Þjóðviljinn - 21.01.1955, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 21.01.1955, Blaðsíða 3
Föetudagur 21. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (J Ihaldii hindrar rannsékn á bröggunum Framhald af 12. síðu. að byggja nýjar íbúðir í stað bragganna, en allt frá því að braggarnir voru fyrst teknir til íbúðar fyrir húsnæðisleysingja hafa sósíalistar flutt tillögur um að byggðar yrðu mannsæmandi íbúðir í stað þeirra, og rökstutt það m. a. með því að ekkert vit væri í því að láta stórfé í viðhald á heilsuspillandi húsnæði í stað þess að byggja nýjar íbúðir í þeirra stað, — en það hefur bara verið til nokkuð sem heitir íhald „Sjálfstæðisfiokkur“ se;n ævin- lega hefur fellt þær tillögur, — og því verða konur og börn að hýrast í bröggum enn í dag. Nú er neyðarástand Nú þýðir hinsvegar ekki að vera að velta fyrir sér hvað það kosti að halda íbúðabröggunum heitum. Nú er spurningin hins- vegar um bað hvort fjöldi'fóiks, margt af því konur og börn — fái haldið heilsu og lífi. Þeirri spurningu verður að svara strax. Braggarnir verða ekki hitaðir upp með jafnvægisæfingum borg- arstjóra íhaldsips í skólaspeki. Allir fulltrúar minnihlutaflokkanna Þetta og margt fleira var borg- arstjóranum sagt í umræðunum. Auk Þórunnar töluðu Petrína Jakobsson, Bárður Daníelsson, Guðmundur Vigfússon, Björn guðmundsson, Alfreð Gíslason og Magnús Ástmarsson og hvöttu allir þessir ræðumenn til þess að tillaga Þórunnai: yrði samþykkt. Lýstu þau Petrína og Alfreð fyrir borgarstjóranum að í bröggunum væri neyðarástand sem yrði að bregðast við strax. Borgarstjórinn sá sitt óvænna Undir ræðum allra fulltrúa minnihlutaflokkanna um þetta mál varð borgarstjóranum ljóst að ekki myndi stætt á frávísun- artiilögu, og eftir að hafa 'flutt belgingarræðu, flutti hann því breytingartillögu á þessa Útsvör stórfvrir- tækja hafa inn- heimzt illa Borgarstjóri gerði grein fyrir reikningsniðurstöðum bæjarins á s.l. ári á fundi bæjarstjórnar í gær. Niðurstöður þessar miðast að sjálfsögðu við reikningana •eins og þeir liggja fyrir nú, en reikningum ársins 1954 verður ekki lokað fyrr en í febrúar, eða ;jafnvel síðar. Tekjur bæjarins fóru 5 millj. :rúmar fram úr áætlun en gjöld Tirðu 176 þús, hærri en áætlað •var. Rekstrarafgangur varð tæp- ar 17 millj. kr. eða 4,9 millj. þærri en áætlað var. Borgarstjóri kvað útsvarsinn- heimtu hafa gengið hlutfallslega verr á síðasta ári en undanfarin ár. Nú væru innheimt 73,9% af útsvörunum, en um sama Ieyti i fyrra hefðu verið innheimt 79,3 % af útsvörunum og árið þar áður 74,9%. Væri innheimtan því rúml. 5% lakari en í fyrra. Um orsakir til þess sagði haim m.a. það að miklu verr innheimt- ist á s.l. ári hjá sumum stærstu útsvarsgreiðendunum en verið hefur áður. leið: Bæjarstjóm felur fram*-^ færslunefnd og bæjarráði að halda áfram(?!> að veita þá aðstoð sem nauðsynleg er til þess að koma í veg fyrir neyðarástand vegna vetrarkulda í herskálum og öðru ófullnægjandi húsnæði. Til að hindra rannsókn og aðgerðir Borgarstjóra var bent á að fjöldi fólks myndi heldur líða kulda og vandræði, jafnvel sér og sínum til varanlegs heilsu- tjóns, heldur en leita á náðir framfærslunefndar. Samþykkt þessarar tillögu þýddi því það eitt að hjálpað yrði aðeins þeim sem kæmu biðjandi til fram- færslufulltrúa íhaldsins, í stað þess að allir ættu rétt á hjálp. Kvað Guðmundur Vigfússon tillögu borgarstjóra flutta til að hindra það að fram færi rann- sókn á ástandi bragganna. Þessir hindruðu rannsókn. Nafnakall varð um tillögu borgarstjóra. Þessir greiddu henni atkvæði: Björgvin Frederikssen, Guðmundur H. Guðmundsson, Gimnar Thoroddsen, Sveinbjöm Hannesson, Þorbjörn Jóhannesson (formað- ur Dýravemdunarfélagsins), Gróa Pétursdóttir, Jóhann Hafstein, Auður Auðuns, Björn Guðmundsson (Fram- sókn). Kvaðst hann gera það í þeirri von að íhaldið gerði nauð- synlegar