Þjóðviljinn - 17.07.1958, Blaðsíða 3
■w9
Fimmtudaffur 17. júlí 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Sunnlcnzkir síldarsaltendur vilja fá
allt að 80% útflutningsiippbætur
ef von ætti að verða um söltun suðurlandssíldar“
Ágæt síldveiði á austursvæðinu
w
Félag sildarsaltenda á Suðvesturlandi hélt aðalfund
sinn nýlega. Samþykkti aðalfundurinn kröfu til ríkis-
stjómánnnar um að hækka verðbætur á suöurlandssíld,
ef grundvöllur eigi aö vera fyrir söltun. Vilja sunnlenzk-
?r síldarsaltendur fá 80% útflutningsbætur á síldina.
Formaður félagsins Jón Árna-
son frá Akranési flutti skýrslu
um 'starfsemina á s.l. ári. Gat
hann þess að á sl. ári hefði ver-
:ð samið um sölu á 85 þús. tunn-
um suðurlandssíldar, og hefði
það magn síðan 'aukizt vegna
þess hve norðurlandssíldin varð
lítil, og ekki næg upp í samn-
inga. Hins vegar hefði rekneta-
veiðin brugðizt, heildarsöltun
hefði ekki orðið nema 50 þús.
tunnur í stað 116 árið áður, og
hefði því afkoma sildarsaltenda
orðið mjög slæm.
Þá gat formaður þess að nú
væri búið að semja um sölu á 70
þús. tunnum’ suðurlandssíldar til
Sovétríkjanna og Póllands og 15
'þús. til Austur-Þýzkalands. Auk
þess mætti láta suðuriandssíld
ef norðurlandssíld vantaði í
samninga, og hugsanlegt væri
áð selja meira enn.
Krefjast meiri uppbóta
Þá hvatti hann félagsmenn til
,að eignast nægar tunnur og
vanda vöruna.
Þá ræddi formaður afkomu-
horfur síldarsaltenda, og segir
svo í frétt frá F.S.S.: „Niðurstöð-
.ur félagsstjórnarinnar hefðu orð-
ið þær, að útflutaiingsuppbætur
á. suðurlandssíld, sem Alþingi
hefði ákveðið með lögum um
útflutningssjóð o.fl., væru al-
gerlega óviðunandi. Kvað Jón
Ámason útflutningsbætur á Suð-
urlandssíld þurfa að vera a.m.
k. hinar söinu og á' bolfiskaf-
rarðir, aðra en síld, eða 80%, ef
von ætti að vera um söltun suð-
urlandssíldar á þessu ári“.
Svo virðist sem við umræður
fundarins hafi birt eitthvað lít-
iisháttar yfir afkomuvonum síld-
arsaltenda, því samþykkt fund-
arins er mun vægari, hún er
svohljóðandi;
„Aðaifundur F.S.S. haldinn 3.
júlí 1958, samþykkir að fela
stjórn félagsins að vinna að því
við rikisstjórnina, að verðbætur
á útflutta suðurlandssíld verði
hækkaðar frá því sem nú er á-
kveðið. Það er áíit fundarins að
ekki sé að öðrum kosti fyrir
hendi grundvöllur fyrir söltun
suðurlandssíldar á þessu ári“.
Vilja fá þróarstyrk
Gunnar Flóventsson, skrif-
stofustjóri síldarútvegs'nefndar
tók næstur til máls, en hann
sat fundinn að beiðni F.S.S. All-
miklar umræður urðu á fund-
inum um möguleika á nýjung-
um í meðferð og verkun salt-
sildar, í því skyni að lækka
reksturskostnað við síldarsöltun
og ,að auka vörugæði.
Fundurinn gerði svohljóðandi
samþykkt:
„Aðalfundurinn samþykkir að
fela stjórninni að beita sér fyr-
ir því að gerðar verði tilraunir
með söltun síldar í pæk-
ilþró. Leitað verði styrks hjá
Síldarútvegsnefnd og Fiskimála-
sjóði í sambandi við þessar til-
raunir".
