Þjóðviljinn - 13.03.1955, Page 9
A ÍÞRÓHIR
RITSTJÓRJ FRÍMANN HELGASOI9
TJrsIit Islandsmótsins í handknattleik í kvöld
íar.Ámann eða Valur?
Þróttnr óvænt í þriðja sæti
Flestir munu hafa álitið að
sigur Þróttar yfir Val 16:12
hefði verið heppni og undarleg
tilviljun. En svo þegar þessi
sigurganga liðsins hélt áfram
í leiknum við KR og þeir sigra
16:12 fóru menn að efast um
tilviljunina og þegar þeir sigra
í þriðja leiknum hið létta og
leikandi lið Fram 23:16 var
ekki blöðum um að fletta að
gjörbreyting hafði orðið á lið-
inu, það lék öruggt, hraðinn er
orðinn meiri. Fram náði aldrei
að ráða gangi leiksins. Á 10.
mín. standa leikar 6:2 fyrir
Þrótt en á 20. mín. komust
Framarar næst því að jafna
í fyrri hálfleik eða 10:9 en
il *s 19
hálfleikurinn endaði 14:12. Á
14. mín. í síðari hálfleik ná
þeir þó að jafna 16:16 en þá
gera Þróttarar 7 mörk í röð.
Þróttur á í Herði frábæra
skyttu sem skoraði hvorki
meira né minna en 12 af þess-
um 23 mörkum!
KR — ÍR 26:19.
Það er næsta eðlilegt að hið
unga lið IR sé misjafnt og
skorti enn þroska sem tryggir
það að liðið eigi ekki dauða
kafla en það kom fyrir í þess-
um leik. KR-ingar gera fjögur
mörk áður en ÍR-ingar setja
fyrsta mark sitt, en um miðjan
hálfleik eru ÍR-ingar búnir að
jafna og í leikslok eru þeir
yfir 13:10. En svo virðast þeir
missa tökin aftur og KR gerir
9 mörk í röð 19:13! En þegar
5 mín. eru eftir af leik stóðu
leikar 22:18, og svo gera KR-
ingar fjögur síðustu mörkin.
tírslit í báðum deildum í kvöld.
I kvöld kl. 8 fara svo fram
úrslit i báðum deildum. I A-
deild: Ármann og Valur ,og
verða þar hrein úrslit og hef-
ur Ármann að því leyti meiri
möguleika að verði jafntefli er
markatala þeirra hagstæðari.
Má því búast við að hér verði
um verulega skemmtileg úr-
slit að ræða.
Leikur þeirra Hafnfirðinga
og Aftureldingar getur líka
orðið skemmtilegur. Þau hafa
bæði unnið Víking, Afturelding
s. 1. þriðjudagskvöld 24:8 sem
er aðeins meira en FH gerði.
í úrslitum í III. fl. eru IR
og Fram en þau fara fram í
sambandi við úrslit mótanna í
yngri flokkum og sem byrjar á
miðvikudag.
Áður en stokldð er er vatni sprautað á plastið, svo það er elns háit
og snjór. Til hægri sést Werner Lesser renna niður plastbrautina.
Yerður keppt í skíðastökki
á Heimsmótinu í Varsjó?
Þjóðverjar bjóðast til að sjá um stökk-
keppni í plasíbrautum
Skíðasambandið í austurþýzka alþýðulýðveldinu hefur beint
þeirri áskorun til framkvæmdanefndar Heimsmóts æskunnar,
sem haldið verður í Varsjá í sumar, að hafa skíðastökk meðal
keppnisgreina mótsins.
Hafa Þjóðverjar lofað að
standa fyrir stökkkeppninni og
það þótt mótið fari fram þeg-
ar sumarliitinn er hvað mestur
Á s.l. vetri ákvað stjórn
Þróttar að gefa bikar til keppni
í bridge milli knattspyrnufé-
laganna í Reykjavík. Var ætl-
un Þróttar að halda uppi sam-
starfi milli félaganna að vetr-
inum til á þennan hátt. Allir
félagsbundnir menn í þessum
félögum hafa rétt til þátttöku
í móti þessu og mun fyrst og
fremst hafa verið ætlunin að
þeir knattspyrnumenn sem etja
kappi á vellinum eða hafa gert
komi þarna fram þó auðvitað
geti aðrir fyllt sveitir ef með
þarf. Nú er keppni þessi hafin
með fullum krafti og eru öll
fimm félögin með og hafa hvert
fimm sveitir.
KR og Fram hafa þegar
keppt og fóru leikar svo að
Fram sigraði á fjórum borð-
um en KR á einu. Á fimmtu-
dagskvöld kepptu svo Þróttur
og Víkingar. Fóru leikar svo
að Víkingur unnu á tveimur
borðum en Þróttur á þremur.
Tíðindamaður Iþróttasíðunn-
ar fór í heimsókn er keppni
Víkings og Þróttar fór fram.
