Þjóðviljinn - 05.06.1958, Side 9
“ Fimmtudag-ur 5. júní 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Svíar hafa mikla möp*
ieika í HM-keppninni
— segir hinn enski þjálfari þeirra,
George Raynor
Það þótti á sínum tíma í mikið
láðizt hjá Svíum, þegar þeir tóku
að sér að sjá um framkvæmd
lokakeppninnar í heimsmeistara-
'keppninni í knattspyrnu. Þótti
'hæpið að þeir gætu hafa svo
marga velli til sem nauðsynlegt
var og haft þá í þvi standi sem
FIFA gerði kröfu til. Var jafnvel
um það rætt að þeir yrðu að flyja
með eitthvað af þeim lil ná-
grannalandanna og voru þá vell-
irnir í Kaupmannahöfn og Oslo
helzt til umræðu.
Það hefur komið á daginn að
þeir voru fyllilega færir um að
undirbúa þetta og í því sam-
handi hafa þeir leyst af hendi
þrekvirki, og ekki lítur út fyrir
annað en að allt verði tilbúið í
tæka tíð, 8. júní.
„Eg geri ráð fyrir að það verði
ekki sama hjá okkur og var hjá
þeim í Rid de Janero 1950, áð
þegar fyrstu leikirnir byrja verði
tnenn enn' að vinna við vellina,“
sagði aðalmaður undirbúnings
Pefndarinnar, Holger Bergerus,
nýlega í blaðaviðtali, og á þeim
stöðum sem mest hefur verið að
gert eins og á völlunum í Gauta-
horg, Malmö og Rásunda, fullyrti
hann að allt yrði tilbúið.
Ber'gerus byrjaði að undirbúa
og skipuleggja mót þetta fyrir
f jórum árum og hann viðurkenn-
ir í viðtalinu að það hafi verið
það erfiðasta verk sem hann hafi
ibingað til tekið að sér. Hann
.sagði að það hefðu verið mörg
vandamál og erfiðleikar er þurft
hefði að leysa, en það erfiðasta
hefði verið að fá yfirvöldin í
Gautaborg og Malmö til að sam-
þykkja stækkanirnar á völlunum
þar.
Nýi völlurinn í Gautaborg kost-
ar um 25 milljónir sænskra kr.,
og í Malmö þurfti að nota um
•8 milljónir. Völlurinn í Gauta-
horg rúmar um 51 þús. en í
Malmö um 35 þús. áhorfendur.
Það hefur einnig verið erfitt að
koma öllum fyrir sem sækja ætla
mótið. Bergerus segist hafa notið
reynslunnar sem hann fékk við
framkvæmd HM í knattspyrnu
1 Rio de Janero og 1954 í Sviss.
Hann sagðist hafa fylgzt með á
háðum stöðunum, og tekið með
sér heim það bezta í báðum lönd-
unum og byggt framkvæmdir sín
ar á þeirri reynslu.
ur átt sér stað í Svíþjóð á þessum
árum, . að fá stöðugt. sterkt og
kröftugt landslið og að fylla strax
í eyðurnar þegar „stjörnurnar“
hafa farið fyrirvaralaust.
Þurfum að fá atvinnumennina.
Það var fljótt skoðun Raynors
að Svíar þyrftu að fá nokkra af
atvinnumönnunum sem farið
hafa að heiman. Þannig skipað og
með þeim sigurvilja sem þeir
búi yfir eigi sænska liðið að geta
staðizt samjöfnuð við hvaða lið
sem er.
Þeir sem eru heima og korha
til með a'ð vera í liðinu hafa æft
vel, hlaupið í djúpum snjó, tekið
þátt í sérstökum æfingum og æf-
ingaleikurinn við Internazionale
lofaði góðu, 3:3.
Endanlega hefur lið Svíanna
ekki verið valið en 22 menn hafa
verið valdir til að vera fulltrúar
landsins í keppni þessari. Svíar
þurftu ekki að reyna sig við aðrar
þjóðir til þess að komast í loka-
keppnina og er það að mörgu
leyti lakara fyrir þá. En Raynor
er bjartsýnn.
