Þjóðviljinn - 08.06.1957, Side 7

Þjóðviljinn - 08.06.1957, Side 7
- Laugardagur 8. júni 1957 —ÞJtoVILJINN — (7. u J| JL alMór Kiljan Laxness helgar sér nýtt tímaskeið í Brekkukotsannál. Á brott er íornöki Gerplu, miðöld fslands- klukku, samtíð Atómstöðvar; en Syrstu ár þessarar aldar líða manni fyrir sjónir. Söguna segir Álfgrímur Hansson. fóst- ursotmr. afa og ömmu í Brekku- koti; en þó eru í rauninni aðr- ar aðalpersónur.: afinn og amm- an, Kristín í Hríngjarabænum, eftirlitsmaðurinn, séra Jóhann, litla fröken Gúðmúnsen og um- fram allt alheimssöngvarinn Garðar Hólm. Fjöldi annarra perséna kemur við sögu, enda er Brekkukotsannáll býsna margslungið verk, eins og vænta mátti. Sagan er að formi endur- minningar Álfgrims Hanssonar állt tll þess tíma, er hann sigl- ir utan að læra það sem hug- ur hans stendur til, ems og þar segir. Lengi framan af er hún kynning á fólki og veðri, sem hvorttveggja er að jafnaði gott; og þeim, sem spyr um til- gang höfundar, verður svarað með annarri spurningu: er ekki skáldið að leiða nútíman- um fyrir sjónir náttúrlegra líf og eðlilegra fólk en nú gerist? dór Kiljan veldur einn nor- rænna sagnahöfunda urn þess- ar mundir: lýsingin á ást Áif- grims til Blæs, frásögnin aí söngnum í Dómkirkjurmi og ennþá fleira. Hér eru sömuleið- is skapaðar persónur, sem vart eiga sinn líka: afi og arnma, eftirlitsmaðurínn, móðir söngv- arans. Af mikilli íþrótt er Garðari Hólm þokað hægt og hægt inn um bakdyr sögunn- ar. unz hann stendur allt í einu í brennidepii á miðju gólfi. Sjálf er heimspeki sögunnar hin fegursta sem getur — og veldur þetta allt þvi, að Brekkukotsannáll er í mörgum gre'num dýrlegur skáldskapur; um slíkt þarf i raun og veru ekki að spyrja, og um það verður heldur ekki fjölyrt í þessum litla pistli. En því fer lika fjarri að Brekkukotsannáll sé algjört verk, með sama hætti og t.d. Sjálfstætt fólk. Það fer ekki hjá því að sagan sem heild orkar fremur dauflega á les- andann, honum finnst hún dá- lítið slöpp — miðað við fyrri sögur skáldsins. Þessu verður tæplega hnekkt; og ef maður leitar ástæðunnar, þá virðist Brekkukotsannáll En nokkuð snemma í sögunni tekur að djarfa fyrir Garðari Hólm, piltinum sem fór héðan úr kirkjugarðinum fyrir löngu, hefur gerzt alheimssöngvari og sungið fyrir páfann og Múham- eð ben Alí, þótt afj og amma og Kristín móðir hans í Hríngj- arabænum láti sig hann engu varða framar. Smám saman gerist hann aðalpersóna sög- unnar. Líf hans er ekki aðeins andstæða hins náttúrlega lífs, sem vandafólk hans lifir ofar moldu í kirkjugarðinum, lield- ur koma nú einnig önnur efni á dagskrá: sannleikur og lygi í lífi listamanns, fánýti frægð- arinnar. Garðar Hólm hefur ekkj fundið þann eina sanna tón, sem séra Jóhann segir þó að sé til; spurningin virðist sú. hvort hann finnist yfii'leitt á þessum vegum. Bjöm sálugi í Brekkukoti og hún amma mín og hún Kristín í Hríngj- arabænum — er það ekki ein- mitt fólkið sem hefur hinn hreina tón í hjartanu, þann tórí sem er ekkj hljómlist, held- ur góðvilji og táknast í ein- földu lífi? Þetta fólk stendur að lolcum óbugað