Þjóðviljinn - 12.01.1955, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 12.01.1955, Blaðsíða 2
.njxsiiijxr : í cx-zx xxý 2) r') 'WVtl'UúV^l.* ■ ■■ W:'‘ v..í.i)JUJ/ M %r^ur ÞJC®VILJINN — Miðvikudagur 12. janúar 1955 ★ í dag er miðvikudagurinn 12. janúar — Relnhold — 12. dagur ársins — Sólarupprás Id. 10:07 — Sólariag kL 16:09 — Tungl í hásuðri ld. 3:37 — Áiv degisháflœði kl. 7:62 — Síðdegis- háfheði kL 20:13 BVAÐ ER t KVÖX.D? Eeikfélag Reykjavikur frujnsýn- *r hið nýja leikrit sitt Nóa, en það fjallar um engan minni mann en Nóa í Örkinni, og leikur Bi-ynj- óifur Jóhannesson gamla • mann- inn. —. t I>jóðleikhúsinu er önn- ur sýning á leikriti Agnars Þórð- arsona.r: Þeir koma í thaust. En öll blöð hafa nú skrifað um það og lokið á það lofsorði. — 1 Stjömubíói er svo myndin með Skrýtna nafninu: 1. apríl árið 2000, Viva Zapata í Nýja bíói, og Prins- essan skemmtir sér í Tjarnarbíói. Og svo er ótal dansleikja — að ég hygg. Kvöldskóli alþýðu t kvöld kemur röðin að stjóm- málunum. Sig- urður Guð- mundsson rit- stjóri heldur á- frarn fyrir- lestraflokki sín- um um islenzka verklýðshreyf- ingu fram til 1916, og talar í kvöid um fyrstu stéttarfé- lög landverka- rnanna á Islandi. Fyrirlestur hans hefst kl. 8:30. Kl. 9:20 hefst svo siðari fyrirlestur kvöldsins: Ás- geir Biöndal Magnússon talar um marxismann. — Og svo er enn tækifæri til að innrita sig með því að koma nokkru fyrir við- komandi tíma. ■ Espemntistafélagið Auroro beldur mikilvægan fund í Eddu- húsinu Lindargötu 9A uppi í kvöld kl. 8:30. Skýrt verður frá eamþykkt UNESCO í Montevideo í siðasta mánuði, varðandi al- þjóðamáiið. KÍM. Happdrættismiðar í inn- anfélagshappdrætti. KÍM eru afhentir daglega kl. 5—7 á skrifstofu MlR, Þingholtsstræti Gengisskráning: Sigurður Skaltu mega lægja dramb þitt Pað er í kátlega frásögn lagið, að eltt shm kom í Gríms- ey um háust landsuiman veður afarlegt, svo allt ætlaðl upp að ganga og tók að rifa hús og hjalla. Var Antoníus farinn mjög að eldast. Nú sem veðrið gekk úr hófi, tók hann að klæða sig öllum sínum sjóklæðum og skinnvoðum og bjó að sem bezt, fletti niður grímu sinni með barðahatt upp af. Var útbúnaður hans sem þá menn fara í langvinna hákaria- legu um hávetur. Síðan tók hann sér tvo stafi í hendur og gekk öfugur út úr bænum. Hann nam staðar á hlaðmu, stakk niður stöfunum og snerl sér móti vindinum. Síðan mæltí liann á þessa leiðr „Þú rammgjörvi landsynningur! Hver hefur sent þig? Guð eða Andskotlnn? Hvaðan ertu að kominn og hvert ætlar þú? Sértu sendur tU að drepa menn, þá taktu mlg nú, ef þú mátt! Eg mun hvergi hopa né hræðast. I>ú skefur himiniim með grimmd þlnni og hrekur skýin í afgrunnið. Þú spýr eldingum sem sLndri. Þú uppríf- Ur og æslr sjávarhafið, svo stórbylgjur þess hóta að gieypa ailt á himni og jörðu. Taktu mig nú, ef þú þorir! Þú um- rótar jörðinni, rífur hús óg búðir, bæi og hjaUa, mölvar skip og viðu, fleygir og skaðar allt, hvað lífsanda hefur, og jafnvel fugla himins. Taktu mlg, ef þu þorir og mátt! Hér er Antoníus gamli og mun hvergi hræðast. Skaltu þó mega lægja dramb þitt fyrir einum karii örvasa, og skal nú hér leggjast hroki þinn fyrir fætur mér.