Vilja selja meira til
Austur-Þýzkalands
Samþykkt var eftirfarandi:
„Aðalfundur F.S.S. beinir því
til Sildarútvegsnefndar, að hún
beiti sér nú þegar fyrir sölu á
verulegu magni suðurlandssíldar
til Austur-Þýzkalands af fram-
leiðslu komandi vertíðar".
Vilja fá sæti i
Sildarútvegsnefnd
„Aðalfundur F.S.S. haldinn 3.
júlí 1958, samþykkir að skora á
Alþingi og ríkisstjórn að breyta
lögum um sildarútvegsnefnd
þannig ,að nefndin verði skipuð
7 mönnum í stað 5 eins og nú
er, og tilnefni F.S.S. 1 mann í
nefndina og Félag síldarsaltenda
á Norðurlandi 1 mann. Að öðru
leyti verði val manna í nefnd-
ina óbreytt"..
Undirbúa samiagsstofnun
„Aðalfundur F.S.S., . haldinn
3. júlí 1958, samþykkir að fela
stjórn . félagsins að vinna að
rannsókn um möguleika að
stofnpn samlags til sölu á salt-
síld, semt framleidd er á félags-
svæðinu. Stjórnin skili áliti á
næsta aðalfundi“.
Stjórnarkosning
I stjórn félagsins voru kosnir
þessir menn;
Jón Ámason, Akranesi, for-
maður; Ólafur Jónsson, Sand-
gerði, varaformaður. Meðstjóm-
endur: Guðsteinn Einarsson,
Grindavík; Bergsteinn Bjarna-
son, Hafnarfirði, og Margeir
Jónsson, Keflavík.
Kosnir voru fimm menn i vara-
stjórn og 11 menn í fulltrúaráð,
en stjórn og varastjórn skipa
einnig fulltrúaráðið. Fundar-
stjóri var Ingimar ’Einarsson.
Loks má geta þess, að félags-
svæð F.S.S. nær yfir svæðið frá
Vestmannaeyjum vestur um
Suðurland, Faxaflóa, Brejðafjörð
og Vestfirði að Horni.
Framhald af 12. siðu.
Austfjörðum.
Til Seyðisfjarðar komu í gær
morgun 20 skip með 5000-6000
mál, en daginn þar áður bárust
1300 mál þangað í bræðslu, 400
tunnur voru saltaðar og 380
frystar.
Síðdegis í gær komu til Seyð-
isfjarðar þessi skip: Sigrún AK
432 mál og tunnur, Sigurfari
SH 508, Ágúst Guðmundsson
450, Sidon 50, Húni 50, Jökull
500, Sigurfari VE 124, Stefán
Þór 500, Pétur Jónsson 500,
Álftanes 400, Fjalar 450, Hrafn
Sveinbjarnarson 500, Gissur
Hvíti 400, Sæborg 500, Geir
350, Stígandi 600, Kap 500, ÓI-
afur Magnússon 300, Straum-
nes 300, ennfremur Guðbjörg
VE og Völusteinn, eða síðdegis
um 8 þús. mál. —- I gær var
salta.ð á Seyðisfirði í 300 tunn-
ur,-
Braeðsla hafin Vopnatirði.
Síldarbræðslan á Vopnafirði
tók móti fyrstu sildinni í fyrri-
nótt. Þar hafa landað Bjarmi
150 tn. og 48 mál, Andri BA
100 tn. 184 mál, Hólmkell 150
tn., Reynir AK 500 mál, Hálf-
dán 499, öðlingur VE 300, Sæ-
valdur 250, Magnús Marteins-
son 244, Faxi 88.
Éskifjörður.
Til Eskifjarðar komu Jón
Kjartansson með 650 mál og
tunnur. Voru 500 tunnur salt-
aðar á Eskifirði en 150 sendar
í bræðslu í Neskaupstað.
Síld í Reyðarfirði.
