Þjóðviljinn - 23.01.1955, Síða 1

Þjóðviljinn - 23.01.1955, Síða 1
 Sunnudagur 23. janúar 1955 — 20. árgangur — 17. tölublað Þjóðvaritarflokkurinn snýst gegn því að verkafólk fái nokkra kauphækkun Fyrír nokkrum vikum greiddu þingmenn flokksins afkvœSi með grunnkaups- hœkkun til opinberra starfsmanna í síðasta blaði Frjálsrar þjóðar lýsir Þjóðvarnar- ílokkurinn yfir því að tiann sé því algerlega andvíg- ur að verkafólk fái nokkra kauphækkun. Það myndi skapa „glundroða og efnahagslegt öngþveiti" og verða tilefni til gengislækkunar. Þess í stað eigi að „lækka dýrtíðina". Málgagn Þjóðvarnarflokksins ber þannig fram nákvæmlega sömu „röksemdirnar" og blöð stjómarflokkanna og beitir sama orðbragðinu. Þetta er þeim mun athyglisverðara sem þingmenn Þjóðvarnarflokks- ins greiddu atkvæði með grunnkaupshækkunum opin- berra starfsmanna á þingi fyrir jólin og þar með með því að hæstlaunuðu starfs- mennirnir fengju hæstar uppbætur. Þeir fylgdu einn- ig athugasemdalaust tillögu sósíalista um að uppbæturn- ar til láglaunaðra starfs- manna yrðu mun hærri. Þeir minntust ekki á það einu orði að af því myndi skapast „glundroði og efna- hagslegt öngþveiti". Þeir héldu ekki eina einustu ræðu um það að þessi grunn- kaupshækkun myndi vera tilefni gengislækkunar. Og þeir ympruðu ekki einu sinni á því að í stað þess að hækka grunnkaup opinberra starfsmanna vræri rétt að Iækka dýrtíðina. Styðja enn grunnkaups- hœkkanir. Svo að annað dæmi sé nefnt hafa barnakennarar undanfar- ið borið fram kröfur um sjálf- sagðar og óhjákvæmilegar Flokkurinn Deildarfundir verða í öllum deildum annaðkvöld klukkan 8.30 e.h. á venjulegum stöðum. kjarabætur. Þeir hafa talað um 4000 kr. kaup á mánuði sem algert lágmark fyrir sig og fært að því full rök. Þessar yf- irlýsingar bamakennara hafa verið birtar í Frjálsri þjóð og blaðið hefur lýst fullum stuðn- ingi við þær — án þess að minnast á glundroða, efna- hagslegt öngþveiti, gengislækk- un eða að rétt væri að dýrtíðin yrði lækkuð í staðinn. Aðeins ekki peir lægst- launuðu. En um leið og hinir lág- launuðu verkamenn Dags- brúnar bera fram kröfur nm hækkað kaup snúast forustu- menn Þjóðvamarflokksins öndverðir og beita sér gegn því með kjafti og klóm — og hirða hráar áróðursgrein- ar upp úr stjórnarblöðun- um. Afstaða þeirra virðist þannig vera sú að sjálfsagt sé að allar stéttir þjóðfé- lagsins fái kauphækkun, allt upp í hæstlaunuðu starfs- menn hins opinbera, — nema verkafólkið sem býr við rýrust kjör allra stétta þjóðfélagsins. Hvaða glundroða myndi pað va\lda? Og Frjáls þjóð er svo ósvíf- in í andstöðu sinni við réttindi verkafólks að blaðið tekur und- ir þann áróður stjórnarblað- anna að kauphækkun þeirra lægstlaunuðu myndi leiða til Framhald á 3. síðu. Bandaríkjastjórn staðráðin að flytja her Sjangs frá Tasjen Stefnir her- og flugvélaskipum til Formósusunds Það er nú ljóst, að Bandaríkjastjóm er staðráðin í að flytja burt herlið Formósustjórnarinnar frá eyjum við strönd meginlands Kína. Knowland, leiðtogi repúblik- ana í öldungadeild 'Bandaríkja- Ríkisstjórn íslands vill semja við Svía Hefur tilkynnt að hún sé íús að ræða um nýjan loftferðasanuiing Ríkisstjórn íslands hefur tilkynnt sænsku stjórninni að hún sé fús að hefja viðræöur um nýjan loftferðasamn- ing milli landanna. Oslóarútvarpið skýrði frá þessu í gærkvöld, en Þjóðvilj- aniun hafði þá ekki borizt nein fréttatilkynning frá ríkisstjóm- inni um þetta. Sænska stjómin sagði upp loftferðasamningnum, sem ver- ið hefur í gildi milli Islands og Svíþjóðar undanfarin ár, nú um áramótin. Ekki hefur verið tal- inn neinn vafi á því, að upp- sögnin sé runnin undan rifjum sænsk-norsk-danska flugfélags- Algert verkfall í Ruhrhéraði í gær Verkfall námuverkamanna og stáliðnaðarmanna í Ruhrhéraði síðasta sólarhring var algert. Fréttamenn segja, að nærri því hver éinasti verkamaður sem verkfallsboðunin náði til, hafi lagt niður vinnu, aðeins örfáir menn, sem annast viðhald í nám- unum