Þjóðviljinn - 25.10.1956, Side 12

Þjóðviljinn - 25.10.1956, Side 12
Togarakaupin rœdd á Alþirtgi íjJ í æffi úr vamækslu síðari ára á viðhaldi garaflotans þyrfti nú að kaupa 20 togara Aukin togaraútgerð tryggir atvinnulega uppbyggingu lands- 1 byggðarinnar og grundvallar nauðsynlega frandeiðsliiauloiingu Fyrsta umræöa um .frumvarp ríkisstjórnarinnar um lieimild til skipakaupa, lántöku í því sambandi og sér- stakra ráöstafana til aö tryggja jafnvægi í byggð landsins. var í gær. í umræöunum fluttu forsætisráöh. Hermann Jónasson og sjávarútvegsmálaráöherra, Lúövík Jóseps- son, mjög athyglisveröar ræður og gerðu ljósa grein fyr- ir hinni brýnu nauðsyn á stefnubreytingu í málefnum höfuöatvinnuvega þjóöarinna. Meðalaíli togara tííalt meiri en bátaafli- Sjávarútvegsmálaráðherra sagði að reynzlan hefði sannað að togararnir væru langsamlega afkastamestu framleiðslutæki þjéðarinnar. Meðalafli þeirra væri um 5 þúsund smálestir á ári, en áhafnir þeirra væru að- eins um 30 manns. Ef þessi stórfelldu afköst væru borin saman við bátaflotann kæmi í Ijós að þau væru um það bil 10 sinnum meiri. Ekki bæri þó að skilja þetta sem raunveru- legan mun á gæðum togara og báta. Þar kæmi margt fleira til. Eigi að síður sannaði þetta hvsrjum manni að það væri höfuðnauðsyn að halda togara- flotanum nægilega vel við og auka hann eftir mætti. Tiltækilegasta leiðin til að tiyggja atvinnulíf landsbyggðarinnar. Auk þess kæmi það og til að togarareksturinn tryggði betur en nokkur annar at- vinnurekstur fulla hagnýt- ingu vinnuafls úti á lands- byggðinni. Fjöldi kaupstaða og sjávarþorpa væru þannig sett að þaðan væri ekki að- staða til að sækja á bátum Heimsiietsseðill Það er hægt að setja heims- met á mörgum sviðum. Franska flugfélagið setti nýlega heims- met í lengd farseðils, hann var 7'/2 metri á lengd, seldur dönskum viðskiptamanni í Kaupmannahöfn. Miðinn hljóð- aði upp á flutning 15.000 km vegalengd með viðkomu á 71 stað í Evrópu, Afríku og Aust- uriöndum. Myndin sýnir starfs- menn Air France og Wagons- lits/Cook í Kaupmannahöfn, þar sem þeir halda hreyknir á metseðlinum. til hentugra fiskimiða. Með rekstri togara, sem legðu afla sinn upp á slíkum stöð- um væri unnt að bægja land- lægu atvinnuleysi frá dyrum og skana lífvænlega atvinnu fyrir íbúana. Er fjölgun togara hættu- leg fiskistofninum? Þá vék ráðherrann nokkuð að þeim efasemdum, sem kynnu að gera vart við sig viðkom- andi mikilli aukningu togara- flotans og þá sérstaklega hvað við véki hugsanlegri hættu fyr- ir fiskstofninn, sem allt kapp yrði að leggja á að vernda. í þessu sambandi gat ráð- herrann þess að svo væri nú komið að 80—90% af öllum afla togaraflotans væru sótt á fjarlæg mið út fyrir sjálft landgrunnið svo sem til Græn- lands, djúpmiða norður af land- inu og allt til Bjarnareyja og Hvítahafs. Svipaða sögu væri að segja um karfamiðin. Þar væri nær einvörðungu sótt á fjarlæg djúpmið sem ekki yrðu nýtt með öðrum hætti. Tekst að manna flotann? Ýmsir kynnu að halda því fram, sagði ráðherrann, að erfitt muni reynast að fá nægan mannafla til starfa á togaraflotanum eftir að hann hefði verið aukinn að miklum mun. Hann kvaðst þess þó fullviss að þetta mundi takast, ef rétt væri á haldið. Hinsvegar væri það al- alrangt, ef einhverjum djAti i hug að haga ætti höfuðat- vinnuvegum þjóðarinnar með tilliti til þess eins hvert vinnuaflið sækti þá og þá stundina. Vitanlega bæri að leitast við að beina vinnuafl- inu að lifvænlegustu og þýð- ingarmestu atvinnugreinun- Viðhald togaraflotans hefur verið vanrækt. Varpað hefði verið fram þeirri spurningu hvort rétt væri að kaupa svo marga togara í einu sem frumvarpið gerði ráð fyr- ir. Til glöggvunar á réttu svari við þeirri spurningu yrðu menn að gera sér ljóst að miðað við 20 ára meðalaldur togaranna þyrfti nú 20 ný skip að bæt- ast í flotann ef það ætti að jafngilda fullu viðhaldi á þeim togurum, sem keyptir hefðu hefðu verið í stríðslok. Teflt á tæpasta vað með möguleika á endurnýjun. Ráðherrann skýrði frá því að erlendar fiskveiðiþjóðir hefðu nú að undanförnu lagt slíkt kapp á smíði nýrra tog- ara að flestar skipasmíða- stöðvar sem við þær fengj- ust hefðu nú full verkefni allt til 1960. Mætti því eng- an tíma missa, ef mögulegt ætti að reynast að fá smíð- ina framkvæmda og fullvíst væri að það væri ekki unnt á skemmri tíma en 2—3 ár- um og þó þvi aðeins að kappsamlega væri að