I liði Vikings gat að líta
gamla harðskeytta Víkinga
sem á vellinum áður fyrr létu
sitt ekki eftir liggja og ef
marka má svip t. d. Brands
Brynjólfssonar, Ingólfs Ise-
barns og Vilbergs Skarphéðins-
sonar voru þeir ekki á því
augnabliki líklegir til að gefa
eftir. Þótt Þróttur ætti ekki
,,stjörnur“ frá gömlum dögum
á sjálfum vellinum, voru þeir
sýnilega ekki líklegir til að
gefa sig.
I keppni þeirra Fram og KR
komu þeir Jón Guðjónsson, Jón
Þórðarson, Sveinn Ragnarsson
af eldri skólanum svo nokkrir
séu nefndir og Óli B. Jónsson
í KR. Annars munu KR-ingar
vera með flesta menn úr kapp-
liðum sínum í keppninni og
auðvitað er Egill rakari þeim
til styrktar þar líka, hljóður
og alvörugefinn.
Á lista Vals eru m. a. Grim-
Framhald á 10. síðu.
í Varsjá, í byrjun ágúst, en þá
er þar oft 30-40° hiti!
Ef þessi athyglisverða til-
laga nær fram að ganga verð-
ur að klæða stökkbrautina og
pallinn sérstökum plastmottum,
sem þýzkir skíðamenn hafa
reynt nýlega raeð góðum á-
rangri.
Hans Renner, sem var aust-
urþýzkur meistari í skíðastökki
1953 fann upp þessar plast-
mottur, en Werner Lesser, sem
einnig er kunnur skíðamaður,
reyndi þær í stökkbrautinni í
Oberhof. Árangurinn varð
miklu betri en búizt hafði verið
við, því að Lesser stökk 42 á
plastinu, aðeins 6 metrum
skemur en stokkið hefur verið
lengst í snjófyllti'i brautinni.
S Karlmannaföt
(teinótt, enskt efni)
á lága þrekna menn.
■ .
■
Karlmannafrakkar
Drengjaföt
N0TAÐ&NÝTT
Bókhlöðustíg 9
Sunnudagur 13. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Gunnar M. Magnúss:
Bömin frá Víðigerði
ekki heldur illur. Við skulum bara verða beztu
vinir.“
Geiri hugsaði sig um stundarkorn. Hann vildi
setja góða tryggingu fyrir vináttunni.
„Viltu þá gefa hægri hönd þína upp á það, að
þú skulir aldrei narra mig?“ sagði hann.
„Já, já,“ svaraði Stjáni.
„Og aldrei hrekkja miga.
„Já, já“.
„Og aldrei svíkja mig“.
Jé, já“.
„Má vondi karlinn eiga þig, ef þú svíkur?“
„Já, já“.
„Viltu þá sverja þetta?“
„Já, já. Ég skal sverfa það undir eins“.
„Sverfa það. Já, svona ertu, alltaf að snúa úf
úr. Það má aldrei treysta þér“.
Stjáni hló.
„Ég sagði þetta bara í gamni. Við strákarnir
í Reykjavík segjum svona oft. Hérna er hægri
hönd mín upp á þetta“.
Stjáni rétti fram höndina og Geiri stóð upp,
tók í hönd hans og sagði:
„Þú ræður hvort þú svíkur“.
Þeir gengu nú alveg fram á árbakkann.
„Ég var að þessu að gamni mínu með bláu
röndina. Ég ætlaði að vita, hvort þú freystir þér
að vaða yfir.“
. „Þetta er hylur“, sagði Geiri og benti. „Hanu
nær langt’ upp yfir höfuð“.
Stjáni var nú aftur orðinn rogginn.
„Ég get synt' hérna yfir“, sagði hann. „Ég
hugsa, að þú hefðir það líka. Það geta allir kfafs^
að sig yfir svona mjóa rönd“.
Glæsíleg D0DGEBIFREIÐ ’48
til sölu á Njálsgötu 40
Ei til sýnis í dag
BIFREIÐAS&IAH NIALSCÖTU 40
Sími 5852
Nú er 100% j
sctla í bilrelðum i
■
- ■
1 ■
■
f ■ ■
■
Höfum kaupendur að nýlegum fólks-, sendiferða- og
vörubifreiðum. — Kaupendur á biðlista. — Sé bifreiðin j
skráð í dag er hún seld á morgun.
■
Nýjar hifreiðar
«
Austin 10 ’47
Fiat Station ’54
Fiat sendiferðabfr. ’54
■
Fiat 4ra manna ’54
Ford sendiferðabifreið ’53 j
Skoda Station ’52
«
. ■
■
■
■
■
«
Opið alla daga kl. 9.30—8 j
«
Bifreiðasalan Nfálsgötu 40 j
Sími 5852
. «
«
*
■
«
<■•■■■■■■■■■■■«■■■■■■•■■■•■■■«■■■■•■«■■•■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■«■■■■■■■■■•■■■■<
Standard sendiferðabifr. ’50
Chevrolet ’5S
Chevrolet ’47
Ford ’47
Standard Vanguard ’50
Rover ’51
Morris ’47