Þjóðviljinn - 11.03.1956, Blaðsíða 1
Sunnudagur 11, marz 1956 — 21, árgangur — 60, tölublað
Réttarrannsókn í málum sex
fjármálamanna af sjö Iokið
Rannsóknin hefur nóð til víxla, sem eru samtals að
fjórhœð 6.6 millj. króna — 107 vitni ieidd
Dómsrannsókn í málum sex fjármálamanna af
þeim sjö, sem grunaöir hafa verið um okurlánastarf-
semi, er lokiÖ og verða nú öll málsgögn send dóms-
málaráðuneytinu til ákvörðunar um frekari aðgerðir.
Rannsókn í málum þessum hófst hinn 21. nóvember
s.l. að tillögu nefndar þeirrar, er Alþingi kaus til að
rannsaka okurstarfsemi, og hefur staðið yfir óslitið
síðan. Er þetta ein af umfangsmestu málsrannsókn-
um, hér á landi hin síðari ár.
Þórður Björnsson, fulltrúi
sakadómara, sem haft hefur
ransóknina með höndum, skýrði
blaðamönnum frá þessu í gær
og gaf stutt yfirlit um málið.
Sjö fjármálamenn
Strax og sakadómaraembætt-
inu bárust fyrirmæli um rann-
sóknina var framkvæmd hús-
rannsókn hjá þeim, sem rann-
sóknamefnd Alþingis hafði bent
á og grunaðir voru um okur-
lánastarfsemi, og þar tekin skjöl
er talin voru geta veitt upp-
lýsingár um málið. Dómsrann-
sóknin hefur síðan verið byggð
á sömiunargögnum þeim, sem
fundust við húsrannsóknirnar, og
skýrslu okurnefndar.
í skýrslu nefndarinnar voru
7 menn kærðir og hefur mál
hvers þeirra um sig síðan verið
rannsakað sérstaklega. Eins og
Þjóðviljinn hefur áður skýrt frá
eru mennimir þessir: Sigurður
Bemdsen fjármáiamaður, Guð-
jón Hólm lögfræðingur, Brandur
Brjmjólfsson lögfræðingur, Jón
Magnússon f jármálamaður, Hörð-
ur Olafs'son lögfræðingur, Hjálm-
týr Sigurðsson dyravörður í Út-
vegsbankanum og Elias Hólm
ieynivínsali.
Víxlar að fjárhæð
6,ti niillj. króna
Dómsskjöl í málum mánna
þessara eru orðin 274 talsins,
þar aí hefur verið lagður fram
161 víxill að fjárhæð alls 4,8
millj, króna. Rannsóknin hefur
og náð til allmargra víxia, sem
ekki hafa verið tök á að leggja
fram vegna þess að iangflestir
þeirra hafa verið glataðir, þann-
,ig að fjárhæð allra víxla sem
rannsóknin hefur snúizt um
Hussein Jórdanskonungur hef-
hefur hafnað tilmælum um að
koma á fund leiðtoga Egypta,
Sýriands og Saudi-Arabíu í
Kaíró, en segist hins vegar muni
þiggja efnaliagsaðstoð af þeim,
ef hún sé engum skilyrðum
bundin.
nemur 6,6 millj. króna.
Auk víxlanna hafa verið lögð
fram 45 tryggingabréf, þar sem
fasteignir eru settar að veði fyr-
ir víxlunum.
Dómsútskriftirnar allar nema
samtals rösklega 600 vélrituðum
fólíósíðum.
107 vltni leidd
Alls liafa 107 vitni verið leidd
í málunum, þar af allir sam-
samþykkjendur víxlanna. Meira
en helmingur vitnanna hefur
komið tvisvar fyrir dóminn og
mörg oftar.
Við rannsókn hefur komið í
ijós að sumir af þeim vixlum,
sem lagðir hafa verið fram í
má'iunum, eru vöruvixlar til
innheimtu hjá þeim mönnum,
er þeir fundust hjá. En til flestra
vixlanna hefur verið stofnað
vegna peningalána í sambandi
við húsbyggingar eða bílakaup.
Margir oi-ðir að
sæta okurkjörum
Samþykkjendur víxlanna, víx-
ilskuldaramir, hafa borið nokkuð
sitt hvað um lánskjörin. Sumir
telja sig ekki hafa verið beitta
neinu okri, aðrir eru í vafa, en
margir haf-a ákveðið borið að
þeir hafi orðið að sæta okri.
Er okur þetta mismunandi mik-
ið; okurvéxtimir hafa komizt
upp í 76%.
Hinir kærðu hafa allír mót>-
mælt því að hafa lánað íé með
okurkjörum og í flestum tilfell-
um halda þeir því fram að þeir
hafi tekið 7—8% ársvexti af
þeir hafa veitt,
lánsupphæðinni í
lánunum, sem
og 2 % af
þóknun.
Þannig stendur staðhæfing
gegn staðhæfingu, sagði Þórður
Björnsson að lokum, því að ná-
lega aldrei hafa aðrir menn ver-
ið viðstaddir, þegar lán hafa
verið veitt, en skuldari og lánar-
drottinn.
Þrýstíloftsflugvél
fórst á Keflavik-
urflugvelli
nugmanitiitum var bjarg*
að mikið slösuðum
f gær fórst þrýstiloftsflugvéi
í Iendingu á Keflavíkurflugvellij,
en svo vel tókst tíl að flugmann-
inum varð bjargað.