unnið. „Harða stjórnarand- staðan" lin. Magnús Jónsson talaði í málinu fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Var helzt að skilja á ræðu hans að augu flokks hans hefðu nú loks upplokizt eftir margra ára svefn og sæi hann nú að hér væri hið mesta þjóðþrifa- mál á döfinni! „Þó leyfist mér að hafa grunsemdir um að ríkisstjórn- in syndi hér djarfar en efni standa til“, sagði hann og taldi að hvorki vissa né von væri til að henni tækist að útvega láns- fé til þessara framkvæmda. „En vonandi leysist þetta“, sagði hann að lokum og full- vissaði menn enn um „fullan skilning" Sjálfstæðisflokksins á málinu og að hann óttaðist ekk- ert annað frekar en að vonir almennings um þessar fram- kvæmdir kynnu að reynast of háar! 170 lestir af karfa Siglufirði í gær. Togarinn Elliði kom í gær með 170 lestir af karfa, sem fóru til vinnslu í frystilu^inu. Landsíundur Kvenréttindaíélags íslands: Jöfn lcsun karla og kvenna fyr> ir jafn verðmæta vinnu „Níundi landsfundur K.R.F.Í., skorar á ríkisstjórnina aö gera nú þegar nauösynlegar ráöstafanir til þess aö samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um jöfn laun karla og kvenna, fyrir jafnverömæta vinnu geti orð- iö staöfest á íslandi. Til þess að hraða framgangi þessa mannréttindamáls, skorar fundurinn á ríkisstjórnina að skipa nefnd er vinni að undir- búningi þess. Fundurinn æskir þess að í nefndinni eigi sæti meðal annars konur, sem til- nefndar séu af Alþýðusambandi íslands, Bandalagi starfsmajma ríkis og bæja og Kvenréttindafé- lagi íslands. Jafnframt vill fundurinn leggja áherzlu á það, að á meðan þessu lokamarki er ekki náð, skuli því beint til þeirra kvenfélaga, sem fara með launamál félaga sinna, að beita sér fyrir því að bilið milli kvenna- og karlakaups styttist að verulegu leyti, og heitir Kvenréttindafélag íslands að styðja það mál af fremsta megni.“ íhaldsframbjóðandinn svioti Hafnarbúa atvinnunni Eins og áður hefur verið rakið hér í blaðinu hefur hrað- frystihúsið í Höfnum ekki verið starfrækt um langt skeið. Eig- andi hússins, Einar Sigurðsson íhaldsframbjóðendi, hefur einn- ig f jarlægt úr húsinu ýmsa hluti sem óhjákvæmiiegir eru fyrir starfrækslu þess og þann- ig stefnt atvinnulifi þorpsbúa í hreinan voða; hafði hann þó fengið mikil opinber lán til þess að starfrækja frystihús einmitt á þessum stað. S.l. sunnudag hélt Verklýðs- félag Hafnarhrepps fund um málið og samþykkti eftirfar- andi tillögu í ejnu hljóði: „Fundurinn vítir harðlega þá ráðstöfun að hraðfrystihús það, sem til er á staðnum skuli hafa liætt starfrækslu og þá sérstak- lega að færibönd og áliöld skuli hafa verið flutt burtu úr hús- inu og dregur í efa heimild til slíkra framkvæmda, þar sem lási til slíkt atvinnureksturs eru venjulega staðbundin. Fundurinn telur að atvinnulífi i hreppnum sé stefnt í voða með slíku háttalagi. Fundurinn samþykkir því að kjósa nefnd sem eiga sæti í 2 fulltrúar frá verkalýðsfélagi hreppsins sem kosnir séu á fundi þessum á- samt oddvita hreppsins. Skal nefnd þessi hafa samband við þingmann kjördæmisins og sjávarútvegsmálaráðherra ef þörf þykir til úrbóta um starf- rækslu hraðfrystihússins, enda skili hún áliti sínu ekki siðar en hálfum mánuði frá fundi þessum, enda séu framkvæmdir miðaðar við að frystihúsið verði starfrækt á komandi ver- tíð“. Oddviti Hafnarhrepps er Eggert Ólafsson, en ásamt hon- um voru kjörnir í nefndina Kristinn Guðjónsson formaður félagsins og Heiðdal Jónsson. Kotkoff teflir á Hraðskákméti TR Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur hefst kl. 8 í Þórs- kaffi. Meðal þátttakenda verð- ur sovézki unglingameistarinn Jurí Kotkoff, sem staddur er hér á landi um þessar mund- ir. í kvöld verður aðeins há5 forkeppni, en á sunnudags- kvöld verður teflt til úrslita. Þeir sem hyggjast taka þátt í mótinu geta skrifað sig á lista er liggur frammi í Bóka- verzlun Snæbjamar í Hafnar- stræti. Einn nemandi vann Kofkoff Sovézki unglingameistarinn Jurí Kotkoff tefldi fjöltefli við nemendur á Laugarvatni í gær. Tefldi hann við 24 nemendur, tapaði einni, gerði eitt jafn- tefli, en vann 22 skákir. Sá sem vann Kotkoff heitir Þór- arinn Guðmundsson, sonur Guðmundar Ágústssonar tafl- meistara; en jafnteflið gerði Helgi Samúelsson, og eru þeir báðir í 4. bekk. ÞJðomiiNM Fimmtudagur 25. október 1956 — 21. árgangur — 244. tölublað

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.