Þjóðviljinn - 26.05.1955, Page 7

Þjóðviljinn - 26.05.1955, Page 7
Fimmtudagur 26. maí 1955 — ÞJÓÐVILJINN__ (7 Með þessari yfirlýsingu var úr því skorið, að ofstækisfyllsti hluti yfir- stéttarinnar, atvinnurekenda og stjórnmálamanna, réði stefnunni, þeirri stefnu að reyna að brjóta verkf. á bak aftur, gersigra verkalýðinn í löngu verkfalli, sundra samtökum hans og „kenna honum að hætta að gera kröfur“. Þetta var stefna hins bandaríkj asinnaðasta hluta auðstétt- arinnar, sem hafði ofmetnazt af auði sínum og völdum, sem fyrirlítur verkalýðinn, hatar og hræðist sam- tök hans og skákaði í skjóli banda- rískrar hersetu og bandarískrar her- námsvinnu. Allt fram undir lok verk- fallsins stóð þessi klíka við stýrið, unz hún varð að láta undan síga. — Allt frá upphafi var verkfallið al- gert. Það kom í ljós, að í þessari niiklu vinnudeilu hafði skapast eining með- al verkafólksins, sem varla á sinn líka í íslenzkri verklýðssögu. Fylking verkfallsmanna samanstóð af mjög mismunandi félögum fag- lærðra og ófaglærðra. Stjórnmálalega náði þessi fylking allt frá hinum róttækustu til hinna hægrisinnuðu. En aldrei rofnaði þessi fylking né kom í hana nein sprunga. Allar á- kvarðanir um undirbúning og rekstur þessa margþætta og vandasama verk- falls voru gerðar einróma. Og því rneir, sem á verkfallið leið, því ágæt- ara og traustara vafð samstarfið. Á þessari einingu strönduðu allar tilraunir andstæðinganna til að sundra verkfallsmönnum og slá niður verkfall þeirra. Bardagaaðferð ofstækismannanna í hópi atvinnurekenda og stjórnmála- manna þeirra var aðallega þríþætt. í fyrsta lagi sú stefna þeirra að knýja verkfallsmenn til ósigurs með löngu verkfalli og horfa ekki í stund- arhagsmuni. í öðru lagi með áróðri í því skyni að sundra verkfallsmönnum. Að þessu leyti var skipulögð hatröm áróðurs- herferð gegn fagfélögunum og með- limum þeirra og látið heita svo, að samningar strönduðu á þeim. í þriðja lagi með skipulagningu verkfallsbrota. Frá fyrstu til síðustu stundar verk- fallsins voru stöðugar tilraunir í gangi til verkfallsbrota, studdar og örfað- ar af yfirlýsingu Vinnuveitendasam- bandsins um, að ófélagsbundnir menn hefðu fullan rétt til þess að ganga í störf verkfalismanna. I verkfallsbrotum gengu olíufélögin þó einna lengst fram fyrir skjöldu, leitandi allra bragða til þess að brjóta verkfallið á bak aftur. Framkoma olíufélaganna í þessum efnum og hin orjálaða andstaða fulltrúa þeirra gegn því, að samið yrði við verkfallsmenn, leiddi í ljós, að í þessum erlendu auð- hringum á íslenzk verklýðshreyfing og íslenzka þjóðin í heild einn sinn allra svarnasta fjandmann. En auk þeirra verkfallsbrota af hálfu nokkurra atvinnurekenda og þá Eyrst og fremst olíufélaganna, var lögð sérstök áherzla á að egna bif- reiðastjóra til verkfallsbrota í sam- bandi við vöruflutninga og benzín. Allar þessar bardagaaðferðir gegn verkfallsmönnum mistókust þó í heild. Þær strönduðu á einingu og samhug verkfallsmanna og verkfalis- vörslunni. Framhald á 10. síðu. Hér eru reykvískir verkfalls- verffir á veginum viff