og gæta þess að þær fyllist ekki af vatni, mættu til vinnu og var það með samþykki verkfalls- leiðtoga. Ekki kom til neinna árekstra og allt fór friðsamlega fram. Adenauer minntist á verkfallið í ræðu sem hann flutti í gær og fordæmdi það, enda þótt hann segðist ekki geta tekið undir þau ummæli, sem voru tilefni þess: að verkalýðshreyfingin hefði knú- ið fram vinnulöggjöfina frá því 1951 með ofbeldi og þvingunar- aðferðum. Ummæli þessi eru höfð eftir einum af leiðtogum vinnu- veitenda í Ruhrhéraði. ins SAS, sem óttast mjög sam- keppni Islendinga á flugleið- inni frá Norðurlöndum til Norður-Ameríku. þings, ræddi í gær við Eisen- hower forseta í Hvíta húsinu. Eftir fund þeirra var tilkynnt, að Eisenhower myndi á morgun leggja fyrir þingið tillögur um hvernig framkvæma bæri stefnu Bandaríkjanna varðandi varnir Formósu og fara þess á leit að þingið veitti honum heimild til ákveðinna aðgerða. Sá einn skilningur er lagður í þessa tilkynningu, að þingið verði beðið um að samþykkja að herlið Sjangs á eyjum við strönd Kína verði flutt á brott. Knowland sagði eftir fund þeirra Eisenhowers, að yfir- gnæfandi meirihluti þingsins myndi veita stjórninni heimild Framhald á 5. síðu Dagsbrónarfund-1 nrmnsanmings- nppsögn á fimmtu dagskvöld Verkamannafélagið Dags— brún heldur fund n.k. fimmtu— dag, 27. þ. m. í Iðnó. Á þessum fundi verður tek- in ákvörðun um uppsögn. samninga félagsins við at— vinnurekendur Dagsbrúnarmenn ættu að fjölmenna sem allra mest á þennan félagsfund. Verkamenn þurfa að sýna einhug og styrk- leika þegar í upphafi, með því er lagður grundvöllur að ár- angursríkum sigri þegar til baráttunnar kemur fyrir þeim kjarabótum sem verkalýðs- stéttin þarf nú að knýja fram. Dagsbrúnarmenn! Ráðstafið ekki fimmtudagskvöldinu til annars en að sækja félags- fundinn! Fjölmennið í Iðnó og vinnið að því að fundurinn verði sem f jölsóttastur. Kvennaráðstefna A.S.L hófst í gær Verkakvennaráðstefna Al- þýðusambandsins var sett í Eddu- húsinu í gær kl. 2. Forseti ráð- stefnunnar var kosin Herdís Ól- afsdóttir frá Akranesi, en ritari Halldóra Guðmundsdóttir Reykjavík. Mættir voru til þings 14 full- trúar, og er það nokkru færra en gert hafði verið ráð fyrir, og mun ófærð valda. Fleiri fulltrúar munu væntanlegir í dag. Forseti Alþýðusambandsins, Hannibal Valdimarsson, setti ráðstefnuna og flutti framsögu- ræðu um þau verkefni sem hún mun fjalla um. Eftir það hófust umræður. Fundinum í gær lauk með því að kosin var níu manna nefnd er undirbúi ályktanir fyrir fundinn sem hefst kl. 2 í dag. Starfsmenn Vegagerðarinnar í alla fyrrinótt að hjálpa bílum af Hellisheiði Krýsuvikurlei&in fœr — Hvalfjar3arlei&- in lokuS en unniS a& opnun hennar i gœr Vegir út úr bœnum voru nœr undantekningarlaust ó- fœrír eða lítt fœrir í gærmorgun. Hellisheiðin var farin í fyrradag og voru staxfsmenn Vegagerðarinnar a& hjálpa bílum niður af heiðinni til beggja hliða í alla fyrri nótt til kl. 7 í gœrmorgun. Suðurnesjavegurinn varð einnig ófœr, aðallega á Vatns- leysuströndinni. Um tíma munu 50—100 bílar hafa ver- ið fastir par. Vegagerðin sendi menn og vélar pangað og munu flestir hafa verið komnir leiðar sinnar kl. 3—4 í fyrrinótt. Innanbæjar í fyrrakvöld töfðust strætis- vagnarnir á leiðum sínum og komust jafnvel ekki á endastöðv- ar á sumum leiðunum. í gær- morgun áttu þeir einnig í erfið- leikum. Hellisheiðin. Hellisheiðin var farin í fyrra- dag og reyndi Vegagerðin að halda leiðinni opinni og voru starfsmenn hennar sem fyrr seg- ir að hjálpa bílum niður af heið- inni til kl. 7 í gærmorgun. í gær var að sjálfsögðu ekki reynt að fara Hellisheiðina. Krýsuvíkurleiðin. Sendir voru menn og vélar frá Sósíalistafélag Hafnarfj.: Umræður um bæjarmál Sósíalistafélag Hafnarfjarðar efnir til umræðufundar um bæj- armál annað kvöld. Fundurinn verður að Strandgötu 41, og hefst kl. 9. Þess er vænzt að sem flestir félagar mæti á fundinum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.