Þjóðviljinn - 30.05.1956, Page 1
119. tölublað
veitið aöstoð!
Stuðningsmenn Alþýðubanda-
lagsins eru beðnir að koma £
sjálfboðaliðsvinnu í skrifstofuf
Alþýðubandalagsins Tjarnarg.
20 þegar þeir hafa tíma. Slrnf-
stofan er opin frá ki. 10-12 f.h.„
1-7 e.h. og 8-10 e.h. alla dagá'
fram að kosningum.
Hin nána samstaða íhalds~
ins og Hræðslubandalagsins
iflífa livorir öðruin og hafa samstöðu í
ýinsuin iniklivægustu iiiáluin þ|ööarinnar
Það er nú augljóst hverjum manni a'ð hiö nánasta sam-
band hefur veriö milli Sjálfstæöisflokksins og Hræðslu-
bandalagsins í öllum undirbúningi Alþingiskosninganna í
sumar, og var samstaöan kórónuö meö afgreiöslunni á
landslistamáli Hræöslubandalagsins. Einnig hafa birzt
hin nánustu tengsl Sjálfstæöisflokksins og Hræðslubanda-
lagsins í ýmsum mikilvægustu málum þjóöarinnar, svo
sem hernámsmálunum og landhelgismálinu.
Aðdragandi kosninganna heíur
verið mjög skýr og lærdómsrík-
ur, og hver kjósandi þarf að
gera sér grein fyrir honum.
"I Alþýðusambantl íslands skor-
-*-• aði á vinstri flokkana að
hafa samvinnu í kosningunum
til þess að brjóta á bak aftur
ofurvald íhaldsinst. Slík sam-
vinna hefði m. a. haft þau á-
hrif að allir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins í kaupstöðunum
utan Reykjavíkur hefðu fallið,
því þeir hafa verulegan minni-
hluta atkvæða á bak við sig' á
hverjum stað. En forustumenn
Hræðslubandalagsins neituðu
þessuin kostum — þeir vildu
ekki leggja til raunverulegrar
atlögu við íhaldið og vinna
kjördæmi af því.
O í staðinn bjuggu Hræðslu-
bandalagsmenn til þá kosn-
ingabrellu að skiptast á atkvæð-
um í kosningunum. Tilgangur-
inn með lienni er sá að fá mun
fleiri uppbótarþingmenn en
bandalagið á rétt á. Þá þing-
menn á að taka frá Alþýðu-
bandalaginu, því Sjálfstæðis-
flokkurinn liafði ekki einn ein-
asta uppbótarþingmann í síðustu
kosningum. í stað baráttu við
ihaldið kemur þannig innbyrðis
togstreita andstöðuflokka ihalds-
ins um uppbótarsætin og ætlun-
in er sú að Alþýðubandalagið
fái mun færri þingsæti en það
á rétt á samkvæmt kjósenda-
fjölda.
O íhaldið kærir kosninga-
'I* brellu Hræðslubandalags-
ins fyrir landskjörstjórn til
þess að liafa sem bezt tiik
á bandamiinnum sínum. Síð-
an er samið um það milli
Eysteins, Gylfa og Bjarna Ben.
að kæran skuli ekki hafa fram-
gang, og fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í landskjörstjórn skipt-
ast svo á um það að fella kæru
Sjálfstæðisflokksins!
A Þessi viðskipti eru keypt
því verði að Hræðslubanda-
lagið myndi hægri stjórn með
ihaldinu þegar að kosningum
loknum. Eftir þeirri stjórn bíður
hagfræðingaálit það sem samið
var að tilhlutan stjórnarflokk-
anna sameiginlega og felur í sér
stórfellda gengislækkun og kaup-
bindingu. Þar er að finna hina
sameiginlegu kosningastefnuskrá
íbaldsins og Hræðslubandalags-
ins, hvað svo sem reynt er að
karpa í blöðum og á fundum
fyrir kosningar.
