Þjóðviljinn - 21.01.1955, Page 1
VILIINN
Föstudagur 21. janúar 1955 — 20. árgangur — 16. tölublað
Ríkisstjórnin vildi eng-
um verðlækkunum lofa
BaS stjórn A.S.I. um að beita sér fyrir þvi aS kjara-
baráttu yrSi frestaS þar til i sumar
Ályktun sú sem samþykkt var á ráðstefnu verka-
lyðsfélagana í fyrrakvöld og birt var hér í blaðinu í
gær var einskonar svar við beiðni frá ríkisstjóminni um
að kjarabaráttu verkalýðsfélaganna yrði frestað þar til í
sumar — án þess þó að ríkisstjómin byði nokkuð raun-
hæft fram á móti
Ríkisstjórnin óskaði eftir því
í fyrradag að miðstjórn A.S.Í.
kæmi á sinn fund og ræddi við
sig með tilliti til verklýðsráð-
stefnu þeirrar sem boðuð hafði
verið um uppsögn samninga. Á
fundinum bar ríkisstjórnin fram
þau tilmæli að miðstjórn Alþýðu-
sambands íslands stuðlaði að því
að verkföllum yrði frestað til
1. júní, svo að þau kæmu ekki
til framkvæmda á miðri vertíð-
inni. Kvaðst ríkisstjórnin þá
myndi nota tækifærið til að ræða
við ýms fyrirtæki, sem hún til-
greindi, um að lækka verðlagið.
Þó tók rikisstjómin það marg-
sinnis fram að ekki bæri að lita
á þessi ummæli sem neitt loforð
um að nokkrar lækkanir kæmu
til framkvæmda.
Miðstjórn Alþýðusambandsins
rakti fyrir ríkisstjórninni þá
rýrnun á kjörum sem orðið hefði
og benti henni á að það væri nú
mjög almenn skoðun hjá verka-
fólki að ekki yrði lengur hjá þvíf
komizt að það tryggði sér veru-
legar kjarabætur. Lýsti mið-
stjórnin yfir því að hún væri að
sjálfsögðu fús til hverskonar við-
ræðna við ríkisstjómina um þessi
mál, og kvaðst ríkisstjórnin einn-
ig vera fús til frekari viðræðna.
Tilmæli ríkisstjórnarinnar voru
flutt verklýðsráðstefnunni í fyrra-
kvöld, og þótti mönnum tilboðið
að vonum losaralegt og einskis-
nýtt (öllum nema Friðleifi!). Hafi
ríkisstjórnin hins vegar einhvern
hug á athafnasemi hefur hún 40
sólarhringa til stefnu þar til
samningar renna út 1. marz, og
á þeim tíma er margt hægt að
gera ef vel er unnið.
FEokkiiriiiii
Meladeild.
Fundur í kvöld á venjulegunS
stað klukkan 8i30. >
Belgíuþing af-
greiðir ekki París-
arsamningana
íyrr en vitað er um end-
anlega aígreiðslu
Frakka og Þjóðverja
Neðri deild belgíska þingsins
samþykkti í gær að veita,
stjórninni heimild til að full-
gilda Parísarsamningana.
Jafnframt var tilkynnt, að
endanlegri afgreiðslu af Belgíu
hálfu yrði frestað þar til fyrir
lægi endanleg afstaða Frakka
og Þjóðverja, og mun málið
ekki lagt fyrir efri deild belg-
íska þingsins fyrr en sú af-
staða liggur fyrir.
Verður öryggisráðið beðið að
fjalla um Taivan-átökin?
Tvö farskip þegar sföðv-
uð vegna verkfallsins
Engir samningaíundir voru í gær
Tvö skip, Reykjafoss og SkjaldbreiÖ, hafa nú stöðvast
vegna verkfalls Sambands matreiðslu- og framreiðslu-
manna sem hófst á miðnætti 1 fyrrinótt. Engar viöræður
fóru fram milli deiluaöila 1 gær.
Deila Sambands matreiðslu- og
framreiðslumanna er við Eim-
skipafélag íslands, Skipaútgerð
ríkisins, Skipadeild S.Í.S., Jökla
h.f. og Eimskipafélag Reykjavík-
ur. Verkfallið var boðað með sjö
daga fyrirvara og hófst á mið-
nætti í fyrrinótt. Stóðu þá enn
yfir samningafundir með sátta-
semjara og lauk þeim ekki fyrr
en kl. 6 í gærmorgun, en ekki
voru aftur boðaðir fundir í gær.
t. d. verið undir 2000 kr. á mán-
uði eina fimm mánuði ársins.
Kvennarisiefna
A.S.I. hefst
á morpn
Flugfloti Sjangs lierðir árásir á meginlandið
Fulltrúar ríkisstjórna Bretlands, Bandaríkjanna og
Nýja-Sjálands hafa rætt þaö undanfama daga, hvort
þessi ríki eigi að fara þess á leit aö öryggisráð Sameinuðu
þjóöanna fjalli um hernaðarátökin milli alþýöustjórnar
Kína og stjórnar Sjang Kaíséks á Taívan, sem ógnun
viö heimsfriöinn.
Frá þessu var opinberlega
skýrt í gær, en ekki niðurstöð-
um þeirra umræðna.
Flugfloti Taívanstjórnarinn-
ar, búinn bandarískum flug-
vélum, gerði í gær mestu
sprengjuárásir sem gerðar
hafa verið mánuðum saman
á meginland Kína, einkum
hafnarborgir.
