Þjóðviljinn - 08.03.1958, Blaðsíða 7
Cs*.
Laugardagur ' 8/ marz' 'l'95S •— ÞJÓÐVíLjlNN (7 '■
Fáein orð um sögu 8. marz
Það er vert að minnast í
stuttu máli aðdraganda 8.
marz sem baráttudags kvenna.
Árið 1907 boðuðu konur úr
verkalýðsfélögum í Stuttgart,
fyrir forgöngu Klöru Zetkin,
Klara Zetkin
til fundar með konum úr öðr-
um löndum. Á þinginu mættu
konur frá 15 löndum. Þar var
borin fram krafan um kosn-
mgarétt kvenna. Með yfir-
Burt meS allan
erlendan her af
Islandi!
gnæfandi meirihluta atkvæða
var samþykkt, að fulltrúarnir
skyldu berjast fyrir kosninga-
rétti kvenna í Löndum sínum.
2. heimsþing sósíaliskra
kvenna var haldið í Kaup-
mannahöfn 26.-27. ágúst 1910.
Þar mættu 130 fulltrúar frá
15 löndum. Á dagskrá þongs-
ins var: Nánara samstarf
sósíalískra kvenna um heim
allan. Ráð og leiðir til þess
að konur fái kosningarétt.
Opinber umsjá mæðra og
bama.
Ritari þingsins var Klara
Zetkin. Hér eru nokkur orð
úr skýrslu hennar: „Við við-
urkennum engin landamæri.
Við vinnum að alþjóðahyggju.
Takmark vort er að vinna að
þjóðfélagi sósíalismans. Fyrst
þá munu konur öðlast efna-
lega, andlega og líkamlega
þau skilyrði sem þarf’til þess
að verða fullgildir menn. Við
eigum miklu meira óunnið í
frelsisbaráttu oklcar en karlar,
en það verður að takast smátt
og smátt í baráttunni við hlið
þeirra“.
Samþykktir þingsins voru í
stuttu máli þessar:
1.) Kosningaréttur handa
öllum konum án tillits til
efnahags.
Alþjóða baráttudagur
kvenna fyrir réttindum sínum
og bama sinna hefur frá
upphafi verið helgaður bar-
áttunni fyrir friði í heiminum.
Því hvers virði er okkur allt
heimsins yndi, ef við getum
ekki borgið lífi barnanna okk-
ar?
Konur Afríkulanda rita nú
kröfur sínar um lausn undan
áþján nýlendukúgaranna með
blóði sínu.
Konum um allan heim stend-
ur ógn af æðisgengnum kjarn-
orkuvígbúnaði. Lífsloftið, land
og sjór gerist bölvi blandið.
Við íslen7,kar konur eigum
óskilið mál með konum allra
landa. Við krefjumst þess að
geta lifað eins og menn.
frjálsar og í fullum rétti. Við
krefjumst þess, að fá að sjá
börnum okkar fyrir heimili
sem sé í húsi, en ekki hreysi.
Við krefjumst sömu launa og
sama réttar til handa stúlkum
og piltum.
Við krefjumst þess að ís-
lenskir atvinnuvegir verði
efldir og hver piltur og hver
stúlka geti neytt krafta sinna
við þjóðholl framleiðslustörf.
Ein er þó sú krafa sem
innibyndur allar aðrar kröfur.
Krafan sem er aðalkrafa ís-
lenzkra kvenna á þessum 8.
marz degi. Við viljum iifa sem
frjáls og fullvalda þjóð í landi
okkar. Við viljum engin víg-
hreiður vita í landi okkar.
Islendingar eru vopnlaus þjóð
og valdbeiting er okkur við-
urstyggð.
Við höfum numið þetta
land og það var frá engum
tekið. Því er okkur skylt að
skila þvi til arfa okkar al-
frjálsu og óháðu.
Hver heilbrigð íslenzk kona
og hver heiðarlegur maður
hlýtur því að taka undir
kröfuna: Burt með allan er-
lendan her af Islandi!
Þórunn Magnúsdóttir.
Engene Cotton
2. ) Bann við næturvdnnu
kvenna.
3. ) 8. marz skuli vera
alþjóðlegur baráttudagur
kvenna.
