Þjóðviljinn - 12.04.1958, Síða 12

Þjóðviljinn - 12.04.1958, Síða 12
4. mm 11111 ISll imWá f111 \\\v 'Ulin! •illlwii í Uppástunga Sovétríkjaima sem svar við orðsendiegu Vestnrveldanna 31. marz Sovétstjórnin hefur sent stjórnum Bretlands, Banda- ríkjsnna og Frakklands tilkynningu þar sem lagt er t.il að sendiherrafundur til undirbúnings fundi æðstu manna verði haldinn í Moskvu næstkomandi fimmtu- dag, 17; apríl. Vesturveldin þrjú höfðu í orð- sendingu sinni 31. marz s.l. lagt til að slíkur fundur yrði haldinn í Moskvu síðari hluta aprílmán- •aðar, og hefur Sovétstjórnin nú svarað þeirri uppástungu. Grorncko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna ræddi í gær í Moskvu við sendiherra Banda- ríkjanna, Frakklands og við staðgengil brezka sendiherrans, sem nú er í orloíi í London. í orðsendingu sinni leggur Sovétstjómin til að fundur sendiherranna fjalli ekki um form fundar æðstu manna, held- ur aðeins um dagskrá fundar ut- anríkisráðherranna og hvar og hvenær hann skuli haldinn. Reuters-fréttir herma að Rúss- ar leggi í orðsendingu sinni til, að fundur utanrikisráðherranna hefjist þrem vikum eftir að fundur sendiherranna hefst. Sömu heimildir herma, að það sé álit erlendra stjómarerind- reka í Moskvu, að fundur utan- ríkisráðherra fjórveldanna verði háidinn i næsta mánuði, og Vegir furðugóðir Vegir hafa verið sæmilega góðir undanfarið vegna þess hve hægt og jafnt hefur þiðnað. Austanfjalls er Flóavegurinn enn góður og vegurinn austur einnig, en sumir veganna eru þó hyrjaðir að láta á sjá og má búast við að þeir spillist allmjög ef mikið rignir, því enn er mikill klaki í þeim. Suður-Afríkubú- ar bannf ærðir Stjórn Suður-Afrikti hefur lagt bann við því að fleiri en tíu Afríkumenn kæmu saman til funda þar til kosningar hafa farið fram í landinu í næstu viku. Þetta gerir stjórnin vegria hræðslu við mótmæla- og kröfu- göngiir Afríkubúa, sem búa við mikla kynþáttakúgun. Afríku- menn hafa t. d. ekki kosninga- rétt í kosningunum, sem fara fram n.k. miðvikudag. Her- vörður hefur verið aukinn víða í landinu. Réttlætakilegt clráp hjá dóttur KviðdómUr i Los Angeles kvað í gær upp þann úrskurð, að um réttlætanlegt manndráp hafi ver- ið að ræða, þegar Cheryl, fjórtán ára gömul dóttir leikkonunnar Lönu Turner stakk glæpamann- inn John Stompanato til bana með hnífi í svefnherbergi móður sinnar. Lana bar fyrir réttinum, að þegar Stompanato réðist á sig, 3þgfi dóttir sín látið til sín taka, s Cheryl er enn í varðhaldi. fundur æðstu manna í júlí eða ágúst. Vesturveldin hugsa ráð sitt Hin nýja orðsending Sovét- stjórnarinnar er nú til athugun- ar hjá yfirvöldunum í London, Washington og París. Talsmenn brezku og frönsku stjórnanna hafa ýmist gefið engin eða loðin svör við spurningum frétta- manna um afstöðu þessara rík- isstjóma. Virðist svo sem Bret- ar og Frakkar vilji fyrst bíða eftir að Bandaríkjastjórn láti skoðun sína í Ijós. Eisenhower og Dulles héldu sendingu Sovétstjómarinnar ekki með sér fund í Hvíta húsinu í Snjókoma suður n Allmikil snjókoma var á meginlandi Evrópu og á Bret- landseyjum í gær. Snjóaði tals- vert, í Frakklandi, Þýzkalandi, Sviss og Italíu allt suður á Sikiley. Sumstaðar féll vinna niður af þessum sökum. I Sviss kyngdi niður miklum snjó og er þar talin mikil hætta á snjóflóðum. Á öðrum stöðum á vestan- verðu meginiandi