Þjóðviljinn - 26.05.1955, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 26.05.1955, Qupperneq 3
Fímmtudagur 26. maí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Frá garðyrkjusýningunni 1952. r (krlyrk|iiiélog Islcmds 70 ára GarSyrkjufélagið á sjötugsafmæli í dag. Frá upphafi hét það fullu nafni „Hið íslenzka garðyrkjufélag“, allt fram til ársins 1940, er nafninu var breytt. — Árið 1885, 26. maí, var eftir hvötrnn landlæknis Schierbecks haldinn fundur af þeim mönnum, sem eftir uppástungu landlækn- is höfðu komið sér saman um að stofna félagið til eflingar garðyrkju hér á landi. Fundurinn var haldinn í bamaskólahúsinu í Reykjavík. Þessir mættu á fundinum: Schi- erbeck landlæknir, Pétur bisk- up Pétursson, Magnús Stephen- sen asessor; Theodór Jónassen; bæjarfógeti; Árni Thorsteins- son, landfógeti; Sigurður Mel- sted, prestaskólaformaður; Þór- arinn prófastur Böðvarsson; Halldór Friðriksson, yfirkenn- ari; Steingrímur Thorsteinsson, skólakennari; Björn Jónsson, •rítstjóri og Hallgrímur Sveins- son, dómkirkjuprestur. Nokkrir fleiri höfðu ritað sig fyrirfram t.d. Grímur Thomsen, sem stofnendur félagsins, en mættu eigi á fundinum. Schier- i beck stakk u-p á að velja bisk- upinn fyrir fundarstjóra. Var það samþykkt í einu hljóði og stýrði biskupinn fundinum. Á fundinum var félagið stofnað. Áður hafði verið sent út eftir- farandi boðsbréf: Hið íslen/ka garðyrkjufélag Það virðist auðsætt, að efl- ing og aukning garðyrkjunnar hér á landi geti orðið landsbú- um til mikils gagns og fram- fara, með bví að þeir með því móti ættu hægara með að afla sér heilnæmrar jurtafæðu, sem eins og kunnugt er stuðlar næsta mikið að því að afstýra ýmsum sjúkdómum t.a.m. skyr- bjúg og sumnart gætu þannig aflað vetrarfóðurs handa skepn- um sínum, með því að ýmsar eru þær fóðurjurtir, er spretta vel í óþurrkasumrum, þegar mjög örðugt er að bjarga heyi óskemmdu. Vér, sem hér ritum nöfn vor undir, höfum tekið oss saman um að mynda félag, er vér nefnum, ,,Hið íslenzka garð-i yrk,jnfélag“ og skal mark ogl mið félags þessa vera að efla og styrkja garðyrkju hér á landi yfir höfuð, en fyrst um Schierbeck landlæknir hann var aðalhvatamaður að stofnun Garðyrkjufélags Islands sinn mun félagið einkum binda sig við það að styðja að ræktun venjulegra garðávaxta og nokk- urra fóðurjurta, sem að mest- um notum geta komið hér á landi, svo sem eru: kálrapi, turnips, kartöflur og fáeinar aðrar. Að þessum tilgangi sín- um mun félagið stvðja með bví: 1.. Að siá u~v nð sem auð- veldast verði að fá gott og nægilegt fræ til útsæðis. 2. Að afla þekkingar á því fyrir reynsluna, hverjar aðal- tegundir og aukategundir bezt þrífast hér á iandi og hveria aðferð skuli \nð hafa, til þess að tegundir þessar þrífist sem bezt og ennfremur sjá um, að bessi þekking breiðist út meðal almennings. 