Þjóðviljinn - 27.05.1956, Page 6

Þjóðviljinn - 27.05.1956, Page 6
• 8) — ÞJtfeVILJINN Sunimdágur 27.' tóaí ÞlÓÐVILJINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alpýOu — Sósialistaflokkurinn Hin ærandi þögn |>löð stjórnarflokkanna hafa •*-* verið spurð ýmissa spurn- inga á undanförnum vikum, spurninga sem skipta megin- snáli fyrir afkomu þjóðarinnar og framtíð. TJrræði þeirra hef- s)r verið þögnin — sú ærandi J)ögn sem er hlutskipti sak- l bitinna manna sem ekki geta geta gert grein fyrir verkum íSÍnum og áformum. i I f>jóðviljinn hefur spurt * stjórnarflokkana hvernig á |»ví standi að ríkisstjórnin hef- wr svikizt um að framkvæma Jiá ákvörðun Alþingis að Siefja ÞEGAR endurskoðun ihernámssamningsins með form iegum tilkynningum til Banda- sríkjastjórnar og ráðs Atlanz- 'hafsbandalagsins. Það eru tveir mánuðir síðan Alþingi samþykkti ákvörðun sína með aniklum meirihluta atkvæða, og allan þann tíma hefur ríkis- Btjórnin svikizt um skylduverk sín. Þjóðviljinn hefur spurt hvort hér væri um að ræða leynisamning íhaldsins og Mræðslubandalagsins um að aðhafast. ekkert í málinu fram • að kosningum — þrátt fyrir öll hin gagnkvæmu fúkyrði í ’hlöðunum — með þeim tilgangi @ð svíkjast svo um allt saman að kosningum loknum. Svörin eru þögn, ærandi þögn, og til- fcyiiningarnar eru ófarnar enn. &ióðviljinn hefur spurt íhalds flokkinn og Hræðslubanda- 'áagið um fyrirætlanir þeirra í efnahagsmálum að kosningum iloknum. Stjórnarflokkarnir Siafa lýst yfir því að skatta- álögurnar miklu sem voni sam- 'þykktar í vetur, mestu álögur í sögu þjóðarinnar, séu aðeins f>ráðabirgðaúrræði, hin rauri- •^erulegu bjargráð komi elski íyrr en að kosningum loknum. En um það er ekkert sagt hver hjargráðin séu. I 'hinum svo- inefnda málefnasamningi Al- þýðuflokksins og Framsóknar er ekki vikið einu orði að þessu •veigamesta atriði í efnahags- nnálum þjóðarinnar. í ályktun- mm landsfundar Sjálfstæðis- tflokksins var ekki minnzt orði á það hvað auðmannastéttin ætlaðist fyrir. En uppi í stjórn- arráði liggja fullbúnar tillögur írá hagfræðinganefnd sem etjórnin skipaði, og þar er gert ráð fyrir GENGISEÆIKKUN <og KAUPBINDIMGU. Þjóð- ’viljinn hefur spurt: Eru þetta þær tillögur sem á að fram- íkvæma EFTIR KOSNINGAR jþótt ekki megi minnast á þær <einu orði FYRIR KOSNING- AR? Svörin eru þögn, ærandi þögn, og tillögur hagfræðing- anna bíða þeirrar stjórnar sem við tekur eftir kosningarnar í sumar. Þjóðviljinn hefur spurt íhalds flokkinn og Hræoslubanda- ‘jagið um fyrirætlanirnar í landhelgismálum og afurða- gölumálum. Undanfarna mán- uði hefur farið fram lítUlækk- andi, þjóðhættulegt makk við brezka útgerðarauðvaldið. Á síðasta þingi var orðið við þeirri kröfu brezkra útgerðar- manna að hunza allar kröfur Islendinga um stækkun land- helginnar. Síðustu vikurnar ihafa útgerðarmennirnir Kjart- an Thors, Loftur Bjarnason og Jón Axel Pétursson verið að semja við brezka útgerðar- menn um að aftur verði tekn- ar upp ísfisksölur til Bret- lands. Þjóðviljinn hefur spurt hvort það eigi að selja land- helgisréttindi Islendinga fyrir braskaðstöðu handa thorsur- unum í Bretlandi. Þjóðviljinn hefur spurt hvort það eigi að taka upp ísfisksölur í Bret- landi í stað þess að fullverka aflann heima, þótt gjaldeyris- tapið a.f slíkum umskiptum nemi hundruðum milljóna króna á ári. Svörin eru þögn, ærandi þögn, og það er haldið áfram að vinna að því að ís- fisksölumar geti hafizt þegar að kosningum loknum. Þannig koma Ihaldið og Hræðslubandalagið fram fyrir kjósendur og þora ekki að segja neitt um afdrifarík- ustu vandamál þjóðarinnar. Þögnin verður aðeins skýrð á þann veg að þessir flokkar séu staðráðnir í þvi að svíkja í þessum