Þjóðviljinn - 08.07.1958, Page 10
ÍO) — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagiir 8. júlí 1958
Þegar Frakkar unnu fllsír
framh. af 7. síðu
t>ú skildir mig eftir hjá Braz-
er og hér hef ég brennt og
eytt byggðina. Nú er ég hjá
Sindgad, og hér er hið sama
uppi á teningnum, þó í miklu
stærri mæli sé. Þetta land
drýpur af smjöri og hunangi."
„Menn hafa komið til mín og
viljað framselja sig og gefast
upp. en ég sendi þá alla aftur.
Annaðhvort skulu allir gefast
upp, eða engin grið verða gef-
in (1843).“
„Hversu fagrir eru þeir á-
vextir sem ég er að skemmta
mér við að spilla. I dág
brenndi ég þorpin Ben-Salem
og Ben-kassem eða Kassi.“
(1844).
Og hversu kurteisir voru
ekki þessir sæmdarmenn hver
við annan. D'Hérisson tilfærir í
bók sinni Mannaveiðar („Chas-
sé á l’Homme“) samtal sem
fram fór mílli hershöfðingja:
„Hershöfðingi, nú hefur einn
kynþátturinn enn fengið nóg
af þessu, og biðst vægðar.“
„Nei,“ svaraði hershöfðing-
inn, „það er hugprúður liðsfor-
ingi í vinstra fylkingararmi
vorum, sem ekki hefur fengið
nóg. Látum hann fást við þetta
fólk og útrýma því að vild
sinni, síðan getum við farið að
byrja að sýna svolitla misk-
unn.“
Eða þetta: „Bezt heppnuðu
ránsferðina fórum vér til stað-
ar í grennd við Oeled Naiel.
Við tókum 2500 sauðkindur og
600 úlfalda, og höfum vér
skráð þetta sem herfang. Sér-
hver af skráðum hermönnum
fær í sinn hlut 25 til 39
franka."
„Eg sneið af honum höfuðið
og vinstri höndina. Eg fór inn
í herbúðirnar með höfuðið á
byssustingnum og höndina
festa á staf. Vér færðum þetta
d’Hilliers hershöfðingja, og
hann var himinlifandi, eins og
þú getur skilið.
Pein, maður sem ritað hefur
bók sem heitir Samtöl um Al-
sír („Leltres Familiéres sur 1’
Algerie“), segir svo í bókinni:
„Kynþátturinn Oeied Saad
skildi konur og börn eftir í
skógunum. Eg hefði getað
stofnað til manndrápa á þessu
fóiki, en vér vorum ekki nógu
margir til þess að úr því gæti
orðið veruleg skemmtun.“
Manndráp
„Manndrápin voru skelfileg.
gefast upp, og hún er' sú að
í húsunum, í tjöldurtum; á
strætunurri, og í görðunum
mátti hvarvetna sjá lík við lík.
Vér töldum þau þegar tími
vannst til og sáum áð vér
mundum hafa drepið 2300 kon-
ur og börn. Líklega hafa öllu
færri verið særðir.
Hermennirnir voru viti sínu
fjær af bræði vegna þess að
á þá hafði verið skotið úr
þakgluggum, húsasundum og
af svölum húsanna. Þeir þustu
fram og drápu hvern mann
sem þeir náðu. f myrkrinu
mátti varla greina mann frá
konu, og voru allir drepnir,
konur og börn jafnt sem karl-
menn.
Fyrir eyru af Alsírbúa voru
goldnir tuttugu frankar. Konur
voru eftirsóttar til að setja
þær sem ambáttir í grjótnám-
ur, aðrar voru hafðar að gísl-
um, á sumum var skipt fyrir
hestri, efúhðrar seldar á upp-
boði.
Árið 1839 náði Ad-el-Kader
borginni Mitidja, rak burt íbú-
ana og kom öllu á ringulreið í
héraðinu. Þá lét Bugeaud
hershöfðingi auka her sinn upp
í 108000 hermenn, og, ygr það
þá þriðjungur af samanlögðum
herafla Frakklands, og síðan
hófst hann handa um útrým-
ingarstyrjöld.
Bugeaud lét kalla fyrjr sig
herforingja sina og sagði við
þá: „Þessi styrjöld, sem nú er
að byrja, verður enginn bama-
leikur. Það er aðeins ein leið
til að fá þessa Araba til að
svipta þá öllum bjargráðum.
Farið og eyðileggir kornforða-
búr þeirra.“ (Haft eftir Mont-
agnac).
Sem sagt svo gert. Hvar-
vetna þar sem til náðist var
uppskeran brennd, forðabúrin
eyðilögð, konum nauðgað.
„Vér komum að fólki af kyn-
þætti Hasjem. Þar tókum vér
1500 naut, 2000 fjár, 80 hesta
og múldýr, ógrynni lausafjár
og 300 fanga, 200 konur og
börn og 100 karlmenn. Með
þessu tókst oss að valda upp-
námi, örvæntingu og ringulreið
meðal fólksins.“ (11. febrúar
1843.)
