Þjóðviljinn - 25.05.1956, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 25.05.1956, Blaðsíða 12
Hvergi lægri dánartda af r vöMum berkla en hér á Islandi Starfsemin á Reykjalundi hefur vakið athygli víða um lönd 10. þing Sambands ísl. berklasjúklinga var sett að Reykjalundi í gær. Sitja það 83 fulltrúar. i Á s.l. ári var dánartala af völdum berkla komin niöur í 0.7 af 10 þús. og mun þaö vera lægsta dánartala sem þekkist af völdum berkla. Starfsemi S.Í.B.S. að Reykja- lundi hefur vakið athygli víða um lönd. Björgvin Sig'urðsson Forseti þingsins var kosinn Jónas Þorbergsson fyrrv. ut- varpsstjóri og varaforsetar Stein- dór Steindórsson frá Akureyri og Böðvar Ingvarsson frá Vest- mannaeyjum. Þórður Benediktsson ávarpaði þingið og skýrði frá því að SÍBS hefði kosið dr, Sigurð Sigurðsson berklayfirlækni heið- ursfélaga sambandsins, og fór lofsamiegum orðum um stjórn dr. Sigurðar á vörn og sókn gegn berklaveiki hérlendis. Maríus Heigason, sem verið hefur formaður SÍBS s.l. 10 ár flutti ræðu þar sem hann rakti sögu baráttunnar gegn berkla- veiki hér á landi. Samkvæmt rann sóknum á beinum er talið að berklaveiki hafi verið hér á landi áður en Þjórsárdalur eyddist. Á 17. og 18 öld virðist hafa verið nokkur berklaveiki hér og á tveim síðustu óratugum 19. aldar færist hún allmjög í vöxt. Árið 1896 eru taldir 137 berklas.júklingar í landinu, þ. a. 70 í Reykjavík. Árið 1900 eru þeir taldir 239 og árið 1909 sagði Guðmundur Björnsson landlækn- ir að jafnmargir létust af völd- um berkla og öllum öðrum sjúkdómum samanlagt. Árið 1903 voru sett fyrstu berklalögin og 1906 var heilsu- hælisfélagið stofnað, en það safnaði fé til byggingar Vífil- staðahælis, er tók til starfa 1910 með rúmum fyrir 80 sjúklinga. Fimmtán árum síðar var Krist- neshæli reist. Hringurinn hafði berklahæli í Kópavogi og ríkið vísi að hæli í Hveragerði. Árið 1921 voru sett ný berkla- lög er ákváðu um ókeypis lækn- ingu, en á árunum 1924—1930 var dánartala af völdum berkla um og' yfir 20 af hverjum 10 þús. Berklayfirlæknisembættið var stofnað fyrir 20 árum. Var um það bil hafizt handa að leita að sjúklingum á byrjunar- stigi og 40% landsmanna skoð- að í þeim tilg'angi. SÍBS var stofnað fyrir 18 árum og' hefur starfað af dugn- aði og giftu síðan og staðið fyrir hinurn miklu framkvæmd- um við vinnuhælið að Reykja- lundi, sem hafa vakið athygli manna víða um lönd. Árangur af baráttunni gegn berklaveik- inni er líka mjög góður. Árið 1950 var dánartalan 2 af 10 þús., en s.l. ár var hún komin niður í o,3 af hverjum 10 þús, Að lokum minntist Maríus Helgason látinna félagsmanna og risu fundarmenn úr sætum. Þvi næst voru skýrslur flutt- ar og hefur ágóði af starfsem- inni ó Reykjalundi orðið 4 millj. á s.l. tveim árum. — I dag verða fræðsluerindi og skýrslur félagsdeildanna. Bókauppboð S.B. i Sjálfstæðishúsinu Sigurður Benediktsson heldur bókauppboð 1 S.iáll'stæðisluisinu í dag, og' hefst það kl. 5 stund- víslega. Á uppboðinu eru rösklega 100 númer í tveimur deildum: ann- arsvegar gömul landabréf, hins- vegar bækur, flestar frá síðustu öld. Elzta kortið, sem nefnist Is- landia, er frá 1595; og meðal bókanna má nefna frumútgáfu á kvæðum Bjarna Thorarensens frá 1847, ferðabók Hendersons, frá 1819, enska sýnisbók ís- lenzkra kvæða, útgefna í Bristol 1797 — að ógleymdri Landfræði- sögu Þorvalds Thoroddsens, sem alltaf er verið að spyrja um hjá fornbókasölu m. Tónleikaferð Sinfóniusveitarínnar íi! Norðurlandsins tóksí ágætlega Norðurlandsferð Sinfóníuhljómsveitar íslands um hvíta- sunnuhelgina tókst eins og bezt var á kosiö. í förinni voru 34 hljóðfæraleikarar auk hljómsveitarstjórans dr. Páls ísólfssonar. Einar Olgeirsson MagTiús Bjarnason Atmennur fundur áSeffossi í kvöld Alþýðubandalagið efnir til al- menns stjórnmólafundar á Sel- fossi í kvöld. Verður hann í Sel- fossbíói og hefst kl. 8,30. Ræðu- menn á fundinum verða Einar Olgeirsson, Alíreð Gíslason, Magnús Bjarnason og Björgvin Sigurðsson; en þeir Björgvin og Magnús skipa 2 efstu sætin á framboðslista Alþýðubandalags- ins í Árnessýslu. Flogið var til Akureyrar um hádegi annan hvítasunnudag, og hafði brottförin þá tafizt um 3 klukkustundir vegna slæmra veðurskilyrða fyrir norðan. Frá flugvellinum ó Akureyri var ek- ið rakleitt austur að Skjólbrekku í Mývatnssveit. Á