Þjóðviljinn - 13.01.1955, Side 10
10) — IíJÓÐVJLJINN — Fimmtudagur 13. januar 1955
Erich Maria ItEMAKQUE:
Að elsha • • •
...oif deyja
27. dagur
hún loddi við naktar trjágreinarnar. Graber þefaði út í
loftið; hann gat ekki greint hvaðan lyktin kom. Nú var
hún alls staðar, eins og hún hefði fallið ofan úr himn-
inum.
Á næsta homi sá hann fyrsta skemmda húsið. Hann |
hrökk við. Hann hafði ekki séð annað en rústir undan- :
farin ár og það hafði engin áhrif á hann; en hann |
starði á þessa rústahrúgu eins og hann sæi rústir í j
fyrsta skipti á ævinni.
Þetta er aðeins eitt hús, hugsaði hann. Aðeins eitt. :
Hin standa öll. Hann flýtti sér framhjá rústunum og [
þefaði. Brunalyktin kom ekki frá þeim. Þetta hús hafði S
eyðilagzt fyrir löngu. Ef til vill hafði það verið slys — }
gleymd sprengja sem sleppt hafði verið af handahófi á :
heimleið.
Hann leitaði að götunafninu. Bremenstrasse. Enn var j
langt að Hakenstrasse. Að minnsta kosti hálftíma gang- |
ur. Hann herti gönguna. Hann sá varla nokkurn mann. j
Unair dimmum bogagöngum logaði á bláleitum perum. S
Það voru hlífar yfir þeim og það var eins og göngin }
væru berklaveik.
Svo kom fyrsta eyðilagða hornið. í þetta sinn voru j
það allmörg hús. Aðeins útveggirnir stóðu uppi. Þeir S
teygðu sig upp í loftið, svartir og skörðóttir. Bognar }
járnstengur hengu á milli þeirra eins og svartar slöngur j
sem skriðið höfðu út úr steinveggjunum. Hluta af brak- j
inu hafði verið mokað til hliðar. Þetta voru líka gamlar }
rústir. Gráber gekk fast að þeim. Hann klöngraðist yf- -
ir steinhrúgurnar á gangstéttinni og í myrkrinu sá^_
hann dökka skugga á reiki. „Hæ,“ hrópaði hann. „Er
nokkur þarna?
Það glamraði í steinum og múrryki. Verurnar fjar-
lægðust. Gráber heyrði þungan andardrátt. Hann hlust-
aði, en svo gerði hann sér ljóst að það var andardrátt-
ur hans sjálfs sem hann heyrði.
Nú var hann farinn að hlaupa. Brunalyktin varð æ
megnari. Eyðileggingin fór vaxandi. Svo kom hann að
gömlu borginni, nam staðar og starði, starði og starði.
Áður höfðu staðið þarna timburhús frá miðöldum, með
háum göflum, máluðum þökum og litfögrum skjaldar-
merkjum. Þau voru ekki þarna lengur. Þess í stað sá
hann ófagrar eftirstöðvar af fómareldi, brunna rafta,
gafla, steinhrúgur, leifar af gangstétt og á henni hvít-
leitt ryk. Húsin höfðu brunnið til kaldra kola.
Hann hélt áfram að hlaupa. Hann varð gripinn
skyndi’egri skelfingu. Hann mundi eftir því að skammt
frá húsi foreldra hans var lítil koparverksmiðja. Ef til
vill hafði hun verið skotmark. Hann klöngraðist áfram
eftir götunum eins hratt og hann gat, yfir votar nísta-
hrúgur, hann rakst á fólk, hljóp áfram, klifraði yfir
steinhrúgur og svo nam hann staðar. Hann vissi ekki
lengur hvar hann var.
Borgin sem hann hafði þekkt frá barnæsku, var svo
breytt að hann rataði ekki lengur um hana. Hann var
vanur að átta sig eftir framhlið húsanna. Þær voru
þarna ekki lengur. Hann spurði kvenmann sem læddist
framhjá, hvernig hann kæmist að Hakenstrasse.
„Hvert?“ spurði hún óttaslegin. Hún var óhrein og
hélt báðum höndum um brjóst sér.
„Hakenstrasse."
Konan bandaði. „Þarna — þama yfirfrá — hinum
megin við hornið.“
Hann gekk í þá átt. Bmnnin tré voru til annarrar
handar. Minnstu greinarnar voru brunnar; stofnarnir
og stærri greinamar stóðu enn eftir. Þau voru eins og
stórar svartar hendur sem teygðu sig upp úr jörðinni
í áttina til himins.
Gráber reyndi að átta sig. Þaðan hefði hann átt að
sjá turninn á Katrínarkirkjunni. Hann sá hann ekki.
Ef tfl vill hafði kirkjan verið eyðilögð líka. Hann spurði
ekki fleira fólk. Fyrir framan sig sá hann sjúkrabörur.
Fólk var að! grafa. Brunaliðsmenn voru á hlaupum.
Vatnsbunum var béint í þykkt reykjarkóf. Daufur
bjarmi lá yfir koparverksmiðjunni. Svo fann hann Hak-
enstrasse.
7.
Á bognum ljósastaur var götuskiltið. Það benti lóð-
rétt niður í sprengjugíg, sem í voru brot úr vegg og
jámrúm. Hann gekk í kringum gíginn og hljóp síðan
áfram. Framundan sá hann óskemmt hús. Átján, hvísl-
aði hann. Það verður aö vera númer átján. Guð gefi að
númer átján sé óskemmt.
Honum hafði skjátlast. Þetta var aðeins framhlið
húss. í myrkrinu virtist það heilt. En þegar hann kom
að því sá hann að allur afturhluti þess var hruninn.