ráðstafanir. Nei sögðu: Bárður Daníelsson, Petrína Jakobsson og Alfreð Gíslason. Hjá sátu: Guðmundur Vigfús- son, Þórunn Magnúsdóttir og Magnús Ástmarsson. M i nningarsj óður Olavs Brunborg Verkefni Minningarsjóðs Olavs Brunborgs stud. oecon. er að styrkja íslenzka efnalitla stúdenta og kandídata til nóma við háskóla eða hliðstæða menntastofnun í Noregi. Styrk- urinn er að þessu sinni 1500 norskar krónur. Umsóknir skal senda skrif- stofu Háskóla íslands fyrir lok febrúarmánaðar. Atta fulltrúum boðið í göngutór Á bæjarstjórnarfundinum í gær mætti Björn Guðmunds- son fyrir Framsóknarflokkinn. Beindi hann nokkrum spum- ingum til samstarfsflokks Framsóknar. Ein var sú hvernig á því stæði að sama og engar hellulagðar gang- stéttir væru í Vesturbænum. Borgarstjóri varð ekki rök- þrota fremur en fyrri daginn: Gangstéttir væru lagðar undir stjóra bæjarverkfræðings og væri sjálfsagt að spyrja hann og yfirverkfræðing hans (sem byggi í Vesturbænum) hverju .það sætti að Vesturbærinn hefði orðið útundan í gang- stéttalagningu! Björgvin Fredriksen reyndi að vera fyndinn líka og spurði Björn hvort hann vissi hvað Framhald á 11- c'ði' Skákkeppni Reykvíkinga og Haín- íirðinga á sunnudaginn Á sunnudaginn gengst Tafl- félag Reykjavíkur fyrir skák- keppni við Hafnfirðinga. Munu flestir . beztu skákmenn beggja staðanna taka þátt í keppninni, sem fer fram á 7 borðum. Hefst hún kl, 2 í Þórskaffi. Á sama stað og tíma Friðrik Ólafsson, skákmeistari Norðurlanda, tefla fjölskák á allt að 30 borðum; og eru þeir sem hugsa sér að taka þátt í fjöl- skákinni vinsamlega beðnir að hafa töfl með sér. Fyrir frumkvæði Pefrínar Jakobsson skorar bæjarstjóm á pósímálastjóm að koma upp póstafgreiðslum í stærstu útbverfum bæjarins Petrína Jaikobsson flutti tillögu um pað á bæjarstjórn- arfundi í gœr að bœjarstjórn fæli borgarstjóra að beita sér fyrir pví við póst- og símamálastjórnina að komið yrði upp póstafgreiðslum í stœrstu úthverfum bæjarins. Borgarstjóri brást skelfingu lostinn við og varð niður- staðan sú að bæjarstjórn skoraði á póst- og símamála- mun stjórnina að hraða pví að koma upp fyrrnefndum póst- afgreiðslum. Petrína ræddi vandræði þau sem hlotizt hefðu af póstaf- greiðsluleysinu í úthverfum bæjarins. Kvað hún þetta fyr- Uið dæmir ölvaða fanga að húka áfram s pestarholunni í JíjaUaramun þar til ný lögreglusföð hefur verið byggð eftir nokkur ár! Sigurður Guðgeirsson flutti tillögu í bæjarstjórninni 6. p.m. um að koma upp hið allra fyrsta hjúkrunar- og gœzlustöð fyrir menn sem teknir eru úr umferð vegna ölvunar. Sjálfstæðisflokkurinn sampykkti í gœr að slíkt skyldi ekki gert — fyrr en ný lögreglustöð hefur verið byggð, en pað getur tekið nokkur ár að hún komist upp. Á fundinum 6. þ. m. frestaði Sigurður tillögunni þar til fyrir lægi umsögn lögreglustjórans um málið. Á bæjarstjómarfundi í gær kvað borgarstjóri umsögn hans liggja fyrir. Lögreglustjóri teldi kjallarann með öllu ófull- nægjandi, en ókleift væri að fá húsnæði til þess er í tillögu Sigurðar fælist og yrði þvi að byggja nýtt hús. Verið væri að teikna lögreglustöð, og ætti hún að vera þannig að hægt væri að byggja hana í áföngum og legði hann áherzlu á að byrjað yrði á þeim hluta hennar þar sem fangageymslan yrði. Borgarstjóri kvað því ljóst að ekkert væri hægt að gera í mál- inu nema bíða. Harmaði uppgjöfina Sigurður Guðgeirsson kvaðst harma það að lögreglustjóri hefði gefizt upp við leit að bráða- birgðahúsnæði fyrir ölvaða fanga og sér þætti leitt að borgar- stjórinn tæki nú undir það upp- gjafasjónarmið. Hann kvaðst hinsvegar telja hægt að leysa málið ef nægur vilji væri fyrir hendi. Ástandið í áfengismál- unum væri þannig að slíkt væri óhjákvæmilegt, Nýja áfengislög- gjöfin hefði þegar sýnt að ekki minnkaði drykkjuskapur ung- linga við framkvæmd hennar, heldur þvert á móti. 1 Borgarstjóri heiðraði hann ,JÉg skora