Þjóðviljinn - 25.05.1956, Page 3

Þjóðviljinn - 25.05.1956, Page 3
7-rsr - ÞJ^VHJINN-^rí Föstuidagur 25. maí 1956 — (S Átta kvölda orusta á Vestfjörðum Aldrei fyrr hefur áhugi fólks fyrir þvi hvernig landinu er sf[órnaS veriÓ lafnmikill og almennur Þrennt éinkenndi alla fundina sem viö héldum á Vest- fjöröum, sagði Kari Guðjónsson í viðtali við Þjóövttjann, 'erhiann kom að vestan. 1. Sérlega mikil fundarsókn. Þaö er langtum meira rót á hugum vianna nú en hefur verið við kosningar að undanförnu. 2. Sérstaklega góðar undirtektir við málflutning Al- þýöubandalagsmanna. 3. Málefnalaust þvaður andstœðinganna, að nokkru leyti upphrópanir um kommúnista, að hinu leytinu harðar ádeilur á Hannibal fyrir að hafa gengið úr ’ Alþý&uflokknum!! Þeir vilja ekki viðurkenna að hann hafi verið rekinn úr flokknum! — Málefnin forðuðust þeir aö ræða. Hinn 10. þ.m. fóru þau Hannibal Valdimarsson for- seti Alþýðusambandsins, Sól- veig Ólafsdóttir kona hans og Karl • Guðjónsson alþm. til Vestfjarða og komu þaðan aft- ur laugardaginn 19. þ.m. Á þessum tíma héldu þau 8 fundi á jafnmörgum stöðum og ræddu við um 120 manns á þeim fundum. Það var að kvöldi laugar- dagsins fyrir hvítasunnu að ég hitti Karl Guðjónsson í bið- röðinni við afgreiðsluborð Flugfélags íslands á Reykja- víkurflugvelii. Hann hafði fyrr um daginn komið með flugvél frá Isafírði, s«sf upp í aðra á Reykjavíkurííugvelli og ætlaði þegar að halda til Vestmanna- eyja, en þá var beðið 'góðan tíma út á flugbraut, unz ioka- Svar kom, frá Eyjum um að ólenáandi væri þar. Þá fór hanu í bæinn, og nú var hann enn kominn út á flugvöll, eftir fáar mínútur vrði hann á leið til Vestmannaeyja. Viðtalið hófst. • Vildi gelta að gestum — Við flugum héðan til Pat- reksfjarðar 10. þ.m. Það er tæpt stundarflug í katalínu- flugbáti. Gísli Jónsson stóð þar fremstur manna á bryggj- unni er við lentum. Sagðist ekki hleypa neinum svo í tún- ið hjá sér að hann gelti ekki að þeim. Kvaðst hafa mætt hjá Hræðslubandalaginu og hefði hugsað sér að mæta hjá okkur iíka. Þetta var á uppstigningar- dag. Vegna bilunar á flugvél- inni þegar átti að leggja af stað seinkaði ferðinni svo að við sluppum rétt til Patreks- fjarðar um það bil er fundur átti að hefjast. Fundarstjóri Hannibal Valdimarsson var þar Ásmundur Ólsen hús- vörður. Við Hannibal töiuðum þar, en Gísli Jónsson mætti fyrir íhaldið. • Gullnir borðar sýslumannsins -— Frá Patreksfirði fórum við í .ieppa upp Mikiadai. Inn- anvert i þeim dal stendur skíðaskáii, eign íþróttahreyf- ingarinnar á staðnum. Við þann skála var statt margt stórmenni og blikaði á gullna borða sýslumannsins, enda skvidi nauðungaruppboð á skálanum fram fara á eign- inni þennan áag. ® Nýr bátur 1 Tálknafjörð — Á þessari leið ýar komið við í Tálknafirði. Þar eru miklar framfarir. Þeir voru þá að búa sig undir að taka Sólveig Ólafsdóttir á móti nýju stálskipi, v.b. Tálknfirðingi. Sá bátur átti að sigla þar inn í höfnina 13. þ.m. Við ræddum við fólk, en þarna var ekki fyrirhugað