Þjóðviljinn - 05.07.1958, Side 12
Þióðvujinn
Laugardagur 5. júlí 1958 — 23. árgangur — 147. tölublað.
Tvær búðanna við Langholtsveg, ein við Sogaveg. —
Fundir í dag í 11., 14. og 15. deili KRON
KRON vinnur nú að því að bæta aðstööu sína til
verzlunarreksturs í fjórum hverfum í bænum, og' jafn-
iramt því að auðvelda þeim félagsmönnum sem þar búa
— en þeir eru um 1800 — viðskipti við félagiö.
liu
Helztu framkvæmdir sem
er unnið að, eru þessar:
1. VeriS er að breyta matvöru-
búðinni á Skólavörðustíg 12, er
búðin stækkuð og gerð að kjör-
búð með 1. flokks kæli 02 frysti-
tækjum. Breytingjn er gerð i
áföngum, án þess að loka búð-
inni, og verður væntanlega iok-
ið i ágúst. Vefnaðarvörubúð fé-
Jagsins verður einnig breytt mik-
ið á þessu sumri.
2. Nýlega hefur KRON keypt
verzlunarhús að Langholtsvegi
130 og verður Þar gerð 1. fiokks
kjörbúð á 150 ferm. gólffleti,
með jafnstórum kjallara fyrir
geymslur og vinnustofur. Kjör-
búð þessi tekur við af matvöru-
búð félagsins að Langholtsvegi
136, sem annar ekki vaxandi
fjölda félagsmanna í hverfinu.
Fundur verður haldinn í 11.
deild félagsins kl. 4 e. h. í
iaugardaginn 5. júlí í hinu
nýja verziunarhúsi á Langholts-
vegi 130 og þar rætt um hina
nýju kjörbúð.
3. Ákveðið er að byggja stóra
kjörbúð að Langholtsvegi 52,
sem tekur við af lítilli búð á
Langholtsvegi 24. Verzlunarhús
Frakkar ætla að
berjast ákafar
Formælandi frönsku her-
stjórnarinnar í Alsír sagði í
gær að nú eftir heimsökn de
Gaulle forstæisráðherra, myndi
sóknin gegn uppreisnarmönn-
um verða hert að miklum mun.
Formælandi þessi sagði að
varnir uppreisnarmanna væru
nú mjög í molum, og væru þeir
víða aðþrengdir vegna matvæla-
skorts.
þetta verður byggt eftir þei.m
fyrirmyndum, sem bezt hafa gef-
izt á Norðurlöndum. Fundur
verður haldinn í 14. dei’d KRON
í hinu nýja verzlunarhúsi að
Langholtsvegi 130 í dag, laugar-
daginn 5. júlí kl. 6 e. h., og þar
rætt um hina nýju byggingu.
4. 15. deild KRON hefur verið
og er búðarlaus. Nú hafa verið
fest kaup á verzlunarhúsnæði á
Horni Soaavegar og Tunguvegar,
og verður Þar gerð ágæt kjör-
búð á ca. 130 ferm. gólffleti með
geymslu í kjallara. Fundur verð-
ur haidinn í 15. deild í hinu
nýja verzlunarhúsnæði kl. 2 e.
h. í dag, laugardaginn 5. júlí, og
þar rætt um hina nýju kjörbúð.
Nýir félagsmenn eru velkomnir
á fundinn.
Hátíðahöld í Júgóslavíu í til-
efni sigurs skæruliðanna
Tito hélt ræðu og einnig Nasser, sem
nú er í heimsókn í Júgóslavíu
í gær voru fimm ár liðin frá því að tiltölulega fá-
mennur hópur skæruliða undir stjórn Títós tókst aö
brjótast úr herkví Þjóðverja, sem höfðu umkringt flokk
hans með miklu liði nálægt fjallaþorpinu Tjankiste í
dag, fjalllendi Bosníu.
1 þessu tilefni voru mikil há- Árið 1943 höfðu 19500 júgó-
tíðahöld í Tjankiste í gær. slavneskir skæruliðar verið
Tito forseti var þar staddur króaðir inni af 120000 manna
ásamt Nasser forseta Samein-
aða Arabalýðveldisins, sem nú
er í heimsókn í Júgóslaviu.