“ Sfðan veifaði hann stöfunum i loftið og staulaðist inn í bælnn. Datt þá niður veðrið og sló í logn. Siðan afklæddist bóndi skjótt skrúða sínum. Sýndist hami þá mjög lirumur og svo sem þreyttur væri. _ ‘ (Sagnaþættir Bólu-Hjá!mars). Breiðfirðingafélagið heldur fund í Breiðfirðingabúð kl. 8:30 i kvö'd. Spiluð veróur fé- lagsvist Sg kvöldverðlaun veitt. Einnig verður úthlutað verðlaun- um til þeirra, sem orðið hafa hlut- skarpastir undanfarin keppnis- kvöld. Dans á eftir. MiUilandaflug: Gullfaxi, milli- landaflugvél Flug- féiags Islands fer til Kaupmannahafnar nk. laugardag. Edda, millilandaflugvél Loftleiða, kom til Reykjavíkur kl. 07:00 í morgun frá New York. Flugvélin fór til Stafangurs, Kaupmanna- hafnar og Hamborgar kl. 08:30. Iimanlandsflug: 1 dag eru áætlað- ar flugferðir til Akureyrar, Isa- fjarðar, Siglufjarðar og Vest- mannaeyja; á morgun til Akureyr- ar, Egilsstaða, Fáskrúðsfjarðar, Kópaskers, Neskaupstaðar og Vestmannaeyja. Flugferð verður frá Akureyri til Kópaskers. Orðaskýringar Hvað þýðir að gagra? — Það merklr að svipta hesti með taumnum til vinstri og hægri á víxl. Sögnin stjórnar þágn- falli: haim gagrar hestinum. — 1 Breiðdal austur liefur fyrir eina tið verið notuð orðmyndin fjallarendi, sem fjallsendi — og er máski enn. — Til er orð- ið flanni, og gefur Blöndal þrjár merkingar. Það þýðir í fyrsta lagi eitthvað sem er stórt og mikið um sig. I öðru lagi þýðlr það ofsakátan mann, jafnvel glanna í sumum sam- böndum. En sá sem vili fá þriðju merkinguna, haiin fletti sjálfur upp í Blöndal. Söfnin eru opin Bæjarbókasafnið Útlán virka daga kl. 2-10 eiðdegis. Laugardaga kl. 2-7. Sunnudaga kl. 6-7. Lesstofan er opin virka daga kl. 10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar- daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga kl. 2-7. Landsbókasaf nið kl. 10-12, 13-19 og 20-22 aila virka daga nema laugardaga kl 10-12 og 13-19. Náttúrugripasafnlð kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 6 þriðjudögum og fimmtudögum. Þjóðminjasafnið kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-16 á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum.- Þjóðskjalasafnið á virkum dögum kl. 10-12 og 14-19. . // Kl. 8:00 Morgunút- varp. 9:10 Veður- fre?nir. 12:00 Há- / x\\ \x degisútvarp. 15:30 Miðdegisútvarp. — 16:30 Veðurfregnir. 18:00 Islenzkukennsla IX. fl. 18:25 Veðurfregnir. 18:30 Þýzkukenns’a I. fl. 18:55 lþróttir (Atli Steinars- son blaðamaður). 19:15 Tónleikar: Óperulög (pl). 19:40 Auglýslngar. 20:00 Fréttir. 20:30 Óska-erindi: Hvað er existensíalismi? (Sigurjón Björnsson sálfræðingur). — 21:00 Óskastund (Benedikt Gröndai rit- stjóri). 22:00 Fréttir og veðurfr. 22:10 Upplestur: Vegir Guðs. eru órannsakanlegir, smásaga eftir Indriða Indriðason (Andrés Björnsson). 22:35 Harmonikan hljómar. — Karl Jónatansson kynnir harmonikulög. 23:10 Dag- skrárlok. *Trj hófninni Hjónunum Ás- björgu Ingólfsdótt- f Aj ^ ur og Stefáni Sig- i urðssyni, starfs- \sr manni hjá SVR, Efra-Bjarmalandi . við Sundlaugaveg, fæddust tvibur- ar, 13 marka telpa og 17 marka piltur, þann 4. þessa mánaðar. 