Þjóðviljinn - 12.04.1958, Blaðsíða 3
Laugavdagiir 12. apríl 1958 — ÞJÓÐVILJINN —. (3
Störf Menntamálaráðs
Framhald af 1. síðu-
Utanfararstyrkur til
listamanna
Loks hefur Menntamálaráð
samþykkt, að veita þremur við-
urkenndum listamönnum stytk
á þessu ári til utanfara, tón-
listarmanni, myndiistarmanni
og leikara.
Stofnun og stjórnir
Menntamálaráð Islands var
stofnað með lögum 12. april
1928 og menningarsjóður 7.
maí sama ár.
Bæði þessi nýmæli voru fram
borin á alþingi af Jónasi Jóns-
syni, þáverandi menntamála-
ráðherra.
í Menntamálaráði eiga sæti
5 menn, kosnir hlutbundnum
kosningum á aiþingi eftir
hverjar alþingiskosningar.
Fyrstu stjóm Menntamálaráðs
skipuðu þeir Sigurður Nordal
próf. formaður, Árni Pálsson
próf., Ingibjörg H. Bjarnason
skólastjóri, Ragnar Ásgeirsson
garðyrkjumaður og Stefán Jóh.
■Stefánsson hrl.
Þessir menn hafa gegnt for-
mannsstörfum í Menntamála-
ráði:
Sigurður Nordal 1928—1931.
IBarði Guðmundsson 1931 til
1933, Kristján Albertsson 1933
til 1943, Valtýr Stefánsson
1943 til 1956, Helgi Sæmunds-
son frá 1956.
Þessir menn eiga nú sæti í
Menntamálaráði: Helgi Sæ-
mundsson, formaður, Haukur
Snorrason, varaformaður, Birg-
ir Kjaran, ritari, Magnús
Kjartansson og Vilhjálmur Þ.
Gislason.
Menntamálaráð hefur frá
upphafi haft á hendi yfirstjórn
Menningarsjóðs. Allt til ársins"
1957 starfaði sjóðurinn í þrem
deildum, bókadeild, náttúru-
fræðideild og listadeild. Fékk
liver deild árlega einn þriðja
af tekjum sjóðsins, en það voru
sektir fyrir brot á áfengislög-
gjöfinni.
Árin 1928—1940 námu tekj-
ur sjóðsins kr. 43 þúsundum að
meðaltali ár hvert.
Árin 1941—1946 námu tekj-
ur sjóðsins hvert ár !kr. 117
þúsundum.
Árin 1947—1953 námu ár-
legar tekjur sjóðsins kr. 261
þúsundi.
Árin 1954—1956 voru árs-
tekjumar kr. 550 þúsund.
Tekjur margfaldaðar
Að fmmkvæði núverandi
menntamálaráðherra, Gylfa Þ.
Gíslasonar, var á síðastliðnu
ári sett ný löggjöf um menn-
ingarsjóð og menntamálaráð,
þar sem starfsemi þessara
stofnana er stóraukin. Með hin-
um nýju lögum er menningar-
sjóði tryggðar um 3 millj. kr.
árlegar tekjur. Þar af skulu
800 þús. kr. renna til hins ný-
stofnaða Vísindasjóðs, en að
öðru leyti skiptir menntamála-
ráð fénu til stuðnings ýmsum
greinum lista og menningar-
mála.
Auk þess, sem Menntamála-
ráð annast stjórn Menningar-
sjóðs, hefur það með höndum
ýmis önnur störf.
Ráðið úthlutar árlega náms-
styrkjum og námslánum, sem
veitt eru á fjárlögum til ís-
lenzkra námsmanna erlendis.
Það annast einnig skiptingu
fjár þess, sem alþingi veitir
til vísinda- og fræðimanna. Þá
Jónas Jónsson var á móti íhald-
inu þegar hann beitti sér fyrir
stofnun Menntamálaráðs — enda
kallaði íhaldið hann þá fjand-
mann menningarinnar-
hefur ráðið með höndum yfir-
stjórn Listasafns ríkisins og
gengst fyrir opinberum sýning-
um á íslenzkri myndlist, innan
lands og utan.
Fermingar á morgun
Framhald af 2. síðu.
Sverrir Þórhallsson,
Hávallagötu 32.
Vilhjálmur J. Húnfjörð,
Tjamargötu 3.
Þórður Ó. Búason,
Öldugötu 55.
Stúlkur:
Alda S. Öladóttir, Bollag. 7.
Erna K. Öladóttir, Bollag. 7.
Elín S. Sigurþórsdóttir,
Brávallagötu 18.
Emilía Jónsdóttir, Bergi við
Suðurlandsbraut.
Eygló Ragnarsdóttir, Suður-
landsbraut 62.
Helga Thomsen, Blóm-
vallagötu 10A.
Hrafnhildur Lárusdóttir,
Grettisgötu 71.
Inger M. Arnholtz, Berg-
þórugötu 51.
Kristín Kjartansdóttir,
Nýlendugötu 24B.
Margrét Halldórsdóttir,
Öldugötu 7.
Ólöf Á. Karlsdóttir,
Teigagerði 7.
Ragnheiður Árnadóttir,
Hrannarstíg 3.
Ráðhildur E. Franklin,
Dalbraut 3.