yfir mold- nm söngvarans. Halldór Kiljan er orðinn mæddur á frægð; í Brekkukotsannál sýnir hann fram á fánýtj hennar og tóm- leik, jafnframt því sem hann dregur dæmi af einföldum háttum fólks sem lifir í kær- leik. Þreytan á fyrirgangi og sundurgerð líðandj tírna hef- ur ennþá einu smni krístallazt í skáldverki. Hver spyr að þvi, hvort sögu eftir Halldór Kiljan Laxness sé léð skáldleg fegurð? Fjöl- margir kaflar í Brekkukots- annál ilma af þeirri póesíu, sem heitt hjarta og fjölvís stíl- snilld ráða ein fyrir. Þar hitt- Um við einnig fyrir þann yfir- skiivitiega skáldskap, sem Hall- hun sú, að persónurnar svífa tíðum í lausu lofti; það er eins og þær vanti fast land undir fót. Þótt sagan gerist á til- greindum stað, á tiltölulega af- mörkuðu tímaskeiði, þá verð- ur maður ekki ýkja margs vísari um þennan stað: Reykja- vík — bakgrunnur sögunnar er sveipaður móðu. Það er held- ur tæplega hægt að segja að Björn í Brekkukoti þurfi að heyja nokkra lífsbaráttu, þótt hann haldi uppi sjúklingum og gamalmennum úr ýmsum átt- um, auk ömmu og fóstursonar- ins. Hann er löngum eitthvað að duðra úti i skemmu i góðu veðri; um hús hans leikur blómailmur, en ekki salt- remma. Viðhorf höfundar við þessum liðna tíma er róman-' tískt, Brekkukot er ójarðnesk- ur bær. Þó hefur orðið meiri mis- brestur á mótun Garðars Hólms. Maðurinn er ekki ann- að en hilling og loftspeglun; hann er settur í brennidepil, en leysist upp fyrir augum manns. Um það er ekki að ræða, að hann bresti frá höf- undarins hendi einhverja fyll- ingu, sem mætti ráða bót á með nokkrum pennastrikum, heldur er hann sjálfum sér sundurþykkur í hugmyndun skáldsins. Skýrum þessa full- yrðingu. Hinn frægi alheims- söngvari gistir ísland hvað eft- ir annað; og það stendur vita- skuld alltaf til, að söngvari páfa og Múhameðs bens Alís, lofsunginn þúsund sinnum í blöðum „höfuðstaðarins okkar tilvonandi", syngi einnig fyrir sitt fólk. En það ferst ævinlega fyrir án þess nokkrum bregði, söngvarinn fer kannski úr landi nóttina áður en söngurinn skal standa. Slíkir atburðir „ger- ast“ að sjálfsögðu ekki í raun- verulegu Ufi, enda ber að skilja þá þeirri hærri skilningu í Brekkukotsannál að frægð Garðars Hólms sé fólki hans fánýt — eins og öll frægð; það fái með engu móti notið henn- ar á nokkum hátt: sannleikur- inn og vegurinn og lífið er í Brekkukoti og íbúum þess. Persónan er óhlutstæð, hún smýgur um greipar lesandans hvert sinn sem hann ætlar að hafa hendur i hári hennar; en um leið kemur það af sjálfu sér að sú próblematík um list og frægð, um sannleikann í manninum, sem er bundin slíkri höfuðpersónu, hlýtur sjálf að verða óljós og óhlut- veruleg. Við segjum sem sagt að sagan sé helzti dauf, dálít- ið slöpp. Laxness heldur í Brekku- kotsannál fornum hætti: að bjóða upp á kabarett innan um og saman við mikinn skáld- skap. Þesskonar fjölleikasýn- ing er þátturinn um rakara- frumvarpið, sem kemur eins og skrattinn úr sauðarleggn- um inn í söguna og á þar ekki annað erindi en drepa megin- efni hennar á dreif um sinn. Ekki verður heldur séð, hvaða listskyldum þau Draummanns- hjón