Þjóðviljinn - 21.01.1955, Blaðsíða 5
Föstudagur 21. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Japönskum elskendum bjargað
& ...„íssa
ef tir 33 stunda vist í eldgíg
Ætluðu að svipta sig lííi en hittu ekki í
hraunleðjuna
Japanskir lögregluþjónar björguðu um síðustu helgi
elskendum, sem hafzt höfðu við í 33 stundir í kraumandi
eldgíg.
2250 km bílvegur yfir „þak heimsins“ ! í
Um púsundir ára hafa
jakuxalestir borið allan
pungaflutning til og frá
Tibet, háfjallalandinu í
Mið-Asíu. Lestaferðin frá
borgum Kína til Lhasa,
höfuðborgar Tíbet, tók
marga mánuði. Nú er orð-
in gagnger breyting á
Nýtt gerviefni
sem lofar góðu
í Vestur-Þýzkalandi hefur
verið framleitt nýtt gerviefni,
sem sagt er að muni valda bylt-
ingu í vefnaðariðnaðinum. Efni
þetta heitir terylene og er búið
til úr olíu. Terylene er létt sem
fiður og blettast ekki.
Dúkur úr þessu efni var til
sýnis á tízkusýningu í vefnað-
arbænum Krefeld, sem haldin
var fyrir nokkrum dögum, og
framleiðsla þess í stórum stíl
er þegar hafin. Haldið er fram,
að auðvelt sé að þvo jafnvel
rauðvíns- og blekbletti úr efn-
inu með köldu vatni.
Karlmenn þurfa ekki lengur
að hafa áhyggjur af brotinu í
buxunum, því það held-
ur sér algerlega, enda þótt þær
séu þvegnar. Efnið er sagt hafa
ýmsa aðra kosti.
samgöngumálum Tíbet-
búa. Sumarið 1951 tóku
kínverskir vegaverkfrœð-
ingar og vegagerðarmenn
að leggja 2250 kílómetra
langan bílveg frá Kína til^
Lhasa yfir Sikang-Tíbet
hásléttuna, sem nefnd hef-
ur verið „þak heimsins“.
Unnið var frá báðum veg-
arendum og 27. nóvember
í vetur mættust vegagerð-
a.rhóparnir og fyrsta bíla-
lestin gat ekið til Lhasa
með matvæli, lyf og vélar
sem Tíbetbúa vanhagar
um.
Vegurinn liggur í 4000
metra hæð yfir sjávarmál
um 10 fjallgarða þar sem
snió leysir aldrei at hæstu
tindum. Brúa varð gín-
a.ndi árgliúfur og á löng-
um kaíla varð að sm-engia
f'iirir veginum í hengifluai.
Á löngnm köilum er vea-
arotœðið gróðurlaus evði-
mnrk.
Á annarri mvndinni
siást vegagerðarmennirnir
hanga eins og fluaur ut.an
í snarbröttum klettum tU
þess að koma par fvrir^
sprengiefni. Hin myrvdin
er af fyrstu bílalestinni
er fór veginn, þar sem hún
bugðast niður sneiðinga á
leið til Lhasa.
Fölsuðu vegg-
múlverk
Réttarhöld standa nú yfir í
Lúbeck í Vestur-Þýzkalandi yfir
tveim listamönnum, sem eru á-
kærðir fyrir að hafa falsað lista-
verk. Krafizt hefur verið, að hvor
þeirra verði dæmdur í 2 ára og
6 mánaða fangelsisvist fyrir svik
og fölsun.
Listamennirnir, Lothar Malskat
og Dietrich Fey, voru eftir stríð-
ið ráðnir til að gera við veggmál-
verk í hinni 700 ára gömlu
Maríukirkju í Lúbeck, sem varð
fyrir skemmdum í stríðinu. Nú
eru þeir sakaðir um að hafa sjálf-
ir málað 21 stóra dýrlingamynd
í kór kirkjunnar, sem þeir lýstu
yfir að væru myndir frá miðöld-
um, sem þeir hefðu fundið undir
Framhald á 8. síðu
Gígur þessi, sem nefndur er
Sjálfsmorðsgígurinn, er í fjall-
nu Mihara á smáeynni O-
shima 80 km frá Tokyo.
Elskendurnir ætluðu að fylgj-
læmi margra annarra og svipta
sig lífi með því að fleygja sér
i vellandi hraunleðjuna á gíg-
óotninum.