Var þeim fagnað af gífulegum
mannf jölda, og m.a. voru 80000
fyrrverandi skæruliðar við-
staddir hátíðahöldin. Bardaginn
í Tjankiste fyrir 15 árum er
mjög frægur og sigurinn eitt
frækilegasta afrek hinna dáð-
miklu júgóslávnesku skæruliða.
Tito flutti ræðu við hátíða-
höldin í fjallaþorpinu í gær.
Hann vísaði á bug fullyrðing-
um vissra landa um að sósíal-
isminn væri á villigötum í
Júgóslaviu. — Við erum sósíal-
istar og við munum byggja upp
land okkar á þann hátt, sem
við teljum beztan fyrir þjóð-
ina, sagði Tito.
þýzku heliði. í viðureigninni
féllu 8000 skæruliðar og Tito
var einn þeirra sem særðust í
orustunni. Tito sagði í ræðu
sinni, að allir hefðu hugsað um
það eitt að berjast til þrautar
og sama hugarfar ríkti enn
meðal Júgóslava.
Nasser forseti flutti einnig
ræðu við hátíðahöldin. Hann
flutti júgóslavnesku þjóðinni
þakkir fyrir stuðning hennar
Framhald á 3. síðu.
Siötíu og níu af stöðinni
verður leikin í áföngum í útvarpinu
f kvöld, laugardag'lnn 5. júlí, verður byrjaö að flytja
skáldsöguna Sjötíu og níu af stöðinni í útvarp. Gísli
Halldórsson, leikstjóri og leikari, hefur búið söguna til
flutnings í leikritsformi, svipuðu og þegar Amok eftir
Stefan Zweig var flutt s.l. vetur, og verður sagan lesin
og leikin alls fimm laugardagskvöld í röð.
Aðalhlutverk eru í höndum 1954. Kom hún siðan út hjá
þeirra Gísla Halldórssonar, j Iðunnarútgáfunni í Reykjavík
Kristbjargar Kjeld og Guðmund-
ar Pálssonar. Sagan verður fiutt
að mestu leyti óstytt, nema hvað
fyrsta kaflanum'er sleppt. Þrjár
persónur koma einkum við sögu
í •bókinni, þau Ragnar Sigurðs-
son, sem jafnframt er sögumað-
ur, Guðriður Faxen og Guð-
mundur bílstjóri. Gisli mun
leika Ragnar, en Kristbjörg og
Guðmundur þau Guðríði og
Guðmund. Þetta er í fyrsta sinn
að íslenzk skáldsaga er flutt í
útvarp í formi sem þessu.
Indriði G. Þorsteinsson ritaði
skáldsöguna Sjötíu og níu af
stöðinni á Akureyri haustið
ÚrvaEsfíokkur kveana ir Ármanni
sýnir á fimleikamáti í Þrándheimi
12 stúlkur úr úrvalsflokki kvenna úr Ármanni fóru
ílugleiðis til Noregs síðastliðið miðvikudagskvöld, ásamt
kennara sínum frú Guðrúnu Nielsen.
Flokkurinn mun taka þátt í
fimleikamóti sem Norðmenn
halda 4. hvert ár, og nefna
Landsturnstevnet, koma þar
fram þúsundir fimleikamanna
og kvenna á öllum aldri. Enn-
fremur fer þar fram fimleika-
keppni. Öllum Norðurlöndunum
var boðið að senda úrvalsflokka
karla og kvenna, en héðan fer
aðeins úrvalsflokkur kvenna
Framhald á 10. siðu,
Uppreisnarmenn íLíbanon fá
enga aðstoð erlendis frá
Álit eftirlitsliðs Sameinuðu Þjóðanna
Foringjar eftirlitsliðs Sameinuðu þjóöanna í Líbanon
hafa nú skýrt frá því að ekki hafi fundizt sannanir fyrir
því að uppreisnarmenn fái aðstoð erlendis frá. Hammar-
skjöld framkvæmdastjóri Sameinuöu Þjóöanna lýsti yfir
hinu sama í fyrradag.
