Þjóðviljinn - 25.05.1956, Síða 3
7-rsr
- ÞJ^VHJINN-^rí Föstuidagur 25. maí 1956 — (S
Átta kvölda orusta á Vestfjörðum
Aldrei fyrr hefur áhugi fólks fyrir þvi hvernig landinu
er sf[órnaS veriÓ lafnmikill og almennur
Þrennt éinkenndi alla fundina sem viö héldum á Vest-
fjöröum, sagði Kari Guðjónsson í viðtali við Þjóövttjann,
'erhiann kom að vestan.
1. Sérlega mikil fundarsókn. Þaö er langtum meira rót
á hugum vianna nú en hefur verið við kosningar
að undanförnu.
2. Sérstaklega góðar undirtektir við málflutning Al-
þýöubandalagsmanna.
3. Málefnalaust þvaður andstœðinganna, að nokkru
leyti upphrópanir um kommúnista, að hinu leytinu
harðar ádeilur á Hannibal fyrir að hafa gengið úr
’ Alþý&uflokknum!! Þeir vilja ekki viðurkenna að
hann hafi verið rekinn úr flokknum! — Málefnin
forðuðust þeir aö ræða.
Hinn 10. þ.m. fóru þau
Hannibal Valdimarsson for-
seti Alþýðusambandsins, Sól-
veig Ólafsdóttir kona hans og
Karl • Guðjónsson alþm. til
Vestfjarða og komu þaðan aft-
ur laugardaginn 19. þ.m. Á
þessum tíma héldu þau 8 fundi
á jafnmörgum stöðum og
ræddu við um 120 manns á
þeim fundum.
Það var að kvöldi laugar-
dagsins fyrir hvítasunnu að ég
hitti Karl Guðjónsson í bið-
röðinni við afgreiðsluborð
Flugfélags íslands á Reykja-
víkurflugvelii. Hann hafði fyrr
um daginn komið með flugvél
frá Isafírði, s«sf upp í aðra á
Reykjavíkurííugvelli og ætlaði
þegar að halda til Vestmanna-
eyja, en þá var beðið 'góðan
tíma út á flugbraut, unz ioka-
Svar kom, frá Eyjum um að
ólenáandi væri þar. Þá fór
hanu í bæinn, og nú var hann
enn kominn út á flugvöll, eftir
fáar mínútur vrði hann á leið
til Vestmannaeyja. Viðtalið
hófst.
• Vildi gelta
að gestum
— Við flugum héðan til Pat-
reksfjarðar 10. þ.m. Það er
tæpt stundarflug í katalínu-
flugbáti. Gísli Jónsson stóð
þar fremstur manna á bryggj-
unni er við lentum. Sagðist
ekki hleypa neinum svo í tún-
ið hjá sér að hann gelti ekki
að þeim. Kvaðst hafa mætt
hjá Hræðslubandalaginu og
hefði hugsað sér að mæta hjá
okkur iíka.
Þetta var á uppstigningar-
dag. Vegna bilunar á flugvél-
inni þegar átti að leggja af
stað seinkaði ferðinni svo að
við sluppum rétt til Patreks-
fjarðar um það bil er fundur
átti að hefjast. Fundarstjóri
Hannibal Valdimarsson
var þar Ásmundur Ólsen hús-
vörður. Við Hannibal töiuðum
þar, en Gísli Jónsson mætti
fyrir íhaldið.
• Gullnir borðar
sýslumannsins
-— Frá Patreksfirði fórum
við í .ieppa upp Mikiadai. Inn-
anvert i þeim dal stendur
skíðaskáii, eign íþróttahreyf-
ingarinnar á staðnum. Við
þann skála var statt margt
stórmenni og blikaði á gullna
borða sýslumannsins, enda
skvidi nauðungaruppboð á
skálanum fram fara á eign-
inni þennan áag.
® Nýr bátur 1
Tálknafjörð
— Á þessari leið ýar komið
við í Tálknafirði. Þar eru
miklar framfarir. Þeir voru
þá að búa sig undir að taka
Sólveig Ólafsdóttir
á móti nýju stálskipi, v.b.
Tálknfirðingi. Sá bátur átti að
sigla þar inn í höfnina 13. þ.m.
Við ræddum við fólk, en þarna
var ekki fyrirhugað fundar-
hald.
