Þjóðviljinn - 26.05.1956, Blaðsíða 6
"Hí) — ÞJÓÐVILJINN — LawgarÆagur
26,/níáí 1«56
ÞIÓÐVILIINN
Útgefandi:
Sameiningarflokkur alþýöu — Sósialistaflokkurinn
___________________________/
Erura við söluvarningur?
Tíminn skýrir í gær frá grein nú er ástæða til að reiðast,
sem nýlega birtist í blaði hafi hún nokkurn tima verið
í Hartford í Connecticut-fylki í nokkur. Þetta erlenda blað lýs-
Bandaríkjunum, en þar segir ir okkur Islendingum sem
svo um ástandið á Islandi: mútuþegum, söluvarningi og
„Það er ekkert það á Islandi skækjum. Eflaust getur það
sem amerískir dollarar geta dregið lýsingar sínar af
ekki læknað. Astæðan fyrir ákveðnum dæmum, það þekkir
erfiðleikunum er vel kunn. forustumenn hemámsflokk-
Sjúkdómseinkennin eru aug- anna og hermangaralýðinn.
Jjós, áhrifarík og óþægileg. En Það þykist vera. að draga
aukin fjárhagsaðstoð, sem lát- UPP mynd af þjóðinni allri,
In væri' í té án tafar, er bezta Þfð heldur þyí fram að hægt
lleiðin til að endurvekja s® haupa íslenzka kjósend-
ánægjuleg samskipti Islands og ur me^ dollurum.
Bandaríkjanna Verkefnið,
sein blasir við Washington, er jþessari lýsingu er aðeins
að finna leið til að bjóða fram hægt að svara með einu
f járhagsaðstoð án þess að það ™óti- Stórblaðið New YorkTim-
líti úf eins ofí verið sé að taka es hefur Jýst >'fir Þvi að þvi að-
beinan þátt í kosningabardag- eins verði staðið við ákvörðun
anura. Sú leið mun verða Alþingis í hemámsmálunum
fundin “ að Alþýðubandalagið vinni sig-
ur í kosningunum. Það er eina.
svarið sem Bandaríkjamenn
að er stundum sagt að við skilja, eina svar þeirra sem
íslendingar séum óþarflega ekki vilja láta heimfæra upp á
ihörundsárir gagnvart því sem sig lýsingar hins bandarísika
nm okkur er sa.gt erlendis, en blaðs.
„Maður kemur manns í stað”
Um langt skeið hafa verið
hörð átök innan Alþýðu-
flokksins og þa.u hafa æfin-
• lega verið á eina. lund: annars-
vegar hafa barizt forustumenn
flokksins innan verkalýðs-
hreyfingarinnar, hins vegar
embættismannaklíkan. Þessi
átök hafa endurtekið sig æ
ofan í æ. Héðinn Valdimarsson
• var rekinn úr Alþýðuflokkn-
um vegna þess að hann túlk-
■ sði sjónarmið verkalýðshreyf-
. ingarinnar og barðist fyrir ein-
ingu alþýðunnar, Guðgeir
Jónsson, fyrrverandi forseti
Alþýðusambands íslands, varð
viðskila flokkinn af sömu á-
■ stæðu, og nú hefur Hannibal
Valdimarsson, forséti Alþýðu-
sambands íslands, verið rekinn
. úr fiokknum fyrir einingar-
. baráttu sína. Allt er þá þrennt
er. Og nú er svo komið að
embættismannaklíkan er orðin
algerlega einráð, gín ein yfir
öllum framboðunum og meira
• að segja jafn sauðmeinlausum
■ og þægum mönnum og Eggerti
Þorsteinssyni er sparkað úr
öllum vonarsætum.
En maður kemur manns í
stað, segja embættismenn-
irnir í Alþýðuflokknum, og
þeir sanna þá kenningu í verki,
í stað verkalýðsfulltrúanna er
komin hægri klíka Framsókn-
ar, eitthvertsótsvartasta aftur-
hald landsins. Það bandalag er
persónugert í Rannveigu Þor-
Bteinsdóttur, sem skipar þriðja
aætið á lista Alþýðuflokksins
(og er nú gengin í flokkinn í
folekkingaskyni að sögn!).
Rannveig er mjög ákveðinn
afturhaldssinni í skoðunum, og
í átökunum innan Framsókn-
ar hér í bænum hefur hún
[ foeitt sér hatrammlega gegn
vinstri mönnunum. Þegar Full-
trúaráð Framsóknarflokksins
samþyltkti tillögu um nauðsyn
þess að andstöðuflokkar
íhaldsins tækju höndum sam-
an í næstu bæjarstjórnarkosn-
ingum í Reykjavík varð hún
svo æf að hún gekk af fundi
og skellti. hurðum. Innan
Framsóknar er hún talin lík-
ust Eysteini Jónssyni að skoð-
unum og innræti.
llMaður kemur manns í stað
segja embættismenn Al-
þýðuflokksins, reka Hannibal
Valdimarsson en hampa Rann-
veigu ! En þeir eiga eftir að
sa nnreyna hversu margir það
verða sem koma í stað þeirra
þúsunda kjósenda sem hægri
klíkan hefur rekið frá flokkn-
um að undanförnu.
