Þjóðviljinn - 30.01.1955, Blaðsíða 6
B) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 30. janúar 1955
*r, *• '
þlÓOVIUINN
Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjón3son, Bjarnl Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, MagnÚ3 Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Rltstjórn, afgreiðsla auglýsingar, prentsmlðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áakrlftarverð kr. 20 & mánuði í Reykjavík og nágrennl; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lau3asöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
1 Óttaslegnir smáborgarar
Aðstandendur Frjálsrar þjóðar halda áfram að ham-
ast í blaði sínu gegn væntanlegum kjarabótakröfum
verkamanna og annars vinnandi fólks sem nú hefur
sagt upp samningum sínum og er einráðið í því að fá
kaup sitt hækkaö og kjör sín bætt.
Ekki þarf lengi að leita orsakanna til þessarar afstöðu
Frjálsrar þjóðar. Helztu ráðamenn flokksbrotsins sem að
útgáfu þess stendur eni rótlausir og reikulir smáborgar-
ar sem einskis trausts njóta 1 verkalýðshreyfingunni
enda með öllu ókunnugii* starfi hennar, baráttu og
stefnu. Enda reyndist hugrekkið ekki meira en svo, þegar
forsætisráðherra auðmannastjómarinnar og gengislækk-
unarsérfræðingur hans báru fram hótanir sínar um nýja
gengislækkun til þess að ræna verkalýðinn væntanleg-
um kjarabótum, þá ruku þessir piltar upp gjörsam-
lega mglaðir og hjálparvana. Létu þeir blað sitt
flytja þá furðulegu ritsmíð sem gerð var að umtalsefni
hér í blaðinu s.l. sunnudag, þar sem það var talin hin
mesta goðgá af verkalýðnum að fara fram á kauphækk-
un eftir að auðmannastéttin hafði hótað gagnráðstöfun-
um! Skoraði blaðið á fylgjendur sína í verkalýðshreyf-
ingunni að beita sér öfluglega gegn öllum kröfum um
kauphækkun!
Samkvæmnin hjá Þjóövamarmönnum var hins vegar
ekki upp á marga fiska. Fulltrúar þeirra á þingi höfðu
greitt atkvæöi með launahækkun til opinberra starfs-
manna, þar á meðal til hæst launuðu embættismanna
ríkisins. Engin aðvörun heyrðist þá frá fulltrúum flokks-
ins um að slík launahækkun leiddi til „glundroða" og
, upplausnar". Það uppgötvuðu ÞjóÖvarnarmenn fyrst
þegar kom aö verkalýðnum en þó raunar ekki fyrr en
Ólafur og Benjamín höfðu birt hótanir sínai’.
Það er rétt að þessir hjálparmenn ríkisstjórnarinnar og
afturhaldsins í komandi launabaráttu geri sér það ljóst
að verkalýðurinn á íslandi er upp úr því vaxinn að láta
gífuryrði og hótanir stéttarandstæðingsins segja sér fyr-
ir verkum eða móta stefnu sína í hagsmunamálunum.
.Ef svo hefði verið á undanförnum árum væri verkalýðs-,
hreyfingin illa á vegi stödd og kjör verkalýðsins bágborinj
íslenzkur verkalýður hefur vanist því að meta sjálfur
ástandið á hverjum tíma og taka ákvaröanir sínar að vel
yfirveguðu ráði og fylgja þeim síðan eftir með afli sam-
takanna. Þetta hefur gefið verkalýðnum góða raun, gætt
hann auknu öryggi og sjálfstrausti, eflt samtökin sjálf
og fært þeim margan mikilsverðan sigur. Væri áreiðan-
lega öðmvísi umhorfs í verkalýðshreyfingunni í dag hefði
hún látið stjórnast af óttanum við andstæöingana og hót-
anir þeirra, því sannarlega hefur aldrei á slíku staðið,
af hálfu þeirra þjóöfélagsafla sem verkalýðsstéttin hef-
ur átt í höggi við.
