Þjóðviljinn - 14.01.1958, Qupperneq 1
Þriðjudagur 14. janúar 1958 — 23. árgangur — 10. tölublað.
íhaldið tæmir sjóði bæjarins
Skuld bæjorsjóðs við aðra sjóði bæj-
arins hækkar um 220% á þremur árum
Á hinum íjölmenna fundi Alþýðubandalagsins í
Austurbæjarbíói s.l. fimmtudag gerði Ingi R. Helga-
son bæjarfulltrúi sérstaklega að umræðuefni fjár-
málaóreiðu íhaldsins, og vöktu mikla athygli upp-
iýsingar hans um hina óhugnanlegu meðferð íhalds-
ins á sjóðum bæjarins.
★ Tæming allra sjóða bæjar-
ins í eyðsluhít óreiðumanna
íhaldsins er enn hættulegri fyrir
þá sök, að út&vörin hafa hækk-
að geysilega á sama tíma, að
arðvænleg fyrirtæki bæjarins
með sjálfstæðar tekjur eru látin
leggja milljónir króna í eyðslu-
hítina á saina tíma, og síðast en
ekki sízt að bæjarsjóður safn-
ar skúldum á báðar hendur
við aðila eins og Tryggingar-
stofnun ríkisins, Atvinnuleysis-
tryggingasjóð, Byggingarsjóð
verkamanna o. fl.
★ í upphafi kjörtímabilsins
skuldaði bæjarsjóður öðrum
sjóðum bæjarins 8 millj. kr. (pr.
31. des. 1953). En samkvæmt
síðasta bæjarreikningi sem fyrir
liggur endurskoðaður var skuld
þessi komin upp í 25,8 millj. kr.
hinn 31. des. 1956 og hafði því
hækkað um rúmlega 17 millj. kr.
eða 220%!
★ Á þessum þremur fyrstu ár-
um kjörtimabilsins hækkuðu út-
svörin úr 94,3 millj. kr. í 161,5
millj, kr. eða um rúmlega 70%.
★ Sjóðir bæjarins sem íhaldið
hefur tæmt eru þessir og er þá
enn stuðzt við síðasta endur-
skoðaða reikning Reykjavíkur-
bæjar fyrir árið 1956:
1. Skipulagssjóður
Sá sjóður er talinn eiga 1.593-
229.74 kr., en af þessari sjóðs-
eign hafa óreiðumennirnir tekið
í bæjarsjóð 1.483.385,44 kr. eða
skiiið eftir aðeins 109.844.30 kr.
2. Ráðhússjóður
Hann hafa óreiðumennirnir al- j
veg tæmt. Sjóðseignin er 3.857,-j
Bréf Búlganins
928.63 kr., og málverk hafa verið
keypt fyrir 91.199,40 kr. en faitt
er allt komið í eyðsluhítina, og
skuldar því bæjarsjóður rúm-
lega 3.7 millj. kr. þarna.
3. Lífeyrissjóður
starfsmanna Reykja-
víkurbæjar
Tekjur þessa sjóðs árið 1956
námu 5.6 millj. kr. ADar þesisar
tekjur fóru í eyðsluhitina, og
skuldar bæjarsjóður þee«um
sjóði 6.7 millj. kr.
4. Framkvæmdasjóð'
ur Reykjavíkurbæjar
Hreinar tekjur þessa sjóðs árið
1956 námu 3,6 millj. kr. Allar
þessar tekjur og meira til fóru
í eyðsluhítina og skuldar bæjar-
sjóður framkvæmdasjóði 4 millj
kr.