1 sterlingspund 45,55 kr 1 Bandaríkjadollar .. 16,28 — 1 Kanadadollar 16,26 — 100 danskar krónur .... 235,50 — 100 norskar krónur .. 227,75 — 100 sænskar krónur .... 814,45 — 100 finnsk mörk 1000 franskir frankar 46,48 — 100 belgískir frankar . . 32,65 — 100 svlssneskir frankar . 873,30 — 100 gyllini 429,70 — 100 tékkne3kar krónur . 225,72 — 100 vestur-þýzk mörk .. 387,40 — 1000 lírur 26,04 — Gengisskráning (söiugengi) 1 sterlingspund ... 45.70 1 bandarískur dollar . ... 16.32 1 Kanada-doilar ... 16.90 100 danskar krónur ... ... 236.30 100 norskar krónur ... ... 228.50 100 sænskar krónur ... ... 315.50 100 finnsk mörk ,. ... 7.09 1000 franskir frankar ... ... 46.63 100 belgískir frankar . .. . 32.75 100 svissneskir frankar .. 374.50 100 gyilini .. . 431.10 100 tékkneskar krónur ... 226.67 100 vesturþýzk mörk .. .. . 388.70 1000 lírur ... 26.12 AUGLtSIÐ í ÞJÖÐVILJANUM Ríkisskip Hekla er á Austfjörðum á norð- urleið. Esja fer frá Reykjavik kl. 13 á morgun vestur um land í hringferð. Herðubreið ' er á léið frá Austfjörðum til Reykjavikur. Skjaldbreið kom til Reykjavíkur í gærkvöld að vestan og norðan. Þyrill er í Reykjavík. Oddur fór frá Reykjavík í gærkvöld til Vestmannaeyja. Baldur fór frá Rvik í gærkvöld til Gilsfjarðar- hafna. Sambandsskip - Hvassafell er I Bremen. Arnar- fell fór frá Reykjavík 10. þm til Brazilíu. Jökulfell er á Sauðár- króki; fer þaðan í dag til Siglu- fjarðar. Dísarfell fór frá Aber- deen í gær til Reykjavíkur. Litla- feli losar olíu á Austfjarðahöfn- um. Helgafell fór frá Akranesi 9. þm til New Yorlc. Eimskip Brúarfoss fór frá Reykjavík kl. 4 í nótt austur og norður um land. Dettifoss er í Ventspils. Fjallfoss fór frá Vestmannaeyjum 7. þm til Rotterdam og Hamborgar. Goða- foss fer frá Hafnarfirði í kvöld til New York. Gullfoss fór frá Leith í gær til Reykjavíkur. Lag- arfoss er í Reykjavík. Reykjafoss er í Rotterdam. Selfoss er í Kaup- mannahöfn. Tröllafoss fór frá New York 7. þm til Reykjavikur. Tungufoss er í New York. Ratla fór frá Isafirði 8. þm til London og Póllands. Togararnir Þorsteinn Ingólfsson og Úranus fóru á veiðar frá Reykjavík í gær. Jón Baldvinsson er i Rvík- urhöfn. Egill Skallagrímson sigldi áleiðis til Þýzkalands í gær með afla. Askur er í slipp i Reykjavík. Vilborg liggur enn við Ægisgarð. Þorkell máni kom af veiðum i nótt. Hvalfell var einnig vænt- an'.egt af veiðum i nótt. ’ ýtl.. Gátan LYFJABÚÐIR Holts Apótek | Kvöldvarzla til MT | kl. 8 alla daga Apótek Austur- | nema laugar- bæjar | daga til kl. 6. Kvöld- og nseturiæknir er í læknavarðstofunni í Austur- bæjarskólanum frá kl. 18-8 í fyrra málið. — Sími 5030. Næturvörður er í læknávarðstofunni Austur- bæjarskólanum, simi 5030, Næturvai-zla er í Ingólfsapóteki. simi 1330. l.apríl árið 2000 ÞARNA hefur Stjörnubió náð í sérkennilega mynd - og harla skemmtilega. Myndin er mjög hugkvæmnislega saman sett og ýmislegt í henni frumiegt, enda látin gerast í framtíðinni, þegar margt er öðruvísi en i dag, og ekki hvað sízt á hernaðar svið- inu. Til dæmis bera hernáms- liðarnir