Hernámsmálin
I sambandi við þessar stað-
reyndir má minna á hina sér-
stæðu samstöðu íhaidsins og
Hræðsiubandaiagsins í hernáms-
máiunum. Enda þótt meira en
tveir mánuðir séu liðnir síðan
Alþingi samþykkti ályktun sína
um endurskoðun hernámssamn-
ingsins og brottíör hersins hefur
ríkisstjóruin ekki enn sent
Bandaríkjastjórn eða ráði Norð-
uratlanzhafsbandalagsins neina
formlega tilkymiingu um málið.
Ástæðan er leynisamningur í-
haldsins og Hræðslubandalagsins
um að gera ekkert raunverulegt
í málinu fyrir kosningar í von
uni að hægt sé að komast hjá
því að gera nokkuð að kosning-
um loknum. Og svo ieyfa þessir
flokkar sér að stunda innbyrð-
is deilur í blöðum um áfstöðu
sína.
Landhelgismálin
I landhelgismálunum er einnig
um að ræða algera samstöðu
íhaldsins og Hræðslubandalags-
ins. Undir stjórn Kristins Guð-
mundssonar, utanríkismálaráð-
herra Framsóknar, hafa íhaids-
maðurinn Kjartan Thors og Al-
þýðuf lokksmaðurinn Jón Axel
Pétursson stundað samninga-
makk sitt við brezka útgerðar-
menn. Þetta samningamakk er
nú komið á það stig að ísfisk-
sölur til Bretlands eiga að hefj-
ast að kosningum loknum. Þessi
viðskipti eru keypt því verði að
fellt var að afgreiða nokkra til-
lögu um stækkur, landhelginnar
á síðasta þingi, og stóðu stjórn-
arflokkarnir einhuga að þvi.
Allir vita að ísfisksölur til Bret-
lands jafngilda stórfelldu gjald-
eyristjóni og minnkandi atvinnu
og einnig hitt að thorsararnir
hirða milliliðagróða af öllum
viðskiptum togaranna í Bret-
iandi. Gróði thorsaranna er eina
Framhald á 11. síðu
Bandarískur stórnjósnari
strýkur með leyniskjöl í
Hefur flett ofan af njósnakerfi í Austur-
Þýzkalandi
Grotewohl, forsætisráöherra Austur-Þýzkalands, skýröi
írá því á þingi í gær aö fyrir skömmu heföi háttsettur
starfsmaöur bandarísku leyniþjónustunnar strokiö til
Austur-Þýzkalands með mikiö af leyniskjölum frá hús-
bændum sínum.
Grotewohl sagði, að upplýs-
ingarnar í hinum bandarísku
leyniskjölum hefðu orðið til þess
að tekizt hefði að fletta ofan af
víðtæku kerfi njósnara og
skemmdarverkamanna, sem
unnið hefðu eftir fyrirskipunum
frá bandarísku leyniþjónustunni.
Hefðu yfir 140 menn þegar ver-
ið handteknir og þó mj'ndu ekki
öll kurl komin til grafar.
Forsætisráðherrann livaðst
vilja geta þessa sem dæmis um,
að ekki veitti af að vcra vei á
verði gagnvart undirróðri er-
lendra aðila. Þó hefði ríkis-
stjórnin talið sér fært. að náða
nokkur þús. fanga, sem da 'iidir
hafa verið fyrir mlnniháttar af-
brot.
Grotewohl gerði ríkisstjórn
Framhald á 12. síðu.
Verkalýðsflokkur Kýpur
mótmælir ofbeldisverkum
Skorar á Breta að hætta aftökum og láta
Makarios lausan
Verkalýösflokkur Kýpur skoraöi í gær á Breta og sam-’
tök hægrisinnaöra Kýpurbúa aö láta af ofbeldisverkum.