• Umboðsmaður
Rússa
— Frá Tálknafirði héldurn
við yfir Hálfdán til Bildudals.
Gísli Jónsson ók á undan okk-
ur í rússneskum jeppa, enda
hefur hann umboð fyrir þær
bifreiðar, og sparar þeim í
engu lofið. Á Bíldudalsfund-
inum lét Gisli sig samt hafa
það að fara hörðum orðum
um umboðsmenn Rússa! Brostu
menn óspart þegar bent var á
að einasti umboðsmaður Rússa
sem þarna vteri staddur væri
þingmaður kjördæmisins sjálf-
ur!!
Á Bíldudal var fundarstjóri
Jónas Ásmundsson oddviti. Við
Hannibal héldum ræður en
Gísli af háifu íhaldsins.
• Átti ekkert þegar
haim fór!
— Á báðum þessum stöðum,
Patreksfirði og Bíldudai, fór
iítið orð af fundum þeim sem
Hræðslubandalagið hafði hald-
ið, ann'að en það að málsvari
Þjóðvarnar, Sigurður Elíasson,
hefði staðið sig þar einkar iila.
Þau ummæli sem menn tóku
sér heizt i munn urn hann voru
þessi: Hafi hann átt eitthvað
Karl Guðjónsson
þegar hann kom, átti hann
ekkert þegar hann fór!
® Hitti þar einn
Vestmannaeying
— Á Bíldudal hitti ég einn
Vestmannaeying, vélbátinn
Frigg, en á honum fórum við
yfir Arnarfjörð og lentum hjá
Auðkúlu vegna þess að ekki
var lendandi vegna storms á
Rafnseyri. Komumst við þá að
raun um það, að Rafnseyrar-
heiði var enn ekki fær bifreið-
um vegna snjóþyngsla. Garð-
ar bóndi Waage á Rafnseyri
ók okkur upp að fönn á heið-
inni. Þar hófum við göngu,
sem þó varð ekki löng, sökum
þess að verið var að ryðja veg-
inn með jarðýtu hinumegin
frá, mun vegurinn hafa opn-
azt 2 stundum seinna, svo
Garðar ók yfir heiðina seinna
um daginn og gat setið hjá
okkur fundinn.
• Á Þingeyri
— Inni á Þingeyri var tog-
arinn Gyllir að landa fiski
til frystingar svo vinna var
nokkur í þorpinu, þótt þar sé
annars dauft yfir. Á Þingeyri
var Sigurður Breiðfjörð for-
maður verkalýðsfél. Brynju
fundarstjóri. Eiríkur Þorsteins-
sin mætti þar til varnar fyrir
Hræðslubandalagið.
• Beið nætur
Spjall okkar Karls var slit-
ið sundur við það að Karl var
kallaður í flugvélina til Vest-
mannaeyja. Ásamt öðrum
hvarf hann inn í flugvélina, en
svo leið og beið að ekki fór
hún af stað. Loks komu þrír
farþegar til baka. Þeim hafði
verið ofaukið. En ekki hreyfð-
ist flugvélin að heldur til
brottferðar. Og svo kom Karl
til baka — og þá fór flugvélr
in. Hann hafði látið lítilli teipu
eftir farið. Hún hafði raunar
keypt farmiða, en gleymt að
Játa skrá sig til þessarar ferð-
ar. „Ferðu þá á morgun?“
spýr ég'. „Nei, það fer önnur
flugvél seinna — í nótt“, svar-
ar Kari. — Það er engin lýgi
að þeir séu önnuin kafnir hjá
Flugfélaginu.
Og viðtalið heldur áfram.
• Gera út íhalds-
braskara — fram
að kosningum
— Næsta dag fórum við yf-
ir Gemlufallsheiði niður í Ön-
undarfjörð til Flateyrar, held-
ur Karl áfram. Þar er sem
stendur næg atvinna. Bank-
arnir gera þar út einn íhalds-
braskara sem hefur um skeið
haft þar togaraútgerð, en at-
vinnuöryggi er lítið í þorpinu,
því mönnum þykja líkur benda
til þess að það muni hægjast
um i rekstrinum hans Einars
Sigurðssonar þegar íhaldið
þarf ekki lengur á honum að
haida að afloknuna kosB-ing-
um.
