Þjóðviljinn - 25.10.1956, Page 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 25. október 1956
Aihugasemdir
Framhald af 9. síðu.
aðar áskoranir um að koma því
verki í framkvæmd. Eg leyfi
mér að benda þessum háu herr-
um á, að ói þá við slíku grettis-
taki, þá geta þeir altént skipað
einhverja aðra í starfið.
II. Ef svo er ekki, eftir hvaða
reglum hefur þá verið keppt?
l.S.Í. svaraði þessu á þá leið,
að að undanteknu fyrsta mót-
inu 1952 hafi ávallt gilt keppn-
isreglur Í.S.Í. um handknattleik
svo langt sem þær hafa náð.
Ennfremur kveður I.S.f. móts-
nefndir ætíð hafa leitað til sam-
bandsins fyrir milligöngu skrif-
stofu þess til að fá staðfestingu
á því, hvaða reglum skyldi
fylgt. . . . Eg efa, að þessi full-
yrðing fái staðizt. Að vísu er
þá unnt að ásaka mótsnefndir
um hirðuleysi, sem þó er skilj-
anlegt, þar eð fr'amkvæmdar-
stjórn I.S.I. hefur daufheyrzt
við ítrekuðu bænakvaki þeirra
um reglug'erð. En því er þetta
nefnt hér, að ein forsenda I.S.I.
fyrir úrskurði sínum er, að
brotin hafi verið venja? Það
má telja víst, að venjumyndun
taki misjafnlegá langan tíma,
en ekki samrýmist það minni
hugmynd um venjumyndun, að
það dugi að beita sömu reglu
þrívegis, til þess að venja sé
mynduð.
III. Er það leyfilegt, að félög,
sem mætt eru til leiks, neiti að
kepþa nema þau fái sjálf að
veljá sér dómara, og er sá leik-
ur gildur, sem þannig er til
stofnað ?
Þessu lætur I.S.I. ósvarað,
enda ókunnugt um málavexti.
Tilefni þessarar spurningar er
það, að eitt lið, I.R., neitaði að
hefja leik nema annar dómar-
anna, er dæma áttu leikinn,
viki og annar kæmi í hans stað.
Þetta tel ég mjög vítaverða
framkomu og íþróttinni lítt til
þrifa, en Í.R.-ingar hengdu hatt
sinn á lagakrók, sem að vísu
hafði ekki verið beitt til þessa
í mótinu og mótsnefnd varð að
láta undan.
IV. a) Getur mótsnefnd kom-
ið sér saman um, að keppni
skuli hagað á einn eða annan
hátt, án þess að leita samþykk-
is æðstu stjórnar viðkomandi
íþróttagreinar ?
Þessari spurningu svarar l.S.
í. að sjálfsögðu neitandi. Eg
neita því ekki, að þarna var
um trassaskap hjá mótsnefnd
að ræða, en frumorsökin er
vöntun á reglugerð.
b) En þess má geta, að
mótsnefnd var skipuð mönnum
úr aðeins tveim félögum, sem
allir voru leikmenn í keppninni.
Engum dylst, að þessari grein
er ætlað að gera störf móts-
nefndar tortryggileg í augum
þeirra, er sitja í framkvæmda-
stjórn Í.S.Í. Heldur er þessi til-
raun stúdentanna klaufaleg
(líklega enginn juristi í stjórn
hjá þeim, blessuðum). Maður
gæti ætlað þeim þá meðalgreind
að skilja, að sé tveim félögum
falin framkvæmd móts (Gosi
Munið Kaffisöluna
f Haínarstrætl Ifi
uni bænarskrá
og I.R. hafa annazt framkvæmd
mótsins sl. 4 ár og alltaf verið
tap á mótinu utan einu sinni,
að þau fengu 8 kr. í hlut, svo
að það er ekki feitan gölt að
flá), þá skipa þau ekki menn
úr öðrum félögum í mótsnefnd
heldur sína félaga og venjan
er sú, að félögin hafa ekki þeim
mannafla á að skipa, að þau
geti gripið til annarra en leik-
manna sinna. Telja má fullvíst,
að stúdentum verði auðsótt að
fá að annast næsta mót, a.m.k.
verður ekki um samkeppni af
hálfu Gosa að ræða. Þeir munu
þá væntanlega skipa menn úr
minnst þrem félögum í móts-
nefnd, sem ekki væru keppend-
ur. Eg verð að játa, að ég er
frekar vondaufur um, að ég
eigi eftir að taka þátt í körfu-
knattleiksmóti, er þannig verði
til stofnað.
