Þjóðviljinn - 17.05.1958, Síða 6

Þjóðviljinn - 17.05.1958, Síða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 17. maí 1958 þlÓÐVlLIINN Úteefandl: Sameinlngarflokkur alþýSu — Sósiallstaflokkurlnn. — Ritstjórax Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður GuSmundsson. - Préttarltstjóri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson. Ouðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson. — Auglýs- ingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, aígreiðsla, auglýsingar, prent- smiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími: 17-500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 25 6 mén. í Reykjavík og nágrenni; kr. 22 annarsst. — Lausasöluverð kr. 1.50. Prentsmlðja Þjóðviljans. IV- „Hafa framið svik við þjóðina og teflt lýðræði, þingræði, frelsi og sjálfstæði þjóðar- innar í voða” Framhald af 12- síðu. manna og ýmsir leiðtogar þeirra hafa verið handteknir. Salan tekur sér völd Bekkir þinghússins voru þétt setnir þegar Pflimlin for- sætisráðherra tók til máls til að fylgja frumvarpi stjórnar- innar úr hlaði. Mauriee Thor- ez, leiðtogi kommúnista, var f Reynt T-»au ummæli sem skráð eru ■* hér að ofan er að finna í ræðu Ólafs Thors formanns Sjálfstæðisflokksins, þeirri er hann hélt um efnahagsmálatil- lögur þær sem lagðar hafa ver- ið fram á þingi. Þetta eru stór orð, og þau eru þeim mun harkalegri sem ræða Thorsar- ans var yfirleitt mildileg, hann lagði að vanda áherzlu á gamansemi og stráksskap. Hann benti á að ráðstafanir þær sem í frumvarpinu felast væru engin varanleg lausn en lýsti jafnframt yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn teldi að varanleg lausn væri ekki finn- anleg. Hann kvað Sjálfstæðis- flokkinn ekki hafa neinar aðr- ar tillögur fram að færa og íauk máli sínu án þess að taka fram hvort Sjálfstæðisflokkur- inn myndi greiða atkvæði með eða móti frumvarpinu; þvert á móti gat hann þess um núver- andi stjóm ,,að vel megi vera, að rétt sé að hún hangi, enn um skeið svo að menn lendi ekki í bráð í klóm svokallaðrar vinstri viliu aftur.“ Ólafur Thors var þannig síður en svo uppnæmur út af hinum nýju tillögum, enda hefur hann lýst yfir því á þingi að hann sé skuldugasti maður landsins, og fyrir slíka menn er ný verð- bólga fundið fé, svo að ekki sé minnzt á duldar erlendar inn- eignir sem nú eiga að hækka í verði um 55%. Þeim mun lær- dómsríkara var það að á einum stað í ræðunni skyldi þessi leið- togi Sjálfstæðisflokksins detta gersamlega út úr hlutverkinu og fróa sér með þeim orðum sem hann gat fundið stærst í móðurmálinu; þetta gerðist í þeim kafla ræðunnar sem hér fer á eftir: ,17'yrst unnu sérfræðingar að " málinu, svo setti stjórnin upp gleraugu og rýndl í skjöl- in, en sendi málið síðan til hinna raunverulegu vaidhafa, Alþýðusambandsins. Fyrir þess- um valdhafa kraup stjórnin lengi og bað um náð — fyrst um fylgi við frumvarp sitt, en þegar það reyndist ógemingur, iim að ekki væri snúizt gegn því. Og það hefur lieyrzt að stjórnln hafi lýst þvi yfir, að frumvarplð yrði ekki flutt á Alþingi nema með leyfi Alþýðu- sambandsins. Er það í sam- ræmi við það, að það sé orðið hinir raunverulegu valdhafar í landinu . . . Með því að flytja úrslitavaid þjóðarinnar út fyrir veggi Alþingis og til vissra stéttarsamtaka er geigvænleg hætta færð yfir þjóöina. Það eru löglega kjömir fulltrúar þjóðarinnar á Alþingi ásamt þjóðkjörnum forseta, sem skv. stjómarskrá landsins ber að fara með þetta vald. Menn, sein tryggja sér stjómarforystu og greiða fylgi kommúnista því verði að afhenda þeim félags- samtökiun, sem þeir ráða yfir, þetta vald, hafa framið svik við þjóðina og teflt