Þjóðviljinn - 23.01.1955, Page 10

Þjóðviljinn - 23.01.1955, Page 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 23. janúar 1955 Erich Maria REMABQUE: m m m mmmog deyja 36. dagur Hann gekk upp stigann. Það var dimmt í ganginum. Kruse læknir átti heima á annam hæð. Gráber mundi varla eftir honum, en hann vissi að móðir hans hafði ■ nokkrum sinnum gengið til hans. Ef til vill hafði hún verið hjá honum nýlega og hann hefði heimilisfang hennar. Miðaldra kona með óskýra andlitsdrætti opnaði dyrn- • ar. „Kruse? Ætlið þér að finna Kruse lækni?“ „Já“. Konan horfði þegjandi á hann. Hún hreyfði sig ekki til að hleypa honum inn. „Er hann heima?“ spurði Gráber óþolinmóðlega. Konan svaraði engu. Hún virtist vera að hlusta á eitthvað annars staðar í húsinu. „Eruð þér að finna hann sem lækni?“ spurði hún loks. „Nei. í einkaerindum“. * „Einkaerindum?" 1 „Já, einkaerindum. Eruð þér frú Kruse?“ „Guð forði mér frá því“. Gráber starði á hana. Fyrr um daginn hafði hann rekizt á öll afbrigði varúðar, haturs og undanbragða, en þetta var nýtt. „Heyrið þér“, sagði hann. „Ég hef engan áhuga á hvað ykkur hefur farið á milli. Ég þarf að tala við Kruse lækni, það er allt og sumt. Getið þér skilið það?“ ' „Kruse býr ekki lengur hér“, sagði konan hárri og fjandsamlegri röddu. „En nafn hans stendur þarna“. Gráber benti á látúns- plötu við dyrnar. „Þessi plata hefði átt að vera tekin burt fyrh’ löngu“. „En hún er þarna. Eru einhverjir úr fjölskyldunni hér enn?“ Konan svaraði engu. Gráber var nóg boðið. Hann var að því kominn að segja henni að fara til fjandans, þegar hann heyrði dyr opnast í íbúöinni fyrir innan hana. Ljósgeisli féll fram í dimman ganginn. „Er einhver að finna mig?“ spurði rödd. „Já“, sagði Gráber og tefldi á tvær hættur. „Mig langar að tala við einhvem sem þekkir Kruse lækni. Þaö virðist ekki vera hlaupið að því“. „Ég er Elísabet Kruse“. Gráber starði á konuna með óljósu andlitsdrættina. Hún hvarf úr gættinni og fór inn í íbúðina. „Of bjart“, hvæsti hún 1 áttina til ljósgeislans. „Það er bannað að nota svona mikið rafmagn“. Gráber stóð kyrr þar sem hann var. Stúlka um tvítugt kom í áttina til hans yfir ljósgeislann. Andartak sá hann bogadregnar brúnir, dökk augu og dimmbrúnt hár sem féll óstýrilátt niður á axlir hennar — svo hvarf hún inn í hálfrökkrið í anddyrinu og stóð fyrir fi’aman hann. „Faðir minn stundar ekki læknisstörf lengur“, sagði hún. „Ég kom ekki í lækniserindum. Ég kom til að fá frétt- ir“. Svipur stúlkunnar breyttist. Hún tók viðbragð eins og til að aðgæta hvort konan væri þarna enn. Svo opn- aði hún dyrnar upp á gátt. „Komið inn“, hvíslaði hún. Hann gekk á eftir henni inn í herbergið sem Ijósið kom úr. Hún sneri sér viö og leit á hann. Augu hennar voru ekki lengur dökk; þau voru grá og skær. „En ég þekki þig“, sagði hún. „Gekkstu ekki í skóla hérna“. „Jú. Ég heiti Ernst Gráber". Nú mundi Gráber eftir henni líka. Hún hafði verið mögur telpa með of stór augu og of mikið hár. Móðir hennar hafði dáið img og hún hafði flutt til ættingja sinna 1 öðru þorpi. „Hamingjan góða, Elísabet“, sagði ht^nn. „Ég þekkti þig ekki. Það hljóta að vera sjö eða átta ár síðan við höfum sézt. Þú hefur breytzt mjög mikið“. „Þú líka“. Þau stóðu hvort andspænis öðru. „Hvað er eiginlega á seyði hér?