málum öllum, traðka á réttindum þjóðarinnar og hags munum almennings. Ef þessir flokkar ætluðu vel að gera, myndu þeir vissulega vera há- værari um stefnu sína og fyrir- ætlanir á þessum sviðum. Það er því mesti misskilningur af forsprökkum þessara flokka að ímynda sér að þeir geti skýlt sér á bak við þögnina; hún er háværari en nokkur orð, og hljómur hennar mun glymja í kjörklefunum 24. júní í sumar. Hvers vegna? ¥vað hefur vakið almenna at- *• h\rgli að Þjóðvarnarflokk- urinn býður ekki fram í Vest- urskaftafellssýslu að þessu sinni. Flokkurinn bauð þar fram við síðustu kosningar og fékk ekki lakari útkomu en við mátti búast. Að þessu sinni átti hann kost á mjög líklegum frambjóðanda, þar sem var frú Guðríður Gísla- dóttir, Sveinssonar, fyrrver- andi alþingismanns kjördæmis- ins. Telja kunnugir menn að Guðríður hefði haft góðar lík- ur til að safna atkvæðum með- al íhaldskjósenda og að fram- boð hennar hefði haft þau á- hrif að íhaldsþingmaðurinn ihefði fallið. Er það eina kjör- dæmið i landinu sem þannig er ástatt um. Samt fellir Þjóð- vörn niður framboð sitt ein- mitt í þessu kjördæmi. Hvað kemur til? Vílja stela tíu þingmönnum f síðustu kosningum böfðu Framsóknarflokkuriim og Al- þýðuflokkuriun samtals 37,5% k.iósenda í landinu. eða rúm- an þrið.iung. Samkvæmt at- kvæðatölum og venjuleguin lýðræðisreglum áttu þeir þá rétt á 18 þingmönnum sam- eiginlega. Þeir fengu liins vegar 22 þingmenn, fjórum fleiri en þeir áttu rétt á — og þessir 4 þingmenn voru að sjálfsögðu teknir af kjós- endum sein höfðu allt aðrar skoðanir en forustumenn Al- þýðuflokksins og Framsóknar. ★ Þessi staðreynd kom reikn- ingsmeisturum Alþýðuflokks og Framsóknar upp á bragð- ið, nú skyidi reynt að falsa meir. Og árangurinn hefur sézt að undanförnu, sameig- inleg framboð beggja flokk- anna í öllum kjördæmum, en samt tveir landslistar! Með þessu móti á Framsóknar- flokkurinn að reyna að hirða sem allra flest kjördæmakos- in þingsæti út á sem allra fæst atkvæði, en Alþýðu- flokkurinn á að reyna að hremma sem allra flest upp- bótarsæti. í þessu skyni ráð- stafar Alþýðuflokkurinn 2000 atkvæðum til þeirra fram- •bjóðenda sem taldir eru Frainsóknarmeiui, og Fram- sóknarflokkurinn ráðstafar 7000 atkvæðuni (nærri því helmingnuin af fylgi sínu!) til þeirra frambjóðenda sem taldir eru - heyra Alþýðu- flokknum til. Með þessu móti segjast þeir ætla að fá 28 þingmenn út á sama atkvæða magn og í síðustu kosning- um, þriðjung atkvæða. Þeir ætla með öðrum orðum að stela 10 þingmönnum fram yfir það sem þeir eiga rétt á, samkvæmt tilgangi kosn- ingalaganna og öllum lýð- ræðisreglum, og tryggja sér meirihluta á þingi þótt þeir séu í miklum minnihluta meðal þjóðarinnar. ★ Það þarf ekki að lýsa því að slíkar aðfarir eru í fyllsta ósamræmi við réttarvitund almeimings og allar reglur þingræðis og lýðræðis, og ó- breyttir fylgismenn Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks hafa skömm á þeim. Þær sýna að leiðtogar þessara flokka eru hættir að hugsa um að afla sér fylgis og trausts meðal þjóðarinnar, þeir hugsa í staðinn um svik og pretti — það er eina úr- ræði þeirra til að tryggja sér áhrif. En þetta liugarfar sýn- ir einnig fulla fyrirlitningu á alþýðu maima; þessir herrar telja samtök fólksins engu máli skipta, heMur aðeins fjölda þingfulltrúa, hvernig svo sem þeir eru fengnir. ★ Að sjálfsögðu ber að banna forustumönnum Hræðslif-^' bandalagsins að framkvæma kosningasvik sín. Þeir bjóða fram sem einn flokkur í öll- um kjördæmum landsins og eiga samkvæmt tilgangi og bókstaf kosningalaganna ekki rétt á nema einum landslista. Þá fá þeir þingmannafjölda í sem nánustu samræmi við kjörfylgi sitt, og undan því getur enginn kvartað með neinum rökum. Mótmæli Hræðslubandalagsins eru að- eins reiði þess sem er bann- að að stela, lieift þess sem er bannað að falsa. Venjulegir afbrotamenn hafa hvorki upp- burði né aðstöðu til að láta slíkar kvartanir í Ijós, og ráðamenn Hræðslubandalags- ins ættu að eiga til þá sóma- tilfinningu að þegja líka og breyta framboði sínu í sam- ræmi við einföldustu og sjálf- sögðustu lýðræðisreglur. ® kVmm*m »V.