i Austurríki ekki lengur gamaldags hluti sem byssur ár- ið 2000 heidur geislavopn, og lög- reglumenn Heimsbandalagsins iíkjast helzt gúmmíkörlunum sem auglýsa Michelin-hjólbarða fyrir Egil Vilhjálmsson. Hinsveg- ar er ekki að sjá annað en al- menningur — austurríska fóikið sjálft — sé eins og i dag, kátt og söngvið. Og efnið gæti varla verið raun- hæfara: Áka'l um frelsi til handa hinu hersetna Austurríki og um frið þjóða á milli, flutt á skoplegan hátt og með leik- andi léttri kímni. Glaðværðinni er þó oftast nær mjög í hóf stillt og tilburðir til hreinna skrípa- láta sjást varla. Léttri tónlist er fléttað inn í myndina og brugð- ið upp fjölmörgum skyndimynd- um úr nokkrum af frægustu óperettum „valsakóngsins" Jó- hanns Strauss. Aðalhlutverkin eru í hönðum Josefs Meinrad, sem leikur aust- urríska forsetann, og Hiide Krabl, sem leikur forseta Heims- bandalagsins. Bæði munu vera með kunnustu leikurum Vínar- borgar, enda er ieikur þeirra mjög góður. Leikstjórinn heitir Wolfgang Liebeneiner og hefur honum tekizt vei að flétta sam- an hina margvíslegu þætti mynd- arinnar; atburðarásin er mjög hröð, hópsýningar skrautlegar, sögulegu þættirnir skeinmilega gerðir, myndatakan góð. Þetta er sem sagt kvikmynd, sem er vel þess virði að eytt sé kvö’d- stuod í að sjá hana. — Kannski minnir liún líka einhverja á, sem ekki vita, að hernumin þjóð er aidrei frjáls. — ÍIIJ Jean-Paul Sartra Hann er oft kallaður höfundur þeirrar heimspekistefnu, sem nefnd hefur verið exístensíalismi, og rekur hún þó rætur sínar lengra aftur. Þó margir hafi flík- að þessu orði í margvíslegustu samböndum siðustu árin, hefur þeim flestum verið það sameigin- legt að kunna býsna lítil skil á kenningunni. Nú hefur ungur menntamaður, Sigurjón Björnsson, tekið sér fyrir hendur að svara spurningunni: Hvað er existensí- alismi — og hann gerir það í út- varpinu í kvöld frá hálfníu til níu. Hús f yrir þrýstiloftsvélar Framhald af 3. síðu. um hernámsvegi frá Njarðvík upp á flugvöllinn — tengilið við bandarísku flotahöfnina er á að rísa í Njarðvík, en um það verk var ekkert rsett við þetta tælcifæri, né önnur verkefni sem fyrirhuguð eru á þessu ári, en framkvæmdastjóri íslenzkra að- alverktaka kvað verkefnin vera þannig, að „sum þarf að vinna fljótt, en önnur geta beðið seinni tíma“, — ef íslenzka þjóðin seg- ir hernámsliðinu ekki að hypja sig burt áður. Birust mér þrír bognir að starfi, allir við einn staf áfram kreika; hvar sem staðar nam stafurinn óhi'einn, lágu eftir hann loðnar sióðir. Einn drottin eiga áminnztir bræður, tveir beina leið svo tapist eigi, en einn léttir undir lathöfn hinna. Krossgáta nr. 551 Lárétt: 1 agn 4 stafur 5 umdæm- ismerki 7 svar 9 sunna 10 uss 11 uppistaða 13 skst 15 ekki 16 gorta Lóðrétt; 1 b 2 atviksorð 3 ryk 4 dregur 6 hæsti 7 forskeyti 8 líf- færi 12 fæddu 14 tilvísunarfor- nafn 15 merki Lausn á nr. 550 Lárétt: 1 akrobat 7 sú 8 fáni 9 krá 11 sat 12 LS 14 Ra 15 efar 17 ei 18 rós 20 brugg'ar Lóðrétt: 1 aska 2 kúr 3 of 4 bás 5 anar 6 Titan 10 áif 13 sarg 15 eir 16 róg 17 EB 19 SA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.