“ spurði Gráber. „Þín er gætt eins og hers- höfðingja“. Elísabet Kruse hló snöggt og beizklega. „Ekki eins og hershöfðingja heldur eins og fanga“. „Hvað þá? Pabbi þinn —“ Elísabet Kruse tók viðbragð. „Bíddu“, hvíslaði hún og gekk framhjá honum að borði sem á var grammifónn. Hún setti hann af stað. Hohenfriedberger marsinn glumdi við. ,,Svona“, hvíslaði hún. „Nú getui’Öu haldið áfram“. Gráber leit skilningssljór á hana. Böttcher hafði haft rétt fyrir sér; allir borgarbúar virtust vera orðnir sturl- aðir. „Hvað á þetta að þýða?“ spurði hahn. „Stöðvaðu þetta. Ég er búinn að fá nóg af hei’göngulögum. Segðu mér heldur hvað er hér á seyöi. Hvei’s vegna ertu fangi?“ Elísabet gekk til hans. „Konan þama frammi er að hlusta. Hún er slefberi. ess vegna setti ég grammifón- inn af stað.“ Hún stóð fyrir framan hann og di’ó nú andann ótt og títt. „Hvaö um föður minn? Hvað veizt þú um hann?“ „Ég. Ekki neitt. Ég ætlaði bara að leggja spurningu fyrir hann. Hvað 1 ósköpunum hefur komið fyrir hann?“ „Hefur þú ekkert frétt af honum?“ „Nei. Ég ætlaði að spyi’ja hann hvort hann vissi heimilisfang móður minnar. Foreldra minna er saknað“. „Er það allt og sumt?“ Gráber staröi á Elísabetu. „Það er nóg fyrir mig“, sagði harm svo. Eftirvæntingarsvipm’inn hvarf af andliti hennar. „Það er satt“, sagði hún þreytulega. „Ég hélt þú kæmir með fréttir af honum“. „Hvað hefur komið fyrir föður þinn?“ „Hann er í fangabúðum. Hann hefur verið þar í fjóra mánúði. Hann var svikinn. Þegar þú talaðir um frétt- ir hélt ég að þú vissir eitthvað um hann“. „En ég hefði sagt þér það undir eins“. Elísabet hristi höfuðið. „Ekki ef það hefðu verið smyglaðar fréttir. Þá hefðirðu orðið að vera vai*kár“. Varkár, hugsaði Gráber. í allan dag hefur þetta orö Glens og gaman Úr afmælisgrein um stórskáld- ið: Hænsnarækt hefur verið einn af strengjunum á hörpu hans. Móðir skipstjónans átti að skíra nýja skipið hans sem skyldi hlaupa af stokkunum í dag. Hún var ákaflega ó- styrk á taugunum fyrir þessa. merkilegu athöfn. Að lokum sneri hún sér að forstjóra skipasmíðastöðvarinnar og- spurði: Hvað þarf ég að slá hart með flöskunni til að skipið hlaupi. að stokkunum? Ég heyri að fjölskyldu þinni hafi bætizt nýr meðlimur, sagði hátíðlegur kennari við einn nemanda sinn. Nýr og nýr ekki, það getur- maður náttúrlega sagt, svar- aði nemandinn og var merki- legur með sig: öskrið í hon- um virðist samt óneitanlega benda til þó nokkurrar reynslu. Hvað olli sprengingunni. heima hjá yður? Púður á bindinu mínu. Hún: Skyldirðu líka elska. mig þegar hár mitt er orðið grátt? Hann: Hef ég ekki alltaf elsk- að þig, hvemig svo sem hárið' á þér hefur skipt litum? Matarœðí barnanna Það er ekki nóg að leita uppi þær fæðutegundir sem innihalda flest vítamin í skammdeginu, heldur skiptir mjög miklu máli á hvern hátt matarins er neytt, ekki