Þjóðviljinn - 30.01.1955, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 30.01.1955, Qupperneq 1
Sunnudagur 30. janúar 1955 — 20. árgangur — 24. tölublað Flokkuriifisi Bústaðadeild Fundur verður annað kvöld kl. 8.30 að Þórsgötu 1. Áríðandi að allir mæti. — Stjórnin. Þúsundir fögnuðu skipverjunum af ÁgSi rauða Öll þjóSin jbakkar mönnunum er unnu jboð frábœra afrek oð bjarga þeim Þúsundir Reykvíkinga íögnuðu skipverjunum er björguðust af Agli rauða, þegar þeir komu til Reykjavíkur í gær. Ægir, en hann flutti skipbrotsmennina hingað, lagðist að Faxagarði um kl. hálfþrjú í gær og var bryggjan þá öll þakin fólki sem komið var til að fagna því að hafa heimt skipverjana lifandi úr hinni miklu þrekraun. Djúp alvara hvíldi þó yfir mannfjöldanum, al- vara er tjáði s'amhryggð fólksins vegna hinna 5 vösku manna er fórust. Öll þjóðin þakkar þeim mörgu mönnum er lögðu fram krafta sína til að vinna það afrek að bjarga þeim 29 mönnum er hér voru að stíga á land. Slysavarnafélagið hafði stór- an bíl tilbúinn á bryggjunni til að flytja skipbrotsmennina, en mannfjöldinn stóð svo þétt að það tók nokkurn tíma að rýma til svo þeir ættu greiðan gang í bílinn. Fáklæddir og berfættir í hríð og stórsjó Einn skipbrotsmanna var borinn upp á bryggjuna, en gekk síðan. Er hann með kal- sár á fótum. Hafa skipverjarn- ir gengið í gegnum mikla þrek- raun er þeir urðu að hafast all- ir við í brúnni og kortaklef- anum í 18 stundir samfle}Ttt meðan sjórinn gekk yfir skipið. Höfðu þeir orðið að bregða \úð fáklæddir og voru sumir ber- fættir er þeim var bjargað upp á grýtta ströndina í hríðar- veðri. Frábær framganga Austfirðinganna Skipstjórinn á Ægi rómaði mjög þrekvirki björgunar- manna og vasklega framgöngu allra þeirra er að björguninni unnu, en einkum þó Austfirð- inganna en hópur manna af Goðanesinu var með Magnúsi Gíslasyni skipstjóra og Vest- firðingunum um borð í And- vara er hann fór í briminu eins nálægt hinu strandaða skipi og framast varð komizt, og áð- ur hefur verið sagt frá. Á ann- an tug skipverja af Austfirð- ingi fóru með björgunarsveit- inni ísfirzku er fór á land á Hesteyri og bjargaði frá landi. Hver og einn er að björguninni vann lagði fram alla krafta sína til að vinna hið frábæra afrek. öll þjóðin þakkar þeim mönnum. Þakkarorð Skipbrotsmennirnir voru flutt- ir í húsakynni Slysavarnafé- Iagsins, en þar veittu slysa- vamakonur kaffi. Guðbjartur Ólafsson froseti Slysavamafé- lagsins bauð skipbrotsmennina hjartanlega velkomna úr hinni miklu raun. Þvínæst bað hann menn að minnast þeirra fimm félaga er féllu í valinn. Risu menn úr sætum. — Þá ræddi hann um hið erfiða starf sjó- mannsins og fórnir sjómanna- stéttarinnar. ísland er þ%ú að- eins byggilegt að sjórinn sé sótt ur, sagði hann og lagði áherzlu á að slysavamimar væru enn efldar. Síðan þakkaði hann i nafni Slysavamafélagsins öll- Rcykvíkingar fagna skipverjunum af Agli ranða. um er að björguninni höfðu unnið. Verður ekki tjáð með orðum Þá fluttu stutt ávörp frú Guðrún Jónasson forseti Kvennadeildarinnar, frú Bodil Begtmp sendiherra Dana, er þakkaði björgunarmömiunum. Vigelund formaður Færeyinga- félagsins er þakkaði björgun- armönnunum í nafni Færey- inganna, Eysteinn Jónsson ráð- herra og loks Henry Hálfdáns- son er flutti þakkir stjórnar Bæjarútgerðar Neskaupstaðar, ættingja og Austfirðinga. Öll þjóðin vakti með eftir- væntingu meðan á