5. Húsatryggingar-
sjóður Reykjavíkur-
bæjar
í árslok 1956 átti að vera í
sjóði þessum 7,2 millj. kr., en
allt það fé — hver einasti pen-
ingur — var kominn í eyðslu-
hítina, og hafa tekjur ársirn
1957, og 3 millj. kr. farið sömu
leið. Skuldar því bæjarsjóður
þessum mikilvæga sjóði um 10
millj. kr., með þeim afleiðingum,
að hann getur ekki gegnt sínu
mikilvæga hlutverki, og stendur
Reykjavíkurbær sem vanskila-
maður gagnvart þeim sem nú
eiga tjónsbætur á hendur Húsa-
tryggingarsjóði, auk þess sem
gersamlega hefur verið vanrækt
að nota fé sjóðsíns til eflingar
brunavömum í bænum og til
lækkunar iðgjalda.
★ Rétt er að benda á, að
leggja verður útsvar á gjaldend-
ur bæjarins fyrir greiðslum úr
bæjarsjóði til þessara sjóða, og
jafngildir því tæming þeirra því
enn hækkun úísvaranna.
Sjö lestir í róðri
til jafnaðar
Það sem af er mánuðinum
hafa gæftir verið góðar á
Homafirði. Sex bátar hafa
byrjað róðra og afli þeirra
hefur verið fremur góður. Sam-
tals hafa verið famar 33 sjó-
ferðir og hefur aflinn til jafn-
aðar verið um sjö lestir í róðri
af slægðum fiski með haus.
Mestan afla hefur Akurey
fengið 60 lestir í 8 róðram, eða
7,5 lest í róðri. Aflinn er ým-
ist frystur, saltaður eða hertur.
★ Af þessu er Ijóst, að í
þessum kosningum verða Reyk-
víkingar að reka óreiðumenn í-
haldsins af höndum sér.
Mjög fjölsóttur ]
fundur H-listans
í Iíópavogi !
H-listinn, listi óháðra kjósend*
í Kópavogi, efndi til almenns
kjósendafundar í barnaskólanuna
við Digranesveg í fyrradag. Þrátl
fyrir óhagstætt veður var hiis»
fylli á fundinum, fundarmenn á
þriðja hundrað talsins.
Ræðumenn voru fjórir efsttd
menn H-listans við bæjarstjórn-
arkosningamar: Eyjólfur Krist*
jánsson, Ólafur Jónsson, Þor-
móður Pálsson og Finnbogi R,
Valdimarsson. Auk þeirra töluðu
Karl Guðmundsson, Gunnari
Eggertsson og Ingjaldur ísaks-
son. Fundarstjóri var Haukuf
Jóhannesson.
Hernámsandstæðingar á
Okinawa vinna sigur
Úrslit i borgarstjórakosningum í höíuð-
borginni talin mikið áfall fyrir Bandaríkjamenn
í fyrradag fóru fram kosningar í embætti borgarstjóra
í höfuffboi'g eyjarinnar Okinawa, sem er hernumin af
Bandaríkjamönnum. Úrslitin eru talin vera mikill álits-
hnekkir fyrir Bandaríkin í Asíu.
í embætti borgarstjóra var^verið Bandaríkjamönnum óþæg-
kjörinn frambjóðandi þjóð-
flokks Okinawa, vinstri manna
og hemámsandstæðinga, Saichi
Kaneshi, sem hefur krafizt taf-
arlauss brottflutnings handa-
ríska hernámsliðsins og beitt
sér fyrir mótmælum gegn fyr-
irætlunum þess að koma
upp kjamorkuskeytastöðvum á
eynni.
í framboði auk Kaneshis var
Tatsuo Taira, sem studdur var
af hægfara flokki, sem þó kall-
ar sig sósíalistísk-marxistiskan,
og er einnig andvigur langvar-
andi setu Bandaríkjamanna á
Okinawa, þótt hann vilji fara
hægt í sakimar.
Einn mtkiívægastt hlekkurinn
Ibúar Okinawa hafa lengi
ir. Eyjan sem er japönsk var
tekin af þeim eftir harða bar-
daga í lok heimsstyrjaldarinn-
ar og samkvæmt friðarsamn-
ingi þeirra við Japan hafa þeir
rétt til áframhaldandi hersetu
þar. Eyjan er nú einn mikil-
vægasti hlekkurinn í her-
stöðvakeðju þeirra.
