Þjóðviljinn - 01.02.1958, Síða 4

Þjóðviljinn - 01.02.1958, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagnr 1. febrúar 1958 fhildi éftast ai úrslit kosnlnganna þjappí vinstrí öflunum þéttar saman Da" eftir dag skorar Morgunblaðið á Áka-klíku Alþýðu- flo' ksins að duga áfram íhaldinu og lyfta því í valdastól Þrátt fyrir allan gorgeir íhaldsins og Morgunblaðsins í sambandi við úrslit bæjar- stjórnarkosninganna í Reykja- vík leynir það sér ekki að það sem íhaldið óttast nú mest, er að almenningur í vinstri flokkunum dragi þær ályktanir af síðustu atburðum sem dugi til að kveða niður sundrungina sem orðið hefur vatn á mvllu íhaldsins með svo eftirminnilegum hætti. f- haldið telur nú meiri hættu á því en nokkru sinni fyrr að skemmdarstarf hægri aflanna í Alhýðuflokknum verði stöðv- að og tekin upp ærleg sam- vinna við Alþýðubandalagið og að heiðarlegir fylgjendur Þjóðvarnarflokksins sáluga láti heldur ekki hafa sig oft- ar til þess að eyðileggja at- kvæði sín ihaldinu til fram- dráttar, heldur skipi sér í þá fylkingu vinstri manna, sem skapa þarf í landinu til að hindra valdatöku íhaldsins og árásir auðklíkunnar á lífskjör alþýðu og lýðréttindi þjóðar- innar. Þessi ótti íhaldsins birtist fyrst og fremst í því, að Morg- unblaðið er látið halda því fram í hvcrri greininni af annarri að bað sé samvinnan við ~ Alþýðubandalagið og Framsókn í ríkisstjórn sem sé orsök fylgishruns Alþýðu- flokksins. Morgunblaðið tekur mjög óstinnt upp að Þjóðvilj- inn og Tíminn skuli draga þær ályktanir af kosningaúrslitun- um að efla þurfi samstarf vinstri flokkanna og tryggja framgang raunhæfrar og raunverulegrar vinstri stefnu í efnahagsmálum og stjórn- málum. Er Morgunblaðið mj"g móðgað við Tímann í fyrradag og kemst m.a. þann- ig að orði: „Það er „samfylking" ná- kvæmlega eins og kommúnist- ar hafa krafizt í 25 ár, sem blað hins íslenzka „milli- f1okks“ krefst að nú verði komið á twfarlaust. „Form“s> hennar skiptir engu máli. „Aðalatriðið er“ að henni verði komið á. Það er engin smáræðis á- kefð í ,.samfylkinguna“ sem lýsir sér í þessum orðum aðal- málgagns Framsóknarflokks- ins. Og inn í þetta sálufélag ætlar Hermann Jónasson að teyma Alþýðuflokkinn nauð- ugan viljugan, enda þótt blað hans hafi fyrir tveimur dög- um lýst yfir að ósigur hans í bæjarstjómarkosningunum spretti fvrst og fremst af því, að yfirlýsing Haralds Guð- mundssonar um að aldrei skyldi unnið með kommúnist- um, var svikin“. Og svo heldur Mbl. áfram í miklum armæðutón: „Það er ekki ofsögum sagt af ást og umhvggju maddömu Framsóknar gagnvart íslenzk- um jafnaðarmönnum!“ Þá er eitthvað öðru máli að gegna um „ást og um- hyggjn“ íhaldsins. Hún er auðvitað allt annarrar ættar. En íhaldið leggur nú alla á- herzlu á það, að fylgishrun Alþýðuflokksins eigi rót sína að rekja til þess að flokkur- inn taki þátt í ríkisstjórn með Alþýðubandalaginu og Fram- sókn, aðrar ástæður komi ekki til greina. Þessi kenning er nákvæm- lega sú sama og erindrekar í- haldsins í Alþýðuflokknum, Áki Jakobsson og nánustu samstarfsmenn hans, halda nú fram, eftir að úrslit kosning- anna liggja fyrir. Hér eru þeir því enn í þjónustu íhaldsins og hafa, ekkert lært og engu gleymt. Hitt er auðvitað ekki nefnt í herbúðum hægri mannanna, að sjálfir eiga þeir höfuðsökina á óförum Alþýðu- flokksins. Það eru þeir