Sildina fékk Jón Kjartansson
mjög sunnarlega og syðsta
kastið suður af Skrúð. Á leið-
inni inn Reyðarfjörð varð hann
var síldar fyrir innan Seley.
Stöðva rf jö rðu r.
Fyrsta síldin hefur borizt til
Stöðvarfjarðar, landaði Kamba-
röst þar 200 tunnum. Trillubát-
ur fékk þar 3 tunnur af síld I
lagnet.
Fáskrúðsf jörður.
Fyrsta síldin hefur einnig
borizt til Fáskrúðsfjarðar, þar
landaði Búðarfell 350 tunnum í
fyrradag og Stefán Árnason
150 tunnum í gær.
Framhaldsstofn-
fundur Sjálfs-
bjargar í kvöld
Framhaldsstofnfundur Sjálfs-
bjar.gar, — félags fatlaðra í
Reykjavík, (siðasti áfangi)
verður haklinn í KR-liúsinu
við Kaplaskjólsveg fimmtudag-
inn 17. júlí n.k. kl. 8.30 e.li.
Á síðasta fundi bættust nær
50 nýir félagsmenn í hópinn.
Æskilegt væri að fleira fatlað
fólk, er áhuga hefur fyrir sam-
eiginlegum hagsmuna- og menn
Sumargjöf stofnar nýjan leikskóla í
húsakynnum Óháða safnaðarins
Heitir Austurborg og tók til starfa 8. þ.m.
Nýjum leikskóla, fyrir börn á aldrinum 2-6 ára, hefur
veriö komiö á fót í Kirkjubæ, félagsheimili ÓháÖa safn-
aöarins í Reykjavík. Leikskólinn ber nafniö Austurborg
og- er þetta 9. barnaheimiliö sem Sumargjöf stofnar.
Fréttamenn sátu fund með Sumargjöf er nú með stóra
meðlimum úr stjórn Sumar- byggingu í smiðum við Forn-
gjafar og Óháða safnaðarins i haga sem mun koma í staðinn
gær og var þar skýrt svo frá, fyrir Tjarnarhorg.
að Sumargjöf hefði farið þess j Leikskólastarfsemi fer alltaf
á leit við Óháða söfnuðinn að vaxandi hér í Reykjavik og
fá leigt húsnæði fyrir leikskóla1 nýbyggðu hverfin vilja öll fá
í félagsheimilinu. Var tekið leikskóla, en sú starfsemi hef-
Iðja fœr lífeyrissjóð — en
atvinnurekendum selt sjálfdæmi um reglu-
gerð hans - Raunverulega samið til 2ja ára
í hinum nýju samningum Iöju, sem frá var skýrt á
Iöjufundinum í gærkvöldi eru jákvæö atriöi sem ber að
íagna, eins og lífeyrissjóönum, en önnur forkastanleg
eins og aö gefa atvinnurekendum sjálfdæmi um lífeyr-
issjóðmn og yfirráö hans og að semja raunverulega til
tveggja ára!
Það atriði sem sérstáklega júlí til 31. desember 1959 eða
ber að fagna er að lífeyrissjóð-
ur tekur til starfa 1. jan. n.k.
og borga atvinnurekendur 6%
í hann en Iðjufélagar þeir sem
unnið hafa 4 piánuði eða leng-
ur á sama vinnustað, greiða
4%.
Sá stóri böggull fylgir hins-
vegar skammrifi að atvinnu-
rekendum er tryggður meiri-
hluti i sjóðsstjórninni, þeir til-
nefna 3 menn en Iðja 2. Er
i eitt og hálft ár, en raunveru-
lega er þetta samningur til
tveggja ára því sé honum ekki
sagt upp með fyrirvara fram-
lengist hann af sjálfu sér um
6 mánuði, en áramót eru versti
tími fyrir Iðjufólk til uppsagn-
ar og ólíklegt að sá uppsagn-
artimi verði notaður.