sízt fyrir börnin. Morgunmáltíðin hefur mikla þýðingu fyrir bömin. Þess þarf því að gæta að barnið fái nægan tíma til að neyta þessarar mál- tíðar. Flýtismáltíðir geta orsak- að taugaveiklun. Kennið börnun- um að tyggja matinn vel — það er hlutverk tannanna, ekki þarm- anna. Ef skólabarn fer of seint á fætur og móðirin rekur á eft- ir því meðan það borðar, verður barnið órólegt og gleypir mat- inn ótugginn. Afleiðingin verður oft magapína, sem getur orðið að alvarlegra meini, ef þetta er endurtekið of oft. Það er líka mikilsvert að maginn fái hvíld að lokinni máltíð. Fækkið eða sleppið alveg óþörfum eða ó- hollum millimáltíðum — kaffi með brauði — tei — sódavatni — sælgæti o. s. frv. og ef þið gefið barninu ávexti þá gerið það strax að máltíð lokinni, en ekki hálftíma eða klukkutíma seinna, Maginn þarf að fá frið til að melta matinn. Og loks nokkur orð um víta- mín á þessum sólarlausu mán- uðum. Daglegt magn af A, D og C vítamínum er nauðsynlegt. Úr grænmeti fáum við einkum A, B og C vítamín. Kartöflur eru helzti C vítamíngjafinn í dag- legri fæðu okkar. B vítamín fá- um við úr brauði. Helztu D vítamín, eggjahvítuefnin og enn- Nýju skórnir Maður er búinn að fá sér nýja sjaldhafnarskó. Manni er sárt um skóna og tímir ekki að fara í þá fyrr en maður fer út eitt- hvert kvöldið og afleiðingin er iðulega sú, að skemmtunin er eyðilögð fyrir manni vegna þess að nýju skómir eru þrengri en maður bjóst við.Því getur það verið góð hugmynd að ganga nýju skóna til heima. Ef maður hefur gengið í þeim innanhúss nokkra klukkutíma veit maður nokkurn veginn hvernig þeir eru á fæti. Oft eru nýir skór dálítið óþægilegir fyrst í stað án þess þeir séu beinlínis þröngir og þá getur verið gott að ganga þá til í heimahúsum, þar sem hægt er að fara úr þeim þegar þeir kreppa að fætinum, í stað þess að fara í þeim í veizlu eða sam- kvæmi, sem getur orðið hrein- fremur A og B vítamínin fáum'. við úr kjöti og fiski, innmat og: eggjum. Og loks þarf að taka skeið af þorskalýsi á hverjum degi fram á vor. Það heldur sleni og kvefi. í hæfilegri fjarlægð. Þrjár aðalmáltíðir þarf bamið að fá, á morgnana, um hádegið og á kvöldin og millimáltíð síð- degis. Ef þessari reglu er haldið asta kvöl fyrir bragðið er engin hætta á að bamið sæki í sífellu í matarskápinn, vegna þess að það sé svangt. Það er óvani, sem fullnægir aðeins aug- unum en ekki maganum. • ÚTBREHÐIÐ • ÞJÓÐVILJANN Röndóttur hálsklútur Það er komið í tízku að binda hálsklúta í hálsmálið á kjólum og peysum. Það er hlýtt og get- ur verið fallegt. Þetta er hentug tízka þegar peysur eru orðnar of víðar í hálsinn og hægðar- leikur að leyna þeim galla undir hálsklútnum og á myndinni er sýnt dæmi um þetta. Þar er háls- klúturinn prjóijaður í tveim litum, og fallegast er að velja liti sem fara vel við peysuna. Trefillinn þarf að vera vel lang- ur, svo að hægt sé að hnýta hann í lausan hnút eins og sýnt* er á myndinni', og garnið má ekki vera of gróft því að þá verður hnúturinn of ofboðslegur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.