4.) 3. heimsþing kvenna eft-
ir þrjú ár. Ályktunin var
samþykkt samhljóða gegn 10
atkvæðum ensku lrvennanna,
sem höfðu sérskoðanir í sum-
um málum.
Frá árinu 1910 hafa kröfur
kvenna 8. marz verið: Jafn-
rétti við karla, 8 stunda
da.gur, sömu laun fyrirsömu
vinnu — Þó nú séu liðin
f jörutíu og átta ár, hafa kon-
ur í mörgum löndum enn þá
ekki fengið kosningarétt.
Klara Zetkin, ritari þings-
ins skoraði á konur að berjast
fyrir friði. Hún sagði: „Fyrst
þegar meixá hluti kvenna tek-
ur upp kröfuna: Stríð gegn
stríði, — þá geta þjóðimar
verið ömggar um friðinn. Og
þann dag sem konurnar fylkja
sér einhuga um þessa kröfu,
verður hún borin fram til sig-
urs.
Við stöndum sém eiginkon-
ur og mæður gegn þeim glæpi
Sém stýrjaldir eru. Við hugs-
um ekki aðeins um sundur-
tætt lík ástvina vorra; við
hugsum ekki siður um þau
fjöldamoi’ð á sálinni sem er
óumflýjanleg afleiðing styrj-
alda. Þær ógna því sem við
mæður sáum í barnshugann,
vorri dýrustu gjöf, menningar.
arfleifð vorri“.
1914 bra.ust fyrri heims-
styrjöldin út með öllum sínum
hörmungum. 1915 var boðað
til kvennaþings í Bern, en
fékk litlar undirtektir vegna
stríðsæsinganna, enda voru þá
öll frjálslynd samtök brot.in
niður af auðvald'nu
Friðarbaráttunm hefur þó
stöðugt veríð halclið afram og
eftir seinni beimsstyrj"ldina
var haldinn fjöin'ennur
kvennafundur t London 3.
marz 1945.
Franska kvennabandalagið
bauð konum til þings í París
26. nóv.—1. des. 1945.
Þar var stofnað Alþjóða-
bandalag lýðræðissinnaðra
kvenna, sem hyggst sameina
allar konur án tillits til kyn-
þáttar, trúarbragða eða
stjórnmálaskoðana.
'Bak við þennan dag, 8.,
Framhald á 8. síðu.
Konur þessar hittust á heimsþin,gi mæðra í Lausanne 1956.
Þær eru fulltrúar kvcn nasamíaka frá Afríku, Evrópu og
Asíu. — Myndin er táknræn fyrir vaxandi einingu kvenna
í baráttunni fyrir friði.
Boðsknpur
frá Alþjóðasambandi lýðræðissinnaðra
kvenna 8. marz 1958.
Til allra kvexma.
í sambandi við hinn aíþjóð-
lega kvennadag 8. marz
1958, heilsar hið lýðræðislega
heimskvennasamband öllum
konum og kvenfélögum, hvar
í heimi sem er og óskar þeim
árs og friðar.
Við beinum kveðjum okkar
til allra þeirra kvenna sem
leggja lið sitt til aukins frels-
is og friðar, og ekki sízt ykk-
ar sem leggið ykkur sérlega
fram í pólitískum, félagsleg-
nm, fjárhagslegum og menn-
mgarlegum efnum.
Við heilsum þeim þjóðum
sem vinna að friðarmálum af
fullri alvöru og áx-vekni. Við
gleðjumst yfir vakningu og
endurreisn þjóða í Asíu og
Afríku.
Við samgleðjumst ykkur
innilega með tæknilegar og
visindalegar framfarir, sem
munu skapa bjarta fram.tíð
Er STRÍÐ og FRIÐUR okkur
íslendingum óvlðkomandi?
Eínda þótt Islendingar séu
á einu máli um afleiðingam-
ar af kjamorkustyrjöld, viti
að þar verður jafnvel teflt
á tvær hættur um líf og
heilsu komandi kynslóða, þá
láta þó flestir sem barátta
þjóðaima fyrir friði sé þeim
óviðkomandi.
