Þjóðviljinn - 21.01.1955, Síða 2

Þjóðviljinn - 21.01.1955, Síða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 21. janúar 1955 ■ i I dag er föstudagurlnn 21-. jaiuSar. Agnesarraessa. — 21. dagur ársins. — Bóndadagur. Mið.- ur vetur. Þorri byrjar. — Tungl í hásuðri kl. 10:33. — Árdegishá- flæði ld. 4:04. Siðdegiháflæði kl. 16:23. Kl. 8:00 Morgunút- varp. 9:10 Veður- fregnir. 12:00 Há- degisútvarp. 15:30 Miðdegisútvarp. — 16:30 Veðurfregnir. 18:00 Islenzkukennsla II. fl. 18:25 Veðurfregnir, 18:30 Þýzkukennsla I. fl, 18:55 Framburðarkennsla í frönsku. 19:15 Tónleikar: Harm- onikulög (pl). 19:40 Auglýsingar. 20:00 Fréttir. 20:30 Havíð Stefáns- son frá Fagraskógi sextugur: a) Kristján Eldjárn þjóðminjavörður flytur erindi. b) Skáldið les úr ljóðum sínum. c) Tónleikar. 21:30 Útvarpssagan. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Hsestaréttar- mál. 22:25 Dans- og dæguriög: Doris Day ofl. syngja og Roberto Inglez og hljómsveit leikur (pl). 23:10 Dagskrárlok. ■ Þriðjudaginn 18. þm "opinberuðu trúlof-1 'lun sína ungfrú María Pálsdóttir af- greiðs’.umær, Leifs- götu 7, og Bene- dikt Helgason, sjómaður Rauðar- árstíg 24. Leiðrétting 1 frétt í blaðinu x fyrradag um stjórnarkosningu í verkalýðsfélag- inu í Hveragerði féli niður nafn eins stjórnarmeðilans, Sumarliða Sveinssonar. Hann er f jármála- ritari stjórnarinnar — og leið- réttist þessi vangá hér með. Kynning á verkum Þórbergs Þórðarsonar Vilum gjarnan vekja athygii á fyrirhugaðri kynningu á verk- um Þórbergs Þórðarson. Land- neminn gengst fyrir kynning- unni, sem verður í Tjarnarkaffi á sunnudaginn. Það verður sam- felld dagskrá, og auk þess les Þórbergur upp, en Björn Þor- steinsson flytur um hann rit- gerðarkafla. Þykkvabæingar vestanheiðar hafa kynnikvö’.d í Edduhúsinu við Lindargötu laug- ardaginn 22. þessa mánaðar. Skemmtiatriði. Styrktarsjóður munaðarlaúsm barna, sími 7967. Gengisskráning: Kaupgengi 1 sterlingspund 48,55 kr 1 Bandaríkjadollar . . 16,26 — 1 Kanadadollar . 16,26 — 100 danskar krónur ... . 235,50 — 100 norskar krónur ... . 227,75 — 100 sænskar krónur ... . 314,45 — 100 íinnskmörk . ,48,48*4 1000 franskir frankar . 100 belgískir frankár’ . . 32,65 — 100 svissneskir írankar ,. ,873,30 — 100 gyllini . ........... •... • . 429,70 — 100 tékkneskar krónur . 225,72 — 100 vestur-þýzk mörk . . 387,40 — 1000 lírur . 26,04 — Gengisskráning (söiugengi/ 1 sterlingspund .... .... 45.70 1 bandarískur dollar .... 16.32 1 Kanada-dollar .... .... 16.90 100 danskar krónur .. ... . 236.30 100 norskar krónur .. .... 228.50 100 sænskar krónur .. .... 315.50 100 finnsk mörk .... 7.09 1000 franskir frankar . .... 46.63 100 belgískir frankar .... 32.75 100 svissneskir frankar .. 374.50 100 gyllihi .... 431.10 100 tékkneskar krónur .... 226.67 100 vesturþýzk mörk . .... 388.70 1000 lírur .... 26.12 L Y F J A B Ú Ð I R Holts Apótek | Kvöldvarzla til ŒjtgT" | kl. 8 alla daga Apótek Austur- | nema laugar- bæjar dagá til kl. 4. Næturvörður er í læknavarðstofunni Austur- bæjarskólanum, sími 5030. Næturvarzla er í Laugavegsapóteki, sími 1618. KÍM. Happdrættismiðar í inn- anfélagshappdrætti. KÍM eru afhentir daglega kl. 5—7 á skrifstofu MÍR, Þingholtsstræti iifiakkunnn Flokksgjöld. Þessi voðalegi höfuðstaður ANNARS hef ég skemmt mér ágætlega 5 þessari ferð, nema mér er andskotalega við að reka mig alltaf á Dani, hvar sem ég kem. Þeir eru svo hræðilega vinalegir í útlöndum hver við annan og gjöra t.d. mig danskan og kalla mig „Landsmand" i öðru hverju orði.... Annars hef ég verið í ,s'agtógi" með Englendingum, [Rússum (sem ég kann mikið vel við) og þýzku: saxnesku kvenfólki, sem ég kann bezt við, að Frökkum undan- skildum, sem ég kann langbezt