Sveit þrýstiloftsflugvéla frá
Bandaríkjaher var á leið frá
Bandaríkjimum til Evrópu. Ein.
flugvélanna ætlaði að lenda á
Keflavíkurflugvelli, en þau xhis-
tök urðu að tvær flugvélar lentu
samtímis. Sakaði aðia ekki, en
þrýstiloftsflugvélin sem tun get-
ur eyðilagðist í lendingunni, en
liðsforingja er nærstaddur var
tókst að ná flugmanninum út
úr vélinni áður en hún brann,
Er flugma&uiinn mikið slasað-
ur, en þó hugað líf. Hann var
fluttur í sjiikrahús í ISnglandi.
H. C. Hansen forsætisráðherra
Dana, og föruneyti lians fór í
gær flugleiðis frá Stalingrad til
| Bakú við Kaspíahaf.
Þeir fórust með Verði
t»eir fimm menn sem fórust með v.b. Verði voru ílestir
fjölskyldumenn og allir héöan úr bænum. Þeir voru:
Nói Jónsson, Hólmgarði 29, 41
árs, lætur eftir sig konu og tvö
ung börn.
Hermann Sigurðsson, Sólvalla-
götu 41, 34 ára, lætur. eftir sig
konu og tvö böm.
Hermann Dagbjartsson, Selbúð
7, rúmlega tvítugur, lætur eftir
sig eitt barn.
Hákon J. HáJkonarson, Rauða-
hvammi við Baldurshaga, 24‘
ára, lætur eftir sig konu og
4 börn öll ung, það elzta 4ra
ára.
Sveinbjörn Sigvaldason, mý-
fluttur í Garðahrepp en átti áð-
ur heima hér í bænum. Hann
var 30 ára ókvæntur og bam-
laus.
Tveir bændafnndir sinn á hvornm
landsenda krefjast vinstra samstarfs
Skora á vinstri flokkana 4 að mynda ríkisstjórn og
semja um starfsgrundvöll fyrir næstu kosningar
Kraía vinnandi íólks í sveitum og við sjó um samvinnu vinstri flokkanna
verður æ háværari. Tveir bændafundir, sinn á hvorum enda landsins, annar í
Breiðafirði, hinn á Fljótsdalshéraði, hafa nýlega lýst yfir að „núverandi á-
stand í stjómmálum þjóðarinnar sé algerlega óviðunandi fyrir allt frjálslynt
vinstra fólk í landinu .... eina færa leiðin til þess að afstýra stóráföllum fyrir
þjóðfélagið sé að vinstri ilokkarnir 4, Framsókn, Alþýðuflokkurinn, Sósíalista-
flokkurinn og Þjóðvarnarflokkurinn taki höndum saman og myndi ríkis-
stjórn".
Fyrri bændafundurinn var
haldinn að Reykhólum í A-
Barðastrandasýslu 5. þ.m. en
hinn að Egilsstöðum á Fljóts-;
dalshéraði 7. þ.m. Samþykktir.
fundanna hafa verið sendir for- i
mönnum allra framangreindra
fjögurra flokka,
4lyktun Barðstrendinga
Ályktun fundarins að Reylc-
hólum er þaunig:
„Fundur undirritaðra kjós-
enda í ReykjáneskjördeUd,
Austur-Ba rða stra ndasýsl u á-
l.vktar:
Vegna þess ófremdarástands
sem mi ríkir í íslen/.kum stjórn-
máhun, tel.jum við undirrltaðir
kjósendur Alþýðuflokksins,
Framsókiuirt'lolvksins, Sósíal-
istaflokksins og Þ.jóðvarnar-
flokksins, að nauðsyn beri til nú
þegar að knýja fram algjiira
stefnnbreytingu, og ósknm því
eindregið eftir:
1) Að Framsóknarflokkurinn
rjúfi nú þegar stjóruarsam-
starf við Sjálfstæðisflokk-
inn
2) Að niyndnð verði samstjórn
allra 4 flokka, enda verði
tryggt — eftír því sem unnt
er — að sn stjórn sitji kjör-
tíimibilið á enda.
3) Takisf ekki stjórnarmyndun,
verði nú þegar — með fullri
tillitssenii allra 4 flokka ■
háfinn umlirbúningur að
samstarfi í kosningum og
miðist það samstarf einung-
is %ið að seni allrn fiestir
fulltrúar hinna vinnandi
stétta í landinu nái kjöri,
enda komi þeir frambjóðend-
nr einir til greina, sem vitað
er að eindregið eru fylgjandi
vinstri samfylkingu*'.
Fundarstjóri var Tómas Sig-
urgeirsson og fundarritari Jens
Guðmundsson,
Alyktun Héraðsbúa
Ályktun fundarins að Bgils-
stöðum 7. þ.m. er þannig;
„Almennur fundur kjó-enda.
haldiun að Egiisstoðum 7. marz
1956 telur að núverandi á-
stand í stjórnmálum þjóðarinn-
ar sé algerlega óviðuir mli fyrir
allt frjálslynt vinstra fólk í
landinu.
li,iinduriim litur svo á að eina
færa leiðin til þess rð afstýra
stóráföllum fyrir þjóðfélagið sé
að vinstri flokkarnir 4, Fram-
sóknarflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn, Sósíalistaflokku rinn
og Þjóðvarnarflokkiirimi taki
böndum saman og myndi rik-
isstjórn, þar sem þessir fiokkar
allir liafi mjög margt sameig-
inlegt og stefni raunar allir að
Framhald á 5. síðu.