Þjóðviljinn - 21.01.1955, Side 6

Þjóðviljinn - 21.01.1955, Side 6
B) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 21. janúar 1955 þlÓÐVIUINN Útgefandi: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Rltstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfl Ólafsson. Auglýslngastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (3 Unur). Áskrlftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Samningsuppsögn og kjarabarátta Ráðstefna 39 verkalýðsfélaga úr Reykjavík og nágrenni samþykkti í fyrrakvöld með öllum greiddum atkvæðum gegn aðeins 1 að leggja til við félögin að þau segi upp gildandi kjarasamningum sínum við atvinnurekendur fyrir næstu mánaðamót, þannig aö þeir verði útrunnir 1. marz n.k. og félögin geti þá knúið fram þær kjarabætur sem þau telja viðhlítandi fyrir meðlimi sína. Og ráðstefnan lýsti jafnframt yfir því stefnumarki að verka- lýðsfélögunum bæri að miða hina fyrirhuguðu kjarabaráttu við að knúin yrði fram næg kauphækkun og kjarabætur aðrar sem til þess duga að tekjur átta stunda vinnudags hrökkvi til mann- sæmandi framfærslu meðalfjölskyldu. Með þessari ákvörðun hefur stefnan verið mörkuð. Þótt ráðstefnan sem slík hefði ekki formlegt vald til að ákveða samningsuppsögn er enginn efi á, að allur þorri þeirra verkalýðsfélaga sem að henni stóðu mun afgreiða þetta mikilsveröa mál í samræmi við nær einróma ályktun ráð- stefnunnar. Þarna báru helztu forustumenn verkalýðsfélaganna í Reykjavík og nágrenni saman ráð sín og komust að þeirri niðurstöðu að samningsuppsögn væri óhjákvæmi- leg til þess að rétta hlut vinnandi fólks og skapa því líf- vænlegri kjör. Slík svo til einróma niðurstaöa fremstu for- vígismanna verkalýðssamtakanna hlýtur óhjákvæmilega að verða stefnumarkandi þegar félögin hvert um sig ræða málið og taka sína endanlegu ákvörðun. Þess vegna má ganga út frá því sem vísu að allur þorri félaganna sem geta sagt upp samningum fyrir næstu mánaðamót geri það á þeim 10 dögum sem eru til stefnu. Það var sjálfsagt og nauðsynlegt að verkalýðsfélögin bæru saman ráð sín áður en hvert einstakt félag tæki afstöðu. Mið- stjórn Alþýðusambandsins og stjórn Fulltrúaráðs verkalýðsfé- laganna í Reykjavík gerðu því tvímælalaust rétt þegar þær á- kváðu að hafa forgöngu um sameiginlega ráðstefnu verkalýðs- íélaganna til þess að ræða meðferð samninganna og marka þá stefnu sem tekin yrði. Engum mun koma á óvart sú ákvörðun verkalýðsfé- laganna að segja nú upp samningum og leggja út í bar- áttu fyrir kauphækkun og kjarabótum. Þar er ekki að neinu flanað að óyfirlögöu ráði eða að nauðsynjalausu. Hitt er sönnu nær aö verkalýðssamtökin hafi sýnt mikla stillingu og fyllsta umburðarlyndi með því að segja ekki upp samningum fyrr, svo mjög sem á hlut þeirra hefur verið gengið með áframhaldandi dýrtíðarskrúfu og sí- auknum álögum á almenning. Vöruverð hefur hækkaö iast og stígandi í skjóli algjörs afskiptaleysis stjórnar- valdanna, sem gefið hafa braskara- og fjárplógsöflunum lausan tauminn. Og sjálf stjórnarvöldin hafa beinlínis haft forustu um aukna dýrtíð og álögur. Er þar skemmst