Eins og útlit er nú verður
að telja það fullkomið ábyrgð-
arleysi að semja þannig raun-
þetta mjög varhugavert for-1 verulega til tveggja ára, Að
vel í þá beiðni og tók leik-
ur öll hvílt á herðum Sumar-
skólinn til starfa 8. þ.m. eftir, gjafar, og mun félagið reyna
að lóð hafði verið girt og Iöguð
og gengið hafði verið frá leigu-
skilmálum.
að athuga um leigu eða bygg-
ingu leikskóla eða dagheimila
í þeim hverfum bæjarins þar
sem þörf er á.
Stærri golfvöllur
Salarkynni leikskólans eru
hin vistlegustú og fyrir utan.
skólann er komið fyrir leik-
tækjum á rúmgóðri og hentugri
lóð. Skólinn mun taka að fullu Bæjarráð samþykkti á fundi
til starfa i haust og þá verða sínum 15. þ.m. að verða við
tvær deildir, í staðinn fyrir þeim tilmælum Golfklúbbs
eina nú, og munu um 30 börn Reykjavíkur að hið nýja land
geta verið i morgundeild og um er hann fær til ráðstöfunar
ingarmálum fatlaðra, gerist, 35 í eftirmiðdagsdeild. |upp af Grafarholti verði 65 ha
stofnendur Sjálfsbjargar. Núverandi forstöðukona í stað 40, er áður hafði verið
Ef þig vantar farartæki þá barnaheimilisins er Hjördis ákveðið. Er þessi stækkun rök-
gerðu svo vel að hringja í sima {Jónsdóttir, en í haust mun taka studd með því að á minna
19246, 34206 eða 18808 fyrir við forstöðu af 'henni Dóra svæði sé ekki unnt að koma
M. 7 á fimmtudaginn. Jónsdóttir. ifyrir 18 holu golfvelli.
dæmi.
Eina frágengna atriðið.
Ákvæðið um meirihluta at-
vinnurekenda í sjóðsstjórninni
er eina atriðið sem gengið hef-
ur verið frá í reglugerð sjóðs-
ins!
Þegar Iðja hefur þannig
skrifað undir samninga án þess
að reglugerðin væri sett geta
atvinnurekendur ráðið henni í
krafti meirihluta síns í sjóðs-
stjórninni. Er það ótækt að
selja atvinnurekendum þannig
sjálfdæmi um alla reglugerð
sjóðsins.
5% bauphækkun.
Kaup Iðjufólks hækkar um
5% og gildir sú hækkun frá
1. júlí. En um næstu áramót
lækkar útborgað kaup að sjálf-
sögðu vegna lífeyrissjóðs-
greiðslna.
Mjög jákvætt atriði er " í
samningunum en það er veru-
leg kauphækkun til kvenna sem
unnið hafa 4 ár eða lengur i
iðnaðinum.
Samið til tveggja ára!
Samningurinn gildir frá l.ilýðsfélagi.
vísu kvað formaður Iðju at-
vinnurekendur hafa heitið því,
að ef kaup annarra félaga
hækkaði á samningstímabilinu
„verði það séð við Iðju“.
Samningurinn var samþykkt-
ur með 71 atkv. gegn 19, en á-
kvæðin um sjálfdæmi atvinnú-
rekenda yfir lifeyrissjóðnum
og samningstíminn vöktu mikla
gremju og reiði.
Óvenjuleg vinnubrögð.
Björn Bjarnason gagnrýndi á
fundinum málsmeðferð stjórn-
arinnar. 28. april sl. samþykkti
félagsfundur að segja upp
samningum, en síðan hefur
enginn félagsfundur verið hald-
inn og stjórnin aldrei leitað
eftir því við félagsmenn hverj-
ar kröfur þeir vildu helzt að
væru fram bornar. Hinsvegar
tilnefndi stjórnin samninga-
nefnd og það var fyrst í gær,
eftir að hún var búin að sam-
þykkja samningana og skuld-
binda sig til þess að mæla með
þeim, að félagsmenn fengu
nokkuð um þá að segja. Eru
þetta mjög óvenjuleg og óaf-
sakanleg vinnubrögð í verka-