Þjóðviljinn - 17.07.1958, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 17.07.1958, Blaðsíða 9
— Fimmtudagiir 17. júlí 1958 ---ÞJÓÐVILJINN (9 % ÍÞRÓTTIR trrsTJCKs niMAHM utic/aoe w Fimmtugur Guðmimdsson Iþróttasíðan hefur beðið mig sð segja nokltur orð um Þórð ■Guðmundsson, en hann varð fimmtugur 19. maí e.l. Þórður er þekktur maður í íþróttahreyfingunni. Hann er maður félagslyndur og afar laginn að umgangast fólk af sundurleitu tagi. Engann nxann hef ég hitt fyrir sem hann í einum hlut. Þórður hefur reynt að sameina menn með svo ólíkar skoðanir, að |i||| maður undrast stórlega að hann skuli ekkr sjálfur hafa skaðast af þvílíkum hlutum. En það er ef til vill þetta ^ sérstaka eðli hans, sem stuðl- ’í - að hefur að því, að hann er £-• -j nú formaður íþróttadómstóls F t, T.S.Í. Annars var Þórður mik- C i.? ill sundkappi. 1. maí 1927 var Sundfélag- Ið Ægir stofnað. Tildrögin að stofnun þess var sú ein, að koma kappsundinu til vege og virðingar, en sundkeppni var þá í mikilli niðurlægingu. Sundæfingar og allur undir- búningur undir sundkeppni, ef eitthvað var um slíkt, þekktist ekki undir öðru en fálmj. út í loftið; tóm endaleysa, en kappsundin voru lífshættuleg- ur skrí.paleikur. Það var Sund- félagið Ægir, sem kom heil- hrigðri skynsemi í eundkeppn- ina og allar æfingar. Menn tóku jafnvel að æfa sig á vísindalegum grundvelli. Enda 'var Ægir forystufélag í sundi ’Jengi . framanáf. Þórður var einmitt einn af stofnendum þessa félags, og á tímabili einn sf fremstu sundköppum þess. Hann setti og nokkur met í hringusundi, Fyrsta metið sitt setti hann í sjó. Það var talsverð alda og svntir voru 400 metrar. Þetta var 1930. Tími hans var 7 mín. og 0,10 sek. I etjórn Ægis var hann frá stofnun þess og til 1950. Þar af var hann formaður Ægis i Sænskt met spjótkasti. Fyrir nokkru síðan kastaði Svíinn Knut Fredreksson spjóti 80,85 m, sem er sænskt met og bezti árangur í spjótkasti í heiminum til þessa í ár. Hann er fyrsti Svíinn sem kastar spjótinu yfir 80 m. Hann átti sjálfur eldra metið sem var 76,74. Hann hefur þrisvar kom- izt yfir 79 m á æfingum en á alþjóðlegu móti í Stokkhólmi náði hann þessum árangri. Hvorugur vann! Áukamót á íþróttavellinum í kast- og slökkgreinum í kvöld Da Silva — Vilhiálmur — Valbjörn — Huseby Ágóði rennur til Eyjólís Jónssonar sundkappa. Tveir enskir leikmenn sem voru á H. M. í Sviþjóð um daginn veðjuðu um það hvaða mynt Skotinn Mowat mundi ^ nota þegar að því kæmi að hann skyldi dæma. Veðmálið varð til eftir að þeir höfðu komizt á snoðir um það að rússneski dómarinn Latyschev hafði notað silfurrúblu er hann lét fyrirliða velja mark. Það kom á daginn að Mowat notaði penny sem er lægsta mynt sem til er á Bretlandseyj- um. Sagan segir að hvorugur iBretanna hafi unnið veðmálið, það var rétt hjá báðum! Þórður Guðmundsson 9. ár. Eftir þennan tíma hefur hann gegnt störfum fyrir fé- lagið út á við. Hann er nú t. d. í stjórn Í.B.R. Einnig er hann í stjórn Sundsambands- ins. Af þessu sem hér hefur verið sagt má sjá, að Þórður er mjög starfhæfur og þarfur maður iþróttahreyfingunni. Gamlir Ægismenn fagna því að honum skuli hafa verið trúað fyrir miklu. íþróttasíðan flytur honum árnaðaróskir í tilefni af þess- um tímamótum í lífi hans og vonar, að íþróttahreyfingin megi njóta starfskrafta hans sem lengst. E.K.F. Danskt met í kúluvarpl Á frjálsíþróttamóti sem hald- ið var í Stokkhólmi nýlega setti Daninn Axel Thorsager nýtt danskt met í kúluvarpi og varpaði hann kúlunni 16,03 m. Thorsager er fyrsti Daninn sem varpar kúlu yfir 16 m. Danir hafa einnig eignazt mjög efnilegan hlaupara sem heitir Benny Stender sem varð þriðji í 1500 m hlaupi eða á eftir Dan Waern sem er Svíi, en hlaupið vann Spánverjinn Thomas Barris, sem einnig vann 800 m hlaupið. 