Raynor spáir:
í blaðaviðtali gerir Raynor sér
það til gamans 'að segja til um
styrk liða og setja fram nokkra
spádóma í sambandi við leikina:
Sovétríkin: Eiga sterkt lið, sem
hefur það fram yfir Svíþjóð að
hafa unnið í þau tvö skipti sem
þau lönd hafa leikið saman með
miklum mun.
England: England kemur sterkt,
þrátt fyrir flugslysið við Múnch-
en þar sem nokkrir af beztu
mönnum þeirra fórust.
Ungverjalahd: Lið með mikla
leikni s'em hefur möguleika.
Brasilía: Frábærir einstakling-
ar — en skapgerð þeirra gerir þá
oft taugaslappa fyrir þýðingar-
mikla leiki. Það getur haft úr-
slitaþýðingu hvernig þeir kunna
við sig í Svíþjóð.
Argentína: Ekki nógu tilbreyt-
ingasamir í leik sínum. Skora
yfirleitt mörk hjá mótherjum
sínum, vegna mistaka þeirra.
Vestur Þýzkaland: Lið sem býr
sig undir hraða og gegnumbrot.
Hættulegt lið.
Raynor spáir því að þessi lið
komist í gegnum fyrstu lotu:
Argentína, Vestur-Þýzkaland,
Júgóslavía, Skotland, Svíþjóð,
Ungverjaland, Sovétríkin og
England.
Framhald á 11. síðu
Frá vinstri: Tore Jonsson í stjórn sænska knattspyrnusam-
bandsins, Ake Johansson fyrirliði landsliðsins, Gunnar Gren
„knattspyrnuprófessorinn“ og flokkstjóri liðsins Nalle Halldén.
Önnur deild:
Víkingur vann Reyni 4:2
Möguleikar Svía í HM
Svíar hafa heldur ekki slegið
s'Jöku við hina íþróttalegu hlið
'keppni þessarar. Þeir hafa hjá
sér enskan þjálfara sem heitir
George Reynor, og er ekki nýr af
nálinnT. Hann hefur verið þar
mörg undanfarin ár og fór frá
þeim í hitteðfyrra, en hann
kom svo til þeirra aftur þegar að
því kom að undirbúa lið þeii-ra
undir lokaþáttinn í HM. Hann er
frá Yorkshire i Englandi og talar
prýðilega sænsku.
Reynor hefur nýlega átt blaða-
viðtal um útlitið og segir hann
þar m. a.
„Eg afskrifa ekki þann mögu-
leika að Svíþjóð geti orðið heims-
rneistari. Eg er illa svikinn ef
Sviar koma ekki meðal 10 beztu
þjóða í knattspyrnu. Hann minn-
ir á það að Svíþjóð hafi unnið
gullverðlaun í London 1948 og að
Svíar hafi orðið no. 3 í HM í
Brasilíu 1950 og komizt í annað
öseti í OL í Helsingfors, 1952.
Síðan 1949 hefur Svíþjóð misst
42 af beztu leikmönnum sínum
til atvinnumannaliða í Ítalíu og
víðar, og bendir hann á það gífur-
Jega uppbyggingarstarf sem hef-
Liff Víkings:
Valur Trvggvason, Gunnar Að-
alsteinsson, Stefán Skaptason,
Andrés Bergmann, Pétur Bjarna-
son, Björn Kristjánsson, Bragi
Björnsson, Jóhann Gunnlaugsson,
Jón Stefánsson, Bergsteinn Páls-
son, Oli Björn Kærnested.
Liff Reynis:
Hafsteinn Júlíusson, Sigurður
Guðmundsson, Bjarni Sigurðsson,
Vilhjálmur Ólafsson, Magnús
Gíslason, Henrik Jóhannsson,
Þórður Svavarsson, Gunnlaugur
Gunnlaugsson, Hörður Jóhanns-
son, Eyjólfur Gíslason og Gott-
skálk Ólafsson.
Dómari var Sigurður Ólafsson.
Annar leikur annarrar deildar
fór fram á iþrójltavelSinum á
þriðjudagskvöld og kepptu þá
Víkingar og Reynir, Sandgerði.