Það er furðulegt ofmat á eigin styrk og veröleikum
haldi hinir óttaslegnu smáborgarar í kringum Frjálsa
þjóð að það sé á þeirra valdi að gefa verkalýðshreyfi’ng-
unni einhverja „formúlu" um hvernig komandi kjara-
þarátta skuli háð. Verkalýðshreyfingin hefur komizt af
án þeirra hingað til og svo mun einnig verða í framtíð-
inni, enda eru þeir meö öllu fylgislausir í verkalýössam-
tökunum. Hins vegar hafa þeir félagar skipað sér svo
augljóslega við hlið ríkisstjórnarinnar og atvinnurekenda
með framkomu sinni nú að ekki verður um villzt. Þjóð-
varnarflokkurinn hefur gerst handbendi þess afturhalds
sem aldrei þolir að sjá laun verkamanna hækka eða kjör
þeirra batna. Þessi staðreynd verður ekki falin með óljósu
og marklausu hjali um einhverjar þokukenndar verö-
lækkanir sem eigi aö koma í stað launahækkana.
Það er ekki hollt fyrir þá, sem enga þekkingu hafa á
verkalýðsmálum að ætla sér leiðsögn í kjarabaráttu
vinnandi fólks. Sízt af öllu er þetta verkefni við hæfi
rótlausra og huglítilla smáborgara, sem skjálfa eins og
strá í vindi fyrir minnsta andblæ frá auðstétt og aftur-
haldi. Þessa ætti Frjáls þjóð að minnast áður en hún
lætur komandi kaupgjaldsbaráttu frekar til sín taka en
orðið er.
SKÁK
Ritstjórijs Guðmundur Arnlaugsson
Innlend skákmót
Nú er skáþing Reykjavíkur
að hefjast með góðri þátttöku
og myndarlega auglýst. Verð-
launin eru ekki skorin við nögi:
þúsund krónur eru fyrstu verð-
laun, fimm hundruð þau næstu.
Þetta er óvenju mikil rausn, en
þó er spuming hvort forráða-
menn samtakanna eru þarna á
réttri leið. Skáksamtökin hafa
að vísu fyrir löngu lagt niður
skiptinguna í áhugamenn og at-
vinnumenn, og allar þær túlk-
anir og teygingar er henni
fylgja; þau skipa skákmönnum
einungis í flokka eftir því hve,
snjallir þeir eru, en ekki hinu
hvort þeir reyna að nýta skák-
ina sér til tekna eða ekki, og er
það vel. Skákin er skemmtileg-
ur leikur en hverful atvinna.
Það er ekki á færi annarra en
afburðaskákmanna á heims-
mælikvarða að framfleyta sér
á tafli, og þeir munu áreiðan-
lega flestir geta gert það þægi-
legar á annan hátt. 1 huga
venjulegs skákmanns ættu
verðlaunin ekki að vera annað
en skemmtilegur aukabiti, á-
nægjulegar minningar frá mót-
um sem hann hefur staðið sig
vel á. En peningar eru fljótir
að hverfa án þess að láta eftir
sig nokkur spor, jafnvel þús-
und krónur. Þessvegna hygg ég
að réttast væri að halda sig að
þeirri venju, að verðlaunin séu
eigulegir munir með áletrun,
þegar mikið er við haft, ann-
ars áritaðar skákbækur til
dæmis.
Reykvíkingar tefldu við
Hafnfirðinga á sunnudaginn og
báru sigur af hólmi eins og
vænta mátti. En ýmsar sveifl-
ur urðu áður en lokasigurinn
vannst og ekki mátti miklu
muna að á annan veg lyki á
sumum borðum, eins og skák-
inni sem hér fer á eftir sýnir.
SIKILEYJARLEEKUR
JÓN
KRIST J ÁNSS.
BIRGIR
SIGURÐSS.
1. e2—e4 c7—c5
2. g2—g3 Rb8—c6
Skeleggasta svarið við hinum
óvenjulega leik hvíts er 2. —
d5, og getur hvítur þá ef hon-
um sýnist svo, breytt b>Tjun-
Skákdæmi dagsins
B. Nazaroff, Sovétríkin.
rr.yí-M ..W%.
m
ABCDEFGH
Hvitur á að máta í 6. leik.
Ekki er beinlínis hægt að segja
að taflstaðan í skákdæmi dags-
ins sé sennileg, en menn skyldu
ekki láta það fæla sig frá að
reyna við það, og ekki heldur
leikjafjöldann. Dæmið er ein-
falt, ef menn koma auga á hug-
myndina, aðeins eitt afbrigði.
Lausn á 2. síðu.
inni í bragð: 2.—d5 3.Bg2 dxe
4.Rc3 f5.