Eftirlitsmennirnir segja að
ljóst sfe að yfirgnæfandi meiri-
hluti þeirra manna, er berjast
gegn stjórninni, séu Líbanons-
menn sjálfir. Eftirlitsmennirnir
hafa á eftirlitsferðum sínum oft
rekist á flokka uopreisnar-
manna, stundum nokkur hundr-
uð manna lið. Vopn þeirra voru
ýmist frönsk, ensk eða. ítölsk.
Það er ekki svo auðvelt að
segja til um hvar vopn þessi
eru fengin, þar sem vopnaeign
hefur verið almenn í Líbanon
um margra alda skeið og sömu-
leiðis ferðafrelsi fram og til
baka yfir landamærin til Sýr-
lands.
Líbanonstjórn hefur áður
farið þess á leit við Samein-
uðu Þjóðirnar að þær sendi
vopnað lögreglulið til Libanons
til að koma í veg fyrir smygl á
vopnum og mönnum frá Sýr-
landi til Líbanons. Fréttaritari
brezka útvarpsins í Beirut
segir að þessi skýrsla eftirlits-
mannanna hafj gert þessa mála
leitan Líbanonsstjómar cþarfa
og ómerka.
Bæðí brezka og franska
stjórnin hafa tekið skýrslu eft-
irlitsliðsins með mikilli ólund,
pg segja að þrátt fyrir allt
geti verið um íhlutun að ræða.
Frakkar liaía í hótunum
Allmiklir bardagar hófust á
ný seinnipartinn í gær í mið-
hluta Beirut milli stjórnarhers-
ins og uppreisnarmanna. Barizt
var um ýmsar stjórnarbygging-
ar. Bardaginn hófst er uppreisn
armenn hófu skothríð á stjórn-
arhermenn er voru á eftirlits-
ferð í miðborginni.
Talsmaður franska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í gær að
Frakkar myndu skerast í leik-
inn i Líbanon, ef talið yrði að
frönskum borgurum þar eða.
frönskum hagsmunum yrði
stefnt í voða.
snemma árs 1955. Fyrsta útgáfa
bókarinnar seldist upp á mjög
skömmum tíma. Nokkru síðar
gaf Iðunn söguna út í svonefndri
vasaútgáfu og mun hún enn til
i þeirri útgáfu. Sjötíu og niu
af stöðinni er önnur bók Ind-
riða, en áður var komð út smá-
sagnasafnið Sæluvika, og
snemma á árinu 1957 kom út
smásagnasafnið Þeir sem guðirn-
ir elska. Iðunn hefur gefið út
allar bækurnar.
Gísli Halldórsson leikur nú í
Spretthlaupaxanum eftir Agnar
Þórðarson, sem Sumarleikhúsið
sýnir í Iðnó. Hefur Gísli starf-
rækt Sumarleikhús sitt úndan-
farin sumur og leikhús hans átt
vinæsldum að fagna. — Krist-
björg Kjeld lék Önnu Frank i
samnefndu leikriti í Þjóðleikhús-
inu í vetur og nýtur þegar mik-
illar viðurkenningar, þótt ung
sé. — Guðmundur Pálsson hefur
að undanförnu leikið bæði í
Iðnó og Þjóðleikhúsinu. Hann
fer nú með stórt hlutverk i
Spretthlauparanum.
Komið hefur til tals, að Sjötíu
og níu af stöðinni yrðL kvik-
mynduð. Enn hefur þó ekkert
verið ákveðið í því efni. íslenzki
aðilinn að kvikmyndun sögunnar
er Edda film. Hefur verið lögð
á það mikil áherzla af þeim,
sem um þetta hafa fjallað, að
leikarar yrðu íslenzkir.
gar samgong-
ur vlð Siglufjörð
Siglufirði; frá fréttaritara.
Eitthvert ólag virðist vera á
áætlunarferðum frá Reykj.avík
til Siglufjarðar nú eins og
stundum áður. Síðan þær hóf-
ust í sumar hefur það yfirleitt
verið venja að áætlunarbílarnir
frá Varmahlið komi ekki hingað
fyrr en á 11. eða 12. tímanum
á kvöldin. Oftsinnis eru þeir
fullir af farþegum, sem lang-
flestir búa á einkaheimilum á
meðan þeir dveljast hér. Hér er
að sjálfsögðu mikið annríki og
Framhald á 4. síðu,