Hátt uþpi hékk píanó, flækt í stálbitum. Lokið hafði
rifnað af því og það glitti á nótumar eins og risastóran
munn, þéttsettan tönnum, eins og stórvaxin fornaldar-
skepna biði færis með opið gin. Dymar á framhliöinni
Frá Efnalaug Selfoss;
Á eftirtöldum stöðum er tekið á móti fatnaði
til hreinsunar:
EYRARBAKKA:
Verslun Ótafs Helgasonar.
STOKKSEYRI:
Verzlun Jóns Magnússonar.
HVERAGERÐI:
Verzlunin Reykjafoss.
ÞYKKVABÆ:
Verzlun Friðriks Friðrikssonar.
HELLU:
Kaupfélagið Þór.
ÖnnumEi einnig fataviðgerð.
EfnaSaug Sslfoss
«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■•■«■•■■■■« ■»*■■■■■•■»■•■■■■■■■■■•■*■■■'
Gleiis og gaman
Paradísarmissir Miltons er
stórkostlegt kvæði — finnst
þér ekki.
Stórfenglegt.
Hefurðu lesið það?
Nei. En þú?
Nei, ekki heldur.
— I þessari ágætu skrýtlu
felst, eins og menn sjá, dul-
broddur til ýmissa ó-
ínn
nefndra bókagagnrýnenda.
Vinkona skáldsins: Eg vona
að hjónaband þitt hafi fært
þér hamingju.
Skáldið: Vissulega, ég hef
þegar samið þrjú leikrit um
fortíð konunnar minnar.
Eg
eina
vildi
skáld-
Viðskiptavinur:
gjarnan kaupa
SÖgU.
Bóksalinn: Sjálfsagt
þér létta sögu eða ....
Viðskiptavinur: Skiptir ekki
máli, ég er í bílnum mínum.
viljið
Ung stúlka: Sagan yðar end-
ar mjög fallega.
Höfundurinn: Það þykir mér
gaman að heyra, en hvernig
þótti yður upphafið.
Stúlkan: Eg er ekki komin
svo langt ennþá.
Þér segið að sonur yðar leiki
á pianó eins og Rúbínstein.
Já, hann notar báðar hend-
umar.
V-l
Mognyl er ekki hœttulausf
ungbörnum
Margar mæður álíta að
magnyl og samsvarandi töflur
séu skaðlaust lyf og gera sér
enga rellu út af því hversu
stóran skammt óhætt sé að
gefa bami.
Ef bam er kvefað og lasið,
án þess að um meiri þáttar
veikindi sé að ræða er ekk-
ert við það að athuga að
barni sé gefið magnyl til að
StaSur fyrir borð-
servíettur
bæta líðanina. En það má ekki
gefa því of mikið. Ungböm
mega aðeins fá *4 úr töflu,
böm frá 1—5 ára y2 töflu og
börn 10 ára og eldri 1/1 töflu.
Og aldrei má gefa þennan
skammt oftar en þrisvar á
dag.
Ef bamið er með hita, verð-
ur alltaf að mæla hitann, áð-
ur en taflan er tekin inn. Tafl-
an lækkar hitann og ef ekki
er búið að mæla bamið hefur
maður enga hugmynd um hver
hinn raunverulegi hiti er. Ef
um venjulega ofkælingu er að I
ræða er yfirleitt hættulaust að *
gefa ögn af magnyl, en gætið
þess að eiga aldrei neitt á
hættu. Ef nokkuð ber á öðrum
einkennum, svo sem að hitinn
hækki, þá talið strax við lækni
og látið það ekki hafa áhrif
á ykkur, þótt baminu líði vel
í hvert skipti sem það hefur
fengið töflu. Og gefið baminu
aldrei stærri skammt en gef-
inn er upp hér að framan
nema með læknisleyfi.
Ungböm geta dáið af of-
notkun magnyls. Ef það er
notað á réttan hátt er það af-
bragðs lyf handa lösnu barni,
en ef það er misnotað getur
það verið lífshættulegt.
Borðservíettur þurfa helzt að
liggja sléttar og hafa ekki gott
af því að liggja í rúllu í skúff-
um. Hér er sýndur plastpoki
sem gerður er til þess að
geyma í borðservíettur. Undir
honum er þykk plastplata sem
er undirstaða og efri hlutinn er
gagnsætt plast sem hlífir serví-
ettunum en sést þó í gegnum.
Skeið yfir hiíAppinr,
Margir hnappar þola ekki
að þeir séu stroknir með
heitu jámi og eyðileggjast
þegar þungt járnið leggst yfir
þá. Reynið að leggja skeið yfir
hnappinn og þá er hægt að
strjúka alveg upp að hnappn-
um án þess að það komi að
sök.
Fjörlegir eggja-
bikarar
Þessir skemmtilegu eggja-
bikarar koma alla leið frá
ítalíu. Þeir em skomir út í tré
og málaðir á eftir, svo að þeir
líta út eins og skringileg and-
lit. Fullorðnu fóiki finnstþetta
ef til vill hégómi, en spyrjið
bara fimm ára neytenda hvort
honum finnist þetta ekki góð
hugmynd. Ef maður er fingra-
fimur er ekki erfitt að mála
venjulega eggjabikara úr tré og
gera á þá spaugileg andlit.
Maður þarf ekki að vera neinn
listamaður til að gera börn-
unum til hæfis.
Eggjabikurunum á mjnd-
inni fylgja skemmtilegar egg-
hettur með húfusniði, sem reka
smiðshöggið á dýrðina.