Þjóðviljinn - 05.06.1958, Page 1
Flokkurinn
FUNDUR í öllum deilðum
animð kvöld, föstudag, á
venjulegum stöðum og tíma.
Sósíalistafélag
Reykjavíkur.
Bretar reyna að hræða íslendinga
til nndanhalds með marklansum hótunnm
Svar Islendinga við þeirri kröfu Breta að teknir verði upp
samningar um landhelgina er afdráttarlaust nei
í fyrradag gaf brezka ríkisstjórnin út yfirlýsingu um landhelgismál íslend-
inga, þar sem sagt er að hún muni ,,ekki sjá sér fært að viðurkenna, að hin
fyrirhugaða reglugerð myndi hafa nokkurt lagalegt gildi, ef hún yrði gefin
út. Kröfur ríkja varðandi yfirráð yfir fiskveiðum á svæðum utan hinnar
venjulegu landhelgi hafa enga stoð í alþjóðalögum. Þá mun brezka stjórn-
in eigi að heldur verða við því búin að viðurkenna grunnlínur, aðrar en
þær, sem leyfðar eru að alþjóðalögum." Yfirlýsingu þessari fylgir brezka
stjórnin eftir með tilboði um samninga og segir að „samningaviðræður séu á
allan hátt æskilegri en einhliða ráðstafanir og að nota beri tímann fram til
1. september n.k. til að semja um varanlega lausn, er allir hlutaðeigandi geti
vel við unað."
Yfirlýsingu sinni um, að stækkun landhelginnar sé ólögmæt, fylgir
hrezka stjómin eftir með hótunum. Hún kveðst „mundi telja það skyldu
sína að koma í veg fyrir hvers konar ólögmæiar tilraunir til afskipia af
brezkum fiskiskipum á úthaíinu, hvort sem slík afskipti fara fram á þeim
svæðum, sem íslenzka ríkisstjómin hefur nú í hyggju að telja sig hafa yf-
irráð yfir eða ekki"
Nákvæmlega hin sömu urðu viðbrögð Breta 1952, þegar landhelgin var
stækkuð um eina mílu og grunnlínum breytt. Bretar neituðu þá að viður-
kenna þá ráðstöfun, töldu hana brjóía í bága við alþjóðalög, heimtuðu samn-
inga um undanhald af hálfu íslendinga en hótuðu „frekari aðgerðum" að öðr-
um kosti! í hinni nýju yfirlýsingu neita þeir enn að viðurkenna núgildandi
landhelgi!
Yfirlýsing brezku ríkissfjórn-
arinnar 3. júní 1958
Yfirlýsing brezku stjórnar-
innar er birt í heild á öðrum
stað í blaðinu. Eins og skj'rt
var frá í Þjóðviljanum í gær
bafa Frakkar og Belgir einnig
samþykkt hliðstæðar yfirlýs-
ingar, en þær hafa ekk; enn
verið birtar hér af utanr'kis-
ráðuneytinu.
Landgrunn íslendinga
„úthaf"! .
Það er kvnleg röksemda-
færsla í brezku yfirlýsingunni
að telja fiskimiðin umhverfis
Island til ,,úthrfsins“! Seg'r
þar að reglugerð geti „ekki með
löglegum hætti takmnrkað rél t-
indi annarra þjóða á ú'thpifinu,
né heldur vær; þannia h™gt
að banna með lögum fiskveiðar
annarra þjóða á svteftum, sem
lengi liafa verið talin til út-
liafsins.“ A þeim lilálegu for-
sendum að telja grunnmiðin
umhverfis ísland til „úthafs-
ins“ byggist öll röksemdafærsla
Breta um ólögmæti hinna fyr-
irhuguðu aðgerða. Á Genfar-
ráðstefnunni voru þó samþykkt
ar alþjóðareglur, einnig með
aðild Breta, um landgrunn
hverrar þjóðar, grunnsævið
allt að 200 metra dýpi, og hin
nýja landhelgi íslendinga nær
. hvergi út fyrir það svæði sem
landgrunnslína myndi afmarka.
Krefjast þess að við
minnkum landhelgina!
Einnig er það mjög athyglis-
vert að brezka stjórnin kveðst
Færeyska lögþingið kom sam-
an á aukafund í Þórshöfn i gær,
og hafði hann verið' boðaður til
að fjalla um hin breyttu viðhorf
sem ákvörðun íslendinga um
stækkun landhelginnar hefur
skapað.
Ghristian Djurhuus lögmaður
hafði framsögu um málið og sagði
að samningurhm við Breta um
landlielgina hefði verið gerður
enn hafna algerlega kröfum
ríkja „varðandi yfirráð yfir
fiskveiðum á svæðum utan
hinnar venjulegu landhelgi11 —
Fi-amhald á 11. síðu.
undir sérstökum kringumstaeðum
og segja mætti að yfirlýsing ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar um út
færslu landhelginnar við ísland í
12 mílur hefði kippt stoðunum
undan honum.
