhald á 8. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.