fundar- hald. • Umboðsmaður Rússa — Frá Tálknafirði héldurn við yfir Hálfdán til Bildudals. Gísli Jónsson ók á undan okk- ur í rússneskum jeppa, enda hefur hann umboð fyrir þær bifreiðar, og sparar þeim í engu lofið. Á Bíldudalsfund- inum lét Gisli sig samt hafa það að fara hörðum orðum um umboðsmenn Rússa! Brostu menn óspart þegar bent var á að einasti umboðsmaður Rússa sem þarna vteri staddur væri þingmaður kjördæmisins sjálf- ur!! Á Bíldudal var fundarstjóri Jónas Ásmundsson oddviti. Við Hannibal héldum ræður en Gísli af háifu íhaldsins. • Átti ekkert þegar haim fór! — Á báðum þessum stöðum, Patreksfirði og Bíldudai, fór iítið orð af fundum þeim sem Hræðslubandalagið hafði hald- ið, ann'að en það að málsvari Þjóðvarnar, Sigurður Elíasson, hefði staðið sig þar einkar iila. Þau ummæli sem menn tóku sér heizt i munn urn hann voru þessi: Hafi hann átt eitthvað Karl Guðjónsson þegar hann kom, átti hann ekkert þegar hann fór! ® Hitti þar einn Vestmannaeying — Á Bíldudal hitti ég einn Vestmannaeying, vélbátinn Frigg, en á honum fórum við yfir Arnarfjörð og lentum hjá Auðkúlu vegna þess að ekki var lendandi vegna storms á Rafnseyri. Komumst við þá að raun um það, að Rafnseyrar- heiði var enn ekki fær bifreið- um vegna snjóþyngsla. Garð- ar bóndi Waage á Rafnseyri ók okkur upp að fönn á heið- inni. Þar hófum við göngu, sem þó varð ekki löng, sökum þess að verið var að ryðja veg- inn með jarðýtu hinumegin frá, mun vegurinn hafa opn- azt 2 stundum seinna, svo Garðar ók yfir heiðina seinna um daginn og gat setið hjá okkur fundinn. • Á Þingeyri — Inni á Þingeyri var tog- arinn Gyllir að landa fiski til frystingar svo vinna var nokkur í þorpinu, þótt þar sé annars dauft yfir. Á Þingeyri var Sigurður Breiðfjörð for- maður verkalýðsfél. Brynju fundarstjóri. Eiríkur Þorsteins- sin mætti þar til varnar fyrir Hræðslubandalagið. • Beið nætur Spjall okkar Karls var slit- ið sundur við það að Karl var kallaður í flugvélina til Vest- mannaeyja. Ásamt öðrum hvarf hann inn í flugvélina, en svo leið og beið að ekki fór hún af stað. Loks komu þrír farþegar til baka. Þeim hafði verið ofaukið. En ekki hreyfð- ist flugvélin að heldur til brottferðar. Og svo kom Karl til baka — og þá fór flugvélr in. Hann hafði látið lítilli teipu eftir farið. Hún hafði raunar keypt farmiða, en gleymt að Játa skrá sig til þessarar ferð- ar. „Ferðu þá á morgun?“ spýr ég'. „Nei, það fer önnur flugvél seinna — í nótt“, svar- ar Kari. — Það er engin lýgi að þeir séu önnuin kafnir hjá Flugfélaginu. Og viðtalið heldur áfram. • Gera út íhalds- braskara — fram að kosningum — Næsta dag fórum við yf- ir Gemlufallsheiði niður í Ön- undarfjörð til Flateyrar, held- ur Karl áfram. Þar er sem stendur næg atvinna. Bank- arnir gera þar út einn íhalds- braskara sem hefur um skeið haft þar togaraútgerð, en at- vinnuöryggi er lítið í þorpinu, því mönnum þykja líkur benda til þess að það muni hægjast um i rekstrinum hans Einars Sigurðssonar þegar íhaldið þarf ekki lengur á honum að