¥ ■BiW mmmnmmmm SfiÁKIN | Ritstjórí: J/ jj GUÐMUNDUR ARNLAUGSSON «— — — " ‘ i IJÍGI It. JOHANNSSON skiiuneistari ísiands 19S6 Skákþingið síðasta var nýr vottur um þá grósku, sem er í skáklífi okkar um þessar mundir. Að vísu vantaði nokkra af beztu skákmönnum okkar: Friðrik Ólafsson, Guð- mund S. Guðmundsson og Guð mund Pálmason, en þrátt fyr- ir það var mótið fjölmennt og vel setið, keppnin hörð og spennandi til loka. Ungur og lítt reyndur skák- maður, Freysteinn Þorbergs- son, tók forustuna þegar í upphafi og hélt henni fram undir lokin, en þá tók yngsti þátttakandinn við, Ingi R. Jóhannsson, og tryggði sér sigurinn. Ingi tapaði að vísu fyrir Baldrí Möller í síðustu umferð, en hann var þá orð- inn öruggur um sigur á mót- inu, hvernig sem sú skák færi. Urslit hafa áður verið birt: 1. Ingi R 8V2 vinning úr 11 skákum eða 77% ; 2.-4. Baldur Möller, Freysteinn Þorbergs- son og Sigurgeir Gíslason 8 vinn. hver; 5. Jón Pálsson 6l/2 vinning, og 6. Árni Snæv- arr með 5V2 vinning. Þá bagar engin elli, ís- landsmeistarana okkar í skák. Síðan 1951 er röðin þessi: Lárus Johnsen, Friðrik Ólafs- son tvisvar, síðan Guðmundur S. Guðmundsson og nú Ingi R. Jóhannsson. Hér fer á eftir sú skákin, sem kalla, mætti úrslitaskák mótsins. Hún er tefld í næst- síðustu umferð, og með henni tryggði Ingi sér sigur á hættulegasta keppinaut sínum og lokasigur í keppninni. Ingi hafði hálfum vinning meira en Freysteinn, er skákin hófst. KÓNGSINDVERSK VÖRN 18. maí 1956 Freysteinn Þorbergssou — Ingi R. Jóliannsson 1. d2-d4 Rg8-f6 2. c2-c4 g7-g8 3. Rbl-c3 Bf8-g7 4. e2-e4 d7-d6 5. Í2-Í3 e7-e5 6. Bcl-e3 eöxd4! 7. Be3vd4 Rb8-c6 8. Bd4-e3 Bc8-e6 Nú er komið í Ijós að 6. leik- ur Freysteins var ekki sem beztur. Hann hefði annað- hvort átt að leika d-peðinu áfram eða valda það með Re2. Hvítur hefur glatað tíma við kaupin og á óhægt um vik að koma kóngsmönnum sínum á framfæri. Auk þess er peð- ið á c4 hjálparþurfi. 9. Rc3-d5 Rc6-e5 10. Be3-g5 c7-c6! 11. Bg5xf6 Bg7xf6 12. Rd5xf6f Dd8xf6 13. Ddl-d4 Hversvegna drepur hvítur ekki peðið ? Eftir 13. Dxd6 Hd8 14. Db4 ætti svartur að vísu frjálsara tafl fyrir peðið, en hor urnar væru þá sízt lak- ari fyrir hvít heldur en í skál?- inni sjálfri. En Freysteinn hefur sjálfsagt óttazt 13. — Rxc4! 14. Bxc4 Dxb2. Á þann hátt sýnist svartur verða ofan á. Ur því að málin standa þannig, er Ijóst að hvítur stendur til muna lak- ar að vígi. Hann er orðinn á eftir og á illt með að koma mönnum sínum fram. Vafa- samt er að sú leið sem hvítur velur (Ddl-d4-c3 og Hadl) sé hin bezta er hann á völ á, en hitt er allavega ljóst, að hann má sækja á brijttann, hvernig sem hann fer að. 13. 0-0 14. Hal-dl Hf8-d8 15. Dd4-c3 d6-d5! 16. e4xd5 c6xd5 17. c4-c5 d5-d4! Línuopnun er fyrsta bororð þess sem á undan er. Framhald á 11. síðu Hverp mimdiriu leika? Richter ^ A ífffi 118 Hf§ t' ÉT*WÍi 1111 ...... ■"//////,. vm, émt Wm íW' ABCOHFGH Schmitt Síðari myndin sýnir tafl- stöðu er kom upp í skák milli Schmitts og Richters á skák- móti x Bad Salbrunn 1933. Hvítur á manni meira en svartur, en staðan er hættu- leg, því að svartur lék síðast Bd7 og ’hótar nú máti í þriðja leik. Plvérnig mundirðu bregð- ast við þeirri hótun? — Svar á 2. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.