V. Eins og fyrr getur kom I.S.
of seint til mótsins og því er
ekki loku fyrir það skotið, að
þeim hafi ekki borizt til eyrna
eftir hvaða meginreglum keppt
yrði. Ekki var send nein form-
leg tilkynning til hinna félag-
anna, heldur var þeim skýrt
munnlega frá því, enda spurð-
ust þau yfirleitt fyrir um það,
þar eð þau töldu ekki, að hefð
væri mynduð um það, að hlut-
fallstölur skyldu ráða úrslitum,
þó að þeirri reglu hefði einu
sinni verið beitt.
Ennfremur segir í bréfi Í.S.,
að erlendis tíðkist ekki að
keppa til úrslita, þó að stig séu
jöfn, heldur séu hlutfallstölur
látnar ráða, sbr. alþjóðareglur
um körfuknattleik. Mótsnefnd
verður tæpast sökuð, þó að hún
fari ekki eftir alþjóðareglum,
sem hún hefur- ekki hugmynd
um enda ekki einu sinni ís-
lenzkar reglur fyrir hendi. Stúd-
entar taka anzi mikið upp í sig,
þar sem þeir telja víst, að er-
lendis sé alls ekki keppt til úr-
slita, ef félög verða jöfn, a.m.k.
kom það leikmönnum banda-
ríska liðsins Syracuse Natio-
nals, sem kom hingað til lands
sl. vor, spánskt fyrir sjónir, að
jafntefli væri til í körfuknatt-
leik. Ennfremur hef ég spurt,
að Bandaríkjamenn hérlendis
leiki til úrslita. Það er því ekki
án fordæmis, að þessi vesæla
mótsnefnd tekur ákvörðun sína,
þó að stúdentar fullyrði annað,
enda styrkir það ekki málstað
þeirra og því skal þegja.
Framkvæmdarstjórn Í.S.Í.
segir í úrskurðarbréfi sínu, að
félögin hafi hagað leikaðferð
sinni mismunandi eftir því
hvaða keppnisreglur. þau töldu
að giltu. Þetta má rétt vera,
en ekki tel ég, að I.S. hefði
skaðazt á því að vita um
keppnisreglur þær, sem móts-
nefnd setti, í upphafi móts.
Samkvæmt minni reynslu leit-
ast sérhvert lið við að fara með
sigur af hólmi í hverri viður-
eign og tæpast trúi ég, að I.S.
sé þar undantekning. Á hinn
bóginn hefði lið getað skaðazt,
ef það hefði haldið í upphafi
móts, að hlutfallstölur giltu
ekki og síðan komið í ljós i
mótslok, að svo væri.
Framkvæmdarstjórn Í.S.Í. úr-
skurðaði, að mótið skyldi ógilt
og haldið að nýju. Eg hef ekki
spurt, að Í.S.Í. hafi ákveðið því
móti stað og stund, en ég tel
víst, að það hafi einhvern veg-
inn farið fram hjá mér, og ekki
ber að efa, að þá verði reglu-
gerð fyrir hendi.
Flestir þeir, er kynnzt hafa
körfuknattleik telja það fallega
íþrótt. Eg er einn þeirra og tel
hana alls góðs maklega. Enn
lifi ég í þeirri von, að fram-
kvæmdarstjórn Í.S.Í. komist á
þá skoðun, en fjári ætlar það
að taka langan tíma.
Með þökk fyrir birtinguna.
Reykjavík í október 1956,
Guðm. Georgsson.
Nýkomið:
Ivuldaskór, kvenna
Gúmískór, unglinga
Bomsur, karla,
kvenna, barna.
Inniskór, kvenna
Unglingaskór og
margt fleira,
Víðifelf,
Bergþórugötu 2.
Búdapeslllugvöliur
íokaður
Flugvöllurinn við Búdapest
var lokaður í allan gærdag.
Landamærunum var nær alveg
lokað, þó var nokkrum járn-
brautarlestum frá Austurríki
hleypt inn og' nokkrir útlend-
ingar fengu að aka bifreiðum
yfir landamærin. Þeir voru þó
stcðvaðir 30 km fyrir utan
Búdapest og ráðlagt að snúa
við.
Isskápar eru ómissandi á In erju heimili
I»etta getið þið fengið í happdrætti hjoðvilians, dregið 2. nóvember
Ailir vilja eignast hil
SJSSr-
Smekklegir og framúr-
skarandi vandaðir
tékkneskir poplin- og
gaberdine-
REGN-
FRAKKAR
Umboðsmenn:
0. II. ALBERTSSON, Laugavegi 27A — Sími 1802