1 kvöld kl. 8,15 hefst á íþróttavellinum á Melunum aukamót i frjálsum iþróttum á vegum ÍR. Vegna Reykja- vikurmeistaramótsins, sem hefst á laugardag, fékkst að- eins leyfi til að keppa í kast- og stökkgreinum, en keppni getur samt orðið mjög skemmtileg, því að um jafna menn er að ræða í þeim flest- um. Da Silva — Vilhjálmur Aðalkeppni kvöldsins verð- ur að sjálfsögðu í þrístökki milli da Silva og Vilhjálms Einarssonar. Er vonandi að veðurskilyrði og aðstaða öll til keppni verði betri, en á ÍR-mótinu á dögunum, má þá búazt við að kapparnir stökki allt að 16 m. Fjögur beztu þrístökksafrek í heimin- um í ár eru: Riacowski, Rúsl. 16,26 m; Kreer, Rússl. 16,20 -O Evrópumet í stanigarstökki Á frjálsíþróttamóti sem hald- ið var í Miinchen fyrir fáum dögum setti Grikkinn G. Rou- banis nýtt Evrópumet í stang- arstökki. Var árangur hans 4,60 m. Bætti hann þar með eigið met um 2 sm. Hinir 20.000 áhorfendur gátu ekki á sér setið og hlupu inn á völlinn og báru methafann á gullstóli um völlinn. m; Scmidt, Pólland 16,20 m; Tjen, Rússl. 16,00 m. 1 fyrra keppti Vilhjálmur tvisvar við Kreer og Tjen og sigraði þá í bæði skiptin, en ennþá hefur hann ekki fengið tækifæri til að reyna sig við Riacowski og Scmidt. Hvað gerir Valbjörn í kvöld? Eins og kunnugt er þá setti Valbjörn glæsilegt íslandsmet í stangarstökki út í Varsjá fyrir nokkrum vikum. Hann er í góðri æfingu nú og má búast við góðum árangri í kvöld. 1 hástökki getur orðið skemmtileg keppni, en í þeirri grein er um mikla framför að ræða og nýlega stökk Jón Pétursson 1,90 m. Huseby — Skúli í kúluvarpi Skúli Tliorarensen er nú aftur með eftir meiðslin, sem hann hefur átt í undanfarið, en síðast þegar hann og Huse- by kepptu eigraði Huseby með 1 sm mun. I kringlukastinu keppa þremenningarnir: Frið- rik, Hallgrímur og Löve, en þeir eru mjög svipaðir. Mótsstjórnin hefur ákveðið að 10% af því, sem inn kem- ur á mótinu, renni til Eyjólfs Jónssonar sundkappa, en hann ætlar að reyna að synda yfir Ermarsund í næsta mánuði. Auglýsið í Þjóðviljanum Ávarp við komu da Silva 8 íþróttakennarar útskrifast Íþróttakennaraskóla íslands að Laugarvatni var slitið 29. júní ál. Brautskráðir voru 8 iþrótta- kennarar, 4 stúlkur og 4 piltar. Hæstu meðaleinkunn hlaut Ei- ríkur Sveinsson, Akureyri, 8.66. Á þessu vori var tekin í notkun malarvöllur íþrótta- kennaraskóla íslands, er unn- ið hefur verið við undanfarin ár. Bætir hann mjög úr brýnni þörf skólans. Verður hann not- aður jöfnum höndum, fyrir knattleiki og frjálsar íþróttir, á meðan aðalleikvangurinn, sem verður grasvöllur -með 400 m hlaupabraut og stökkgryfj- iim er ekki tilbúinn. Nýjung í starfi skólans má það telja, að dagana 7. til 29. júní sl. var efnt til námskeiðs fyrir leiðbeinendur í íþróttum í samvinnu við iþróttasamband íslands, Ungmennafélag ís- lands, Knattspyrnusambandið, Handknattleikssambandið og' Frjálsíþróttasambandið. Sóttu þetta námskeið 12 piltar. Aðalkennarar voru þeir Haf- steinn Guðmundsson, er kenndi knattspyrnu, Hallsteinn H!in- riksson kenndi handknattleik,. Valdimar Örnólfsson kenndi írjálsar Iþróttir Þórir Þorgeirs- son kenndi hjálp í viðlögum, Björn Jakobsson og Árni Guð- mundsson kenndu líkamsfræði og ræddu um áhrif íþrótta ’á likamann. Nokkrir fyrirlesarar komu að Laugarvatni og ræddu við þátttakendur nám- skeiðsins unr iþrótta- og fé- lagsmál. Þátttakendur gengu undir dómarapróf í knattspyrnu og handknattleik. Prófdómari var Hannes