Smá- iönd, reiffu- búnir að stöffva verkfalls- brjóta og benzín- smyglara, er safnaff hafa liffi til að brjótast í gegn. því að steypa yfirráðum auðstéttar- innar í stjórn Alþýðusambandsins og í Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Eeykjavík. Eftir Alþýðusambandsþingið fóru verkalýðsfélögin að undirbúa hina miklu kaup- og kjaradeilu. Þrettán verklýðsfélög í Reykjávík og Hafnar- íirði og verkamannafélögin á Akur- eyri og Siglufirði sögðu upp samn- ingum sínum. Þau hófu þegar nána samvinnu um kröfugerð í aðalatrið- tim (grunnkaup, orlof o. fl.) og um ánnan undirbúning deilunnar. Þau kusu sameiginlega nefnd manna til samstarfsins og úr hennar hópi sex manna samninganefnd. í annan stað var skipuð nefnd manna til að ann- ast rekstur verkfallsins. Stjórn Alþýðusambandsins réði tvo hagfræðinga til þess að semja álits- gerð um kaupmátt launanna miðað Við 1947. Álitsgerð þeirra leiddi í ljós, að þó að hækkun húsaleigu væri ekki með- talin, hafði kaupmátturinn rýrnað á þessu tímabili um ca. 20%. Þessi á- litsgerð hagfræðinganna hafði gagn- ger áhrif á alla deiluna, mótaði al- menningsálitið og gerði andstæð- inga verkfallsmanna rökþrota. í þessu efni sem fleirum fann verka- lýðurinn á hinn áþreifanlegasta hátt, hvaða gildi umskiptin í Alþýðusam- bandinu höfðu honum í vil. Verklýðsfélögin urðu síðbúnari með kröfur sínar en þau vildu hafa yerið. Þau ákváðu því að lýsa ekki í réttar sex vikur var háð ein hin örlagaríkasta glíma milli aðalstétta þjóðfélagsins. Henni lauk með því, að yfirstéttin féll á eigin bragði. Þetta verkfall var svo viðamikið, risti svo djúpt og reisti svo mörg við- fangsefni, að því verða engin við- hlítandi skil gerð í stuttri grein. Hér verður því aðeins stiklað á stóru. — Árið 1947 urðu þáttaskil í kjaramál- um verkalýðsins á íslandi. Yfirstéttin sveik nýsköpunarstefnuna, gekk bandarísku auðvaldi opinberlega á hönd og sameinaði krafta sína til varanlegra árása á lífskjör verkalýðs- ins, en þau höfðu náð hámarki 1947. Allir flokkar auðvaldsins sameinuðust í afturhaldssamri ríkisstjórn. Árið eft- ir tókst þeim að brjóta undir sig Al- þýðusambandið og nokkru síðar Full- trúaráð verkalýðsfélaganna í Reykja- vík. í kjölfarið sigldu árásirnar á lífskjörin, og harðnandi andstaða gegn allri kjarabaráttu verkalýðsins. Gíf- urlegar tolla- og skattabyrðar vorú lagðar á alþýðu manna. Kaup verka- fólks var bundið með lögum. Tvenn- ar gengislækkanir, sú síðari (1950) mest allra í sögu landsins, juku dýr- tíðina um allan helming, auk ráð- stafana eins og bátagjaldeyris o. fl. Kaup- og kjarabarátta verkalýðsfé- laganna náði ekki að jafna metin, ekki heldur hið harða og langa des- emberverkfall 1952. Á 24. þingi Alþýðusambandsins síð- astliðið haust var það einróma álit meir en 300 fulltrúa, að lífskjörin hefðu rýmað svo mjög, að verkalýðs- samtökin yrðu að gera gangskör að því að bæta þau. Sú samhljóða sam- þykkt, sem þar var gerð um nauðsyn jkauphækkunarbaráttu, endurspegl- aði hinn almenna baráttuvilja verka- lýðsins í landinu. — Verkalýðsstéttin lagði á þetta enn aukna áherzlu