lýðræði, þingræði, frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar í voða“. ’T^ama er komið við kvikuna í * formanni Sjálfstæðisflokks- ins og þarf engan að unara. Það er þessi þáttur í fari stjómarinnar sem er hættuleg- astur völdum og aðstöðu gróða- stéttarinnar á íslandi. Áður var það jafnan svo að allar ráð- stafanir ríkisstjómarinnar í efnahagsmálum voru ræddar fyrirfram af peningamönnum og atvinnurekendum, en ríkis- stjórninni var síðan beitt sem tæki þessara afla gegn verka- lýðshreyfingunni. Þá aðferð þekkir Ólafur Thors, henni kann hann að beita og telur hana eina í samræmi við lýð- ræði, þingræði, frelsi, sjálf- stæði og önnur fögur orð. Og hann skilur mætavel að ef sam- vinnan við alþýðusamtökin væri framkvæmd af einlægni og festu, ef hagsmunir verka- lýðsins væru látnir móta stefn- una í efnahagsmálum, væri brotið blað í stjómmálasögu ís- lendinga. Þá væri það hið vinn- andi fólk sem stjómaði landi sínu, en ekki sá fámenni hóp- ur sem auðgar sig á vinnu ann- arra og tekur æfinlega sérhags- muni sína fram yfir þjóðarhag. t.d. viðstaddur, enda þótt hann sæki sjaldan þingfundi nú orð- ið. Pflimlin rakti fyrst þá at- burði sem orðið hafa síðustu sólarhringa og kom fátt nýtt fram í frásögn hans. Það vaktí þó athygli að hann sagði að Salan hei-shöfðingi, sem ríkis- stjórnin hefði falið að halda uppi lögum og reglu í Alsir,1 að sundra þjóðinni", Hann hefði látið, það verða eitt sitt sagði að stjóm hans mjmdi fyrsta verk að reka upp á sitt^ beita þá menn hörðu sem væru eindæmi úr starfi borgaralega embættismenn. Hann leyndi ekki að haxm teldi þetta mjög ískyggilegt og ekki boða neitt gott fyrir framtíð þjóðarinnar og hersins. að gera uppreisn" Pflimlin nefndi ekki de Gaulle á nafn í ræðu sinni, en hann sagði að „vissir borgaralegir leiðtogar væru nú að reyna að efna til uppreisnar í Frakk- landi“ og að „sumir herforingj- ar virtust einrtig vera komnir inn á braut sem leiða myndi til Spútnik 3. koxniiiii á lolt Framhald af 12. síðu. einnig sérstök tæki sem mæla rafhleðslu sem stafar frá geisl- um sólar, og eru þær mælingar mikilsverðar til að hægt sé að leiðrétta skekkjur sem þessi rafmagnsmyndun kann að valda í sendingu útvarpsstöðvanna. Mjög flókið sjálfvirkt kerfi setur mælitækin í gang og stöðv- ar þau, eftir því sem með þarf, stjómar mælingastarfseminni svo að hún fari fram í réttri röð og heldur útvarpssambandinu við stöðvar á jörðinni í réttu horfi. Salan mvndar stiórn Framhald af 12. síðu. ar um allt Alsír og hafa þær kosið fulltrúa í allsherjarnefnd sem sitja á í Algeirsborg og samræma starf þeirra. Einn af talsmönnum frönsku landnemanna í Algeirsborg sagði í gær að þeir myndu, ef þeim þætti ástæða til, gera árás é París, og þeir myndu ekki sætta sig við neitt ann- að en valdatöku de Gaulle, Orlofum frestað Öllum mönnum í heimaher Frakka og her þeirra í Vestur- Þýzkalandi hefur verið skipað að halda kyrru fyrir í herbúð- um. Þá hafa allir þeir hermenn úr Alsírhemum sem eru í or- lofi í Frakklandi fengið fyrir- mæli um að fara þegar til næstu herbúða. Ekki lífeðlisrannsóknir Prófessor Fjodoroff sagði að þessum þriðja spútnik væri ekki ætlað að gera neinar lífeðlis- fræðilegar athuganir og því væri ekkert dýr í honum. Hann mun heldur ekki koma aftur í heilu lagi til jarðar, sagði Fjodoroff, þar sem allri vitneskju sem hann aflar verður komið til jarðar með útvarpssendingum, Hann sagði að þetta þýddi hins vegar ekki að vandamálið að ná gervitungli aftur heiiu til. jarð- ar m.vndj ekki verða ieyst. Sov- ézkir vísindamepn ynm: nú að því og myndu leysa það í ná- inni, framtíð.,. með samsæri gegn lýðveldinu. Pflimlin var ákaft fagnað af öllum þingheimi, nema