Fyrirmyndin
Blöð Hræðslubandalagsins
hafa að undanförnu reynt
að líkja Áka Jakobssyni við
ýmsa merka menn hérlendis
og erlendis en þeim hefur tek-
izt böngulega að finna hlið-
stæðurnar. Fordæmið er þó
auðfundið. Áki Jakobsson hef-
ur farið nákvæmlega sömu leið
og Stefán Pétursson; þeirvoru
einu sinni skoðanabræður og
eru orðnir það aftur, og auð-
velt er að finna fleiri skyld-
leikamerki. Þjóðviljinn mun þó
láta blöðum Hræðslubanda-
lagsins það eftir, fyrst þau
hafa slíkan áhuga á að finna
manninum hiiðstæður. Og sízt
er að efa að þau og Áki telji
fyrirmyndina góða og merka
— eða hvað?
Bretar reyna að halda
herstöðvum með valdi
¥ Ttanríkisráðherra Bretlands,
Selwyn Lloyd, hefur ekki
iátið mikið til sín taka til
þessa. Margir í Bretlandi
teija hann brúðu í höndunum
á Eden, sem sé vel á veg kom-
inn að ganga af sér dauðum
með því að reyna að vera bæði
forsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra samtímis. Hvernig
sem því er varið er það stað-
reynd, að Lloyd er að ýmsu
leyti óskrifað blað, erfitt hef-
ur verið að koma auga á nokk-
urt persónulegt mark hans á
utanríkisstefnu Bretlands. Á
mánudaginn hélt Lloyd þó
ræðu, sem töluverða athygli
hefur vakið. Þar fagnaði hann
ákvörðun Sovétstjómarinnar
að fækka í her sínum um
1.200.000 manns og kvaðst
sannfærður um að „líkurnar
á árás eru nú minni en nokkru
sinni fyrr“. Hinsvegar taldi
hann Vesturveldunum stafa
„bráða hættu“ af þeim grúa
„tæknisérfræðinga, vísinda-
manna, kennara, kaupsýslu-
manna og annarra sérfræðinga“,
sem Sovétríkin gætu sent hvert
á land sem væri til að hjálpa
tií að iðnvæða vanyrkt lönd.
Viðskiptasamkeppni milli Vest-
urveldanna og Sovétríkjanna
„er óendanlega miklu æski-
legri en kjarnorkustríð", sagði
Lloyd, en hún getur engu síður
að hans dómi „haft stórhættu-
legar afleiðingar fyrir frjálsar
þjóðfélagsstofnanir okkar og
annarra frjálsra landa heims-
ins“.
að ræða heiðnar þjóðir og hör-
undsdökkar. Öðru máli gegn-
ir um Kýpur, þar reynir 18.000
manna brezkt herlið að kæfa
frelsishreyfingu meðal manna
af grískum stofni, en með
Grikkjum og Bretum hefur
lengst af verið vinfengi síðan
Byron barðist í frelsisstríði
Grikkja gegn Tyrkjum, og eitt
helzta afrek landstjórans,
Hardings hershöfðingja, var að
leggja hendur á Makarios erki-
biskup, höfuð eins elzta safn-
aðar kristinna manna, og
flytja hann í útlegð. Þar að
auki hefur það verið yfirlýst
stefna brezkra ríkisstjóma síð-
an heimsstyrjöldinni síðari
lauk að viðurkenna beri sjálf-
ákvörðunarrétt nýlenduþjóð-
anna með tíð og tíma og yfir-
gnæfandi meirihluti Breta er
stoltur af því að Indlandi,
Burma og Ceylon var veitt
sjálfstæði með friðsamlegu
samkomulagi.
¥ loyd hélt því fram í ræðu
sinni að það væri enn
stefna brezku stjórnarinnar að
virða sjálfsákvörðunarrétt ný-
lenduþjóðanna en „máttur
*-------------------'
Erlend
tíðindi
w. V
brezka heimsveldisins“ yrði þó
að sitja í fyrirrúmi. „Það væru
svik við uppvaxandi kynslóð
ef við köstuðum á glæ þeim
eignum í öðrum heimsálfum
sem eru ómissandi vegna
hernaðarhagsmuna okkar“,
sagði ráðherrann. í þessum
flokki „ómissandi“ herstöðva
taldi hann þrjá staði, sem mjög
koma við sögu í heimsfréttun-
um um þessar mundir: Kýpur,
Aden og Singapore. Hér í blað-
inu hefur áður verið gerð all-
rækileg grein fyrir baráttu
Kýpurbúa fyrir rétti til að
sameinast Grikkiandi og skal
það ekki endurtekið. I Aden og
Singapore hefur enn ekki kom-
ið til jafn voveiflegra atburða
og á Kýpur og hefur því gang-
ur mála á þeim stöðum legið
meira í láginni.