Baraguay d’Hilliers útrýmdi
öllum kynþáttum í héruðunum
Blida, Medea og Miljana. Hið
sama gerðist allsstaðar annars.
Þegar það vitnaðist að Pél-
issier ofursti hafði myrt hvern
mann af kynþættinum Ouled-
Riah í hellunum við Nekmaria,
fór mótmælaalda um alla Ev-
rópu þvert og endilangt. Pél-
issier hafði í þessu farið -að
dæmi Cavaignae, en Bugeaud
hafði fyrirskipað morðin: „Orlé-
ansville, 11. júní 1845. Upp-
reisnarmennirnir hafa smogið
inn í holur sínar, þessvegna
skuluð þið fara að eins og Cav-
aignac gerði við Smelhasa:
svælið þá út eins og melrakka
■úr greni.“
Lýsingu á þessu atferli er að
finna í Bréfum frá hermanni
(„Lettres d’un soldat“): „Hver
myndi geta lýst slíkum ósköp-
um? Um miðja nótt sé ég við
tunglskinið að frönsk hersveit
kveikir logandi vítisbál.
Eg heyri hálfkæfð óp manna,
kvenna, barna og dýra, ég
heyri þegar brennheitir berg-
veggirnir hrynja, og í sífellu
heyrast skothvellir úr rifflum,
þegar hljóðnar. Á þessari nótt
fór fram hræðileg barátta milli
manna og dýra. Um morguninn
fórum við að ryðja hellismunn-
ana, og sjónin sem blasti við
árásarmönnunum, var Ijótaid
en frá megi segja.
Eg hef komið í þrjá hella,
og þetta sem hér greinir sá
ég þar: Nálægt munnanum
lágu nautgripir, asnar og sauð-
kindur. Skepnurnar höfðu leit-
að þangað vegna þess að þeim
hélt við köfnun innan í hellun-
um. Innan um þessa dauðu
hjörð lágu lík manna, kvenna
og barna, sum þeirra tröðkuð
í hel.
'Eg sá dauðan mann sem
kraup á gólfinu og hélt báðum
höndum um horn á uxa. Fyrir
framan hann sat kona með
barn í keltunni, og það var
augljóst að þau öll og uxinn
líka, höfðu kafnað einmitt í
því bili er maðurinn var að
reyna að verja fjölskyldu sína
fyrir hinu óða nauti.
Ógnir
Þessir hellar eru afar stór-
ir.. Líkin voru talin og reynd-
ust vera 760. Aðeins 60 sluppu,
og af þeim voru 40 nær dauða
en lífi og eru þeir allir dauðir,
en tíu liggja dauðsjúkir á spít-
ala. Hinir tíu, sem uppi stóðu,
fengu að sleppa og hverfa til
ættmanna sinna. Þeir gerðu
ekki <annað en gráta hörmu-
legan mjssi sinn.
Þessi útiýnrjngrtnii y rjöld
átti sér formælendur, hún
var varin bæði í ræðu og
riti. „Tilgangurinn, segir dr.
Bodichon, er sá að ryðja
siðnienningunni braut inn í
Alsír. Vér verðum að nema
þar Iand til frambúðar, og
þess vegna verður að siða
þetta villimannaland að evr-
ópskum hætti. Það mundi
verða mannkyninu til bless-
unar. Og úr þvi að
skemmsta leiðin er hin
bezta, hljótum vér að velja
skeinmstu leiðina. Það er
auðséð að ógnarstjórn er
hin skemmsta leið að þessu
marki.“
Þessum aðferðum var aftur
beitt árið 1847 þá er Abd-el-
Kadergerði eina tilraunina enn
til að. brjóta landið Undan ok-
inu, Þá svældu hershöfðingj-
arnir Cavaignac, Pélissier og
Saint Arnaud úl fólk í nokkr-
um þorpum, og tókst þannig
að brjóta mótstöðuna á bak
aftur. Síðan hófst fjórða frið-
unartímabilið.
Árið 1849 jafnaði Pélissier
tvö þorp norður af Oran við
jörðu, í nafni friðarins, en í-
búarnir voru látnir horfa á.
Þorpið í Zaatsja var gereyði-
lagt og hvert mannsbam drep-
ið. Canrobert hershöfðingi
eyðilagði Nahra „til þess að
ógna hinum innfæddu."
Árið 1851 jafnaði Camou 29
þorp við jörðu á einum degi og
hrósaði sér af því að í þeirri
herferð hefðu 300 þorp verið
„látin hverfa‘!. Á þvílíku gekk
í önnur 20 ár, og ýmist var
risið upp eða uppreisnir bæld-
ar niður miskunnarlaust. Árið
1871 var allur mótþrói loksins
gersamiega brotinn niður, jafn-
vel í Kabylia.
Meðan á þessu stóð, hvatti
franska stjórnin þegna sína til
að nema land í Alsir, og fluttu
þeir þangað í stríðum straum-
um. Ekki gat það kallast
mannval, sem þangað flutti:
g’.æpamenn, flakkarar, betlarar
og munaðarleysingjar voru
fluttir yfir Miðjarðarhafið
hundruðum saman á hverjum
degi.