Borgarstjóri settur af
Nú munu þeir hafa um 40.000
manna lið þar, en eyjarskeggj-
ar eru eitthvað um hálf miiljón.
Eyjan er ekki nema rúmir 1200
ferkílómetrar, landrýmið því
lítið og herstcðvar Bandarikja-
manna þekja nú um fimmtung’
ræktanlegs lands á eynni.
Bandaríkjamenn hafa átt í
Framhald á 5. síðu.
Danskir áhugamenn bera fram nýjar
tiSSögur fil fausnar handritamáíinu
19 þjéSkunnir íorusiumenn skora á rikissfiórnina og
flokkana aS faka upp sansnga sem fyrsf
komið
Nefnd danskra áhrifamanna afhenti í gær ríkisstjórn
Danmerkur og formönnum dönsku þingflokkanna tillög-
ur til lausnar á handritamálinu. Jafnframt hafa 19
kunnir danskir forustumenn skoraff á stjórnarvöldin aö
taka upp samninga. um handritamáliö, t.d. á þeim for-
sendum sem felast í tillögurn. nefndarinnar.
Ambassador Sovétríkjanna, hr.
Pavél K. Ermoshin, hefur í dagi
aihent Ilermanni Jónassyni for-
sætísráðherra orðsendingu frá
lir. N. Búlganín, forsætisráðherra |
Sovétríkjanna.
l 'inið er að því að þýða orð-
sendinguna á íslenzku, og verður
liún birt svo fljótt sem auðiö er.
(Frá forsætisráðuneytinu)
Tillögur nefndarinnar hafa
ekld enn verið birtar í einstök-
um atriðum, en í þeim er Iagt
til að íslenzk handrit í söfn-
um danska ríkisins verði af-
hent íslendingum sem gjöf, og
að skipulagsskrá Arnasatns
verði breytt með konvmglegri
tilskipun þannig að IsIeniMngar
fái úrslitaáhrif á stjóm stofn-
unarinnar til þess að geyma.
liandritín þar sem telja verð-
ur að bezt séu uppfyllt orð
skipula.gsskrárinnar um geymd
þeirra og notkun.
Vísað er til greinar dr. Alfs
Ross próféssors sem birtíst s.l.
ár í „Ugeskrift for Ketsvæsen",
og í samræmi við Iiana leggur
nefndin til að litið verði á
Árnasafn sem sjálfseignarstofn-
un, og að það verði þessi sjálfs-
eignarstofnun sem flytur hand-
ritin til Islands. Nefndiu hugs-
ar sér að flutt verði til ís-
lands á þennan hátt þau hand-
rit Ámasains sem skrifuð era
a.f Islendingum, handa íslend-
ingum og á íslandi, en þó legg-
ur liún tíl að þeir hlutar safns-
ins, sem verið er að nota við
samningu íslenzk-dönsku orða-
bókarinnar mildu, verði áfram í
Danmörku, þar til orðabókar-
verkinu er lokið, þó ekki ieng-
ur en 20 ár.
Nefnd áhugamanna
Nefnd sú sem ber fram þess-
ar tillögur var mynduð að
ímmkvæði áhugamanna 16.
september 1957 til þess að
reyna að stuðla að jákvæðri
lausn á handritamálinu. For-
maður hennar er Bent A. Koch
ritstjóri í Kaupmannahöfn en
aðrir nefndannenn H. Dona
Chrisiensen biskup í Ribe, S,
Haugstrup Jensen lýðháskóla-
stjóri í Hilleröd, Edv. Hendrik-
sen bókaútgefandi í Kaup-
mannahöfn, G. Sparring-Peter-
sen prófastuf í Kaupmanna-
höfn og A. Richard Möller lög-
fræðingur í Kaupmannahöfn.
Rökstuðningur
nefndarinnar
Eins og áður er sagt leggur
nefndiri til að handritin í dönsk-
um ríkissöfnum verði afhent
Framhald á 3. síðu,
7----