Hægfara sósíaldemókratískur
flokkur, Verkalýðsfylkingin
fékk tíu þingmenn kjörna, í-
haldsflokkarnir þrír níu og rót-
tækur, sósíalistiskur flokkur,
Athafnaflokkur alþýðunnar,
þrjá. David Marshall, foringi
Verkalýðsfylkingarinnar, mynd-
aði stjórn.
¥ kosningunum lýstu vinstrl
flokkarnir yfir að þeir
myndu krefjast fullrar sjálf-
stjórnar Singapore, en nú er
úrslitavald í öllum málum í
höndum brezka landstjórans.
Samninganefnd undir forustu
Marshalls kom til London
snemma í þessum mánuði og
í síðustu viku fóru viðræður
hennar við Lennox-Boyd, ný-
lendumálaráðherra Bretlands,
út um þúfur. Brezka stjórnin
var ófáanleg til að sleppa yfir-
ráðum yfir landvörnum Singa-
pore og lögreglumálum í borg-
inni. Pólitísk framtíð Marshalls
valt á því að hann næði ein-
hverjum árangri í London og
á seinustu stundu reyndi hann
að slaka til gagnvart Bretum,
en þá sögðu fulltrúar hinna
flokkanna í samninganefnd
Singapore skilið við hann. Af-
leiðingin er að Verkalýðsfylk-
ingin er nú í upplausn. Mar-
shall sakar Breta um að þeir
hafi með stífni sinni lagt At-
hafnaflokknum biturt vopn í
hendur. Foringi þess flokks er
maður af kínverskum ættum,
Lee Kuan Yew. Marshall og
Bretar telja flokk hans komm-
únistískan, en kommúnista-
flokkurinn er bannaður \
Singapore. Meirihluti borgar-
búa er af kínverskum ættum.
og kínverski verkalýðurinn er
mjög róttækur. Bretar segja
fullum fetum, að ef þeir veiti
Singapore sjálfstæði megi bú-
ast við því að kommúnistísk
Makarios erkibiskup á Kýpur
útifyrir erkibiskupssetrinu í
Nicosia.
stjórn Kínverja komist þaf
brátt til valda. Talið er líklegt
að það gerist næst í Singapore
að Marshall neyðist til að
segja af sér forsætisráðherra-
embættinu og biðja landstjór-
ann að efna til nýrra kosn-
inga.
Framhald á 10. siðn
VTfirlýsing ráðherrans um að
stríðshættan sé nú minni
en nokkru sinni fyrr og ótti
hans við vísindamenn og tækni
fræðihga Sovétríkjanna vöktu
þó minni athygli en annað at-
riði í ræðu hans. Lloyd réðst
nefnilega í að réttlæta stefnu
brezku íhaldsstjórnarinnar í
málum nýlendnanna í Asíu.
Slíkt er ekki heiglum hent,
því að ófremdarástandið á
Kýpur mælist illa fyrir meðal
brezks almennings ékki síður
en með öðrum . þjóðum. Kyn-
þáttagorgeir og trúarofstæki
eiga enn það mikil ítök í
Bretlandi að margir þar
láta sér fátt um finnast þótt
menn séu brytjaðir niður þús-
undum saman í nafni heims-
veldisins í Kenya og á Mal-
akkaskaga, því að þar er um
Singapore er mikil hafnarborg
og flotastöð á eyju við suð-
urodda Malakkaskaga. Bretar
skildu hana stjórnarfarslega
frá Malakkaskaga fyrir nokkr-
um árum. Malakkaskagi hefur
nú fengið sjálfstjórn i orði
kveðnu en brezka stjórnin
hefur verið langtum tregari til
að sinna sjálfstæðiskröfum
Singaporebúa, enda þótt stjórn-
málaþroski sé mun meiri í
borginni en á meginlandinu. í
fyrra fóru fram fyrstu kosning-
ar í Singapore með almennum
kosningarétti og innlend stjórn
var mynduð i fyrsta skipti.
Bretar höfðu vonað að íhalds-
flokkar hinna auðugu kaup-
sýslumanna í Singapore,
brezkra, kínverskra og ind-
verskra, myndu vinna kosning-
arnar, en það fór á annan veg.