Til að byrja með var leikurinn.
nokkuð jafn og voru Reynismenn'
þó heldur ágengari. Þó voru það
Víkingar sem skoruðu fyrst; var
það hörkuskot og óverjandi fyr-
ir markmann. Leikur Reynis-
manna einkenndist um of af löng-
um spyrnum og háum, en þeir
voru írískir og fljótir. Víkingur
náði heldur meiri samleik og
leikmenn hans voru heldur leikn-
ari og gerði það ef til vill gæfu-
muninn. í hálfleik stóðu leikar
2:1 fyrir Víking, en Reynismenn
skoruðu strax í byrjun síðari
hálfleiks með ágætu skoti.
í síðari hálfleik færðist nokkur
harka og þrjózka í leikinn og
varð hann fremur leiðinlegur á
að horfa er á leið. Reynir missti
markmann sinn útaf eftir að hann
hafði fengið höfuðhögg og varð
að bera hann útaf. Var það eftir
hornspyrnu. Nokkru síðar fá Vík-
ingar aftur horn og varð mark
,úr því.
# ÍÞRÓTTtR
mrSTJÚKH ntlMAKH MUOMSOtt
Skemmtilegiir Ieikur KR
oö' FH í Haínarfirði
í sambandi við 50 ára al'mæli
Hafnarfjarðar og hátíðahöldin
þar var handknattleiknum ekki
gleymt, enda hafa Hafnfirðingar
ekki sízt látið að sér kveða í
handknattleik. Það var Hafnfirð-
ingum mikill heiður og kærkom-
ið að það var einmitt KR, sem
nú er Íslandsmeistari í hand-
knattleik, sem keppti við FH, en
þeir hafa verið harðastir keppi-
nautar um nokkurt skeið. I Há-
logalandi hafa aðeins hundru'ð
Hafnfirðinga getað séð þessi á-
gætu iið saman, en þarna var
tækifæri fj'rir bæjarbúa að horfa
á sinn sigursæla flokk leika
víði hina ágætu meistara. Og'
Hafnfirðingar létu ekki á sér
s.tanda, því að víst er að nokkur
þúsund voru samankomin til þess
að horfa á leikinn, og þeir urðu
ekki fyrir neinum vonbrigðum.
í fyrsta lagi fóru leikar þannig
að FH vann, þó ekki með nema
tveggja marka mun eða 16:14. í
öðru lagi var leikurinn mjög góð-
ur og skemmtilegur frá upphafi
til enda. Fyrri hálfleikur endaði
6:4. Hafnfirðingar náðu ágætum
hröðum áhlaupum, en KR-ingar
léku mjög öruggt og fengu trufl-
að hraða FH eins og mörkin sýna.
KR getur líka þakkað Guðjóni
i markinu að ekki fór verr, því að
hann varði með þeim ágætum að
fádæmi eru. Markmenn Hafnfirð-
inga, Hjalti og Kristófer, vörðu
einnig mjög vel, því að KR-ingar
áttu mörg verulega góð skot. Þeg->
ar komið var nokkuð úti í síðarí
hálfleik höfðu FH-menn 7 mörk
yfir, en KR-ingar voru engin
lömb að leika sér við og svo fór
að siðari hálfleikurinn varð jafn-
tefli 10:10. Bezti maður KR-inga,
auk Guðjóns, var Reynir sem átti
mjög góðan leik. í liði Hafnfirð-
inga náði Hörður alveg sérlega
góðum leik, og einnig voru þeir
Birgir, Ragnar og Einar góðir.
Hannes Sigurðsson dæmdi leilc-
inn og gerði það mjög vel.
Sem sagt þessi leikur settl svip
á hátíðahöldin í Hafnarfirði.
Þess má geta hér að í sambandi
við hátíðahöldin í Hafnarfirði var
komið upp sögusýningu um þróun
bæjarins og getið þar félaga sem
þar hafa sett svip á bæinn. Það
þótti þó vanta að nafn Fimleika-
félags Hafnarfjarðar skyldi ekki
fyrirfinnast þar, og kom all illa
við hina mörgu FH-inga sem unn-
ið hafa gott starf í því félagi, og
það félag hefur verið þar í hart-
nær 30 ár.
HxV.