haida að afloknuna kosB-ing- um. Á Flateyrarfundinum var fundarst.jóri Hjörtur Hjálmars- son. Þar mættu gegn okkur Hannibal Hræðslubandalags- mennimir þeir Kirkjubóls- bræður, Halldór og Guðmund- ur Ingi, svo og Jón Hjartar. • Hannibal hittir gamlan kunningja — Á Flateyri stigum við svo næsta dag um borð í 5 lesta þilfarsbát sem Frægur heitir, en auk þess sem hann heitir Frægur, þá er hann ekki síður frægur, því það er sama skipið og Hannibal Valdimars- son var fluttur um borð í með valdi í Bolungavík fyrir aldarfjórðungi, þegar hann var að stofna þar verkalýðsfélag. Á því sama skipi fórum við nú til Súgandafjarðar, enda var Breiðdalsheiði ekki fær vegna snjóa. • Ágætar viðtökur — Á Súgandafirði var Bjami Friðriksson formaður verka- lýðsfélagsins fundarstjóri. Auk okkar Hannibals töluðu þar Jónas Sigurðsson, Þórður Stef- ánsson og Njáll Jónsson. Und- irtektir undir málstað Alþýðu- bandalagsins voru sérlega góð- ar á Suðureyri. Þann fund sóttu um 110 manns. • Veðurtepptir í hríðarveðri — Við höfðum ætlað okkur að ganga yfir Botnsheiði og komast til ísafjarðar en þar áttum við að halda fund næsta dag, 15. maí, en um nóttina brast á stórhríð og snjóaði áfram allan næsta dag svo við komumst ekki frá Suður- 0 Frá Patreksfirði, neðst á korí> inu, til ísafjarðar, efst á kori- inu, lá leið þeirra. eyri og urðum að fresta ísa- fjarðarfundinum af þeim sök- um, en daginn eftir komumst við til Isafjarðar með Esjunni og fórum þaðan Óshlíðarveg úí: i Bolungavík. Þar var fundur um kvöldið. Fundarstjóri var Sigurjóa Jóhannesson skóla- stjóri. Þar töluðum við Hanni- bal og Sólveig, e* Friðfin* ■ ur bróðir hennar og Þórður Hjaltason voru þar kornnir ttf. að halda uppi vörnum tyrlr Hræðslubandalagið. Ágúst Vig- fússon talaði einnig með Al- þýðubandalaginu. • Brennandi áhugi — Næsta dag, fimmtudagB fórum við til ísafjarðar. Þai* var brennandi áhugi. Fundinn sóttu um 420 manns. Þar var Pétur Pétursson, varaformaði r Baldurs, fundarstjóri. Þar fluttum við ræður, HannibcL Guðgeir Jónsson, Sólveig Ói- afsdóttir og ég, en á eftir okk- ur komu 7 Hræðslubandalag menn: Jón H. Guðmundsso>u Björgvin Sighvatsson, Kristjáin Jónsson, Marías Þ. Guðmunds- son, Birgir Finnsson, B j arn:: Guðbjörnsson bankastjóri og Jón Jóhannesson, en næstur k eftir Mariasi Þ. talaði Valdi- mar Jóhannsson með Alþýðu.- bandalaginu. • Undraði mest í ferðinni — Það sem mig undraðS mest í allri ferðinni var hva<5 kratarnir áttu lítið fylgi á ísa- fjarðarfundinum. Við fengum þar rniklu betri undirtektiy, og gripu. kratarnir þá til þess ráðs að kalla þá sem klöppuðu fyrir okkur alla íhaldsmenn!! Á föstudaginn fórum við til Súðavíkur og ræddum við fó).k„ en héldum ekki fund. Ura kvöldið fórum við til Hnífsdats og héldum fund þar. Fundar- stjóri var Helgi Björnsson for- maður verkalýðsfélagsins. Á þeim fundi töluðum við þr.iu,, Hannibal, Sólveig og ég. Und- irtektir voru góðar. Á laugardaginn flugum víQ Framhald á 11. síðu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.