við. Ég er nú búinn að vera i þessum voðalega höfuðstað síðan 12. ágúst og verð hér að minnsta kosti þangað til eftir nýár. Fyrst eftir 'að ég kom hingað, gerði ég ekki annað en ráfa um París, og það er sannarlegt völundarhús kanntu að trúa. Nú er ég seztur að, er heima ailan fyrirmiðdaginn til kl. 5 (þá er mat- málstími hér), en fer svo út og oftastnær á komedíu á eftir. Ég les einkum historíu og heimspeki og meðfram lygasögur, en fyrirlestra hef ég ekki ennþá heyrt hér, því þeir byrja ekki fyrr en í næsta mánuði. Við Gaimard hef ég talað; hann er um þetta leyti í Algier, en kemur bráðum aftur, og Guðmundur Sívertsen með honum. Þessutan hef ég kynnzt hér við fleiri Frakka og einum kenni ég íslenzku til endurgjalds fyrir, að hann jagfærir fyrir mig franskan stíl. Aldrei hefði ég hugsað, að ég væri eins ónýtur í frakknesku eins og ég hef reynzt. Ég hef nú babblað frakknesku á hverjum degi síðan ég kom hingað og get ennþá varla gjört mig ski'janlega,-þvi Pa.rís- ármállýzkan er svo andskoti vönd. --- (Gríinur Thomsen I bréii 1846). 'G. Leiðréttlng Við sögðum frá því”hér á 2. síð- unni í gær að Þorgrímur Einars- son leikari ]æs‘i kvæði eftir Jó- hannes úr Kötlum í útvarpið i gærkvöld. Þessi fræðsla um upp- lesarann var ekki rétt: þgð var Þorgrímur H. Einarsson sem las; 'og þótt hann hafi að vísu einnig fengizt við leik’ist, og m.a. leik- ið i kvikmynd, nefnir hann sig ekki leikara. „Þorgrímur Einars- son leikari" er sem sé annar maður — og biður 2. síðan af- sökunar á rangherminu. Söfnin eru opin Bæjarbókasafnið Útlámvirka daga kl. 2-10 síðdegis. Laugardaga kl. 2-7. Sunnudaga kl. 5-7. Lesstofan er opin virka daga kl. 10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar- daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga kl. 2-7. Landsbókasafnið kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka daga nema laugardaga kl 10-12 og 13-19. Náttúrugrfpasafnlð kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 á þriðjudögum og fimmtudögum. Þjóðminjasafnið kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15 á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Þjóðskjalasafnið á virkum dögum kl. 10-12 og 14-19. Vísan Fór eg til berja fyrra sunnudag, fann eg fyrir mér stúlkukorn, í bláu pilsi hún var; léði eg henni liijublað að leika sér að. Eiti eg hana í öll hús og aJlt upp í lambhús, upp í sel og ofan á mei. Alla daga fari hún vel. (Úr þxxlum og þjóðvísum). Millilandaflug: Sólfaki fer til Kaupmannah. kl. 8.30 í fyrramálið. — Hekia., milii- landaflugvél Loft- leiða, er væntan- leg til Rvikur n.k. sunnudag kl. 7 árdegis frá N.Y. Plugvélin held- ur áfram til meginlands Evrópu kl. 8:30. Edda, minilandaflugvél Loftleiða er væntanleg til Rvíkur kl. 19:00 sama da.g frá Hamborg, Gautaborg og Osló. Áætlað er, að flugvé’.in fari til N.Y. kl. 21:00. Innanlandsf lug: 1 dag er áætlað að fljúga til Ak- ureyrar, Fagurhólsm., Hornafja.rð- ar, Hólmavíkur, Isafj., Kirkjubæj- arklausturs og Véstmannaeyja. — Á morgun eru ráðgerðar flugferð- ir til Akureyrar, Blönduóss, Eg- i'sstaða, Isafjarðar, Patreksfj., Sauðárkróks og Vestmannaeyja Kvöldskéli alþýðo Leiklistin og upplesturinn hefst kl. 5 í dag eins og venju’ega. Kl. 8:30 hefst þýzkan, en að henni lokinni hinn nýi upplestrarflokk- ur Karls Guðmundssonar leikara 0Morgimblaðið hefst í gær með þessari fi-ásögn: „Samtím- is því, sem Hamm- arskjöld, aðairitari Sameinuðu þjóð- anna, heldur áfram að viniia að því að ná sáttum út af fangclsxm amerísku flug- mannanna ellefu, sem hafðir eru i haldi í Kína, hafa kínversku kommúnlstamir byrjað ákafar hernaðaraðgerðir við Kínastrend- ur, en hætt er við að hemaðar- aðgerðir þessar leiðl til vaxandi sundrungar miili