Eldvarnarfræðsla 1. dagur:
Kyndiklefar og kynditœki
Reynslan er sú, að yfir 16%
elds- og reyktjóna verða út frá
olíukynditækjum. Þetta er stað-
reynd, sem er umhugsunarverð,
því 16% brunatjóna er stór upp-
hæð árlega, sem landsmenn
greiða í iðgjöldum sínum. En
hvað þýðir að fást um það? Er
það ekki óhjákvæmilegt, að eld-
hætta fvlgi eldstæðum? kunna
menn að hugsa. Jú, — að vísu.
Og það sem meira er, og allir
þurfa að gera sér ljóst, að þessi
eldhætta er enn mikil, þrátt fyrir
nýjustu öryggistæki, s. s. sjálf-
virka loka á oliurörum o. fl.,
það hefur reynsla tryggingarfé-
laganna sýnt ótvírætt undanfarið.
Það er orsök flestra meiri háttar
brunatjóna af þessum sökum, að
eingöngu er treyst á öryggisút-
búnað og sjálfvirkni kynditækj-
anna eða athygli og nákvæmni
gæzlumanna (á vinnustöðum).
En augnablikstruflanir á
brennslu eða loftrás, smávægileg
bilun á kynditækjunum eða eftir-
tektarleysi eða fjarvera gæzlu-
manns svolitla stund eru atriði, ‘
sem ekki er hægt að útiloka. En
við þessu er hægt að gera og
reyndar mjög auðvelt, og það er
að búa svo um hnútana, að þessi
smáóhöpp verði aldrei annað en
smáóhöpp, þ. e. a. s.: aff einangra
hættuna viff kynditækin sjálf. —
Það er helzt gert á þennan veg:
1) í kyndiklefum þarf umbún-
affur aff vera þannig', aff auk fá-
anlegra öryggistækja á kyndi-
tækin sé klefinn al-eldvarinn aff
innan, þ. e. aff sé hann ekki úr
steini skal klæffa virneti og múr-
húffa vandlega veggi, loft og gólf
og ætíff skulu dyrakarmar og
hurff klædd blikki aff innan. —
Gleymiff ekki dyrakanninum og
gætiff þess vel, aff múrhúðunin
taki algerlega fyrir allar raufar
mefffram rörum frá klefanum.
2) í verksmiðjum og verkstæff-
um, þar sem ekki er liægt aff
koma því viff aff hafa kynditækin
í sérstökum klefa, þarf allt timb-
ur og' önnur eldnæm efni í ‘veggj-
um og lofti nálægt kynditækjun-
um aff vera klædd vírneti og múr-
húffuð' vandlega. Múrhúffun í
lofti þarf aff ná talsvert út fyrir
kynditækin, a. m. k. 1 m á hvem
veg. — Járnlilutar, sem viff smá-
óhöpp geta hitnaff mikiff, s. s.
reykrör, þurrkarar, „cyklonar“ (í
mjölverksmiffjum) effa járnreyk-
háfar ættu hvergi aff koma nær
timburhlutum effa klæðingu en
30—40 cm. — Mikið öryggi er
aff hafa niffurfall í gólíi, sem næst
olíukynditækjunum.
Sjómanna-
dagurinn
Framhald af 3. síðu
Guðjón Loftsson 11 m. 04 sek.
í reipdrætti báru starfsstúlk-
ur frá ’frystihúsi ísfirðings h.f.
sigur af starfsstúlkum frá ís-
húsfélagi ísfirðinga h.f.
í reipdrætti sjómanna sigruðu
skipverjar á vélbátum skip-
verja á Sólborgu. í knattspyrnu
báru landmenn á vélbátum sig-
ur af sjómönnum á vélbátum.
Kvöldskemmtun var í Al-
þýðuhúsinu. Þar voru verðlaun
afhent, Guðmundur Guðmunds-
son, hafnsögum. flutti ræðu og
á iþráttavellinum. Stjórnandi
fjölmargt var þar til skemmt-
unar. Dansað var í þremur
samkomuhúsum.
Lúðrasveit lék á útiskemmt-
unum, bæði hjá báthöfninni og
Harry Herlufsen.
Veður var hið fegursta, allan
daginn.