að minnast rafmagnshæjckunarinnar miklu sem skellt var á af bæjarstjórnaríhaldinu á s.l. hausti, algjörlega að nauðsynjalausu. Enn' hafa sjúkrasamlagsgjöld verið hækkuð, ákveðin hækkun strætisvagnagjalda o.s.frv. Til- finnanlegast af öllu er þó húsaleiguokrið, sem stjórnar- völdin eiga beina sök á með stefnu sinni og aðgerðum í húsnæðismálum. Er nú svo komið að ætli launamaöur sér þann ,,lúxus“ að búa í mannsæmandi húsnæði verður hann að horfa á eftir allt að helmingi teknanna í okur- hítina. Eins og komið er hefur eina úrræði hins vinnandi manns verið að leggja nótt með degi, verja hvíldartíman- um til teknaöflunar sem nægðu fyrir nauðsynlegustu þörfum. En við þaö getur verkalýðuiinn ekki unað þegar til lengdar lætur. Krafan er reist um að tekjurnar af eðli- legum og umsömdum dagvinnutíma verði hækkaðar svo að þær nægi til lífsframfæris fjölskyldunni. Um þá kröfu munu verkalýðsfélögin skipa sér með því aö framkvæma ályktun ráðstefnu sinnar um samningsuppsögn. Fjöld- ans í samtökunum og alls almennings er aö skipa sér í órofa fylkingu um sanngimískröfur verkalýðsins og styðja framgang þeirra. Eining um uppsögn samninganna og kröfur samtakanna er öruggasta leiðin til aö tryggja skjótunninn og árangursríkan sigur. Albert Schweitzer í Lambarene; til vlnstri í skrifstofu sinni að rita bók sína Heimspekl menningarlnnar; til hægri hugar hann að einum sjúklingi sínum. Nýlega las ég ritgerð eftir hinn kunna vesturþýzka blaða- mann Friedrich Sieburg um Hetjur aldar vorrar. Meðal þeirra nefndi hann — Lind- berg og hertogann af Wind- sor. Ég veit ótal menn, nafn- kunna sem óþekkta, er fyrr bæri að lofa en þessa tvo: annar þeirra er ekki aðeins kunnur fyrir það íþróttaaf- rek að fljúga fyrstur manna yfir Atlanzhafið og fyrir mik- ilvægt framlag í þágu hjarta- r- rannsókna, heidur einnig fyr- ir lofræður sínar um fasism- ann; eftir timabil þjóðfélags- legrar sveimhyggju hlaut hinn að 'afsala sér konungdómi vegna óviðurkvæmilegrar ást- ar og gerðist síðan stöndugur ferðalangur og áhrifamikið nafn í tízkuheiminum. 1 dag ætla ég að tala um 3ja mann- inn, sannarlega hetju, sem telst til hinna kyrrlátu og yfirlætislausu og hefur raun- ar mælt bitur orð um hetju- dóm. Einstein hefur nefnt hann mesta mann sem nú er uppi. Er Albert Schweitzer ákvað, þrítugur að aldri, að hefja öðru sinni læknisfrjeðinám, í því skyni að búa sig undir sjálfvalið starf sem trúboðs- læknir í Afríku, hafði hann þegar verið háskólakennari, var orðinn heimskunnur org- elleikari og hafði grundvallað vísindafrægð sína með verk- um um ævi Jesú og hinni miklu bók um Bach. Um svip- að leyti kvæntist hann. Hvað kom til að þessi maður, sem kominn var frá upplýstu prestsheimili, fórnaði borg- aralegu lífi sínu og öruggum frama og hvarf út í óvissu hitabeltisskógarins ? Schweitzer ritar í æviminn- ingum sínum: Aus meinem Leben und Denken, bók sem maður les með sínýjum á- vinningi: „Hugur* minn stóð skilyrðislaust til persónu- legra og sjálfstæðra athafna. Þótt ég væri ráðinn í að fórna kröftum mínum einum eða öðrum félagsskap, ef ■j nauðsyn krefði, sleppti ég ekki þeirri von að finna að lokum starf sem ég gæti helg- að mig sem algjörlega frjáls einstaklingur. Uppfylling þess- arar þrár hef ég ævinlega skoðað sem mikla náð er hef- ur verið mér síný". 