Sigurðsson. Þess er vænzt, að piltar þess- ir vinni mikið og gott starf, er heim kemur með því að stjórna íþróttíyefingum og segja öðr- um til tim iðkun íþrótta. En Eftirfarandi ávarp flutti formaður ÍR, á ÍR-mótinu, áður en einvígi da Silva og .Vilhjálms hófst: Heiðruðu gestir. Góðir áheyrendur. Ágætu íþróttamenn. Á undanförnum árum liefur íþróttafélag Reykjavíkur á hverju sumri efnt til frjáls- iþróttamóta og vandað mjög til þeirra, einkum og sérstak- lega með því að bjóða hing- að heim á mót þessi heim- kunna íþróttagarpa eða jafn- vel íþróttaflokka. I vitund íslenzkra iþrótta- manna og islenzkra íþrótta- unnenda eru ÍR-mótin orðin fastur og merkur iþróttavið- burður á ári hverju, sem beð- ið er eftir með nokkurri eftir- væntingu, líkt og ví.ðavangs- hlaup félagsins hinn f'yrsta sumardag hin síðústu 44 árin er orðið nokkurskonar opnun- arhátíð á vori hverju fyrir frjálsar íþróttir hér í Reykja- vik og reyndar víðar. Ég vona að enginn misskilji orð mín þótt ég fullyrði, að með þessum mótum og á þann hátt, sem félagið undirbýr þau og framkvæmir, hefur það gert íslenzkum frjáls- íþróttamönnum og frjáls- I iþróttahreyfingu meira gagn mikill skorfur leiðbeinenda há- ir nú mjög hinu frjálsa íþrótta-| en nokkur önnur samtök inn- starfi landsmanna. an íþróttahreyfingarinnar, gefið hinum ágætu íslenzku frjálsíþróttamönnum gullin og kærkomin tækifæri til að reyna getu sína og krafta við erlenda íþróttagarpa og þann- ig á sem æskilegastan og beztan hátt undirbúið þá undir landskeppnir í frjálsum íþróttum og miklar iþrótta- keppnir aðrar á erlendum vettvangi, og það er ekki sagt öðrum íþróttagreinum til lasts þótt á það sé bent, að íslenzkir frjálsíþróttamenn hafa öðrum íslenzkum íþrótta- mönnum fremur gert garðinn frægan utan landssteinanna. Þessu til viðbótar er svo einnig rétt að minnast þess, að félagið hefur oft á tíðum ráðið til sí.n kunna erlenda íþróttaþjálfará, svö sem Sví- ana Bergfors og Ole Ekberg, Þjóðverjann Edvard Rúss- mann og síðast hinn þekkta ungverska þjálfara Simonyi Gabor. Þessir menn allir hafa flutt hingað nýjungar, aukið áhuga og áhrifa þeirra hefur sem betur fer gætt langt út fyrir takmörk og raðir fé- lagsins sjálfs. En því miður hefur þessi þáttur i starfsemi félagsins hvorki verið metinn né skilinn af mikileháttar mönnum frjálsíþróttahreyf- ingarinnar sem skyldi — en hinsvegar þeim mun betur af íþróttamönnunum ejálfum, sem vissulega er ánægjulegt og ber að meta og virða. Eg vil líka leyfa mér að trúa á almennan skilning yðar í þessari starfsemi félags vors, þegar ég nú lít yfir hinn mikla fjölda manna og kvenna, sem hér er saman kominn í kvöld, og sannar það ljóslega að iR-mótin eru vinsæl og metin að verðleikum og fólkið skilur ,að hér hefur miklu starfi verið fórnað og mikil verðmæti lögð að veði til þess að mót þetta, tækist giftusamlega og yrði sem glæsilegast. Vissulega er til þess alveg sérstök ástæða að fólk sækir mót þetta hér í kvöld — þar eð hingað er til vor kominn óvenjulegur en mjög kærkom- inn gestur, einn af frægustu ef ekki allra frægasti iþrótta- garpur heimsins, heimsmet- hafinn í þrístökki og tvöfald- ur ólympíumeistari bæði frá Helsinki 1952 og Melbourne 1956 — brazilíumaðurinn Ad- heniar Perreira da Silva sem hjngað er kominn um lengri. veg en nokkur annar íþrótta- maður, sem áður hefur gist land vort. Kæri Da Silva. Það er mér bæði mikill lieiður og sönn ánægja að bjóða þig hjartanlega velkom- inn hingað til Reykjavíkur á‘ vegum félags vors. Okkur er það ljóst að koma þín hingað Framhald á 11. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.