Færeyingar hlytu nú að gera
annað tveggja: feta í fótspor ís-
lendinga og færa út landhelgina,
eða hefja viðræður við Breta á
nýjan leik um þetta mál. Ef ekki
Utanríkisráðuneytið sendi í
gærkvöld frá sér yfirlýsingu
brezku stjórnarinnar um land-
helgi íslendinga, og hljóðar hún í
heild á þessa leið:
„Hinn 2. iúní 1958 fluti forsæt-
isráðherra íslands útvarpsávarp,
þar sem hann ræddi opinbera til-
kynningu, er gefin hafði verið út
daginn áður þess efnis, að stjórn-
málaflokkar þeir, er sæti eiga í
ríkisstjórn íslands, hefðu orðið
sammála um að gefa út reglugerð
hinn 30. júní 1958 varðandi fisk-
veiðitakmörkin umhverfis ís-
land. Samkvæmt reglugerðinni
myndi ísland telja sér fiskveiði-
lögsögu- allt að 12. jnílum frá
ströndum eftir 1. september 1958.
Tilgangurinn væri að sjá svo um,
að fiskveiðar innan hinna nýju
takmarka skyldu háðar íslenzk-
um yfirráðum og réttur væri á-
skilinn til að breyta þeim grunn-
linum, sem íslenzku fiskveiðitak-
mörkin eru nú miðuð við.
Brezku ríkisstjórninni liefur
orðið það undrunarefni og þykir
mjög miður, að í ávarpi forsætis-
ráðherra íslands, svo og hinni op-
inberu tilkynningu, hefur ekkert
tillit verið tekið til langvarandi
réttinda annarra þjóða til fisk-
veiða á úthafinu umhverfis ís-
land.
fengist samkomulag sem Færev-
uigar gætu unað við, myndu þeir
neyðast til að færa út landhelg-
I ina.
Djurhuus fer til Kaupmanna-
hafnar um næstu helgi til við-
ræðna við dönsku stjcrnina uin
í erindi, dags. 29. maí 1958,
vakti ambassador Bretlands í
Reykjavík athygli íslenzku ríkis-
stjórnarinnar á því, að reglugerð
sú, sem fyrirhuguð er, myndi
ekki takmarka og gæti ekki með
löglegum hætti takmarkað rétt-
indi annarra þjóða á úthafinu, né
heldur væri þannig hægt að
banna að lögum fiskveiðar ann-
arra þjóða á svæðum, sem lengi
hafa verið talin til úthafsins.
Brezka ríkisstjórnin mun því
ekki sjá sér fært.að viðurkenna,
að hin fyrirhugaða reglugerð
myndi hafa nokkurt lagalegt
gildi, ef hún yrði gefin út. Kröfur
ríkja varðandi yfirráð yfir fisk-
veiðum á svæðum utan hinnar
venjulegu landhelgi hafa enga
stoð í alþjóðalögum. Þá mun
brezka ríkisstjórnin eiga að held-
ur verða við því búin að viður-
kenna grunnlínur, aðrar en þær,
sem leyfðar eru að alþjóðalögum.
Brezka ríkisstjórnin á erfitt
með að trúa því, að ríkisstjórn
íslands hafi í hyggju að beita
valdi gegn brezkum fiskveiðiskip-
um í því skyni að fá þau til að
fara eftir einhliða reglugerð, sem
stuðningsflokkar íslenzku ríkis-
stjórnarinnar virðast ætla að gefa
út í bága við þjóðarétt. Jafnframt
Framhald á 11. síðu.
þetta mál, en utanríkismál Fær-
eyinga eru í höndum Dana.
í Færeyjum óttast menn áð
Danir muni bregðast Færeying-
um nú, eins og þeir hafa gert áð-
ur i þessu máli, og liinn ört vax-
Framhald á 12. síðu.
Talsxnaður utanríkisráðuneytis Vestur-Þýzkalands
sagði í gær að vestur-þýzka stjórnin furðaöi sig á þeirri
ákvörðun íslendinga að ætla áð færa út landhelgina.
Hann sagði að hin fyrirhugaða útfærsla landhelginnar
við ísland myndi leiða af sér að fiskafíi vesturþýzkra
togara á íslandsmiðum myndi minnka ujn helming.
Fœreyingar telja sig nu leysta fró
landhelgissamningnum við Breta
Æfia oð feta i fófspor Islendinga og NorSmenn hafa
einnig i hyggju að stœkka landhelgina i 12 milur
Færeysk stjórnarvöld hafa nú lýst því yfir aó Færey-
ingar geti ekki lengur talið sig bundna af samningi
Breta og Dana um landhelgina við Færeyjar sem gerður
var árið 1955, en þar var landhelgin ákveðin þrjár sjó-
mílur.
Sjávarútvegsmálaráðherra Noregs, sagöi í Osló í gær
að Norðmenn myndu færa sína landhelgi út í 12 mílur.