3 Að glæða éhuga landsbúa á garðvrkjú o? bví veita verð- laun fyrir þær jurtir, sem bezt eru ræktaðar og fyrir gott fræ, sem aflað er hér á landi. Félagið starfaði óslitið til aldamótanna 1900. Þá var talið að störf þess heyrðu undir starfsemi Búnaðarfélags íslands og hætti Garðyrkjufélagið störf- um í nær tvo áratugi. Á þessu fyrsta starfsskeiði félagsins voru þeir Schierbeck og Árni Thorsteinsson lífið og sálin í fé- laginu um langa hríð. „Voru beir landlæknirinn og land- fógetinn mjög samhentir í því að efla garðræktina og skipa henni það rúm, er henni ber meðal áhugamála þjóðarinnar“, segir Einar Helgason í ritning- argrein. Báðir höfðu þeir Schierbeck og Ámi hið mesta vndi af garðyrkju og skildu holl ustuáhrif hennar, bæði í mat- arhæfi þjóðarinnar og uppeld- irgildi þess að annast gróður og garða. Ýmsir fleiri lögðu auðvitað hönd á plóginn, t.d. Þórhallur Bjarnason, biskup; Hallgrjmur Sveinsson biskup o. fl. Fylgdist hér vel að bæði and- ,legt og veraldlegt vald þeirra tíma. ;Hinn 1. desember 1918 tekur félagið til starfa að nýju. Voru valdir í stjórn, Hannes Thorsteinsson, formaður og meðstjórnendur, Einar Helga- son og séra Skúli Skúlason. Starfaði félagið síðan af mikl- um krafti og óslitið til ársins 1935. Var Einar Helgason framkvæmdastjóri félagsins og sannkallaður máttarstólpi á því tímabili og var lengstum laun- aður að mestu af ríkinu. Einar gerði tilraunir, hafði garðyrkju- némskeið, bæði í gróðrastöð- inni og í barnaskóla Reykjavík- ur og hélt marga fyrirlestra í Revkjavík og út um land á ferðum sínum, en hánn ferðað- ist mikið til skoðunar og leið- beininga. Ýmsir fl.eiri studdu og vel að starfseminni. Eftir lát Einars 1935 varð hlé á starfsemi félagsins í tvö ér, en þá tók það til starfa að nýju og hefur st.arfað siðan. Var Ingimar í Fagrahvammi Heimamenn gangi fyrir Framhald af 12. síðu. egs fulltrúa Steingríms Stein- órssonar ráðherra. Hannes aldi það hlægilega fjarstæðu“! ið gera kröfu til þess að heima aönnum í Kópavogi væri út- ilutað lóðum áður en farið •æri að afgreiða umsóknir ut- . nhreppsmanna. Jósafat, full- rúi Sjálfstæðisflokksins þorði kki að taka afstöðu til þess, ivorki með Hannesi né móti. leimamenn gangi fyrir. 1 samþykkt meirihluta hrepps- uefndarinnar um þetta mál seg- r m.a. svo: „Fyrst og fremst skal veita byggingarleyfi þeim ca. 30 umsækjendum sem bú- fyhsti formaður félagsins á þriðja starfsskeiðinu. Garðyrkjufélagið hefur geng- 'zt fyrir allmörgum garðyrkju- sýningunr og liafa þær verið verulegur þáttur í starfsemi þess og haft mjög veltjandi á- hrif, sýnt „hvað verið er að gera og hvað hægt er að gera“ og þannig stuðlað að vexti og viðgangi garðyrkjunnar í land- inu. Alls hefur félagið gengizt fyrir sjö sýiungum á árunum 1921—1955. lEnnfremur tók það þátt í landbúnaðarsýningunni 1947 og í norrænu garðyrkju- sýningunni í Kaupmannahöfn og Helsingfors 1937 og 1949. Sýningin 1941 var fjölsóttasta sýning á Islandi til þessa tíma. Sóttu hana rúmar 22 þúsundir manna. (Fyrsta garðyrkjusýn- ing á landinu mun vera sýning sú, er haldin var þar í Gagn- fræðaskólanum árið 1919 og Guðrún Þ. Björnsdóttir gekkst fyrir.) En fyrsta sýning syðra var haldin í Görðum á Álfta- nesi haustið 1921. Garðyrkju- ritíð, ársrit félagsins hefur komið út í þremur áföngum. Það hóf