1 Schweitzer braim löngun til að gernýta hæfileika sína, í starfi og hugsun; í fjórum stórum ræðum, er hann hefur haldið á ýmsum skeiðum æv- innar, hefur hann játazt orði Goethes: í upphafi var at- höfnin. Eitt sinn skrifaði hahn: „Tvennskonar reynsla varpar skugga yfir líf mitt. önnur felst í viðurkenningu þess að veröldin sé óútskýr- anlega leyndardóms- og þján- ingarfull, hin í þeirri tilfinn- ingu að ég sé fæddur á hnign- unarskeiði mannlegs anda". Það er ekki lengur öld Fausts. Leið Schweitzers til Afríku táknar uppreisn hans gegn því andleysi sem niðurlægir manninn á vélstigið — hún táknar örvæntingarfulla til- raun til að bjarga hinum al- hliða persónuleik hans, hinni mannúðlegu viljastefnu hans. Hugsuðurinn Schweitzer hef- ur aldrei dregið neina dul á það, að hann vitjaði ekki heimshluta svertingjanna sem tungutalandi postuli, heldur laðaði hann þrá til staðar þar sem enn væri unnt að lifa eins og maður. Þetta skýrist af tveimur sérkennandi atrið- um í ákvörðun hans. Hann fór ekki til Lambar- ene sem trúboði, þótt hann væri guðfræðingur og prest- ur, heldur sem læknir. Hann varð meira að segja að skuld- binda sig gagnvart trúboðsfé- laginu til að fleipra ekki með guðsorð, þar eð frjálslyndis- leg túlkun hans á kristin- dómnum var ekki í hávegum höfð. Að sjálfsögðu hefði hann getað leitað sambands við kreddulausara trúboðs- félag, þar sem hann stóð líka fjárhagslega á eigin fótum, sem rithöfundur og hljómlist- armaður —s en einmitt hér kaus hann að brjóta sér braut. „Sá sem tekur sér fyr- ir hendur að koma góðu til leiðar, skyldi ekki bíða þess að einmitt fyrir þá sök ryðji aðrir menn steinum úr vegi hans, heldur skyldi hann jafn- vel gera ráð fyrir því að þeir gerist honum þrándur í götu“. í franzískri auðmýkt kaus hann sér leið starfandi krist- indóms, veg hins miskunn- sama Samverja, á sama hátt og guðfræðirit hans leggja frumáherzlu á siðaboð krist- innar trúar, á kærleikann til náungans. I Lambarene kom eitt sinn sú spuming upp, hverja afstöðu kristnaður svertingi ætti að hafa til fjöl- kvænis. Schweitzer var á ann- arri skoðun en trúboðamir sem kröfðust einkvænis. Hvað átti þá að verða um kon- urnar? Átti að senda þær aftur til baka inn í fmm- skóginn, til fjölskyldna þeirra sem hvorki vildu sjá þær né heyra? Schweitzer hélt því fram að það yrði að byrja á því að útskýra ungum ókvænt- um mönnum, að einkvæni hæfi bezt virðingu mannsins. Hann er mjög raunsær maður, og því hefur hann einnig haf- izt handa um „smærri" fram- kvæmdir, svo sem koma upp lyfjabúðum, matvælastöðvum og bröggum. Og hann lék ekki aðeins á orgel og skrifaði vís- indaleg verk um hljómlist, held ur fékkst hann einnig við org- elsmíði og orgelviðgerðir; um hann hefur verið sagt í spaugi: I Afríku gerir hann Framh. á 8. síðu. Jörgen Riihle: Góði maðurinn frá LAMBAREM

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.