með Útifundurinn á Lækjartorgi 13. apríl. (Ljósm. Ó. Thorlacíus). Eggert Þorbjamarson: VERKFALLIÐ MIKLA samtökum verkafólksins og láta kaupdeiluna renna út í sandinn, var einróma hafnað af verkalýðsfélögun- um. Þegar þannig var sýnt, að hvorki atvinnurekendur né ríkisstjórn ætl- uðu að nota gefinn frest til þess að forðast vinnustÖðvun, ákváðu verka- lýðsfélögin að boða verkfall frá og með 18. marz, — og fyrst 4 dögum fyrir verkfall hafði ríkisstjórnin sig í að skipa sáttanefnd í deiluna. Hinn 18. marz hófst síðan hið mikla verkfall, er stóð í fullar sex vikur. TJm 7000 manns í 12 verklýðsfélögum í Reykjavík og Hafnarfirði lögðu nið- ur vinnu. Um hálfum mánuði síðar bættist Verkamannafélag Akureyrar- kaupstaðar í hópinn. Fyrir tilmæli samninganefndar verklýðsfélaganna ákváðu starfsmenn við Mjólkursamsöluna og í mjólkur- búðum að hefja ekki verkfall. Hér var um einn mikilsverðan lið í þeirri stefnu verklýðsfélaganna að ræða, að heyja verkfallið, þannig, að almenn- ingur nyti sem mestrar þjónustu. Fyrstu daga verkfallsins voru viss- ar vonir til staðar um það, að unnt mundi, þrátt fyrir allt að ná samn- ingum án langs verkfalls. Þær vonir teyndust þó tálvonir einar. Atvinnu- rekendur „buðu“ það sem þeir nefndu „7% kjarabætur". En janvel þetta málamyndaboð tóku þeir fljótlega aftur. Ástandið skýrist þó fullkomlega á þriðja degi verkfallsins, þegar ríkis- stjórnin tilkynnti sáttanefnd, að hún hefði ekkert til málanna að leggja og gæti á engan hátt stuðlað að lausn deilunnar. yfir verkfalli frá og með 1. marz, er samningar runnu út, heldur fresta verkfallsboðun um óákveðinn tíma. Sá frestur hlaut um leið að verða próf á það, hvaða vilja atvinnurek- endur og ríkisstjórn höfðu til þess að leysa vinnudeiluna án verkfalls. Þessi ákvörðun verklýðsfélaganna hafði geysileg áhrif á alla vígstöðu þeirra þeim í hag og hlaut einróma lof alls almennings. Svo sem kunnugt er, hagnýttu hvorki atvinnurekendur né ríkis- stjórn sér þennan frest til þess að semja án verkfalls, heldur þvert á móti. í þeim samningaviðræðum, sem hófust laust fyrir febrúarlok, varð at- vinnurekendum ekki þokað. Þann 25. febrúar birti hinsvegar viðskiptamálaráðherra „skýrslu", þar sem fullyrt var, að kaupmáttur Dags- brúnarlauna hefði aukizt um 1% síð- an í ársbyrjun 1953! Um svipað leyti var það hinsvegar upplýst, að tekjuafgangur ríkissjóðs 1954 hefði numið ca. 97 milljónum króna og meira að segja „Tíminn“ fullyrti, að þjóðartekjurnar hefðu aukizt og að verkamenn ættu rétt á kauphækkun. Þann 7. marz — viku eftir að samn- ir.gar runnu út lagði ríkisstjómin til, að deiluaðilar tækju þátt í „hlut- lausri nefnd“ til þess að rannsaka „hvort efnahagsástandið í landinu væri þannig, að atvinnuvegirnir gætu borið hækkað kaupgjald og hvort kauphækkanir myndu leiða til kjarabóta fyrir verkalýðinn“! Þessari fáránlegu tilraun til þess að sundra Verka- menn á Akureyri þurftu einnig aff hafa sína verkfalls- verffi á vegum úti, til aff stemma stigu fyrir uppivöðslu verkfalls- brjóta. i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.