sjálfir sem mótað hafa og fylgt fram þeirri furðulegu stefnu að vera hálfir eða rúmlega það með íhaldinu en á móti rík- isstjórninni. Og í verkalýðs- félögunum hafa þeir gengið beint og opinskátt í banda- lag við atvinnurekendaflokk- inn, stjórnarandstöðuna, og unnið að því að afhenda þeim stjórnir verkalýðsfélaganna. Er síðasta dæmið um sam- vinnuna í Dagsbrún öllum í fersku minni, þótt tilræðið færi út um þúfur Með þessum skemmdar- verkum Áka Jakobssonar og fylgismanna hans í Alþýðu- flokknum hefur verið heldur betur lyft undir íhaldið. Því hafa ekki aðeins verið af- hent þýðingarmikil verka- lýðsfélög til umráða. Til við- bótar hafa fylgismenn Al- þýðuflokksins verið aldir upp í blindu hatri og fárán- legri ofstækisafstöðu til stéttarbræðra sinna í Al- þýðubandalaginu. Þeim hef- ur verið kerint að líta á í- lialdið sem SAMHERJA en Alþýðubandalagsmcnn sem HÖFUÐÓVIN. Og þegar í- haldið þarf á liðsinni að lialda í almennum kosning- um er galdurinn sá einn að endurprenta verstu ofstækis- skrif hægri manna Alþýðu- flokksins og hvetja hina rugluðu fylgismenn hans til að kjósa yfir sig íhaldið til þess að forða frá for- ustu kommúnistanna! Og þeir sem vandir hafa verið undir íhaklið í kosningum í verkalýðsfélögunum hlýða kallinu. Það er allt og sumt. Starfshættir hægri klíku Áka Jakobssonar gátu ekki leitt til annars en þess sem fram er komið, enda telur íhaldið sig standa í mikilli j’akkarskul við þessa dug- miklu og mikilsverðu sam- herja og treystir þeim til á íramhaldandi þjónustu. Og um það stendur í raun og veru spurningin í dág. Fá skemmdarverkamennirnii', sem; Áki Ja'kobsson stjórnar fyrir íhaldið, tækifæri til að halda áfram. Á ekki að stöðva þá fyrr en þeir hafa flæmt síð- ustu leyfarnar af fylginu frá; Alþýðuflokknum? Er ekki! tími til þess kominn að heið-1 arlegri og ábyrgari öfl taki í taumana við ævintýramennina og svifti íhaldið þeirri sterku von að starfshættir þeirra færi því innan tíðar stjóm- artaumana í hendur? Vissulega er tími til þess kominn. Og það er einmitt það sem íhaldið óttast mest af öllu. Auðstéttaröflin eru ekki örugg um að áætlanirnar standist. Ilialdið hræðist heil- brigða skynsemi alþýðufólks, sem nú krefst þess af flokk- um sínum að þeir snúi bök- um saman og hætti bræðra- vígunum, en einbeiti sér að því að byggja upp það sókn- arafl sem sigrað getur íhald- ið og tryggt um leið þá vinstri stjórnarstefnu sem al- þýðan þráir og veit að ein Ieiðir til farsældar fyrir þjóð- ina. Fiá 1. íeíií'úait véiv&z viðtalstími minn frá kl. 1,30—3 alla virka daga nema Iaugardaga klukkan 10—11 f.h. Kjartan Olafsson héraðslæknir, Kirkjuteig 9 — Keflavík. Málverkasýning Einars G. Baldvinssonar í Bogasal Þjóðminjasafnsins er opin daglega frá kl. 1—10 e. h. Landssamband bakarameistara Stofnfundur Landssambands bakarameistara var lialdinn í Reykjavík 23., 24. oð 25. janúar s.I. Frumkvæðið að stofnuninni hafði Bakarameistarafélag Reykjavíkur. Stofnfundinn sóttu bakarameistarar hvaðanæva að af landinu og nú þegar er meiri- hluti allra bakarameistara kom- inn í sambandið og nokkrir af þeim, sem ekki gátu sótt stofn- fundinn hafa þegar tilkynnt þátttöku . sína. Tilgangur sambandsins er: Að safna saman sem flestum bararameisturum á landinu í ein allsherjar samtök. Að vinna að aukinni fræðslu sambandsmanna. Að gæta velferðar