full- trúuin hægrimanna, þegar hann skoraði á þingið að standa vörð um lýðveldið. Nær allir ræðumenn for- dæmdu yfirlýsingu de Gaulle, einkum fyrir það að' hann skyldi ekki hafa minnzt á upp- reisn hershöfðingjanna í Alsír og tekið afstöðu gegn henni, Meðal þeirra ræðumanna sem tóku svari de Gaulle var Georg- es Bidault, flokksbróðir Pfliml- ins. Samíök lýðveldissinna Áður en aukafundur þingsins kom saman hafði verið haldinn fundur fulltrúa kaþólska flokksins MRP, radíkala og framfarasinna undir forsæti radíkalans Ðaladiers. Þessi fundur lýsti yfir fullum stuðn- ingi við beiðni stjórnarinnar, og vakti það nokkrá athygli að framfarasinnar skyldu taka þátt í honum, þar sem þeir eru í mjög nánum tengslum við kommúnista. Enda kom það á daginn að 150 kómmúnistar greiddu atkvæði með auknum völdum til handa Pflimlin, Frumvarpið var þegar sent til efri deildar þingsins, lýð- veldisráðsins, og var húizt við að það myndi endanlega af- greitt þegar í gærkvöld. Þjóðviljinn hefur gagnrýnt og gagnrýnir nákvæmlega sama atriðið og Ólafur Thors, en á þveröfugum forsendum. Meginveilan í fari þessarar rík- isstjómar og hinum nýju tillög- um hennar er að þar er engan veginn tekið nægilegt tillit til aiþýðusamtakanna, stefnu þeirra og hagsmuna. Ráðamenn Framsóknarflokksins (og býsna^ margir ráðamenn Alþýðuflokks- ins) virðast líta á sig sem við- semjendur verkalýðssamtak- anna sem þurfti sérstaklega að gæta þess að til þeirra sé tek- ið eins lítið tillit og hægt er að komast af með, í stað þess að reyna að skipuleggja samstarf verkamanna og bænda á já- kvæðan hátt. Þess vegna eru nú bornar fram tillögur sem verklýðssamtökin hafa ekki getað samþykkt, heidur gagn- Danir unnu úrval- ið beggja flokka I gær kepptu Danir við úr- valslið Reykjavikur í han'd- knattleik og unnu í báðum flokkunum. I kvennaflokki unnu Danir með 10:9 en í karlaflokki með 25 mörkum gegn 19. rýna harðlega. Skammsýnir leiðtogar Framsóknarflokksins kunna að telja sig hafa haldið vel á þeim málum, en með slík- um vinnubrögðum eru þeir að grafa undan allri vinstri sam- vinnu í landinu og búa í haginn fyrir það að íhaldið komist til valda á nýjan leik og beiti á nýjan leik þeim vinnubrögðum sem Ólafur Thors telur í sam- ræmj við hagsmuni stéttar sinnar. Eiga gullbrúðkaup í da< í dag 17. maí eiga þau hjónin Hannes Stígsson og Ólafía Einarsdóttir Lauganes- veg 13 gullbrúðkaup. Hér i Reykjavik hafa þau dvalizt löll sín búskaparár, eignazt átta drengi og eru sex þeirra á iífi, sem allt eru hinir mestu dugnaðar og myndarmenn. Afkomendur þeirra eru orðnir allmargir, því barnabörn þeirra eru 21. Hannes stundaði sjómennsku í fjöldamörg ár, fyrst á skút- um og síöar á togurum. Und- anfarin mörg ár hefur Hannes unnið við margvísleg störf i landi og er talinn mikill og góður verkmaður. Til skamms tíma hefur hann stundað vinnu en er nú hættur því að mestu enda orðinn 81 árs. Þau hjónin hafa nokkur undanfarin ár átt heima' í húsi sonar síns Jóhanns Hannes- sonar bninavarðar og Huldu Guðmundsdóttur. Eg átti stutt viðtal við Ólafíu fyrir nokkr- um dögum og spurði hana hvort það væri nokkuð- sér- stakt sem hún vildi segja. Eg tel mig hafa verið • mann- eskju, segir Ólafía. Eg hef átt góðan mann og drengimir mínir, tengdadætur og bama- hörnin vilja allt fyrir okkur gera. Sérstaklega er ég þakk- lát Jóhanni mínum og tengda- dóttir fyrir það að þau létu okkur fá húsnæði. Þrátt fyrir það þó Ólafía sé orðin 71 árs er hún mjög em og stundar hreingemingar daglega. í tilefni af hinu merka af- mæli senda vinir og kunn- ingjar þeirra hjóna þeim beztu heilla og hamingju óskir. G. J.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.