álfunnar var hellirigning í gær. Fjölsótt skíðamót í Oddsdal Neskaupstað. Frá frétta- ritara Þjcðviljans. Iþróttafélagið Þróttur efndi til ’’ skíðamóts og skíðakennslu og útilegu við skíðaskála sinn í Oddsdal um páskahelgina. Yfir 500 manns heimsóttu skál- ann þessa daga. íþróttafélagið Þróttur er 25 ára í sumar og ráðgjörir að efna til fjqlþreyttra hátíða- halda af því tilefni. gær og ræddu viðbrögð við orð- sendingunni. Var haft eftir þeim eftir fundinn, að þeir teldu orð- sendingu sovétstjórnarinnar ekki fela í sér samþykki á til’ögum V es tur veldanna. Þátttaka hlutlausra rikja? Formælandi júgóslavnesku stjórnarinnar lýsti í gær yfir stuðningi við tillögu Nehrús, for- sætsráðherra Indlands, um að hiutlaus ríki tækju þátt í fundi æðstu manna. Slíkt myndi auka líkurnar til þess að viðunandi lausn vandamálanna yrði fundin. Laugardagur 12. apríl 1958 — 23. árgangur -—- 83. tölublað. Umferðarlögín fóru aff- ur fi! efd deildar Nokkrar smábreytingar gerðar við 3. umr. Neöri deild afgreiddi umferð’alagafrumvarpið í gær, við 3. umr. með nokkrum smávægilegum breytingum, og fer frumvarpið aftur til efri deildar. * Meðal tillagna þeirra sem samþykktar voru má geta til- lögu við 27. gr., er þrír þing- Uppreisn hafin í Líbanon Sólskin — blíða j —■ snjor Neskaupstað. Frá’ frétta- ritara Þjóðviljans. Veðurblíða hefur verið mikil hér að undanförnu logn og sól- skin. Snjór er þó enn allmikill til fjalla og ekki líklegt að vegurinn um Oddskarð verði ruddur fyrr en meira hlánar. MÍR Akranesdeild Barnasýning á morgun, sunnu- dag, í Ilaðstofunni kl. 2 síðdeg- is. Smámyndasyrpa. MlR-félag- ar gefið bömum ykkar kost á að sjá þessar ágætu bama- myndir. Stjórn MlR. Fréttir frá Beirut herma að alvarlegar óeirðir hafi brotizt út í landinu. Óánægja með stjóm landsins gerir vart við sig í stöðugt ríkara mæli og fnllyrtu sum blöð lándsins í gær að uppreisn væri raunverulega hafin í landinu. Til bardaga hefur komið í fjallahéruðum fyrir austan Beirut milli lög- reglumanna og uppreisnar- manna. Stjómin hefur nú sent herlið og skriðdreka á vettvang. Miklar mótmælasamkomur gegn stjórninni voru haldnar í Beir- ut í gær og þess krafizt að stjórnin segði af sér. Hinn mikli fjöldi stjómarandstæðinga krefst nánari samvinnu við Sameinaða Arabalýðveldið. Stjómin hefur látið hand- taka allmarga menn, þar á með- al formann sósíalistaflokks landsins. Bæjakeppni Keílavíkur og Akraness: Vinna flkurnesingar nú bikarinn? Keílvíkingar munu gera allt til að jaína metin Keflavík. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Á morgun, sunnudag, fer fram hin árlega bæjakeppni í sundi milli Akraness og Keflavíkur, og fer hún nú fram i sundlauginni í Keflavík og hefst kl. 3.30 síðdegis. Keppni þessi var hafin árið 1951 og er það því í áttunda skiptið nú sem hún er háð. í öll skiptin hefur keppnin verið svo hörð að ekki hefur verið hægt að sjá hvorir myndu sigra fyrr en að síðustu keppnisgrein- inni lokinni. Staðan er nú þannig að Akur- fhaldsfélagið Frjáls menning hefur látið mjög á sér bera að undanförnu. Það hefur boðið hingað heim einum útlendingnum á fætur öðrum og gert vel við þá, en slík heimboð eru að sjálfsögðu mjög kostnaðar- söm. -Efiginn aðgangseyrir er greiddur að sarnkomum félagsins, en þær eru yfirleitt haldnar í kvikmyndahús- um og keyptar upp bíósýningar. Auk