eiga að gegna i Annálnum —■ tilvist þeirra á þessum stað orkar sem timaruglun (anakr- onisrpus). Bjöm í Brekkukoti sendir sögumann að lokum til útlanda, í fyrri fótspor Garð- ars Hólms: þannig ber þetta liðna óskalíf dauðann í sjálfu Sér. En nýtízkari fyrirbæri eins og guðspeki E. Draummanns hefur engin upplausnaráhrif i Brekkukoti. Svona innskot draga úr áhrifamætti verksins; en að auki eru fjölmörg smá- atríði til viinis um slakari spennu í stíl Laxness en oft- ast endranær. Eg tek t.d. sam- líkingarnar á 25. blaðsíðu um hylkið í heila guðfræðingsins og joðáburðinn í farangri ferðamannsins — allt að þvi óraunverulegar mjmdir hvor- tveggja. Þá er ekki sérlega auðvelt að meta andríki eins og þar sem rædd eru „tíðindi sem voru að því leyti trúar- kyns, að við höfðum verið hvergi nær ér þau gerðust" Sam- kvæmt þessu er t.d. fundur íslands ,,ti'úaíkyns“ svo og Þjóðfundurinn 1851 — eða vor- um við þar nær. Mörg slík at- ! riði samankomin lækka heild- . arris sögunnar ,— það er eins og lúinn maður haldi á penna. í Brekkukotsannál komumst við ótal sinnum í snerti gta við mikla dýrð í máli og stíl. Það er ekki aðeins hægt aö trúa því af sögunni að höfi id- urinn sé einn af höfuðsnil) ng- um tungunnar um alla tíð„ hejdur stendur það víða si art á hvítu i bókinni. En ejtt er það, sem ég ekki skil: sú s ríd* urgerð i máli og stíl, sem ið» ur uppi á ýmsum stöðum. .!•. að» ur skyldi halda að fósturson- ur Björns í Brekkukoti lcgði sig fram um að skrifa einí.Jd- lega, enda segir hann „Bjorn sálugi í Brekkukoti" á 13. hls. en framhald setningarinnai. etr það að hann hafj fæðzt „í þoss- um parti heimsins", sem er andstæða alls einfaldleiks: X; ix- ness sjálfur gripur fram í : yr- ir sögumanni. „f þeim g rð3 uxu fíflar meiri en i öð' urri stöðum" — aftur stendur Álf- grímur í skugga Laxness. Og um þetta eru hundrað dæmí. Vitaskuld er Laxness þess um- kominn að skrifa einfalt mál og sundurgerðarlausan stíl, alveg eins og honum þóknast. Brekkukotsannáll ber því að- eins vitni, að hann vantreysti hvorutveggja að nokkru. Við aðdáendur Halldórs Kilj- ans krefjumst þess ekki að öll verk hans mælist jöfn Sölku Völku eða íslandsklukkunni; og Brekkukotsannáll er á mat'ga lund mikil saga. En ástv nir meðalmennskunnar, sem aiitaf hafa haft hom í síðu hang, skulu á það minntir af þt ssu tilefni að höfundur hans er mesta sagnaskáld þjóðarinoar fyrr og síðar. Hann hefur. lyfji íslenzkri tungu til nýrrar \ eg- semdar, speglað íslenzkt þjóð- félag í gær og dag í björtu ljósi, skapað persónur seni cru í senn stórar af sjálfum sér og íslenzkar táknmyndir, skrif- að stíl sem spennir allan ctig- ann frá þyngsta móði til dýrlegustu Ijóðrænu, stutt Htr ilmagnann gegn kúgara hans, veitt manninum gegn . djöflj hans. Við hlið Halldórs Kiljf ans Laxness eru flest sagna- skáld á íslandi börn eða gumf almenni. fsland er sælt af snilþi hans. B. B. Torfbærinn Melliot, sem eitt simi stób \ið Suðurgötu í liorni kirkju- garðslns. Kunnugir telja að Brekkukoti svipi til lians. >P!t 1 *ie Sk

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.