Þjóðviljinn - 17.07.1958, Síða 4

Þjóðviljinn - 17.07.1958, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 17. júlí 1958 fkersvepa er iðnneinasðmbandinu meinuð þáfffaka I ffskulýðsráðinu? Greinargerð frá fulltrúa Æskulýðsfylkingarinnar í ÆRÍ æskulVds Á fyrsta fundi Æskulyðsráðs íslands, hinn 8. júlí s. 1., ]á fyrtr inngönguumsókn frá Iðnnemasambandi fslands. TJmsóknin náði ekki tilskildu fylgi, — fjórir greiddu henni atkvæði, fjórir voru á móti en einn greiddi ekki aikvæöi. Með afstöðu sinni gegn Iðnnemasambandinu hafa viss öll í ÆRÍ viöhaft pólitísk bolabrögð, þvert ofan í yfirlýsta stefnu samtakanna, og þar með sett ljótan blett á heiklarsamtök íslenzkrar æsku í upphafi starfs þeirra. Þar sem hér er um alvar- legt atvik að ræða, vill Æsku- lýðsfvlkingin gera grein fyrir málinu og afstöðu sinni í því. Þegar í undirbúningsstarf- inu að stofnun Æ.R.I. komu fram mótbárur einstakra full- trúa gegn aðild Iðnnemasamr bandsins undir því yfirskyni að það væri launþegasamtök og voru það einu „rökin“ sem færð voru fram gegn INSÍ, en eamkvæmt lögum Æ.R.Í. eru launþegasamtök ekki þátt- trkuhæf. Hér er þó um algjöran fyr- irslátt að ræða, og enginn vafi að póiitísk hræðsla við þessi fjölmennu samtök verkalýðs- æskunnar eða annarleg óvild í þeirra garð hefur ráðið af- stöðu fulltrúanna, sem voru á móti aðild I.N.S.Í. Það er al- veg út. í hött að ætla að setia Iðnnemasamband íslands í flokk með launþegasamtök- iim, enda kemur slík fullyrð- ing flestum kynlega fyrir, ekki sizt þeim, er starfa. að verka- íýðsmálum og bezta þekkingu hafa á félagsmálum verka- lýðsins. Leitað hefur verið umsagn- ar Óskars Hallgrímssonar for- manns Iðnfræðsluráðs, og einnig flnorra. Jónssonar, sem líka á sæti í Iðnfræðsluráði og er starfsmaður Alþýðu- sambands Islands. Báðir þess- ir menn gáfu skýran úrskurð um að Iðnnemasambandið væri ekki Iaunþegasamtök. Það má sérhverjum ljóst vera að þe=sir reyndu verkalýðs- foringiar, sem báðir hafa ver- ið leiðtogar í stéttafélögum árum saman og báðir auk þess fulltrúar í Iðnfræðsluráði, vita betur hvað launþegafélag er, en ungir íhaldsmenn og ungir fram^óknarmenn. Það kemur líka glöggt í Ijós þevar athuguð eru lögin um ptéttafélrg og vinnudeilur að Iðnnemasamband íslands nýtur "ekki sömu réttinda og verkaiýðsfélög. Það hefur hvori’i verkfallsrétt né samn- j-iprcrétt, sem eru grundvallar- réttíndi slíkra. félaga. Það er Iðnfræðsluráð, sem semur um kp”n iðnnema og á einstaka s^öðnm sveinafélögin, en ald’-ri jðnnemar sjálfir. Iðnnemasambandið er sam- tök skc’aæsku og hliðstætt Fpeotöknm háskólastúdenta. Bæðí Iðnnemasambandið og Stúdentaráð >'■ berjast fyrir hag=munamálum nemenda og meðlimir hverfa úr báðum, er þei’’ hafa lokið námi. Tekjur iðnnema yfir árið eru í flestum tilfellum engu meiri en tekjnr háskólastúd- enta. sem vinna á sumrin. Siimir stúdentar fá líka stöð- ug laun, þótt lág séu, t. d. lyf jafræðinemar, og lækna- nemar berjast fyrir því að fá borgað fyrir ,,kúrsusa“. Hér á landi eru aðeins til þrjú heildarsamtök skólaæsku. Auk Jðnnemasambandsins eru það Stúdentaráð Háskóla ís- lands og Samband bindindis- félaga í skólum. Hin tvö sið- artöldu eru bæði aðilar að Æ.R.I. og þótti öllum aðild þeirra sjálfsögð og æskileg. Þriðju heildarsamtökum skóla- æskunnar — og þeim fjöl- mennustu — er hinsvegar bægt frá af fjórum aðilum í ráðinu. Slíku er ekki hægt að una. Iðnnemasambandið tók þátt í undirbúningi að stofnun Æ. R.I., og hafa fulltrúar þess bent á að iðnnemar hafi e. t. v. meiri þörf á fyrirgreiðslu Æ.R.I. en önnur æskulýðssam- tök, vegna þess að laun þeirra eru svo lág að þeir eiga erfitt með að njóta skemmtana og ýmissrar félagsstarfsemi af fjárhagsástæðum. Landssam- böndin, sem aðild eiga að Æ. R.I. munu miðla hvort öðru af þekkingu siijni og hjálpsemi í félagsmálum. Það er t. d. vitað að Samband ungtempl- ara hefur rekið fyrirmyndar félagsstarfsemi að mörgu leyti, og reynsla þeirra af t. d. félagsmálanámskeiðum mun koma Æ.R.Í. að miklu gagni, þegar það byrjar sín nám- skeið. Það hefði verið ákjós- anlegt verkefni fyrir Æ.R.Í. að aðstoða iðnnema við að koma á hjá sér ódýrum og heilbrigðum skemmtunum, t. d. með útvegun kvikmynda, skemmtikrafta o. fl. frá'öðr- um æskulýðssamtökum. Ritstjórar: Árni Björnsson -og Eysteinn Þ-oi-valdsson Skákspjall í tilefni stúdenta- skákmótsins í Y arna í Báljaríu Það er stefna Æskulýðsfylk- ingarinnar að ekki eigi að meta þátttöku sambanda í Æ. R.I. eftir stjórnmálaskoðunum forystumanna þeirra, enda væri grundvöllurinn hruninn undan samtökunuip. ef slík sjónarmið væru ráðandi meðal allra í ráðinu. Æskulýðsráð Islands getur orðið íslenzkum æskulýð til mikilla heilla, en það þó að- eins ef sameiginlegir hags- Undanfarna daga hefur mikiö veriö rætt um frammi- munir æskunnar í landinu stööu íslenzku keppendanna í stúdentaskákmótinu í verði látnir sitja í fyrirrúmi, Varnn og eru menn yfirleitt vonsviknir. Viö gerum háar en ekki annarleg sjónarmið.i^-öfur ól skákmannanna okkar vegna þess aö þeir standa eins og þau sem réðu frávís-sig yfúieitt yel á erlendum vettvangi. Ósigrar í skákinni mngonguumsoknar fðn-fjoma mönnum jafnmikiö á óvart og sigurfréttir af vett- un nemasambands Islands. En þrátt fyrir þetta leiða víxl- spor, sem áreiðanlega verða leiðrétt síðar, á Æskulýðsráð íslands gullið tækifæri til að efna þau fyrirheit, er það hef- ur gefið íslenzkri æsku. Það getur orðið mikil lyftistöng fyrir æskulýðssambönd lands- ins, sem öll eru tiltölulega fá- menn og tvístruð. Stofnun Æ. R.í. táknar því mikið fram- faraspor í félagsmálum æsk- unnar. Eysteinn Þorvaldsson fulltr. Æskulýðsf^lkingarinnar í Æ.R.Í. 1 eumar er Æ.F.R.