þess hefur félag- 1 í8 ýmislég önnur umsvif, útgáfu og auglýsinga- starfsemi og launaða starfsmenn. Mun vægilega áætlað að kósthaðurinn af starfsemi félagsins nemi nú þegar á ahhað hundrað þúsund króna. En félagið hefur engar tekjur svo vitað' sé; það tekur elcki gjöld af neinum fyr- ir „þjónustu" sína. Því er mönnum spurn: Hver borgar brúsann? Það er vltnéskja sem myndi varpa meira ljósi á frelsið og menn- inguna en sameiginlegar áróðursræður Gunnars Gunn- arssonar, fyrrverandi málvinar Hitlers, Frode Jakob- sens, herforingja í heimavarnarliði Dana, og Áka Jak- obssonar fyrrverandi kommúnista. nesingar hafa unnið fjórum sinnum en Keflvikingar þrisv- ar. Vinni Akumésingar að þessu sinni vinna þeir til eignar bikar þann sem keppt er um og Akur- nesingar gáfu i upphafi keppn- innar, Munu Keflvikingar hafa fullan hug á að koma í veg fyr- ir 'að svo verði og reyna heldur að jáfna metim Verður keppnin hú þvi áreiðanléga ekki síður- spennandi en undanfarin ár. Um, kvöldið verður dansleikur í Ungmennafélagshúsinu í tilefni keppninnar og er allt íþróttafólk veíkomið. I dag kl. 4 efnir Frjáls menning til fundar að Hótel Borg þar sem danski þingmað- urinn Frode Jakobsen flytur erindi er hann nefnir: I sltugga atómvopna. Að fyrirlestrinum loknum svarar ræðumaður fyr- irspurnum sem fundarmenn kunna að bera upp við hann. Öllum er heimill aðgangur að fundinum og sér hótelið um veitingar handa þeim er þess óska. menn fluttu, Pétur Pétursson, Gísli Guðmundsson og Gunnar Jóhannsson. Var það ný máls- grein, þannig: „Ef leigubifreiðarstjóri brýtur af sér í starfi sínu, svo sem með þvi að éiga við fólk við- skipti, er varða við lög, eða gætir á annan hátt ekki fulls velsæmis, má svipta hann rétt- indum leigubifreiðarstjóra svo og atvinnuleyfi um lengri eða skemmri tíma og ævila.ngt, ef um ítrekað brot er að ræða, Skal dómsmálaráðuneytið; að fengnum tillögum hlutaðeig- andi bifreiðastjórafélaga, setja í reglugerð nánari ákvæði uxn starf atvinnubifreiðastjóra“. Reykjavíkur- meistaramótið í badminton háð í dag Reykjavíkurmeistaramótið í badminton verður háð í dag í KR-húsinu við Kaplaskjólsveg og hefst kl. 2 síðdegis. Keppend-, ur eru nú nokkru færri en oft áður, um 30, og verður því unnt að Ijúka keppni á einum degi. Meðal keppenda eru flestir beztu badmintonleikarar bæjarins. Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur sér um málið. K. Þjarmað að upp- reisnarmönnum Hersveitir Jakartastjómar gerðu í gær innrás í þau hér- uð á Vestur-Súmötru sem upp- reisnarmenn ,hafa á valdi sínu. Sækja sveitir þessar hratt fram og stefna að því að inni- króa uppreisnarmenn. Útvarpið í Kairó skýrði frá því í gær að stjórnarherinn sækti nú fram á norð-vestur Súmötru og nálgaðist nú óð- íluga tvær aðalborgirnar, sem uppreisnarmennhafa á valdi sinu Padang og Búkintingi. • magnast a ur EOKA, leynisamtök grískra þjóðérnissinna á Kýpjur dreyfði í gær flugritum á eynni. Vom það áskoranir til eyjaskeggja urra. að hefja að nýju baráttuna gegrt brezka herliðinu á eynni, et' Bretar hættu ekki tafarlausl; pyntingum og illri meðferð fanga sem eru í haldi hjá Bretum og S fá ekki einu sinni mál sitt tekið fyrir rétt. Þessar nýju aðgerðir EOKA gegn Bretum hófust í íyrradag, þegar EOKA boðaði til sólar- 1 hrings verkfalls.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.