Þjóðviljinn - 09.01.1955, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 09.01.1955, Blaðsíða 12
m afmæli skólan ássszmÉ Ml ám afmæl! fesefaiplias vnr IaaMi«$ hátíðlegt i gær Ólafsfirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Hér var í gær haldið hátíðlegt 60 ára afmæli skólans í Ólafsfirði, og jafnframt 10 ára afmælis bæjarins. Var þetta mikil hátíð er um 300 manna sóttu. Hátíðlnni var ekki lokið þegar fréítin var send, en aðalatriði hennar voru þessi. Hátíðin hófst með guðsþjónustu sóknarprests- ins, sr. Ingólfs Þorvaldssonar. Kirkjukórinn söng. Þá flutti formaður fræðsluráðs, Jóhann Kristjánsson læknir ræðu, þar sem hann rakti sögu skólans. Næst ræddi Sigursteinn Magn- ússon, nú skólastjóri í Ólafs- firði, við Kristin Jónsson, er var nemandi á fyrsta ári er skólinn starfaði i Hólkoti í Ól- afsfirði, en þá var öll aðstaða mjög á annan veg en nú. Þá var afhjúpað brjóstlíkneski Grímur Grímsson, fyrsti skóla- stjóri á Ólafsfirði. Uppselt á sin- AJlir aðgöngumiðar að tónleik- um íiðlusnillingsins Isaacs Stern og Sinfóníuhljómsveitarinnar í Þjóðleikhúsinu í dag seldust upp þegar á föstudaginn. Á tón- leikum þessum, sem hefjast kl. 15.30 og verður útvarpað, verða flutt þrjú verk: Forleikur að söngleiknum „Leikhússtjórinn“ eftir Mozart, Fiðlukonsert í e- moll eftir Mendelssohn og Sin- fónía nr. 4 í d-moll eftir Schu- mann. Aéalfundur Idjii I dag Iðja, félag verksmiðjufólks heldur aðalfund sinn í dag. Fundurinn verður í Gamla biói og hefst kl. 2 e. h. Fundarefni er venjuleg aðalfundarstörf: skýrsla stjórnar, stjórnarkosning o. fl. Ættu félagsmenn Iðju að fjöl- sækja fundinn og mæta stundvís- lega. j Frá Aisdspyrnu- | hreyfingunni ; Tekið á móti undirskriftalist- ! um mánudagfinn 10. janúar og • þriðjudaginn 11. jamíar klukk- ■ an 5—7 síðdegis í Þingholts- • stræti 27, II. hæð. ! Þelr, sem hafa happdrættis- ! s.pjöld Andspyrnuhreyfingar- j innar, eru vinsamlega beðnir • að gera skil á sama tíma. af Grími Grímssyni fyrsta skóla- stjórþ í Ólafsfirði, er Björn Stefánsson kennari afhenti skóla- stjóranum sem gjöf til skólans. Fiutti Björn aðalræðuna við af- hendingu brjóstlíkansins, en skólastjórinn, Sigursteinn Magn- ússon, þakkaði með ræðu. Grímur Grímsson var, sem fyrr segir, fyrsti skólastjóri Ólafsfirði, en fyrsti kennari var Gísli Gestsson úr Svarfaðardal. Kvenfélag Ólafsfjarðar færði skólanum vandaða klukku að gjöf. Áður hafði Kvenfélagið gef- ið skólanum ljóslækningatæki. 10 ára afmæli bæjarins Þá var einnig minnst 10 ára ÞlÓÐVILIINN Sunnudagur 9. janúar 1955 — 20. árgangur — 6. tölublað Nói fnimsýnéir - og I ára leikara- 1 Sigurstelnn Magnússon núverandi .skólastjóri á Ólafsfirði. afmælis bæjarréttinda Ólafs- fjarðar, en 10 ár eru liðin síðan Ólafsfjörður skildi við Eyjafjkrð- arsýslu. Aðalræðuna flutti for- seti bæjarstjórnar Þorvaldur Þorsteinsson. Skólinn var fagurlega skreytt- ur í tilefni þessa merka afmælis. Endurbygging Mjólkur- bús Ftóamanna hafin Tekur 4—5 ár ®g iiBÍllj. Selfossi. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Kaupfélag Árnesinga er nú að byggja hér allstórt verkstæðishús og einnig er verið að endurbyggja Mjólkur- bú Flóamanna, en gert er ráð fyrir að það verk taki 4 til 5 ár og mun kosta milljónir kr. Bandaríkjamemi látnir lausir Frumsýning leiksins verður á miðviku- daginn Á miðvikudaginn frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur leikinn Nóa eftir André Obey. Jafnframt verður þá minnzt 30 ára leikaraafmælis Brynjólfs Jóhannessonar, en hann hefur, næst á eftir Friðfinni Guðjónssyni, leik- ið flest hlutverk allra leikara hjá Leikfélagi Reykjavíkur. 1 verkstæðishúsi Kaupfélags- ins verða gúmmíviðgerðir, kaffistofa og viðgerðarpláss fyrir 8 bíla og 2 skurðgröfur. Annar hliðarveggur hússins er steyptur, svo og gaflar og skil- rúm, en braggabogaþak yfir og nær það niður í 1 metra hæð frá jörð hinumegin. Endurbygging Mjólkurbús Flóamanna er mikið verk, enda verður það endurbyggt að meira eða minna leyti og mun það verk standa yfir 4—5 ár og kosta milljónir króna. Sambandsstjóinar- iundur í /E. F. í dag klukkan 2 e.h. að Þingholts- stræti 27. t Tveir Bandaríkjamenn, sem setið hafa um árabil í fangels- um í Sovétríkjunum, annar í tíu, hinn í fimm ár. voru í gær látnir lausir í Berlín og af- hentir bandarískum yfirvöld- um þar. Bóðir þessir menn voru handteknir á sovézka hernáms- svæðinu í Þýzkalandi, annar í Dresden 1945, hinn í Berlín 1949. í orðsendingu, sem sovét- stjórnin sendi Bandaríkjastjóm á nýársdag, sagðist hún fús að skila þessum mönnum, en minnti jafnframt á, að hún hefði áður krafizt þess af Vest- urveldunum að þau skihiðu 12 sovézkum börnum, sem flutt voru nauðug til Þýzkalands á stríðsárunum og dveljast þar enn. Brynjólfur leikur aðalhlut- verkið í Nóa; Nóa gamla, en Emilía Jónasdóttir leikur koi\u hans. Synir þeirra 3, Sem, Kam og Jafet leika þeir Einar Þ. Einarsson, Jón Sigurbjömsson og Steindór Hjörleifsson. — Aðrir leikendur em: Sigríður Hagalín, Hólmfríður Pálsdóttir, Anna Stína Þórarinsdóttir, Ámi Tryggvason, Einar Ingi Sigurðsson, Birgir Brynjólfs- son, Nína Sveinsdóttir, Jóhann Pálsson og Þorsteinn Ö. Step- hensen, en af sex þeim síðast- töldu leikur aðeins einn, Þor- steinn Ö. Stephensen mann, hin ir leika dýr. Leikurinn Nói er nefnilega byggður á gömlu sög- unni úr biblíunni um örkina hans Nóa. Leikurinn er þó ekki látinn haldast fast við sögu- þráð biblíusögunnar, en allt um ;það bjargar Brynjólfur (Nói gamli) með guðs hjálp og for- sögn öllu lifandi í örkina sína. Syndafióð heimsstyrjaldar- innar. Leikur'nn Nói er skrifaður á ámnum 1929 og 1930 og er meira gn ndvallaður á synda- flóði heim: styrjaldar en biblíu- sögunni se i notuð er, og að af- lokinni síðari styrjöldinni bár- ust höfundinum mörg bréf þar Tvö Oiaassissklp W a Tvö af olíuskipum gríska flotaeigandans Onassis rákust á í gær á Súesskurði. Annað skipanna var tómt, en í hinu voru um 20.000 lestir af olíu. Kyiknaði í því, en skipverjum tókst að slökkva eldinn áður en sprenging yrði og skipið al- elda. Hlíf lieillr bæiarstiórn stuðn- ingi í frystihúsmáli Hafnarlj. Einn listi kom fram Ur i fyrir félagið næsta ár, og komu í eigi fram aðrar tillögur. ,(Fundur haldinn í Verkamannafélaginu Hlíf, föstudaginn 7. jan. 1955, heitir bæiarstjórn Hafnar- fjarðar fyllsta stuðningi sínum í þeirri viðleitni að koma upp fullkomnu hraðfrystihúsi í Hafnarfirði". Verkamannafclagið Hlíf í Hafnarfirði hélt félagsfund s.l. föstud. 