í desember í vetur bannaði
brezki iandstjórinn. á Kýpur
verkalýðsflokkinn AKEL og lét
varpa 125 forustumönnum hans
í fang'abúðir. Bretar kaila AKEL
kommúnistaflokk.
I gær var útbýtt á laun í
Nicosia, höfuðborg' Kýpur, flug-
ritum frá flokknum, þar sem
skorað er á brezku nýlendu-
stjórnina og' EOKA, leynisamtök
hægrisinnaðra Grikkja á Kýpur,
að láta af ofbeldisverkum svo að
hægt verði að leysa deiluna uni
framtíð Kýpur á lýðræðislegan
hátt. AKEL krefst þess að Kýp-
urbúar fái að ráða Sjálfir, hvort
þeir sameinast Grikklandi.
f flugritunum er þess krafizt
að brezka nýlendustjórnin af-
nemi hernaðarástandið á Kýpur,
láti pólitíska fanga lausa, flytji
Makarios erkibiskup heim úr út-
legð og hætti að taka Kýpur-
búa af lífi.
í gær kom enn lil áthka milli
Grikkja og Tyrkja nálægt Nico-
sia. Lögðu Tyrkir eld i verk-
smiðju og búgarð.
Áskorun til stuðningsmanna
Alþýðubandalagsins
Stu&ningsmenn Alþýðubandalagsms, hvar sem
er d landinu, eru hvattir til uð gefa kosningaskrif-
stofum Alpýdubandalagsins upplýsingar um alla þd
kjósendur, sem verða fjarri lögheimilum sínum á
kjördegi. Styðjið ennfremur að því persónulega að
fólk sem þiö pekkiö og verður fjarverandi á kjör-
dag greiöi atkvœði sem allra fyrst.
Framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins.
Eðvarð Sigurðsson
Aðalfundur Æ F R
haldinn í kvöld
Eins og áður liefur verið sagt
frá verður aðalfundur Æskiir
lýðsfylkingarinnar í Reykjavík
haldinn í kviild í Tjarnargötu
20, og hefst haiin kl. 9 stund-
víslega.
Á fundinum fara fram venju-
leg aðalfundarstörf: formaður
flytur skýrslu um starfið á liðnu
starfsári, reikningar lesnir og
skýrðir, kosin ný stjórn o. s.
í'rv. En að loknum aðalfundar-
störfum flytur 4. maður á lista
Alþýðubandalagsins í Re.ykjavík,
Eðvarð Sigurðsson, ræðu um
stjórnmálaviðhorfið og kosning-
arnar.
Iíeitið er á Fylkingarfélaga að
rnæta vel og stundvíslega.
Afmælissöíimn Þjóðviljans
Hver vill vinna fyrir för á heims-
möt æskunnar 1957?
Hafin er söfnun áskrifenda að Þjóðviljanum í tilefni
af tvítugsatmæli blaðsins í haust, eins og skýrt var frá
fyrir nokkrum dögum. Fyrri kafli söfnunarinnar stend-
ur til 24. júní og er markið að afla 350 áskrifenda fyrir ^
)>n ii ii tíina.
Nú hefur verið ákveðið að aðalverðlaun afinælissöfn-
unarinnar verði
íör á heimsmót æskunnar á sumri
komanda, 1957.
Verður skýrt frá )»ví einlivern næstu claga livernig
þeirri verðlaunaveitingu verður lnigað. Auk aðah'erðlauna
verða góð aukaverðlaun.
Látum engan dag líða án þess að afla Þjóðviljanum á-
skrifenda! Verk hvers eins verður létt ©f allir vinir
Þjóðviljans leggjast á eitt. Tilkynnið nýja áskrifendur
í síma 7500, afgreiðslu blaðsins, Skólavörðustíg 19, eða
slcrifstofu Sósíalistafélags líeykjavíkur, Tjarnargötu 20.
Ailir sem vilja vinna að sigri Alþýðubandalagsins þurfa að taka söfnunargögn