Þjóðviljinn - 10.06.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 10.06.1955, Blaðsíða 1
VILJINN Föstudagur 10. júni 1955 — 20. árgangur — 128. tölublað Ráðstjórnin býður forsætlsráðherra og utanrikisráðh. Frakklands heim Brezki herinn að fara ■ frá Austurríki Brottflutningur brezka setu- liðsins frá Austurríki er haf- inn. Fyrsta flutningalestin hélt til Vestur-Þýzkalands 6. júní. Molotoff sagSur fallasj á, að fjórvelda- fundurinn hefjist I Genf 18. júíin. k. Franski forsætisráöherrann, Edgar Faure, skýröi frá þvi í gær, aö Molotoff, utanríkisráöherra RáÖstjómarríkj- anna, hefði boöið sér og utamikisráðherra sínum Pinay til Moskvu. Franska stjómin hefur enn ekki svarað boðinu. Utanríkisráðherra Ráðstjóm- am'kjanna, Molotoff, snæddi í gær hádegisverð með franska forsætisráðherranum, Edgar Molotoff Faure, og utanríkisráðherran- um Antoine Pinay. Að loknum hádegisverði bauð Faure blaðamönnum til fundar við sig. Þegar á blaðamanna- fundinn kom, lýsti Faure því, að Molotoff hefði flutt þeim Pinay boð ríkisstjórnar Ráð- stjómarríkjanna um að koma í heimsókn til Ráðstjórnarríkj- anna. Faure kvað enn ekki hafa verið tekna ákvörðun um r--------------------------h Hvert var erindi Ólafs Thors til London? Morgrunblþðlið skýrir )Frá l»ví í gser að Ólafur Thors forsætisráðherra sé kominn heim eftir hálfs mánaðar veru erlendis og hafi hann dvalið í London. Hefur þ.jóðin þá loks fengið upplýsingar, þótt með seinni skipunum sé, um dvalarstað forsætisráð- herrans. Hitt er á jafnmikilli huldu eftir sem áður hvert var erindi forsætisráðherrans til útlanda, þess aðeins getið við brottför hans að hann færi í opinberum erindagjörð- um. Er til of mikils mælzt að ríkisstjórnin eða málgögn hennar skýri þjóðinni skýrt og undandráttarlaust frá er- indi Ólafs Thors til London? Meðal annarra þjóða þekkist ekki að tilefnum slíkra ferða- laga stjórnarformanna sé haldið Ieyndum fyrlr almenn- ingi. boðið. Hins vegar sagði hann, að ef til þess kæmi færu þær ráðherrarnir fremur sem ferða- langar en samningamenn. Faure sagði ennfremur svo frá, að Molotoff hefði taiið vel hugsanlegt að halda fjórvelda- fundinn í Genf, eins og Vest- urveldin lögðu til í orðsendingu sinni, og hæfist hann 18. júli. Molotoff kom til Parísar í gærmorgun. Hann er á leið til San Francisco til að vera við staddur 10 ára afmæli Samein uðu þjóðanna. Molotoff er, eins og kunnugt er einn höfundur þeirra. Hann hélt af stað með Queen Elisabeth frá Cherbourg til New York í gærkvöld. Sainið uin Dagsbrúnar- kjör víða um land Verkalýðsíélögin úti á landi semja nú hvert aí öðru um þær kauphækkanir og kjarabætur sem félögin í Reykjavík, Hafnarfirði og Akur- eyri náðu í verkföllunum. Síðustu dagana hafa þessi félög fengið viðurkennd Dagsbrúnarkjör á félagssvæðum sínum: Verkamannafélagið Hvöt, Hvammstanga, Verkalýðsfélag Austur- Húnvetninga, Blönduósi, Verkamannafélagið Fram, Sauðárkróki, Verkamannafélagið Þór, Selfossi, Verkalýðsfélag Hveragerðis, Verka- mannafélagið Báran, Eyrabakka. Eden væntir, að l|órveldafund- urlnn mcnrki áfangci á friðarleið Attlee verður áfram leiðtogi Verkaraannaflokksins Elizabet II. Bretadrottning flutti hásætisræöuna í gær, er hið nýkjörna brezka þing var formlega sett. Af hásætisræðunni verður ráöiö aö stefna brezku ríkis- stjórnarinnar er óbreytt. Látin var í ljós von um aö fyrir- hugaður fundur æöstu manna Bretlands, Frakklands, Ráðstjórnarríkjanna og Bandaríkjanna megi draga úr viðsjám á alþjóðlegum vettvangi. Þingmenn brezka Verkamannaflokksins æskja, að Att- lee fari áfram með flokksforystu. Við setningu hins nýkjöma þings í gær flutti Elizabet II. að venju hina svonefndu hásætis- ræðu, sem er samin undir um- sjá ríkisstjórnarinnar og mark- ar