7. jan. Á fundinn var boðið bæjarráði Hafnarfjarðar til umræðna um atvinnumál. Mættu bæjarráðsmennimir all- ir og fluttu ræður sem var vel tekið af fundarmönnum. Að umræðum loknum var einróma samþykkt tillaga sú er að fram- an greinir. Þá lagði up stilli.igarnefnd fram tillögur sínar um stjóm Hlíf þakkar bæjarstjórn. í Að lokum var samþykkt eft- , irfarandi tillaga: j „Fundur haldinn í Verka- mannafélaginu Hlíf, föstud. 7. jan. 1955 lýsir yfir ánægju sinni yfir þeim gagngeru end- urbótum sem fram hafa farið á Verliamannaskýlinu. Þaltkar fundurinn bæjar- stjórn Hafnarfjarðar fyrir framtak þetta í þágu hafn- firzks verkalýðs." sem menn furða sig á því að leikritahöfundur skuli árið 1929 hafa getað séð fyrir hörmung- ar ársins 1939 og sagt fyrir um eydda jörð. í 5 leikhúsum samtímis. Ætlun Leikfélagsins var að sýna Nóa á jólunum, en margt olli því að það var ekki hægt, m.a. það, að ekki tókst að fá dýrabúningana að láni erlendis, var t.d. verið að sýna Nóa í 5 leikhúsum í Englandi, en þó fengust búningar fyrir milli- göngu borgarritarans í Birm- ingham. Hinsvegar eru nú komnir dýrabúningar frá Phila delphíu í Bandai’íkjunum. Hefur séð 300 nýliða í Iðnó. Brynjólfur Jóhannesson átti 30 ára leikafmæli 24. okt. s.l. haust, þótt Leikfélagið hafi ekki haft tækifæri til að minn- ast þess afmælis fyrr, en nú fer hann með aðalhlutverkið í Nóa. Þegar Brynjólfur byrjaði hjá Leikfélaginu var hann 181. maðurinn sem leikið hefur hjá Leikfélaginu, en síðasti nýi leikandinn hjá Leikfélaginu hefur númerið 483. Brynjólfur hefur því séð 300 nýliða hefja starf í Iðnó. 133. hlutverkið. Aðeins Friðfinnur Guðjóns- son einn hefur leikið fleiri hlut- verk hjá Leikfélaginu en Brynjólfur Jóhannesson. Frið- finnur hefur leikið 136, en Nói er 133. hlutverkið sem Brynj- ólfur leikur fyrir Leikfélagið. Fyrsta hlutverk hans var hlut- verk !Baldurs í Stormum eftir Stein Sigurðsson, en það lék hann 24. okt, 1924, sem fyrr segir. — Hér verða ekki rakin hlutverk Brynjólfs, Reykvík- ingum eru þau minnisstæð svo mörg, og vinsældir hans örugg- ar. Starf fyrir Leikfélagið. Brynjólfur hefur unnið mikið fyrir Leikýélag Reykjavíkur, annað en að vera einn vinsæl- asti leikari þess. Hann hefur i 10 ár verið ritari þess, 6 ár for- maður, auk þess varafonnaður og gegnt mörgum öðrum trún- aðarstörfum fyrir það. Heiðra hann á fimmtudags- kvöldið. Þrjátíu ára leikaraafmælis' Brynjólfs verður, sem fyrr seg- ir minnzt við frumsýningu Nóa á miðvikudagskvöldið, en kvöld- ið eftir verður árshátið Leikfé- lags Reykjavíkur og verður Brynjólfur þar hátiðargestur- inn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.