Þjóðviljinn - 26.05.1955, Side 5

Þjóðviljinn - 26.05.1955, Side 5
Fimmtudagur 26. maí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Andrei Gromiko V. M. Molotoff ■''i fi Í1 »V.« M K«P* Tekiir Gromiko við embætti Molotoffs Þrálátur en óstaðfestur orð- rómur um að Molotoff muni innsn skaxhms láta af störfum um prýdd I dag kemur fjölmenn sendi- nefnd sovétstjórnarinnar til Belgrad, höfuðborgar Júgóslav- íu. Eru fyrir henni þeir Krút- sjoff aðalritari Kommúnista- flokks Sovétríkjanna, Búlganin forsætisráðherra og Mikojan aðstoðarforsætisráðherra. Sér- fræðingar um efnahagsmál og hermál, 60 að tölu, hafa verið að koma frá Moskva til Bel- grad undanfarna daga. Belgrad hefur verið prýdd sovézkum og júgóslavneskum fánum og fólk íiefur verið hvatt til að safnast saman á götum borgarinnar og fagna komumönnum. Þetta er í fyrsta skipti eftir vinslitin 1948 sem ráðamenn Júgóslavíu og Sovét- ríkjanna ræðast við. BlaSaverkfall I Frakklandi Engin blöð munu koma út í Frakklandi í dag vegna verk- falls setjara í prentsmiðjum blaðanna. Verkfallið er gert til að mótmæla frumvarpi sem liggur fyrir franska þinginu. Myndi það heimila útgáfu blaða með ófaglærðu starfsliði ef að lögum yrði. sem utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna hefur komið upp í Vín, eftir fund utanríkisráð- herranna þar, að því er frétta- ritari United Press skýrir frá. Samkvæmt þessum orðrómi á Molotoff að hafa ætlað sér að hafa friðarsamninginn við Austurríki sitt síðasta mikil- væga starf í embættinu. Eftirmaður hans er talinn verða Andrei Gromiko, sem fyrir tvéimur mánuðum var skipaður aðstoðarutanríkisráð- ráðherra. Fékk hugmyndin um eftirmanninn byr undir báða vængi er tilkynnt var að Gro- miko en ekki Molotoff yrði í för með Búlganín forsætisráð- herra til fundarins við Tító for- seta í Belgrad. Bandaríkin og Sovétrskin berjast í jnnílok I lok júní verður í Moskva skákkeppni milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Hafa Bandaríkjamenn þegar valið til keppninnar Reshevsky, Evans, Bisguier, R. Byrne, D. Byrne og Horowits, en búizt er við að Fine og Denker verði einnig meðal keppenda af hálfu Bandaríkjanna. Teflt verður á átta borðum. Sænskt blað sem flytur þessa frétt, lætur þess getið að banda- rísku skákmennirnir muni koma við í Stokkhólmi á leið til eða frá Moskva, og muni verða skotið á einhverskonar skák- keppni þar í borg. Sama blað skýrir svo frá að „millisvæða" (interzonal) skák- mótið fari fram í Gautaborg , 15. ágúst til 25. september. Þing Heimsskáksambandsins verður haldið þar 7.-14. ágúst. Eini Svíinn sem þátt tekur í Gautaborgarmótinu er Gideon Stáhlberg. Paul Robeson boðið að leika Otheílo í sovétkvikmynd Honum heíur verið bannað í 5 ár að ! íara írá Bandaríkjunum Rússneska kvikmyndafélagiö Mos-film í Moskvu er í þann veginn aö hefja æfingar á nýrri kvikmynd af leik- riti Shakespeares Othello. Hefur félagið boöiö svertingjasöngvaranum heimsfræga, Paul Robeson, aö leika aðalhlutverkiö, en hann hefur oft leikiö það í ættlandi sínu Bandaríkjunum. líiii menn i Sldpt herstjórn USA Eisenhower Bandaríkjafor- seti skipaði í gær Radford að- mirál til að vera foráfeta yfir- herráðs Bandarikjanna í tvö ár enn. Sömuleiðis var Twining hershöfðingi skipaður f orseti foringjaráðs flughersins með setu í yfirherráðinu nýtt tveggja ára tímabil. Hinsvegar var skiut um forseta foringja- ráðs flotans. Þar tekur Arley Birk aðmíráll við af Carney aðmírál, sem í vetur ávann sér vanþóknun Eisenhowers með því að koma þeirri sögu á loft að Bandaríkin myndu verða komin í stríð við Kína út af Taivan um miðjan apríl. Áður hafði Maxwell Taylor hers- höfðingi verið skipaður forseti foríngjaráðs landhersins í stað Ridgway hershöfðingja. VerkfaHsmenn drepnir Snemma í þessum mánuði lauk verkfalli járnbrautamanna í Louisville, Kentucky, Banda- ríkjunum, er staðið hafði nærri tvo mánuði. Lauk verkfallinu þannig að báðir aðilar samþykktu að láta gerðardóm skera x'ir ágreinings- atriðunum. Einn verkamaður féll í verk- fallsátökunum, margir særðust og mikið efnatjón varð af völd- um þess, segir í Reutereskeyti frá Louisville, en það voru verkamennirnir