-salurinn opinn á þriðjudögum, föstu- dögum og sunnudögum frá klukkan 20.30 til 23.30. Skrifstofa ÆFR er sem áð- ur opin alla virka daga milli klukkan 6 og 7. vangi knattspyrnunnar. Þegar þesar línur eru ritað- ar, hafa borizt fréttir af þrem fyrstu uniferðunum í úrslit- um. Af þeim má glöggt sjá að íslendingar voru óheppnir með riðil i undanrásunum. Búlgar- ar og Bandaríkjamenn eru nú í 2. og 3. sæti í A-riðli úrslita- keppninnar. í fyrra urðu Búlg- arar aðrir í röðinni í mótinu hér i Reykjavík. Þá var 1. borðs maðurinn, Bobodsoff, ekki meðal keppenda, þannig að búlgarska sveitin er nú enn sterkari en í fyrra. Bobodsoff hefur teflt fimm sinnum við íslendinga og alltaf unnið. Bandaríska sveitin er einnig sterk, með Lombardy, heims- meistara unglinga, á fyrsta borði. Hafa Bandaríkjamenn alltaf náð betri árangri en Is- lendingar á stúdentaskákmót- unum. Þess vegna mátti segja að okkar menn væru dæmdir í B-riðil frá upphafi. En í undanrásunum. Töpuðu íslendingar líka fyrir Albönum, sem nú keppa í fyrsta skipti á þessum mótum. Hafa margir fekið þennan ósigur óþarflega nærri sér. íslendingar tefldu alls ekki fram sínu bezta liði og auk þess hefur komið í ljós að albanska sveitin er ekki skipuð neinum aukvisum, Hún er nú í þriðja sæ:i í B-riðlin- um næst á eftir íslendingum Okkar menn mæta Albönurrt aftur í síðustu umferð. Verða þá væntanlega sendir fram all- ir okkar hörðustu menn og úr því skorið endanlega hvori® eru snjallari. Ekki hafa borizt fregnir a£ viðureigninni við Rúmena. E£ Rúmenar yinna, má telja víst að þeir sigri í B-riðlinum, e» beri íslendingar sigur úr být- um, má gera sér vonir um sama árangur og i Uppsálum .1956. Slík frammistaða yrði að teljast mjög góð, ekki sízt þeg- ar þess er gætt, að nú eru I okkar liði margir nýliðar, en hinir þrautreyndu kappar, Guð- mundur Pálmason og Þórir ÓI- afsson, eru ekki á vígvellin- um. Ástæða er til að geta þess, að þeir hafa staðið sig bezt á stúdentamótunum und- anfarin ár. Daginn, sem mótið í Varna hófst, birtist hér í blaðinu grein, þar sem menn voru var- aðir við óhóflegri bjartsýni. Ég tel, að islenzka sveitirti standizt þær kröfur, sem með sanngirni má gera, ef húrt hreppir verðlaunasætj í B-riðl- inum. Jón Böðvarsson. I lögum Æskulýðsráðs ís- lands segir að markmið þess sé að efla samstarf.. og kynn- ingu meðal íslenzkra æsku- lýðsfélaga. Þar segir einnig að stjórnmáladeilur, svo og á- skoranir og sambykktir um þær, séu ekki leyfðar á veg- um samtakanna. Með útilokun Iðnnemasam- bandsins frá Æ.R.Í. er óbeint verið að misþyrma þessum stefnuskráratriðum. Það ligg-. ur í augum uppi að Æ.R.Í. er höfuðstyrkur að þátttöku sem flestra æskulýðssamtaka og sem beztri samvinnu fulltrú- anna. En það er eamtökunum til tjóns, ef það á að gera þau að nýjum vettvangi fyrir pólitískar togstreytur eins og gert hefur verið með því að meina I.N.S.Í. þátttöku. Með slíkri óheillastarfsemi er verið að stefna samtökunum í bráð- an voða. Frá stúdentaskákinótiiiu í iyrra Mynd þessi er tekin á heimsmeistaramóti stúdenta í fyrra, en þá var það háð hér í Reykjá- vík, eins og kunnngt er. Friðrik Ólaísson er að tefla við Benkö frá Ungverjalandi. Guðmund* ur Pálmason sést einnig á myndinni.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.