Hlýnandi veður á
Bretlandseyjum
Hlýnandi veður er nú um all-
ar Bretlandseyjar, en víða í
Norður-Skotlandi og á skozku
eyjunum eru enn almenn vand-
ræði vegna snjóþyngsla.
Koptar og aðrar flugvélar
flugu í gær yfir staði, sem
einangrazt hafa vegna snjó-
þyngslanna og vörpuðu niður
matvælum til iþeirra. Hefur
borizt fjöldi hjálparbeiðna frá
afskekktum stöðum um mat-
væli, vegna þess að samgöngur
hafa teppzt með öllu.
Einnig réðust flugvélar
Sjangs á flutningaskip víða
undan Kínaströndum, og var
tilkynnt í útvarpi frá Taívan
að sex flutningaskipum hafi
verið sökkt skammt frá Tasj-
eneyjum.
í útvarpi frá Peking segir
að í loftárásum þessum hafi 4
flugvélar árásarmanna verið
skotnar niður og fjórar lask-
azt.
Bretastjórn mótmælir.
Árásimar hafa þegar kallað
fram mótmæli af hálfu brezku
stjómarinnar.
Meðal skipa þeirra, sem flug-
vélar Sjangs sökktu í árásinni
var 1700 tonna brezkt flutn-
ingaskip á höfninni í Svatov.
Mannbjörg varð, en skipið eyði-
lagðist.
Var tilkynnt í gær að brezka
stjórnin hefði mótmælt opin-
berlega þessari árás, við stjórn
Sjangs Kaíséks.
Gáfust strax upp.
Taívanútvarpið hélt þvi fram
í gær að enn væri barizt á
ey þeirri í Tasjeneyjaklasanum,
sem alþýðuherinn tók fyrir
nokkmm dögum.
Pekingútvarpið skýrir hins-
vegar svo frá, að setulið Sjang
Kaíséks hafi gefizt þar strax
upp á fyrsta degi.
Dagsbrúnarkaup er nú kr.
14,69 um tímann. Ef greitt væri
samkvæmt vísitölunni 161 ætti
það að vera'kr. 14,88.
Ef kaup væri hinsvegar greitt
samkvæmt gömlu vísitölunni —
eins og gert var þar til fyrsta
stjórnin, sem Alþýðuflokkurinn
myndaði, batt kaupið um ára-
Samband matreiðslu- og fram-
reiðslumanna gerir kröfur um
hækkað kaup, styttan vinnutíma
úr 9 stundum í 8 og að nauðsyn-
legur eftirvinnutími sé greiddur.
Þá fara framreiðslumenn einnig
fram á lágmarks-kauptryggingu,
en hana hafa þeir ekki haft —
og hefur kaup þeirra á Gullfossi
mótin 1947—48 — ætti Dags-
brúnarmaður að fá kr. 19,56
um tímann eins og áður segir.
Mismunurinn er kr. 4,87 um
timann — en það samsvarar kr.
11.688 miðað við 8> stunda
vinnudag 300 daga á ári. Gef-
ur þessi mismunur góða hug-
mynd um það hversu geysilega
Kvennaráðstefna sú, sem mið-
stjórn Alþýðusambands íslands
hefur boðað til, hefst í Edduhúsinu.
kl. 4 á morgun og stendur einnig
á sunnudag.
Til ráðstefnunnar er boðað
samkvæmt ákvörðun seinasta Al-
þýðusambandsþings. Verður þar
rætt um kaupgjalds- og kjaramál
kvenna innan sambandsins.
kjör verkafólks hafa verið rýrð
síðan á dögum nýsköpunar-
stjórnarinnar og hversu óhjá-
kvæmileg er þörfin á verulegum
kjarabótum.
Undanfarið hafa hagfræðing-
ar ríkisstjórnarinnar boðað þá
kenningu að ekki væri hægt að
bæta kjörin; jafnvel þótt kaupið
hækkaði myndi annað hækka
að sama skapi og kjörin héldust
þannig óbreytt. Var svo að skilja
sem hér væri um eitthvert hag-
fræðilögmál að ræða. Vilja nú
ekki þeir sömu hagfræðingar
taka að sér að skýra hvernig
ríkisstjórnin hefur farið nð
því að skerða kjörin frá því
sem var á nýsköpunarárunum
og hvaða forsendur eru fyrir
því að kjörin geti ekki verið
jafngóð nú og þá?
Framfærsluvísitalan 161 stig
Rúmar 11.000 kr. vantar á að Dagsbrúnarmaður
haldi hliðstæðu árskaupi og á nýsköpunarárunum
Kauplagsnefnd hefur reiknaö út vísitölu framfærslu-
kostnaðar miðaö við verölag um s.I. mánaðamót og fékk
útkomuna 161 stig — og er þá kaupgjaldsvísitala Dags-
brúnarmanna tveimur stigum lægri en verölagsvísitala.
Kaup á hinsvegar ekki aö breytast fyrr en 1. marz, og þá
veröur aö sjálfsögöu búiö aö lækka vísitöluna á nýjan
leik ef aö vanda lætur.
Gamla vísitalan, sem sem var í gildi fyrir gengis-
lækkun, er nú komin upp í 635 stig — og ef kaup væri
greitt samkvæmt henni ættu Dagsbrúnarmenn aö frá kr.
19,56 um tímann.