Á Flateyrarfundinum var
fundarst.jóri Hjörtur Hjálmars-
son. Þar mættu gegn okkur
Hannibal Hræðslubandalags-
mennimir þeir Kirkjubóls-
bræður, Halldór og Guðmund-
ur Ingi, svo og Jón Hjartar.
• Hannibal hittir
gamlan kunningja
— Á Flateyri stigum við
svo næsta dag um borð í 5
lesta þilfarsbát sem Frægur
heitir, en auk þess sem hann
heitir Frægur, þá er hann ekki
síður frægur, því það er sama
skipið og Hannibal Valdimars-
son var fluttur um borð í
með valdi í Bolungavík fyrir
aldarfjórðungi, þegar hann var
að stofna þar verkalýðsfélag.
Á því sama skipi fórum við
nú til Súgandafjarðar, enda
var Breiðdalsheiði ekki fær
vegna snjóa.
• Ágætar
viðtökur
— Á Súgandafirði var Bjami
Friðriksson formaður verka-
lýðsfélagsins fundarstjóri. Auk
okkar Hannibals töluðu þar
Jónas Sigurðsson, Þórður Stef-
ánsson og Njáll Jónsson. Und-
irtektir undir málstað Alþýðu-
bandalagsins voru sérlega góð-
ar á Suðureyri. Þann fund
sóttu um 110 manns.
• Veðurtepptir í
hríðarveðri
— Við höfðum ætlað okkur
að ganga yfir Botnsheiði og
komast til ísafjarðar en þar
áttum við að halda fund næsta
dag, 15. maí, en um nóttina
brast á stórhríð og snjóaði
áfram allan næsta dag svo
við komumst ekki frá Suður-
0
Frá Patreksfirði, neðst á korí>
inu, til ísafjarðar, efst á kori-
inu, lá leið þeirra.
eyri og urðum að fresta ísa-
fjarðarfundinum af þeim sök-
um, en daginn eftir komumst
við til Isafjarðar með Esjunni
og fórum þaðan Óshlíðarveg úí:
i Bolungavík. Þar var fundur
um kvöldið. Fundarstjóri var
Sigurjóa Jóhannesson skóla-
stjóri. Þar töluðum við Hanni-
bal og Sólveig, e* Friðfin* ■
ur bróðir hennar og Þórður
Hjaltason voru þar kornnir ttf.
að halda uppi vörnum tyrlr
Hræðslubandalagið. Ágúst Vig-
fússon talaði einnig með Al-
þýðubandalaginu.
• Brennandi
áhugi
— Næsta dag, fimmtudagB
fórum við til ísafjarðar. Þai*
var brennandi áhugi. Fundinn
sóttu um 420 manns. Þar var
Pétur Pétursson, varaformaði r
Baldurs, fundarstjóri. Þar
fluttum við ræður, HannibcL
Guðgeir Jónsson, Sólveig Ói-
afsdóttir og ég, en á eftir okk-
ur komu 7 Hræðslubandalag
menn: Jón H. Guðmundsso>u
Björgvin Sighvatsson, Kristjáin
Jónsson, Marías Þ. Guðmunds-
son, Birgir Finnsson, B j arn::
Guðbjörnsson bankastjóri og
Jón Jóhannesson, en næstur k
eftir Mariasi Þ. talaði Valdi-
mar Jóhannsson með Alþýðu.-
bandalaginu.
• Undraði mest
í ferðinni
— Það sem mig undraðS
mest í allri ferðinni var hva<5
kratarnir áttu lítið fylgi á ísa-
fjarðarfundinum. Við fengum
þar rniklu betri undirtektiy,
og gripu. kratarnir þá til þess
ráðs að kalla þá sem klöppuðu
fyrir okkur alla íhaldsmenn!!
Á föstudaginn fórum við til
Súðavíkur og ræddum við fó).k„
en héldum ekki fund. Ura
kvöldið fórum við til Hnífsdats
og héldum fund þar. Fundar-
stjóri var Helgi Björnsson for-
maður verkalýðsfélagsins. Á
þeim fundi töluðum við þr.iu,,
Hannibal, Sólveig og ég. Und-
irtektir voru góðar.
Á laugardaginn flugum víQ
Framhald á 11. síðu