Alla þessa öld hefur styrj-
öld verið háð — auk tveggja
heimsstyrjalda, sem lögðu
mill jónir manna i gröfina og
gerðu enn fleiri að örkumla-
fólki. —. Stóru auðvaldsrikin
hafa kúgað ófrjálsar þjóðir
eða veikar efnahagslega, kæft
í blóði frelsisbaráttu þeina
og rænt auðæfum þeirra. Er
öllum í fersku minni Kýpur,
Malakka, Indónesía, Viet-
Nam, Kenýa, Guatemala oJI.
o. fL sem arðræningjar Bret-
lands, Bandaríkjanna og
Frakklands hafa háð styrjald-
ir við. 1 mörg ár hafa auð-
hringar Frakklands háð út-
rýmingarhemað gegn nærri
vopnlausri Alsír — myrt íbú-
ana eins og sláturfénað.
Á sama tíma hefur þó ver-
ið háð hin skeleggasta frið-
arbarátta. Auk sósíalistísku
landanna og verkalýðshreyf-
ingarinnar í flestum löndum,
hafa þjóðir Asíu og Afríku
risið upp til vamar málstað
friðarins.
Þegar setulið Breta og síð-
Bandaríkjanna var hér á tíma-
bili siðari heimsstyrjaldar,
lærðu nokkrir ihaldsmenn að
hagnýta sér hörmungar ann-
arra þjóða.. Þessir vesælu
þorpa.rar seldu sig stríðsauð-
valdi Bandaríkjanna fyrir
nokkra mola af stríðsgróða
þess. Með takmafkalausii
hræsni og svikum, véluðu
þeir nokkum liluta íslenzku
þjóðarinnar til fylgis við lier-
stöð fyrir Bandaríkin í Kefla-
vík, töldu þeim trú um að
þetta væri hin mesta gróða-
lind fyrir fjárhag þjóðarinn-
ar.
Fyrir þessum íhaldsmönnum
vakti aðeins áframhaldandi
gróðabrall í sambandi við er-
lenda herinn. Þeir eins og all-
ir aðrir íslendingar vissu, að
allt varnartalið var hræsni
til þess eins að hylja hinn
raunvemlega tilgang —
gróðabrallið.
Áróður Morgunblaðsins og
ihaldsins yfirleitt fyrir striðs-
öflum og kúgumm smáþjóða,
Framhald á 10. síðu.
fyrir þöm ykkar sem nú
vaxa úr grasi.
En framtíð verður að
bj'ggjast á friði til þess að
komandi kynslóð fái notið á-
vaxta þeirrar ástar, sem við
veitum henni. Iðni og áhúga-
semi verður að koma til skjal-
anna til þess að vega á móti
vetnissprengjuhreiðrum sem.
hlaðið er upp um allar jarðir.
Þegar slíkar vörugeymslur
eru á næstu grösum, emm
við öll í hættu.
Konur um allan heim
heimta endi á öllum tilraun-
um með kjarnorkusprengjur,
þær heimta einnig að hið svo-
kallaða kalda stríð verði út-
kljáð með samningum milli
ríkja. Það er raunverulegur
vilji kvenna og meirihluta
allra manna, að vinátta, skiln-
ingur og sameiginleg tilvera
allra þjóða verði raun og
reynd í framtíð þessa lieims
— ekki stríð og morð.
8. marz bindast konur um
allan heim samtökum um bar-
áttu fyrir sameiginlegu frelsi,
og einnig þijóðlegu frelsi.
8. marz, hinn venjulega bar-
áttudag kvenna, notum vér til
fundahalda og almennra há-
tíðahalda til þess að sýna
vilja okkar og kröfur. Við
munum ennfremur leggja á-
herzlu á jafnrétti í vinnu,
sömu, laun fyrir sömu vinnu
og laun fyrir móðurstarf sem
framlag til þjóðfélagsins.
Alþjóðasamband lýðræðis-
sinnaðra kvenna skorar á all-
ar konur að gera 8. marz
1958 að miklum undirbúnings-
degi fyrir Fjórða þingið, sem
haldið verður í Vínarborg 1,-
5. júní 1958. Þetta þing munu
sækja konur úr öllum hlutum
heims án tillits til litar,
þjóðernis eða trúarbragða.
Þetta þing mun sanna vináttu
og félagsskap allra kvenna og
það verður merkilegur þáttur
til styrktar og sameiningar
kvenna um allan heim, að því
marki að börn þeirra megi ná
fullorðinsaldri í friði —•
heimsfriði.