Þjóðviljinn - 25.05.1956, Blaðsíða 6
£$) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 25; íriáí' Í9SÓ
ÞIÓÐVIUINN
Útgefcmdi:
Sameiningarflokkur alpýCu — Sósíalistaflokkurtnn
k
Að sýiia trúna í verki
Hað utanríkisráðherrans hef-
ur ekki enn gefið neina
skýringu á því hver sé ástæð-
an til þess að rikisstjórnin
hefur svikizt um að fram-
kvæma skýlaus fyrirmæli al-
þingis um hernámssamning-
inn. Þjóðviljinn spurðist fyrir
um það fyrir nokkrum dögum
hvort hér væri um að ræða
leynisamning íhalds og Frarn-
sóknar um að gera ekkert í
jnálinu fyrr en eftir kosningar
-— í von um að þá væri hægt
að hunza samþykkt alþingis.
Tíminn liefur ekki svarað einu
«rði, og er sú þögn raunar
ærið svar í sjálfu sér.
I
Tjalfvelgja og tvískinnungur
* ^ Framsóknar í málinu hefur
gert íhaldinu auðveldara fyrir
að stunda hinn þjóðhættulega
1 landráðaáróður sinn. Sjálf-
■ stæðisflokkurinn segir sem
kunnugt er að það séu er-
lendir herforingjar sem eigi að
: skera úr um hversu lengi ís-
land sé hernumið. Sjálfstæðis-
flokkurinn segir í öðru lagi
að Islendingar eigi að selja
landsréttindi sín og sjálfsfor-
ræði fyrir dollara. Þetta er
svo ósvífinn og siðlaus mál-
! staður að jafnvel Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði ekki þorað að
hampa honum ef ekki hefði
komið til heimóttarskapur og
tvöfeldni Kristins utanrikis-
ráðherra og flokksbræðra
hans.
l>andaríska hermálaráðuneyt-
” ið hefur einnig hagnýtt sér
hálfvelgju Framsóknar til
þess að reyna að aðstoða í-
haldið. Það lýsti yfir því að
það myndi „í bili“ (!) hætta
við allar nýjar framkvæmdir
— og Tíminn lýsti yfir undr-
un og áhyggjum!
illt hefur þetta nú orðið til
þess að Tímirin hefur
neyðzt til að skipta um tón,
og röksemdir sósíalista og
annarra hernámsandstæðinga
birtast nú á síðum Tímans —
þær sömu röksemdir sem hafa
verið úthrópaðar árum saman.
Er það vissulega góðra gjalda
vert, en þó ber umfram allt
að sýna trúna í verki. Og
fyrsta skrefið í þá átt er að
Kristinn utanríkisráðherra
framkvæmi fyrirmæli alþingis
og sendi Bandaríkjastjórn og
ráði Norðuratlanzhafsbanda-
lagsins tilkynningu um endur-
skoðun hernámssamningsins.
Augljós misbeiting
F^að heí'ur verið mikil aðferð
„lýðræðismanna" á Vestur-
löndum á undanförnum árum
að reyna að falsa kosninga-
3ög. Einkanlega hefur þetta
verið reynt í Frakklandi, Ital-
íu, Vestur-Þýzkalandi og
Grikklandi; og tilgangurinn
hefur æfinlega verið sá að
reyna að ganga á hlut hinnar
róttæku verkalýðshreyfingar.
En. þessar tilraunir hafa ekki
gefizt vel, þær hafa orðið
mjög óvinsælar hjá almenn-
ingi og áður en varði hafa
þær komið upphafsmönnunum
í koll.
Tjlutirnir eru oft lengi að
"*berast til íslands, og svo
er um þetta. Um sömu mund-
ir og Vesturevrópuþjóðir em
að gefast upp á kosningabrell-
um, skjóta þær upp kollinum
hér. Starfsaðferðir Hræðslu-
bandalagsins eru slík tilraun
til kosningafölsunar, og hinn
yfirlýsti tilgangur forsvars-
manna þess er að fá meira en
helming þingmanna, út á þriðj-
ung kjósenda. Hugsunin í
fölsuninni er þessi: Framsókn
hefur alltaf fengið langtum
fleiri þingmenn en hún á rétt
á vegna rangláts kjördæma-
skipulags. Nú á flokkurinn
að halda þingmannatölu sinni
með langtum minna atkvæða-
magni en nokkru sinni fyrr,
en um 5000 atkvæðum á að
ráðstafa til Alþýðuflokksins
og fá uppbótarsæti út á þau
í þokkabót!
j^að þarf ekki að eyða orð-
*■ um að þvi hversu ó-
skemmtilegur hugsanagangur
býr á bak við slíka brellu
og hversu heilagt forsvars-
mönnum Hræðslubandalagsins
er lýðræði það sem þeir hafa
einatt á vörum. Hitt er einnig
augljóst að þetta fyrirkomu-
lag er skýlaust brot á anda
og tilgangi kosningalaganna.