björguninni stóð, en enginn landshluti mun hafa verið eins milli vonar og ótta og fólkið á Austur- landi og í Færeyjum. Þakk- læti þessa fólks til björgunar- mannanna, og samhryggðin með þeim er þarna misstu ást- vini sína verður ekki tjáð með orðum. Gúmmíbátur af brezku togurunum fannst á Halamiðum í gærdag Talið sýnt að mönnunum hafi ekki unnizt tími til að komast í hann áður en togarinn sökk Togarinn Hallveig Fróðadóttir íann í gær gúmmí- bát á reki sem talinn er vera úr brezka togaranum Roderigo, er íórst s.l. miðvikudag við Vestíirði. Gúmmíbáturinn var uppblásinn en tómur og þyk- ir sýnt að togarinn hafi sokkið áður en mönnunum gafst tóm til að komast í gúmmíbátinn. Hallveig fánn bátinn um 90 mílur út af ísafjarðardjúpi, 66.45 gráður norður, 24,40 gráður vestur, en það er- á Halamiðum, eða það sem sjó- menn munu kalla „upp af Kal- anum“. Á bátnum eru einkennisstaf- ir brezks firma, en vitað var að togarinn Roderigo hafði slíkan gúmmíbát innanborðs. ÍBátar þessir eru 2Yz m. í þvermál. Þóttust sjá flak norður af Ströndum Flugvélar leituðu enn í gær á þeim slóðum sem brezku tog- ararnir fórust. Voru aldrei færri en 3 flugvélar að leitinni í einu. Töldu flugmennirnir sig hafa séð eitthvert rekald skammt norður af Geirólfsgnúp á Ströndum, en brezkir togarar voru næst þeim stað ogbrugðu við til að athuga það nánar. — Það er alls ekki víst að rek- ald þetta standi nokkuð í sam- bandi við hina horfnu togara, heldur gæti þama verið um venjulegt timburrekald að ræða. Seint í gærkvöldi barst Slysavarnafélaginu fregn um að brezku togararmr er fóru að hyggja að brakinu sem flugvélarnar sáu, hafi ekki getað komizt að því þar sem það er komið mjög nálægt landi. Slysavarnafélagið hefur beðið fólkið í Reykjafirði, nyrsta bæjarins á Ströndum að ganga með f jörunni í dag og athuga um brak þetta. Lík færeyska sjó- mannsins fnnóið í gærkvöld barst Slysavarna- félaginu tilkynning um að vél- bátur frá Hnífsdal hefði fundið á reki í ísafjarðardjúpi lik eins manns. Er það talið vera af færeyska sjómanninum sem tók út af Agli rauða meðan á björg- uninni stóð. Að vísu þekkti eng- inn líkið, en þetta er ráðið af giftingarhring hins látna, en inni í honum stendur: Din Olöfa. Isafjarðarradíói þakkað Henry Hálfdánsson skrifstofu- stjóri Slysavarnafélagsins. hefur beðið Þjóðviljann að færa ísa- fjarðarradíói þakkir Slysa- varnafélagsins fyrir frábæra þjónustu og dugnað undanfarna daga og nætur meðan á björg- unarstarfinu stóð. Einnig þakkar hann flugmönn- unum af Keflavíkurflugvelli sem unnið hafa að leit hinna horfnu brezku togara. A morgun hefst í London fundur forsætisráðherra brezku samveldislandanna. Talíð er víst að Taivanmálið verði ofarlega á dagskrá og búizt við að Nehru muni leggja fram tillögur ind- versku stjómarinnar um lausn þess. Áskorun Iðju, íélags verksmiðjufólks: Verkalýðsflokkarnir vinni sam- on að hagsmunamálum alþýðu Félagið s'amþykkir að segja upp samningum frá 1. marz Fundur í Iðju, félagi verksmiðjufólks, samþykkti í gær að segja upp samn- ingum við atvinnurekendur frá 1. marz n.k. Ennfremur samþykkti fundurinn þessa tillögu: i „Fundur í Iðju félagi verksmiðjufólks í Reykjavík, haldinn 29. jan. 1955, skorar á stjórn Alþýðusambands Islands að hún beiti sér fyrir s'amstarfi verkalýðsflokkanna að hagsmunamálum alþýðunnar í landinu".

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.