undan tónleik- unum þar þauð Kirkjukórasam- band Suður-Þingeyjarprófasts- dæmis hljómsveitarmönnum til kaffidrykkju, og Póll H. .Tónsson skáld og tónskáld á Laugum bauð hljómsveitiua velkomna. Tónleikarnir fóru síðan fram í hinu nýja og myndarleg'a félags- heimili að Skjólbrekku. Voru þeir vel sóttir og hljómsveitinni ókaft fagnað af áheyrendum. í lok tónleikanna flutti hrepps- nefndaroddviti sveitarinnar, .Tón Gauti Pétursson á Gautlöndum, ávarp og þakkaði hljómsveitinni komuna. Jón Þórarinsson fram- kvæmdastjóri Siníóníuhljóm- sveitarinnar þakkaði fyrir henn- ar hönd hlýleg orð og ágætar móttökur. Að þessum tónleikum loknum var ekið tafarlaust til Akureyr- ar. Félagsmenn í Tónlistarfélagi Akureyrar skiptu hljómsveitar- mönnum á milli sín og buðu til kvöldverðar á heimilum sínum þeim, sem ekki áttu kvöldverð- Framhald á 10. síðu. lltankjörstaðaatkvæðagreiðsla hefst sunnudaginn 27. maí. Kosið er hjá hreppstjórum, sýslumönnum eða bæjarfógetum, en í Reykjavík hjá borgarfógeta. (Kjörstaður: Melaskóliim (leikfimisalur) í Reybjavík, kosning fer daglega fram á virkum döguin frá kl. 10—12 f.li., 2—6 og 8—10 e.h. á suimud. 2—6). Kjósendur er dvelja erlendis geta kosið í skrifstofum sendi- ráða, útsends aðalræðismanns, útsends ræðismanns eða vararæðismanna íslands. Allar upplýsingar um utankjör- staðaatkvæðagreiðsluna eru veittar í skrifstofu Alþýðu- þandalagsins Tjarnargötu 20; símar 7510, 7511, 7513. Stuðningsmenn Alþýðubandalagsins eru beðnir að gefa allar upplýsingar um kjósendur sem dvelja fjarri lögheim- ilum sínum hvort heldur er innan lands eða utan. Di-agið ekki fram á síðustu stundu að greiða atkvæði. Alvaran bak við brotifiutningshjalið: Fimm 18 |tk lesta ílubiingaskip til hsrsins á 2 vikum Blöð hernámsflokkanna. hafa undanfarið rætt með skelfingu um brottför bandaríska hersins frá íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn. hefur gert baráttuna fyrir varan- legu hernámi Islands að aðalkosningamáli eins og reynir að afla sér atkvæða með þeim áróðri að hér verði atvinnuleysi ef herinn fari. Enda þótt ríkisstjórnin hafi svikizt um að tilkynna formlega samþykkt Alþingis um brottför hersins hefur Bandaríkjastjórn reynt að hjálpa Sjálfstæðisflokknum í kosningunum með þvi að tilkynna að þegar verði hætt öllum framkvæmdum á Keflavíkur- flugvelli, jafnvel viðhaldi vallarins! Alvaran á hak við brottfarartal hersins sést bezt á þvi að á s.l. 10 dögum til hálfum mánuði hafa 5 birgðaskip um 10 þús. lestir hvert komið til hersins og hafa þau m.a. flutt byggingarefni! «■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■> ■■■■■■■■■■■■■■■■■ Kunnast! kór Banda- ríkjanna syngur hér Robert Shaw væntanlegur á þriðjudag ásami 30 manna kór og 20 manna hljómsveit í næstu viku er hinn kunni bandaríski tónlistarmaður Robert Shaw væntanlegur hingað til Reykjavíkur, ásamt 30 manna blönduðum kór og 20 manna hljómsveit. Halda listamenn þessir eina opinbera tónleika 1 Austurbæjarbíói, kl. 9.15 á miövikudagskvöld. Kórinn er eingöngu skipað- ur völdum atvinnusöngvurum, úrvali úr stærri kór sem mjög er kunnur vestan hafs ig víðar og Robert Shaw stofnaði fyrir rúmlega 10 áraum. Stainstarfsmaður Sliaws Robert Shaw heíur getið sér mikinn orðstír sem frábær stjómandi blandaðra kóra, hljómsveitarstjóri og kennari. Um meira en áratugs skeið var hann samstarfsmaður hins heimsfræga, ítalska stjórnanda Arturo Toscaninis, sem jafnan greip til Robert Shawkórsins, þegar hann stjórnaði flutningi hinna stærri verka meistaranna eins og t. d. Missa Solemnis og 9. sinfóníu eftir Beethoven, Te Deum eftir Verdi, Gesang der Parzen eftir Brahms o. fi. Haldið tónleika i 2(1 þ.jóðlöndiini Undanfarna tvo og hálfan mánuð hefur Robert Shaw ver- ið á tónleikaferð um Evrópu og Mið-Austurlönd, ásarnt kórnum og hljómsveitinni sem hingað kemur. Hafa Bandáríkjamenn- irnir heimsótt alls 36 borgir í 20 löndum og haldið milli 50 og 60 tónleika. Eru þeir nú á leið vestur um haf aftur og er Reykjavík síðasti viðkomustaður þeirra í þessari löngu ferð. Fjölbreytt efnisskrá Eins og áður segir heidur kór- Framhald á 10. síðu. tMÓÐVIIJmN Föstudagur 25. maí 1956 — 21. árgangur — 115. tölublað i9lir $em vilja viina að sigri Hlþýðubandafagsius þurfa að taka söfnunargögn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.