sem unnu við Louisville- og Nashville-járn- brautina sem verkfallið gerðu. I öðru verltfalli, sem beint var gegn simafélagi í smábæ einum í Florida, var einn verk- fallsmanna drepinn með skoti í kviðinn er átök urðu fram- an við símastöðina. Ilafníarverk- fall síöðvar 2H0 skf p Verkfall hafnarverkamanna í sjálfstæða hafnarverkamanna- félaginu í Bretlandi hefur nú staðið í þrjá daga. í gær var ekkert unnið við 200 skip og hafði þeim fjölgað um 30 frá því í fyrradag. Ekki gengur né rekur í við- ræðum um lausn kjaradeilu eim- reiðastjóra og kyndara á brezku jámbrautunum, en þeir |hafa boðað verkfall á laugardaginn. Um 700.000 kr. fjárkúgun Danslta lögreglan rannsakar nú staðhæfingar danska læknis- ins Kelstrup um að hann hafi gerzt þrefaldur morðingi vegna þess að fjárkúgun þeirra sem hann réði af dögum hafi gert sér lífið óbærilegt. Segir hann í bréfi sem fannst eftir að hann skaut sjálfan sig að síðasta ár hafi eignir sínar og nær allar tekjur, um 700.000 ísl. kr. alls, verið kúgaðar út úr sér. Sergei Júdkevits, forstjóri Mos-film og einn af dómurun- um á alþjóðakvikmyndahátíð- inni í Cannes, sagði í bréfinu til Robeson m.a.: „Okkur er það kunnugt, hve snilldarlega þér hafið leikið einmitt þetta hlutverk á leiksviði, og þætti stórvænt um ef þér gætuð kom- ið því við að leika hlutverk Othellos í kvikmynd okkar, annaðhvort á ensku eða rúss- nesku.“ ★ Robeson svaraði um hæl, kvaðst reiðubúinn til að leika hlutverkið á hvoru málinu, sem æskilegt þætti. „Fyrir mér er það aðal- atriðið," skrifar liann, „að liér býðst liið ágætasta tæki- færi til að eiga hliit að því að skapa íistrænt verk, stórt í srúðinu; þetta er mesta kvikmyndahlutverk, sem ég hef átt kost á. Rússneskt leikhús stendur enguin að baki um sliake- spearska Ieikhefð, og sam- fléttun þeirrar leildiefðar við hina víðkunnu kvikmynda- tækni Rússa ætti að geta gert þessa Othellomynd minnisstæða.“ Paul Robeson lék hlutverk Othellos fyrst í London fyrir aldarfjórðungi, en 1944 lék hann Othello í Theatre Guild- I . í blaðaverkfallinu í Lon- don var Daily Worker, aðal- málgagn Kommúnistaflokks Bretlands, vikum saman eina, dagblaðið sem kom út í borginni. Útgefendur lians eru ekki í sambandi blaða- eigenda og sömdu við verk- fallsmenn. — Samþykktu verkfallsmenn að deilunni lokinni þakkir til Daily Workers, sem hefði ekki ein- ungis flutt almenningi sann- ar fregn af verkfallimu og túlkað málstað verkfalls- _______________________—------— manna, heldur hefði og út- koma hans gert blaðaeigend- ur fúsari til samninga. Ekki fékk Daily Worker að koma út nema í 100 þús- und eintökuin, en blöðin sein stoðvuðnst, koma út í sam- tals 19 milljón eintökum dag hvern. En útbreiðsla blaðsins jókst, og margar blaðasðlu- búðir sýna það nú utan dyra. Ein þeirra sést liér á myndinni. sýningu í New Yqrk. Hefur i Paul Robeson Shakespearleikrit aldrei orðið jafnlífseigt á Broadway, eji Othello var sýndur þar heilt ár fyrir fullu húsi og lifði góðu lífi í öllum borgum Banda- ríkjanna annað ár. Óvíst er livort Paul Robeson getur þekkzt boðið. Nú eru fimm ár síðan Bandaríkjastjórn svipti Robeson vegabréfi, og hefur honum ekki tekizt að fá vegabréf að nýju; þrátt fyrir margendurteknar umsóknir til utanríkisráðuneytisins í Was- hington. Nú í janúar fór Robeson í mál við ráðuneytið til þess að fá leyfi til að ferðast ur landi. Hann skýrði þá frá því að hahn hefði fengið tilboð um að halda söngskemmtanir víða um lönd, m.a. í Israel og Egyptalandi, en hefði lítið að starfa í Banda- ríkjunum. Enn hefur enginn dómur verið uppkveðinn í máli hans. Nú ætlar Robeson hinsvegar að sækja um sérstákt leyfi að fara til Sovétríkjanna, í því skyni að leika í kvikmyndinhi Othello. aiirikisráðherra V-Þýzkalands Adenauer forsætisráðherra ræddi í gær við sendiherra Vest- ur-Þýzkalands i London, París og Washington. Að fundinum loknum var tilkynnt að dr. von Brentano, formaður þingflokks kaþólska flokksins í neðri deild vestúrþýzka þingsins, myndi inn- an skamms taka við utanrikis- ráðherraembættinu af Adenauer. Von Brentano er lögfræðingur; að menntun, fæddur 1904. ~y

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.