Þeim voru fengnir smærri og
stærri skikar af landi til yrk-
ingar, og var Því öllu stolið
frá landsmönnum, sem urðu að
leita lengra út á eyðimörkina.
Eignarnám
Bugeaud hershöfðingi leyfði
hermörtnum sínum að gerast
bændur, því hann hélt að hern-
aðarsigur væri mikilvægari en
nýlendugróði.; Árið 1839 voru
þegar komnir 25000 landnemar,
af þeim voru 11000 franskir.
Árið 1840 var gefin út til-
skipun, sem leyfði eignarnám
„Þetta er allt orðið heldur grunsamlegt“, tautaði
Þórður, „en hór hefur verið um einhvers konar sam-
særi að ræða. En hvers vegna og hver stjórnar þessu
öllu?" Hann sneri sér að eyjarskeggjanum. „Bjóstu
við því að hitta okkur hér um borð?“ spurði hann.
Hinn hristi höfuðið. „Nei, herra. Eg aðeins fá skip-
un taka skipið og fara með það til eyjarinnar“. Hann
benti í áttina til eyjarinnar. „Frá hverjum fékkstu
þessa skipun?“ spurði IBrighton. „Mínum herra —
herra Field! Hann og sex fleiri á eyjunni". ,,Frá
Field! Fyrsta stýrimanni rnínum!" hrópaði Brighton
upp yfir sig .
hjá hverjum þeim landsmanni,
sem hafði sýnt Frökkum mót*
þróa.
Árið 1846 voru allir Alsirbú-
ar fluttir nauðungarflutningi
úr stóru héraði í grennd við
Oran og síðan byggð þar S
þorp handa frönsku fólki. Árið-
1847 voru 109 400 Evrópumenn
í Alsir, þar af 47 000 franskir.
Árið 1848 voru 13500 atvinnu-
leysingjar fluttir frá París til
Alsír.
Eignarnám án nokkurra upp-
bóta og úthlutun jarða gefins
eða því sem næst, hélt áfram
að eiga sér stað. Árið-. 1860
voru landnámsmennirnir orðn-
ir 200 000, af þeim voru 120
þúsund franskir.
í reyndinni gerðist þetta.
þannig: fjöldi Araba neyddist
til að vinna á plantekrum, eft-
ir að eigur þeirra höfðu verið
gerðar upptækar, og það bar
oft til, að menn ynnu á því
landi, sem þeir höfðu sjálfir
átt. Úr þessu fólki varð- svo
öreigalýður.
Flakkarar, betlarar og aðrir
slíkir sem fluttir höfðu verið
til Alsír, og fengjð land,
bjuggu svo að jörðunum og
plantekrunum, að þær níddust
niður á skömmum tíma, og
urðu gagnslausar. Þá komu
braskarar og sölsuðu undir sig
landið, og ekki leið á löngu
fyrr en fáein auðfélög voru
búin að ná eignarhaldi á stór-
um landsvæðum.
Árið 1865 áttu 30 stórjarðeig-
endur 160.000 hektara. Auðfé-
lögin I’Habra og Macta áttu
25000 ha af korkeikaskógi, Soc-
iété Générale Algérienne seldi
á leigu 100 000 ha af skógléndi
í grennd við Constantine fyrir
einn franka hektarann.
Af þessu leiddi það að Alsír-
búar komust í þvilík vandræði,
að hálf milljón manna dó úr
hungri árið 1867. Þá fyrst
komu fram einhver mótmæli
gegn þessari ómannúðlegu
stjórn. Árið 1871 var landið
innlimað í Frakkland.
Víkingahöfn
Við rannsóknir á hafsbotni í
Katevágen nærri Álasundi hafa
fjórir norskir húðkafarar fund-
ið merkar fornminjar. Þeir rák-
ust á hafnargarða 18 metra
langa og tveggja metra breiða.
Talið er að hér séu fundnar
leifar af hafnarmannvirkjum
frá víkingaöld. Foraminjafræð-
ingar búa sig nú undir að
rannsaka fundinn nánar.
Hótaði að hefna
Ungur maður í Kingston
í Englandi hefur verið dæmd-
ur í 100 sterlingspunda sekt
fyrir að reyna að beita unn-
ustu sína fyrrverandi nauðung.
Þegar stúlkan sleit trúlofun-
inni hótaði maðurinn að birta
nektarmyndir, sem hann hafði
tekið af henni í tilhugalífinu,
ef hún sæi sig ekki um hönd.
Fyrsta síldin
Framhald af 1. síðu.
Veðrið á miðunum kl. 6,30 í
gærkvöld var 2—3 vindstig af
autri, þoka og lágskýjað.
Nýkomið var skeyll frá Ægi
um að sézt hefði mikil og falleg
rauðáta á norð-austurhorni
Sléttugrunns og fór leitarilug-
vélln til að athuga þetta svæði.