Bandaríkjanna og KinastjóiTiar“. Hvernig hugsar Moggiim sér „vaxandi sundi-ung" inilli auovaldsins í Bandaríkjun- um og alþýðunnar í Kína? Er kannski verið að spá nýju heims- stríði? Orðaskýringar Sumir kynnu kannski að halda að grenjabítur væri elnhvers- konar skepna, til dæmis ref- ur, en það er nú ekki aldeil- is tilfellið. Blöndal segir að grenjabítur sé leikur og s.pyr; innan sviga hvort það sé sama ! og s.kolialeikur, sem allir þekkja. Greppur þýddi í fomu j máli skáld, en hinsvegar þýðir 1 greppleitur feitur og tútinii j í andliti, enda þýðir greppur 1 síðar Ijótur maður — og væri j fróðlegt að vita hverskonar j samband nurni vera á milli þessara merkinga. Voru fom- skáldin okkar kannski tiltak- anlega ljótir menn?!! Krossgáta nr. 559. hóíninnl Lárétt: 1 drykkur 4 kaðall 5 tólf mánuðir 7 kopar 9 fita 10 æst 11 skst. 13 ryk 15 ekki 16 bónin. Lóðrétt: 1 e’-dsneyti 2 karlmanns- nafn 3 stafur 4 þumlungur 6 spil 7 r 8 blóm 12 togara 14 kyrrð 15 tenging. Lausn á nr. 558. Lárétt: 1 faðmana 7 á! 8 ómar 9 kló 11 ISG 12 SF 14 ia 15 akur 17 óp 18 lón 20 fallinn. Lóðrétt: 1 Fáks 2 a.ll 3 mó 4 ami 5 Nasi 6 argar 10 Ósk 13 full 15 apa 16 rói 17 óf 19 NN. Húsmæðrafélag Reykjavíkur vill minna konur á 20. ára afmæli félagsins, sem ha’dið verður há- tiðlegt í Þjóðleikhúskjallaranum næstkomandi mánudag. Ríkisskip Hek’a er á Austfjörðum á norður- leið. Esja er væntanleg til Rvik- ur árdegis í dag að austan úr hringferð. Herðubreið er í Rvík. Skjaldbreið er í Rvík. Þyrill verð- ur væntanlega í Hvalfirði í dag. Baldur fór frá Rvík í gærkvöldi til Ólafsvíkur, Gmndarfjarðar og Stykkishólms. Sambandsskip Hvassafell er í Grangemouth. Arnarfell fór frá Rvík 10. þm. áleiðis til Brazilíu. JökuTell fór frá Rvík 18. þm. áleiðis til Ham- borgar. Dísarfe’l losar á Húna- flóahöfnum. Litlafell er í oliu- flutningum á Suðurlandshöfnum. Helgafell er í N.Y. EIMSKIP: Brúarfpss. fór frá Isafirði í gær til Patreksfjarðor- og ÍBreiðafjarð- ar. Dettifoss kom til Kotka 18. þm. frá Ventspils. ■ Fjallfoss fór frá Hamborg ,i gær til Antverp-. en, Rotterdam, Hu!l og Rvíkur. Goðafoss fór fiá Rvik í fyrradag til N.Y. Gullfoss fór frá IRvík í fyrrad. til Leith og Kaupmanna- hafnar. Lagarfoss fór frá Rvík 15. þm. til N.Y. Reykjafoss kom til Rvíkur í gær frá Hull. Selfoss fór frá Kaupmannahöfn í fyrra- dag til Rotterdam og íslands. Tröllafoss kemur til Rvikur um kl. 10 í dag frá N.Y. Tungufoss fór frá N.Y. 13. þm. til Rvíkur. Kat’a. fer frá Danzig í dag til Rostock, Gautaborgar og Krist- iansand. Togaraniir Allir togarar Bæja.rútgerðarinnar eni á veiðum, nema Pétur Hall- dórsson sem kom af veiðum kl. 10 í fyrrakvö’d óg Þorkell máni sem mun nú langt kominn að landa saitfiski í Esbjerg í Dan- mörku. — Neptúnus kom af veið- um á mánudaginn. Vilborg liggur við Ægisgarð. Gyl'ir og Egill rauði eru til viðgerðar í Reykja- vík. Handavinmmámskeið Handavinnudei’d Kennaraskólans efnir til 3ja mánaða námskeiðs í handavinnu á næstunni. Kenndur verður einfa’dur fatasaumur og útsaumur. Kennslugjald verður kr. 50. —. — Úpplýsingar gefnar í sima 80807 næstu daga milli kl. 9 og 15:00 e.h. Gátan Gátu vil ég greina glöggt, fyrir utan stanz, ekki nema um eina unnustuna manns;. síns frá herra síðu sú ei kæra fer, með hauka, brikar hlíðum, við hana minnumst vér; einn er hringur ærið mjór allt í kringum laufin stór. Ef úr fór þingi illa fór, á henni glæpumst vér. Ráðning gátunnar í gær: Köttur. Æfing í kvöld kl. 8:30 1. ársfjórðungur féll í gjald- daga við áramót. Komið og greiðið flokksgjöld ykkar skil- víslega. Skrifstofan er opin alla virka daga frá klukkan 10— 12 og 1—7 eftir hádegi. Snjórinn er kominn

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.