3. Bfl—g2 g7—gG
4. Rgl—ei Bf8—g7
5. 0—0 Rg8—f6
6. Í2—f4 d7—d6
7. c2—c3 0—0
8. h2—h3 Rf6—e8
Baráttan stendur um d4. Síð-
asti leikur hvíts átti að undir-
búa d2—d4 (kemur í veg fyrir
Bg4), leikur svarts undirbýr
þrýsting á d4! 9. d4 cxd4 10.
cxd4 Db6, en sennilega hefði
hvítur átt að kæra sig koll-
óttan og fóma b-peðifiu ef svo
bar undir.
9. Rbl—a3 f7—f5
10 e4xf5 Bc8xf5?
f7—fð var vafasamur leikur,
en biskupsleikurinn er fingur-
brjótur sem kostar peð að
minnsta kosti.
11. Ddl—b3t Kg8—h8?
Svarti finnst hann ekki komast
hjá manntapi. Bezti leikurinn
var 11.—d5!. Ef 11. Bxd5f Kh8
12. Dxb7 þá Dxd5! 13. Dxa8
Bxh3 14. Hf2 Rf6 15. Db7
Rg4 með sterkri sókn. Annar
möguleiki er 13.—Bd3 14. Hf2
Rd6 og vinnur drottninguna.
Hvitur getur unnið peðið með
12. DxdSf Kh8, en jafnvel þá
á svartur ýmis færi (Bd3), svo
að auðunnin er skákin ekki.
12. Db3xb7 Ha8—b8
13. Ðb7xc6 Re8—c7
14. Dc6—a4?
Betra var Df3 og síðan d3.
14. . . . Bf5—d3!
Með þessum leik lokar svartur
hrók og biskup inni, drottning-
arriddari hvíts er fjarri aðal-
vígstöðvunum en liinn riddar-
inn patt, svo að taflið er erfitt
hvernig sem hann fer að.
15. Da4—dl e7—e5
16. Ra3—c2
Ekki hagnast hvítur mikið á
kaupunum 16. fxe Bxe5 17.
Hxf8f Dxf8 18. Dfl Dh6 og
Hf8.
16. . . . Rc7—e6
17. Rc2—el
Herðir tökin!
e5—e4!
ABCDEFGH
Eins og sést á myndinni er
hvítur ekki öfundsverður af
taflstöðunni!
18. Kgl—h2 h7—h5!
Nýr fleygur er sendur af stað;
Hvítur ætti nú að leika h4 en
leikur í staðinn
19. Relxd3? e4xd3
20. Re2—gl h5—h4
21. Ddl—g4 h4xg3f
22. Dg4xg3 Re6xf4!
Riddarinn er vitaskuld ódræp-
ur.
23. Kh2—hl Bg7—e5
Svartur hótar nú Rf4—e2—g3f
Einsætt virðist að leika Dg4
og er taflið þá alltvísýnt, en í
staðinn leikur hvítur af sér;
24. Hflxf4 Hf8xf4
25. Dg3xg6 Dd8—h4
26. Dg6xd3 Hb8—g8
Um seinan losnaði hvitur við
fleyginn á d3, því að nú standa
á honum öll spjót. Svartur hót-
ar Hxg2, Kxg2, Hf2f og Hh2
mát.
27. Dd3—d5 Hf4—f2
Fljótlegra var Dg3 með mát-
hótunum sem eigi verður varizt.
28. d2—d4 Hf2xg2
29. Db5xg2 Hg8xg2
30. Khlxg2 Dh4—g3f
31. Kg2—fl c5xd4
32. Rgl—e2 Dg3xh3t
33. Kfl—el d4—d3
og hvitur gafst upp.
Tilþrifamikil skák og
skemmtileg þrátt fyrir afleik-
ina. Skýringarnar eru að mestu
leyti frá Birgi.
Skemmtun
verður haldin í Ungmennafélagshúsinu í Keflavík
í kvöld kl. 9.
1. Avarp: Hörður Bergmann.
2. Frásögn frá A-Þýzkalandi;
Bjarni Benediktsson.
3. Gamanþáttur: Karl Guðmundsson.
4. Sjónhverfingar: Óskar Valgarðsson.
5. Ávarp: Ilaraldur Jóhannsson.
| 6. D A N S.
■
■
■
Hljómsveit Guömundar Norödahls.
■
■
■
[ Aðgöngumiðar seldir við innganginn.
Æskulýðsíylkingin
■.
■
■
Þjéðviljann vanfar unglinga
til að bera blaðið til kaupenda við
LAUGATEIG og i
V 0 G U N U M.
Talið við aígreiðsluna strax. Sími 7500