stefnu hennar á því þingi, sem er að hef jast. Engin breyt- ing var boðuð á stefnu brezku stjórnarinnar. í utanríkisstefnu sinni munu Breta fyrst og fremst setja á- fram traust sitt á samtök Sam- einuðu þjóðanna, Atlanzhafs- j bandalagið og samvinnu Vestur- Evrópuríkjanna, segir í ræð- unni. Brezka stjórnin gerir sér von- ir um, að fyrirhugaður fundur æðstu manna Bretlands, Frakk- lands, Ráðstjórnarríkjanna og Bandaríkjanna í sumar muni bæta samkomulag stórveldanna og skapa aðstöðu til þess að jafna ýmis deilumál. Þá bindur brezka stjómin vonir við viðræður stórveldanna um afvopnun. í Austur-Asíu miðar brezka ríkisstjómin að því, að ná samkomulagi um lausn deilunnar um Taivan og stuðla að myndun örvggisbanda lags á þeim slóðum. Engin stórvægileg ný löggjöf var boðuð. Höfuðviðfangsefni stjórnarinnar í innanlandsmál- um verður lausn húsnæðisvanda- málsins. Leiðtogi Verkamannaflokks- ins, Clement Attlee, kvaddi sér hljóðs að máli drottningar loknu. Vakti hann máls á því, að arður brezkra fyrirtækja hafi vaxið á árinu, en verðlag hald- ist nokkurn veginn stöðugt. Laun hefðu hins vegar hækkað lítið sem ekki. Það væri þess vegna ekki við því að búast, að vinnufriður héldist í landinu, nema verkamenn fengju aukna hlutdeild í vaxandi framleiðslu sinni. Eden forsætisráðherra tók til máls í neðri málstofu þingsins Framhald á 5. síðu Kosningas: í Isgentínu Tilkynnt var í Buenos Aires í gær, að efnt verði til kosninga. í landinu í nóvember n.k. til stjórnlagaþings, Hlutverk stjórn- lagaþingsins verður að semja nýja stjórnarskrá, þar sem geng- ið verður formlega frá skilnaði rikis og kirkju. Ennslysvið * höfnina Um klukkan 6 síðdegis í gær þegar flutningaskipið Svane- sund var að leggjast að hafn- arbakkanum vildi það slys til að vírar er skipið dró sig að landi á lyftu upp járnstöngum á hafnarbakkanum og slösuðu þær tvo menn er þarna voru nærstaddir. Annar þeirra, Pét- ur Jakobsson frá Grindavík, marðist, en hinn maðurinn, Björn Olsen, Melstöðum við Kleppsveg, fótbrotnaði, brotn- aði sperrileggurinn á öðrum fæti hans. Gert var að meiðsl- um mannanna i Landspítalan- um, en síðan voru þeir fluttir heim til sín. ðsamið við sjó nienn Enn var ósamið \ið sjómenn, síðast þegar Þjóðviljinn frétti í gærkvöldi, en sáttafundur hafði þá staðið óslitið síðan kl. 9 í fyrrakvöld. Steingrímur Steinþórsson félagsmálaráðherra fer hamförum gegn Kópavogsbuum Mönnum er biíið hafa í Kópavogi allt að 15 ár sagt upp leigusamningum og hreppsbúum neitað uin lóðir — á sama tíma og Hannes og Gauti úthluta til flokksgæðinga í Reykja- vík og lögfræðingur SÍS selur fyrir einstaklinga lönd ríkisihs! Árásum ríkisvaldsins á Kópavogsbúa linnir ekki. Stein- arímur Steinþórsson félagsmálaráðherra hefur nú byrjaö uppsagnir á erfðaleigulöndum manna er haft hafa erfða- leigulönd í allt að 15 ár, byggt á þeim og rœktað þau. Rök- semdirnar fyrir uppsögnunum eru tilhœfulaus ósannindi. — Á sama tíma og 40—50 Kópavogsbúar bíða eftir að fá lóöir eru Hannes og Gauti að úthluta lóðum til flokksgœð- inga í Reykjavík. Ríkið á allt.land í Kópavogi og heyra lóðamálin undir Stein- grím Steinþórsson félagsmála- ráðherra. Fram á s.l. ár fór allt með eðlilegum hætti þannig að lóða- og bygginganefndir Kópa- vogshrepps ráðstöfuðu landinu í samvinnu við félagsmálaráðu- neytið. • Fyrsta árásin Fyrsta árás ríkisstjórnarinn- ar á Kópavogsbúa var sú, er Hannes Jónsson „félagsfræðing- ur“ hernámsdeildar Framsókn- arflokksins var settur yfir lóða- málin í Kópavogi. Othlutaði hann þá lóðum um holt og hæð- ir og einkum á óskipulögðu landi, án nokkurs samráðs við bygginganefnd og hreppsnefnd. í fyrrahaust gafst hann upp, Framhald á 3. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.