og hags- muna stéttarinnar í hvívetna. Stjórn sambandsins er skipuð sjö mönnur, þrem úr Reykjavík og einum úr hverjum landsfjórð- ungi. ■ Eftirtaldir menn skipa nú sambandsstjórn: Sigurður Bergs- son, formáðui’, i feuðmundur R. Oddsson Reykjavík, varaformað- ur, Steindór . Hannesson ^jglu- firði, ritari, Stefán Ó. Thórd- ersen Reykjavik, gjaldkeri. Með- stjórnendur: Sigmundur Andrés- son Vesffnannaeyjum. Aðal- björn Trvggvason fsafirði, Hlöð ver Jónsson Eskifirði. Vara- stjórn: Árni Guðmundsson Reykjavík, Magnús Einarsson Reykjavík, Georg Michelsen Hveragerði. Bonnserskjöl rannsökuS Opinberi saksóknarinn í Sví- þjóð hefur hlutast til um að réttarrannsókn fari fram á uppruna skjala þeirra, sem Torsten Kreuger telur sanna að Bonniersfjölskyldan hafi boðizt til að selja nazistum bl'ð sín og útgáfufvrirtæki á stríðsár- unum. Tor Bonnier, höfuð ætt- arinnar. staðhæfir að skjölin séu fölsuð. Volkswagen Framhald af 3. síðu. ! um . Volks'vvagenverksmiðji’tmar ; í Grikklandi og Júgóslavíu, og | lét hann í ljós ánægju sína yfir því að honum skyldi einnig hafa Verið falið að „sjá úm“ ísland I því honum fellur vel í geð land og þjóð. Á sa; ;a hátt og Mr. Híller hef- | ur éftii'lít með 'VW þjónustu í ofangreindum löndum, eru aðrir ; verkfræðingar verksmiðjunnar í 1 sams konar erindagjörðum um allan heim. Og það er m. a. þessu íyrirkomulagi að þakka, að VW eigendur geta reitt sig á.fullkomna og örugga þjónustu, sem eflaust á sinn skerf í hin- um gífurlegu vinsældum og eft- irspurn þessara litlu bifreiða á heimsmarkaðnum. ; Til Einar G. Baldvinsson Málverkasýmng ^mars G. Baldv'mssonar Málverkasýningu Eínars G. Baldvinssonar í bogasal Þjóð- minjasafnsins skiptir í tvö horn: óhlutrænar myndir og hlutrænar, þar sem við þekkj- um hluti og viðburði hins dag- lega lífs. Málarinn hefur fund- ið sér fastari jörð undir fót- um þar sem hin hlutræna stefna er, þær myndir eru sam- stæðari en hinar sem óhlut- rænar teljast. Þessar myndir eru sterkar í teikningu, litír mjúkir frekar dimmir, rökkur á húsum, svört skip á sjó, grátt. Litaskalinn er viðfeldinn og bendir stundum til rómantík- ur. í hinum óhlutrænu myndum er líkast því sem málarínn hafa orðið fyrir of mörgum áhrifuni víða að og sé ekki búinn að vinna nóg úr þeim, það er að minnsta kosti svo að sjá í svipinn, en það dæmi sýnir og sannar hversu hin ó- hlutræna listastefna er lang- sött og erfið, því hér er um málara að ræða sem kann margt fyrir sér. En þót.t, sýning- in sýnist fyrir þessar sakir ekki m.iög samstæð, er þeim mim betra að át.ta sig á ýms- Um sviðum á braut bessa lista- manns sem hér héldur sína fyrstu sjálfstæðu sýningu. Mál- arinn virðist hafa inargar hug- dettur og er ekki liræddur, að gera tilraunir. Vil ég benáa á að í þessum óhlutrænu mynd- eru faldir litir, stundum dökk- ir eins op í hinum en frjáls- ari litaleikur, i þeim myndum sem síðast evu málaðar eru liósir litir. ÍSymngin er margra ára verk, og þar af leiðandi samslæðari en á liorfðist í fyrstu, þessar myndir bera giöggt höfundarma'rk. Það er hverjum mannj hollt að sýna myndir sínar, sýöing er eins konar krossgötur þar sem menn géta valið og hafn- að. Við eigum éflaust eftir að sjá nrargt fleira eftir Ein- ar G. Baldvinsson og sjá hann. vaxa nreð áfanga hverjum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.