Þjóðviljinn - 29.01.1955, Side 1

Þjóðviljinn - 29.01.1955, Side 1
VILJIN Laugardagur 29. janóar 1953 — 20. árgangur — 23. tölublað Sósíalistar Kópavogí Fundur verður haldinn Wk Sósíalistaíelasi Kópavogs— hrepps að Snælandi n. k. mánudag 31. janúar, Nánar í blaðinu á morgun. Skipbrotsmennimir af Agli rauia eru væntanlegir til Reykjavikur í dag Engínn skipbrotsmanna alvarlega meiddur ♦ Stjérnandi b|örguiiarmaniianna seglr trá Skipbrots'mennirnir sem björguðust aí Agli rauða komu allir til ísafjarðar í gær. Enginn þeirra er al- vailega meiddur en 8 höfðu fengið smávegis skrám- ur eða kal. Þeim sem gistu í eyðibýlinu í íyrrinótt leið öllum vel þar, þótt um 80 manns muni hafa gist á bænum um nóttina. Skipbrotsmennirnir lögðu af stað áleiðis til Reykjavíkur í gærkvöldi og eru væntanlegir hingað í dag. öruggar frásagnir af strand- inu eru enn ekki fyrir hendi þar sem skipstjórinn neitaði fréttamönnum á ísafirði um að háfa nokkuð eftir sér í gær. Leitin enn árangurslaus í gær leituðu flugvélar enn um það svæði sem brezku tog- ararnir fórust á, en án nokkurs árangurs. Einn flugmannanna hélt sig þó hafa séð glampa af spegli um 40 mílur norður af Skagatá, en brezkir togarar á þeim slóðum leituðu þar, en án árangurs. í gær komu tveir brezkir tog- arar til ísafjarðar. Annar var með slasaðan mann en hinn veikan. Annar þessara togara var Conan Doyle, er leitaði lengst að áhöfnum togaranna. Telja skipverjar á Doyle að hin- ir horfnu togarar hafi sokkið strax vegna ísingar og vonlaust að nokkur af áhöfnunum hafi komizt lifandi af. Sjópróf munu fara fram hér í Reykjavík þegar skipverjar eru kornnk hingað suður. Enginn þeirra er al- varlega meiddur Fréttaritari Þjóðviljans hafði tal af ilækni skpbrotsmann- anna í gær. Enginn þeirra er alvarlega meiddur en 8 höfðu lilotið skrámur eða kal og var gert að sárum þeirra í sjúkra- húsinu í gær. Þrjá hafði kalið lítilsháttar, 2 höfðu brennzt er þeir Skutu flugeldum og hinir höfðu fengið skrámur. Björgun af sjó mjög erfið Björgunaraðstaða var mjög erfið. Veðurhæð og biim var mikið. Komust togararnir Aust- firðingur og Jörundur því ekki nálægt Agli þar sem hann var strandaður á slcerinu. En um morguninn fór vélbáturinn And- vari eins nálægt Agli og unnt var. Voru menn af fyrrgreind- um togurum einnig um borð í Andvara, þ.á.m. Magnús Gísla- son skipstjóri á Goðanesi, bróð- iirpeariöniii þakkað Eftirfarandi símskeyti sendi stjórn Slysavarna- félags íslands formanni Slysavarnadeildar karla á ísafirði í gær: Guðmundur Guðmundsson skipstj. form. Slysavarnadeildar karla ísafirði. Innilegt þakklæti til allra þeirra er unnu að björgun skipshafnarinnar af Agli rauða, bæði á sjó og landi, og sem sýndu svo framúrskarandi fórnfýsi og ötulleik við hið erfiða björgunarstarf. Stjórn Slysavarnafélags íslands. Þá barst Slysavarnafélaginu eftirfarandi skeyti frá Færeyjum: Slysavarnafélag íslands, Reykjavík. Fœreyskir sjómenn og fjölskyldur þeirra þakka innilega Slysavarnafélaginu, öllum björgunarmönnum og öðrum sem aðstoð- uðu við björgun sjómanna á Agli rauða. Föroya Fiskimannafélag. ir Isleifs Gíslasonar skipstjóra á Agli rauða. Dregnir 200 metra * • + l SJO Frá Andvara var skotið úr línubyssu yfir á Egil og tókst Magnúsi Gíslasyni í 5. skoti að skjóta yfir stjórnpall Egils svo skipverjar hans gátu náð línunni. Voru þeir 13 sem bjargað var af sjó síðan dregn- ir í stól yfir á Andvara. Var það um 200 metra vegalengd og varð að draga þá á hand- afli vegna vindubilunar á And- vara. Var stóllinn með mönn- unum í dreginn í sjó mikinn hluta þeirrar leiðar. Vaskleg framganga skipstjóra Egils Björgun þessi hófst um kl. 10 fyrir hádegi, en var hætt um kl. 2 þegar björgunarsveit- >n úr landi var byrjuð starf. ísleifur Gíslason skipstjóri á Agli rauða batt alla skipverj- Framhald á 3. síðu. Harmi lostinn bær Neskaupstað á föstudag. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Þegar fregnin um strand Egils rauða barst ót um bæinn i gær var sem bæjarlífið hefði verið drepið í dróma. Öll glaðværð var sem strokin af hverju andliti en í staðinn kominn svipur kváðvænlegrar eftirvæntingar. Heita mátti að enginn maður héldist við verk í gær, — allir voru með hugann bundinn við björgiinarstarfið og fylgdust með því eftir föngum. Ljóst var að björgun var tvísýn við þær aðstæður sem fyrir hendi voru, en í lengstu lög vonuðu menn að full mannbjörg yrði. Síðdegis í gær var ljóst að 5 menn höfðu farizt, en nokkrar klukkustundir tók að fá vitneskju um nöfn þeirra, og var. sú bið mikil þrekraun fyrir það fólk er átti ástvini sína í hópi skipverja. Mistökin sem urðu er útvarpið tilkynnti að öllum hefði verið bjargaið, en leiðrétti það skömmu síðar, juku enn á hugarstríð fólksins. — Af útvarpsins hálfu eru þessi mistök af- sakanleg, þar sem það hafði fengið gleðifrétt sem ástæða var til að koma strax á framfæri. f dag blakta fánar í hálfa stöng um allan bæ. Bæjarstjórn og bæjarbúar eru öllum þeim er á einn eða ann- an hátt lögðu írain krafta sína við björgunarstarfið af lijarta þakklát. Öllum er ljóst að aðstaða til björgunar var liln erfið- asta og að björgunin vTar frábært afrek. Þjóðviljinn hefur nú fengið nánari og réttari vitneskju um þá er fórust, en hægt var að fá í gær og eru nöfnin því birt aftur. Stefán Hjálmar Einarsson kyndari, fæddur 12. jan. 1901. Lætur eftir sig konu, Gunnlaugu Jóhannsdóttur, áttu þau 6 börn á aldrinum 9—18 ára. Ennfrern- ur átti hann aldraðan föður á lífi. Atli Stefánsson kyndari, elzti sonur Stefáns Einarssonar. F. 3. ágúst 1936. Hjörleifur Þór Helgason 3. vél- stjóri. F. 5. apríl 1934, ókvæntur. Átti aldraða foreldra á lífi. Allir þessir menn voru búsett- ir í Neskaupstað. Magnús Þórður Guðmundsson háseti. F. 24. febr. 1905. Lætur eftir sig konu, Þórlaugu Bjarna- dóttur, og 4 börn á aldrinum 2ja til 15 ára. Sofus Morten Dalberg Skorða- líð háseti, F. 4. sept. 1924. Kvæntur. Heimili hans var Dal- ur á Sandöy í Færeyjum. Hann kom til íslands 5. þ. m. Kína fær fulltrúa á fundum Öryggisráðsins um Taivan RáSiS kemur saman á morgun fil aS rœSa um ásfandiS viS Kinasfrendur Alþýðustjórn Kína verður boðið að senda fulltrúa til New York að sitja fundi Öryggisráðs SÞ um ástandið við Kínastrendur. Öryggisráðið kemur saman á fund í fyrramálið og er boðað til fundarins að tilhlutan stjórnar Nýja Sjálands, en fulltrúi henn- ar í ráðinu er formaður þess þennan mánuð. Stjórn Nýja Sjá- lands leggur til að Öryggisráðið hlutist til um að samið verði vopnahlé milli stjórnar Kína og stjórnar Sjangs Kajséks á Tai- van og bjóði kínversku stjórninni að senda fulltrúa til New York að sitja fundi ráðsins um þetta mál. (Fulltrúi Sjangs situr í sæti því í ráðinu sem Kína ber). Verður samþykkt Þar sem atkvæðagreiðsla um slíkt boð er fundarskapaatriði, geta stórveldin ekki beitt neit- unarvaldi sínu í henni og má telja víst, að meirihluti. ráðsins sé samþykkur því að fulltrúi Kína verði á fundunum. M. a. s. Bandaríkjastjórn hefur látið á sér skilja, að hún muni ekki greiða atkvæði gegn því. Sökin er Bandaríkjanna Sir William Hayter, sendi- herra Bretlands í Moskva, gekk á fund Molotoffs í gær og flutti honum munnleg skilaboð frá brezku stjórninni. Var sovét- stjórnin beðin að beita áhrifum sínum á kínversku stjórnina til að fá hana til að taka boði Ör- yggisráðsins og forðast allar að- gerðir sem gætu orðið til að torvelda lausn Taivandeilunnar. Molotoff sagði, að í þessu máli sem öðrum væri sovétstjórnin reiðubúin til að gera allt til að draga úr viðsjám, en hann vildi þó leggja áherzlu á, að Banda- ríkin ættu sök á hvernig komið væri og brezka stjórnin, væri samsek að sama skapi sem hún styddi Bandaríkin í þessu máli. Engan rétt til að verja Matsu eða Kvhnoj Umræður voru í öldungadeild Bandaríkjaþings í gær um heimild til forsetans að gera það sem hann telur nauðsynlegt til að tryggja varnir Taivans, Einn þingmanna, demókratinn Lehmánn frá New York, lagðist fast á móti því að heimildin yrði svo víðtæk sem farið er fram á. Framhald á 12. síðu. Samvefdisfundur í London á morgun Ráðstefna forsætisráðherra brezku samveldislandanna hefst í London á morgun og voru allir ráðherrarnir komnir þang- að í gær, nema forsætisráðherr- ar Indlands og Pakistans, sem eru væntanlegir í dag. Nehru lagði af stað í gær frá Nýju Delhi og sagði- við brottförina, að hið ískyggir lega ástand við Kínastrendur myndi áreiðanlega verða rætt í London. Áður en hann lagði af stað ræddi hann við sendi- herrrf Kína í Nýju Delhi, sem var með skilaboð til hans frá Sjú Enlæ, forsætisráðherra. Kína.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.