Stökkið mistókst þó, þvi að
5nös sem stóð út úr gígbarm-
num varð fyrir þeim í fallinu
ig þau stöðvuðust í vikur-
írúgu nokkurn spöl frá hraun-
eðjunni.
Sjö sjálfboðaliðar úr lög-
•egluliðinu bundu sig saman
>g klifruðu niður snarbrattan
g 100 metra háan gígbarm-
m til þess að bjarga elskend-
mum. Aðeins tvisvar áður lief-
ur verið farið niður á botn
gíg þessum. I bæði skiptin
voru leiðangursmenn vandlega
útbúnir með gasgrímur fyrir
andliti og í hlífðarfötum. í
annað skiptið létu menn sig
þar að auki síga niður í stál-
búri.
Lögregluþjónarnir gáfu sér
ekki tíma til að bíða eftir slík-
um útbúnaði, heldur höfðu
hraðan á að sinna neyðaróp-
um elskendanna, þeir létu sér
nægja að vefja handklæðum
um höfuð sér til að verja vit
sín fyrir mestu brennisteins-
svælunni, sem leggur upp úr
gígnum.
Undir forystu rannsóknarlög-
regluþjónsins Tomosaburo Sus-
uki fundu þeir Satoru Takaj-
angi og unnustu hans, frammi-
stöðustúlkuna Setsumi Endo,
liggjandi á gígbotninum. Karl-
maðurinn var lerkaður en að
mestu óskaddaður. Konan var
öklabrotin. og blóði drifin.
Þau voru dregin upp úr gígn-
um í vað.
Tveim dögum áður hafði
Sasuki lögregluþjónn séð elsk-
endurna á vakki í grennd við
gíginn og tekið þau tali, því að
hann grunaði að þau ætluðu að
fyrirfara sér. Elskendumir
báðu hann að láta sig af
skiptalaus.
Nokkru síðar var sírnað frá
veitingaskála í fjallshlíðinni,
að angistaróp heyrðust upp úr
gígnum. Var þá brugðið við og
björgunarleiðangur undirbúinn.
Takaiangi sagði að hannværi
berklaveikur og hefði þeim unn-
ustu hans komið saman um
að ráða sig af dögum þar sem
þau álitu að hann væri ólækn-
andi. Eftir hrapið niður gíg-
banninn tókst þeim að skreið-
ast yfir í hinn gígbarminn,
þar sem meiri líkur voru til
að þeirra yrði vart. Allar
sjálfsmorðshugsanir voru fokn-
ar út í veður og vind, sjáifs-
bjargarhvötin varð öllum
þjáningum yfirsterkari.
1 €(o«ooo leyni-
krár I Helgfsi
Klofningur er kominn upp í
þingflokltum þeim sem styðja
rikisstjórnina í Belgíu og er á-
stæðan tillaga um breytta á-
fengislöggjöf. Sex þingmenn úr
frjálslynda flokknum bera
nefnilega fram frumvarp um
að aflétta hömlum sem verið
hafa á áfengisneyzlu í landinu
síðan í lok heimsstyrjaldarinn-
ar fyrri. Ýmsir af þingmönn-
um sósíaldemókrata, er standa
að ríkisstjórn með frjálslynd-
um, hafa snúizt gegn frum-
varpinu.
Nú er ekki leyft að neyta.
áfengis í Belgíu á öðrum stöð-
um en í heimahúsum eða í lok-
uðum klúbbum. Flutningsmcnn
segja, að þessar hömlur séu
ekkert annað orðnar en hræsn-
in tóm, vegna þess að þeim sé
ekki framfylgt. Bera þeir fyrir
sig skýrslur um að í Belgíu.
séu 100.000 ólögleg veitinga-
hús, sem látið sé heita að séu
klúbbar en selji í raun og veru
áfengi hverjum sem hafa vilji.
Þar læri æskan „fjárhættuspil,
eiturlyf janautn og svalllifnað“.
I stað þessa vilja flutningsmenn
leyfa opinberar vínveitingar þar
sem komið verði við eftirliti.
Hpkmarkonur
ger? verkfall
Hjúkrunarkonur í sjúkrahús-
um finnska ríkisins hafa lýst yf-
ir verkfalli til að knýja fram
kaupkröfur. Af 1350 hjúkrunar-
konum á þessum sjúkrahúsum
hafa meira en 1000 lagt niður
vinnu og hefur sumsstaðar orðið
að hætta að taka á móti sjúk-
lingum. Verkfallið nær ekki til
sjúkrahúsa bæjarfélaga né einka-
sjúkrahúsa.