göngu sína árið 1895 fyrir áeggjan Schierbecks, land- læknis og kom út til 1901. Síð- an að nýju 1920 til 1934 og loks (allmikið stærra) 1938 og síðan. Gefur ritið að fomu og nýju góða hugmynd um þró- un garðyrkjunnar í landinu og segir frá nýjungum og reynslu garðyrkjumanna í ræktunar- málum. Árið 1949 kom út Mat- jurtabókin í stað ársritsins og j 1951 Gróðurhúsabókin. Má Isegja að garðyrkjusýningarnar : og Garðyrkjuritið hafi verið i aðalþættirnir í starfsemi félags- ! ins hin síðari ár. Félagið gróðursetur árlega : trjáplöntur í Heiðmörk og nú vinnur það m. a. að því að komið verði upp grasgarði í Reykjavík, t. d. í Laugardaln- um. Gæti sá garður orðið kennslugarður og skrautgarður í senn. Skal safna í garðinn ís- lenzkum plöntum o. fl. norræn- um gróðri. Ennfremur helztu trjátegundum, runnum og skrautjurtum, sem hér þrífast og setja nafnspjald hjá sér- hverri tegund. settir eru hér í hreppnum, og óska að hefja byggingar nú þegar. I öðru lagi skal veita þeim byggingarleyfi, sem bíða af- greiðslu frá fyrra ári, eða hafa lóðir á stöðum þar sem skipulag er þegar ákveðið. Hreppsnefndin gerir þá kröfu tíl viðkomandi ráðuneytis, eða fulltrúa þess, að þeim mönnum sem byggingarnefnd samþykk- ir, og þá fyrst og fremst hreppsbúum, verði tafarlaust úthlutað þeim Ióðum sem ó- byggðar eru yið götur sem hreppsnefnd leyfir byggingar við, og er hreppsnefnd reiðu- búin til samstarfs um að skipa þeim niður á þær lóðir sem lausar eru og byggingarhæfar, en mótmælir liarðlega að nokkr um lóðum sé ráðstafað án sam- ráðs við hreppsnefndina. Þá ítrekar hreppsnefndin fyrri kröfur sínar um skýrslu yfir þær lóðir sem lausar eru og þær lóðir sem ráðstafað hefur verið á síðasta ári án sam- ráðs við hreppsnefndina.“ (Framanskráðar upplýsingar eru frá stjórn Garðyrkjufél.). Grasagarðnr Framhald af 1. síðu. ræktunarframkvæmdum. Hann lærði hjá Schierbeck landlækni, og eftir heimkomu frá námi í Danmörku 1898 vann hann að garðyrkju og ræktun hjá Búnaðarfélaginu og síðar Garð- yrkjufélaginu — en það félag vakti hann af 20 ára dvala árið 1918. I Gróðrarstöðinni reyndi hann ræktun flestar þeirra garðjurta sem talið er að þrífist hér. Hann ferðaðist uirt landið allt og leiðbeindi uirt ræktun. Einnig skrifaði hann nokkrar bækur um ræktun. Um Einar Helgason skrifaði Sig- urður Sigurðsson búnaðarmála- stjóri árið 1938: „Hann hefur verið einn af afkastamestu garðyrkjufrömuðum lands vors. Hið íslenzka garðyrkjufélag á- honum að miklu að þakka sinn lífsþrótt, sitt starf og þann ár- angur sem það hefur borið“. SKÓSALAN Hveslisgötu 74 tilkynnir: Verzlunin flytur bráðlega, E og þessvegna verða allar s skóbirgðir seldar mjög ódýrt » t.d. barnaskór, dömuskór, * inniskór, sandalar, herraskór, • bomsur, strigaskór o. fl. Tœkifœrisverð — Komið : og gerið kjarakaup. SKÓSALAN Hverlisgötu 74 ■ Hjartanlega pakka ég öllum, sem sýndu mér 5 vinarhug á sextugsafmœli mínu 14. apríl, með : heimsóknum, blómum, skeytum og gjöfum. ■ EGGERT' GUÐMUNDSSON | Ásvallagötu 53. : ■ ■ S

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.