sérstaklega á kon- urnar í bæjarstjórninni að bregð- ast ekki þeim mæðrum sem hafa orðið að standa í því að taka á móti sonum sínum og dætrum upp úr þessari óþverraholu sem „kjallarinn er“, sagði hann. „Og ég vona sérstaklega að slysa- vamakonan bregðist ekki“. Var ræða hans rökföst og sköruleg, svo langt er síðan ræða hefur verið eins snjallt flutt í bæjar- stjórninni, enda heiðraði borg- arstjóri Sigurð þegar með því að kalla ræðu hans „æsinga- ræðu“. I Banvæn hola og siðspillandi Alfreð Gíslason benti á að stórt hús hefði árum saman stað- ið autt í Kópavogi, e. t. v. mætti fá það. „Eigum við að reyna að fá bráðabirgðahúsnæði, eða eig- um við að láta skeika að sköpuðu í nokkur ár enn, meðan verið er að byggja nýja lögreglustöð. Lög- reglukjallarinn er banvæn hola og siðspillandi“. Að loknum umræðum sam- þykktu íhaldsfulltrúarnir 8 að vísa tillögu Sigurðar Guðgeirs- sonar frá, 6 fulltrúar minnihluta- flokkanna greiddu atkvæði gegn því en 1 sat hjá. irkomulag, að hafa aðeins eitt pósthús í Reykjavík löngu úr- elt og hvergi þekkjast í borg sem byggð væri á jafn víðu svæði og Reykjavík. Væri það úthverfabúum brýn nauðsyn að þessu yrði kippt í lag bráðlega og myndi auk þess póstþjón- ustunni miklu hagkvæmara einnig að koma upp nokkrum póstafgreiðslum. Borgarstjóri virtist fyrst skelfingu lostinn, en gerði síð- an nokkrar jafnvægisæfingar í skólaspeki og kvað „æði mikið í ráðizt að ætla mér að takaað mér þessar byggingar"!!! (þ.e. ný pósthús), enda heyrði þetta undir póstmálastjóra en ekki sig! Petrína minnti hann á að í tillögunni væri ekki eitt orð um það að hann ætti að byggja nokkurn skapaðan hlut heldur aðeins „beita sér fyrir þvi við póst- og símamálastjóra að komið verði upp póstafgreiðsl- um í úthverfunum." Kvaðst Petrína jafnvel efast um að hann þyrfti sjálfur að skrifa bréfið til póstmálastjóra um þessa samþykkt! Borgarstjóri virtist skilja að skólaspekin hefði brugðizt og flutti þá tillögu um að „bæjar- stjórn skori á póst- og síma- málastjóra að koma upp póst- afgreiðslum í úthverfunum". Petrína stóð upp brosandi og kvaðst taka sína tillögu aftur. Var tillaga borgarstjóra sam- þykkt með öllum atkvæðum. (Hefði Petrína strax flutt slíka tillögu er nokkurnveginn víst að íhaldshendurnar 8 hefðu vísað henni frá — til bæjarráðs!!). PUenndu efni blandað í olíu Með tveggja ára tilraunym í Bandaríkjunum og Englandj hef- ur verið fundin upp plast-olía, sem haldið er fram að marki tímamót og hafi mikla þýðingu fyrir bifvélina. Með því að bæta plastkenndu efni í olíu hefur verið framleidd vélaolía, sem full- yrt er að minnki slit venjulegrar bifvélar um 80%. Fyrst og fremst ætti þetta að þýða að með hinni nýju olíu sé hægt að aka tvöfalda vegalengd milli aðalviðgerða. Sama olía sumar og vetur. Hin nýja olía kom á markaðinn hérlendis nýlega hjá BP olíufé- inu og heitir „ENERGOL VISCO- STATIC". Hefur hún þann eigin- leika að smurningurinn varðveit- ist óbreyttur þrátt fyrir hita- breytingar. Þannig þarf ekki að skipta um olíu á veturna og jafn- vel við gangsetningu í frosti er því haldið fram að nýja olían sé svo þunn að einvörðungu sé um lágmarksslit á vélinni að ræða. Ella er reiknað með að bifvél verði fyrir jafnmiklu sliti fyrstu 5—10 mínúturnar eins og við 5—7 klukkustunda akstur eftir að hún er orðin heit. Sérfræðingar hafa notað geisla- virka stimpilhringi í sambandi við Geiger-teljara til að mæla vélaslitið þegar nýja olían er notuð. Sýna tækin sérhverja ögn, sem slitnar við akstur, þannig að lítil sprenging heyrist. Þá hefur og mælst benzinsparnaður, sem nemur 5—10% yfirleitt og upp í 18% í innanbæjarakstri. Stafar það af minni núningsmótstöðu. , ,v Nyja olian er mun dyrari en venjuleg bifreiðaolía, en því er hinsvegar haldið fram að sá mis— munur sé lítill hjá véla- og ben-» zínsparnaðinum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.