Ákvæðin um uppbótarsæti
voru til þess sett að tryggja
sem mest réttlæti í skiptingu
þingmanna — en nú er reynt
að nota það ákvæði til þess
að tryggja sem mest órétt-
læti. Samkvæmt anda kosn-
ingalaganna bæri Hræðslu-
bandalaginu auðvitað að bera
fram einn landslista og fá svo
uppbótarsæti til jöfnunar við
aðra flokka eftir atkvæða-
magni bandalagsins í heild.
Þannig væri anda kosninga-
laganna fullnægt og þannig
væri einnig tryggt að þing-
menn skiptust sem réttast eft-
ir atkvæðamagni flokkanna,
en það er eitt meginatriði lýð-
ræðislegrar kosningaloggjafar.
Viö styðjum
Alþýðubandalagið
Straumurinn liggur til vinstri, ekki sízt meðal œskunnar.
Alpýðubandalagið er mikið fyrirheit allri alpýðu um að
íhaldsöflunum í pjóðfélaginu verði skákaö til hliðar, en
pað er í einu brýn nauðsyn og einlœg ósk hins vinnandi
manns. Æskulýðssíðan hefur átt örstutt viðtöl við fimm
unga menn, og fara svör peirra hér á eftir.
I*eir bruÍEi
fjöreggið
Jósep Helga-
son hefur
verið af-
greiðslumað-
ur á B.P.
benzínstöð
hér í bænum.
Hann á heima
inn við Breið-
holtsveg, A-
götu 8. Ættaður vestan af
Fjörðum. Kom í bæinn ’49.
Gekk þegar í F.U.J. og nokkru
seinna í Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur. -— Er ennþá í
báðum þessum félögum.
Og við spyrjum:
— Hversvegna styður þú
fremur Alþýðubandalagið en
Hræðslubandalagið ?
— Undanfarnar vikur hef
ég með sársauka horft upp á
gamla flokkinn okkar liðast í
sundur milli þeirra tveggja
afla er tekizt hafa á í honum.
Auðvitað hef ég sem laun-
þegi viljað sigur þeirra for-
ustumanna er vildu setja hag
vinnandi stétta ofar öðru. En
þeir voru reknir. Eftir sitja
þeir sem ráku. En hvað gerist
þá? Ganga þeir ekki til sam-
starfs við forstokkaða íhalds-
skarfa Framsóknar, sem mér
vitandi hafa aldrei sent verka-
mann á þing eða raunar full-
trúa annarra. launþega og
gera það ekki í framtíðinni.
Mér finnst eins og fjöreggið
hafi brotnað.
Þess vegna ætla ég að
kjósa Alþýðubandalagið.
=sss=
FurSulegf
hlufverk
Lúther Jóns-
son prent-
nemi á heima
í Samtúni 26.
Hann spilar
á tenórhorn
í Lúðrasveit
verkalýðsins.
Hefur verið
til skamms tíma í Félagi
ungra þjóðvarnarmanna.
Hvernig lízt honum á Al-
þýðubandalagið ?
— Það er heldur ömurlegt
að horfa upp á þennan gamla
flokk sinn undanfarnar vikur,
orðinn eitt sauðþægasta í-
haldsvopnið gegn draumi okk-
ar vinstri manna að eignast
öflugt bandalag gegn íhalds-
öflunum.
En það gera þeir með sundr-
ungarstarfsemi sinni þessa
dagana. Þessir gömlu félagar
mínir hafa þó deilt á ósjálf-
stæða hlýðnisafstöðu Sjálf-
stæðisflokksins gegri Amerík-
önum í sjálfstæðismálum þjóð-
arinnar
Get ekki betur séð en þeir
spili sömu furðulegu rulluna í
s téttabar á ttu nni.
Mér finnst stofnun Alþýðu-
bandalagsins stórkostlegasta
tækifæri fólksins á seinni ár-
um, og mun styðja það.