Sigurdís Sigurðardóttir,
Suðurgötu 37.
Ferming í Fríkirkjunni sunnu-
daginn 13. aprii, kl. 2. Prestur
Séra Þorsteinn Björnsson.
Stúlkur:
Bergþóra Sigurjónsdóttir,
Bakkastíg 4.
Elísabet Pálsdóttir,
Þórsgötu 15.
Guðríður G. Jónsdóttir,
Hæðargarði 22.
Guðrún Gísladóttir,
Ásvallagötu 55.
Jóhanna A. Ólafsdóttir,
Freyjugötu IIÁ.
Kristín Þ. Gísladóttir,
Ásvallagötu 55.
Kristín G. Jónsdóttir,
Grettisgötu 31.
María S. Bjarnadóttir,
Sörlaskjóli 8.
Pálína H. Adólfsdóttir,
Hringbraut 119.
Pálína G. Ólafsdóttir,
Grjótagötu 12.
Sólveig Ingvarsdóttir,
Hringbraut 113.
Drengir:
Guðbjartur Vilhelmsson,
Laugamesveg 69.
Hjálmar Sveinsson,
Hólmgarði 46.
Hilmar Karlsson, Heiðar-
gerði 78.
Jón J. Haraldsson, Rauða-
læk 4.
Jón Valdimarsson,
Eskihlíð 8.
Oddur H. Oddsson,
Grettisgötu 96.
Ólafur Guðmundsson,
Grettisgötu 27.
Rafn Magnússon, Efsta-
sundi 80.
Sigurður R. Blomsterberg,
Heiðargerði 5.
Stefán Ö. Magnússon,
Túngötu 22.
Sverrir Baldvinsson,
Hverfisgötu 83.
Þorsteinn Sæmundsson,
Merkúrgötu 3, Hafnarf.
Þráinn Bertilsson, Gmnd-
arstíg 15B.
Ævar Lúðviksson, Hverf-
isgötu 32.
Örn S, Björnsson,
Grettisgötu 6.
HEIMSpEKKT GÆÐAVARA
^ SALT
CEREBOSí
HANDHÆGU BLAU DOSUNUM
Mes^rs. Krisljá** Ó. Skagfjord Lioiited,
Posl Box 411, REYKJAVIK, lceland.
Baznaverndarféla?
Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn á
mánudagskvöldið kl. 8.30 í
1. kennslustofu Háskólans.
Auk lögmætra aðalfundar-
starfa verður kvikmynda-
tíu. Gestir velkomnir.
Stjórnin
Merkj asöludagur
Ljósmæðrafélagsins
Mæður leyfið börnum ykkar að selja merki
Ljósmæðrafélags Reykjavíkur á morgun —
sunnudaginn 15. apríl. Merkin verða afgreidd í
öllum barnaskólum og Rauðarárstíg 40 frá kl 9 árd.
GÓÐ SÖLULAUN — Verðlaun fyrir liæstu sölu.
Stjórnin
Royal
iuSSfÆS
Royal köldu búðingarnir
þurfa ekki suðu.
Bragðgóðir —
Handhægir.
Auglýsing
Athygli söluskattskyldra aðila í Reykjavik skal
vakin á því, að frestur til að skila framtali til
skattstofunnar um söluskatt og útflutnings-
gjald fyrir 1; ársfjórðung 1958, svo og farmiðagjald
og iðgjaldaskatt samkv. 20. — 22. gr. Jaga nr. 86
frá 1956, rennur út 15. þ.m.
Fyrir þann tíma ber gjaJdendum að skila skatt-
inum fyrir ársfjórðunginn til tollstjóraskrifstofunn-
ar og afhenda afrit af framtali.
Reykjavík, 10. apríl 1958
SKATTSTJÖRINN 1 REYKJAVÍK
TOLLSTJÓRINN 1 REYKJAVÍK
Bann
VIÐ HUNDAHALDI 1 KÓPAVOGI
Samkvæmt ákvæði heilbrigðissamþykktar fyrir
Kópavogskaupstað nr. 16 15. febrúar 1958 er
hundahald bannað j lögsagnarumdæmi Kópavogs-
kaupstaðar.
Eftir 1. maí n.k. verða hundar drepnir hvar sem
til þeirra næst á ahnannafæri í Kópavogskaupstað,
án frekari aðvörunar til eiganda.
Lögreglustjórinn í Kópavogi, 8. apríl 1958
SIGURGEIR JÓNSSON
Staða símastúlku
við embætti mitt er laus til umsóknar. Vélritunar-
kunnátta nauðsynleg. Umsóknir, er tilgreini mennt-
un og fyrri störf, séndist’sikrifstöfu minni á
Reykjavíkurflugvelli fyrir 20. þ.m.
Reykjavík, 11. apríl 1958
Flugmálastjórinn AGNAR KOFOED-HANSEN
Byggingarsamvinnufélag
iögreglumanna í Reykjavík
hefur til sölu íbúð við Miðtún.
Félagsmenn er neyta vilja forkaupsréttar Iiafi
samband við stjóm félagsins fyrir 20. þ.m.
Stjjómin
Ný sending
Skinnhanzkar og hálsklútar
GLUGGINN Laugavegi 30