Þeir bitu höfuðið
af skömminni
Friðrik
Brynjólfsson
trésmiður á
heima á
Framnesvegi
46. Æsku-
stöðvar vest-
ur í Dýra-
firði. Lærði
iðn sína á
Patreksfírði, en hefur átt
lieima í Reykjavík síðan ’49.
Hefur til skamms tíma verið í
Alþýðuflokksfélagi Reykjavík-
ur og er núna félagi í Mál-
fundafélagi jafnaðarmanna.
Hversvegna styður hann Al-
þýðubandalagið ?
— Með brottvikningu Al-
freðs Gíslasonar úr Alþýðu-
flokknum og síðar Hannibals
Valdimarssonar fyrirgerðu
forráðamenn flokksins því
trausti, sem kjósendur hans
báru til þeirra.
Til þess að bíta höfuðið af
skömminni gekk svo hægri
klíkan í kosningabandalag við
gömlu madömuna og vék
þannig algjörlega frá hinni
upprunalegu stefnu flokksins:
að styrkja og styðja málstað
Alþýðusambands íslands.
Ég álít að efla beri samtök
allra vinstrisinnaðra manna
gegn báðum íhaldsöflunum. — ■
Það er að vinna að almenn-
ingsheill.
Sú blónuttr-
andi eik
Kristján Jó-
hannsson á
heima Rauð-
arárstíg 3.
Hann á sæti
í trúnaðar-
ráði Dags-
brúnar. Ek-
ur vörubil
hjá Eimskip
niðri við höfn. — Þeir sem
tóku þátt í verkfallinu mikla
síðastliðið vor og komu
kannski nótt eftir nótt á verk-
fallsvörð, tóku eftir þessum
trausta og harðgerða félaga,
er þreyttist aldrei að hvetja
okkur til dáða með fordæmi
sinu.
Hvernig skyldi hljóðið vera
í honum núna ?
— Sjaldan hafa verkamenn.
skynjað betur en undanfarnar
vikur, hvernig hagsmunir
þeirra eru bornir fyrir borð
af svokölluðum ráðamönnum
þjóðfélagsins.
Það líður ekki sá dagur, að
kaupmáttur launa okkar
skerðist ekki í verðhækkunar-
æði stjórnarflokkanna. Þó
finnst mér verkamenn aldreí
hafa átt eins stórkostlegt
tækifæri í stjórnmálum og
þeim hefur boðizt nú með
stofnun Alþýðubandalagsins.
Það er sú blómstrandi eik er
sprettur úr hinu mikla verk-
falli síðastliðið vor.
=SS5=
Cffliitflg
íhatdsins
Jón Böðvars-
son, stud.
mag.,á heima
í Grjótagötu
9. Hann er
ritari Taflfé-
lags Reykja-
víkur og
K.R.-ingur.
Hann hefur
unnið ötult starf í Félagi rót-
tækra stúdenta. Sat einn vet-
ur í Stúdentaráði og þekkir
manna bezt vinstra samstarf
í verki á þeim vettvangi. Við
spyrjum:
-— Hvernig lizt þér á kosn-
ingahorfurnar ?
— Vel. Þeim fjölgar með
hverjum degi, sem skilja, að
kosningarnar í júní verða
beinn þáttur í kjarabaráttu
launastéttanna og gera sér
ennfremur ljóst, að stofnun
Alþýðubandalagsins er rök-
rétt afleiðing hins mikla verk-
falls síðastliðið vor. Gleðileg-
ast finnst mér, að þessi kosn-
ingasamtök sósíalista og' Al-
þýðuflokksmanna eru að slá
úr höndum íhaldsins þá fals-
kenningu, að vinstri öflin geti
ekki unnið saman.
Reynsla mín í stúdentaráði
hefur sannfært mig um, að
enginn grundvallarmunur er á
þjóðmálaskoðun sósíalista,
vinstri Alþýðuflokksmanna,
Þjóðvarnarmanna og vinstri
Framsóknarmanna. Þegar
leysa þarf aðkallandi við-
fangsefni kemur í Ijós, að
skoðanamunurinn er meirí í
orði en á borði.
Féiagsheimiii ÆFR
Félagsheimili Æ.F.R. í Tjarn-
argötu 20 er opið á hverju
kvöldi frá kl. 8-11.30 nerna
laugardaga og sunnudaga, þá
er það opið frá kl. 2-11.30.
Félagsheimilið er opið öllum
sósíalistum og gestum þeirra.