Þjóðviljinn - 20.07.1958, Síða 5
---Sunnudagur 20. júlí 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Kjarkurinn og dugnaðurinn við
uppbyggingarstarfið hefur
skilað glæsilegum árangri
Samtal við Alfreð Gíslason alþingismann
um þingmannaförina til Sovétríkjanna
Eins og skýrt Iiefur ver-
íð frá konr þingmanna-
nefndin sem ferðaðist um
Sovétríkin heim sl. mið-
vikudag. Þátttakendur í
förinni voru, eins og
kunnugt er, Emil Jónsson,
forseti sameinaðs Alþing-
is og var hann formaður
sendinefndarinnar, Pétur
Pétursson, Alfreð Gíslason,
Karl Guðjónsson, Karl
Kristjánsson og Sigurvin
Einarsson.
Nefndin dvaldi róman Iiálf-
an mánuð í Sovétríkjun-
um og ferðaðist víða um.
Þjóðviljinn hitti Alfreð
Gíslason að máli og bað
hanu að segja lesendum
blaðsins j stórum dráttum
frá ferðinni og því mark-
verðasta sem fyrir augun
bar. Fer viðtalið við
Alfreð hér á eftir:
is á Jalta eru hvíldar- og
hressingarheimili með samtals
20 þúsund rúmum.
Á allri suðurströnd Krím-
skaga er fjöldi hressingar-
heimila og hvíldarheimila,
enda loftslag mjög heilnæmt.
Meðalhiti heitasta mánuð árs-
íns er 27 stig en kaldasta ÞingTnannanefndin og leiðsögumenn hennar hvílast eftir að hafa skoðað Bótaníska garð vis-
mánuðinn 5 stig indastofnunar' Sovétríkjanna á Jalta. Á myndinni eru, fremri röð frá vinstri: Pétur Pétursson,
A Jalta skoðuðum við mik- . _ •„ , _ , _ ...............
,..., , ^ Alfreð Gislason, Kutsenko, aðstoðarbæjarstjori a Jalta, Korsjagin, fulltrui í utannkisraðu-
ínn og fjolskruðugan gras- og ’ J J
neytinu í Moskvu, og Tokmakov, starfsmaður Æðsta ráðsins. Efn röð fra vinstn: bigurvm
Hvenær komuð þið til Sov-
étrikjanna og hvemig var
ferðinni háttað í meginatrið-
um?
1 — Við komum til Moskvu
26. júní og vomm þar í tvo
daga áður en lagt var af stað
í ferðina - um Sovétríkin.
Fyrsta kvöldið sáum við ball-
ettinn Svanavatnið og daginn
eftir var Kreml skoðuð og
einnig landbúnaðar- og iðn-
aðarsýningin.
Til Stalingrad fórum við
svo flugleiðis 28. júní. Þar
Var dvalið í 2 daga. Skoðuð-
um við borgina fyrri daginn,
en hún er að mestu nýbyggð,
því 90% húsanna voru eyði-
lögð í styrjöldinni, Hefur ver-
ið unnið þar stórkostlegt
uppbyggingarstarf á skömm-
mm tíma.
Síðari daginn var farið í
bátsferð um Volgu og m.a.
skoðað raforkuverið mikla,
sem á að framleiða 2.3 millj
k\v þegar það er fullgert, og
er hið stærsta sinnar tegund-
ar í heiminum. Siðan var siglt
niður eftir Volgu og inn í
Volgu-Don-skurðinn, sem er
101 km. langur og tengir sam-
an Volgu og.Don. Er hann
mikið mannvirki og glæsilegt.
Að þessari ferð lokinni var
snúið við aftur til Stalingrad.
Til Jalta
Daginn ef.tir, 30. júní, var
haldið flugleiðis suður á
Krimskaga, til Simferopol, og
ekið þaðan í bílum 100 km.
leið suður yfir fjöllin til Jalta,
sem er 85 þús. manna borg.
Þar skoðuðum við m.a. höll-
ina frægu, þar sem Jaltaráð-
stefnan var haldin 1944. Var
hún reist af Nikulási II. 1910
en er nú hagnýtt sem hvíld-
arheimili vinnandi fólks.
Þá skoðuðum við einnig
hressingarheimili þar sem 400
vistmenn dvelja í einu. En
. mjög jmíkið er af slíkum hæl-
um á Krím og einnig hvíldar-
heirhilum Vérkafólks. Einung-
trjágarð sem starfræktur er
á vegum visindastofnunar
Sovétríkjanna. I skógardeild-
inni eru 1500 viðartegundir
víðsvegar úr heiminum. Fram-
kvæmdir við garð þennan
byrjuðu 1912.
2. júlí var farið í 4 klst.
siglingu meðfram ströndinni
og að öðru leyti notið nokk-
urrar hVíldar á þessum heil-
næma og fagra stað, m.a.
stunduð sjó- og sólböð,
I höíuðborg
Hvíta-Rússlands
Eftir dvölina á Krím eða 3.
júlí, var flogið til Minsk,
höfuðborgar Hvíta-Rússlands.
Þann sama dag skoðuðum
við samvinnubú, 50 km. utan
Einarsson, Karl Guðjónsson, Dudin, þingmaður, sem ferðaðist með íslenzku nefndinni, Pétur
Thorsteinsson, ambassador íslands í Moskvu, Emil Jónsson, formaður íslenzku sendinefndarinn-
ar, við hlið hans er forstjóri garðsins, er sýndi, útskýrði og rakti uppruna ýmissa tegunda er
skoðaðar voru, þá er hinn dönskumælaiidi túlkur Scheklein og loks Karl Kristjánsson.
mannvirki sem ekki voru lögð
í rúst af Þjóðverjum við töku
borgarinnar eyðilögðu nazist-
arnir þegar þeir voru hraktir
á braut. Borgin hefur nú ver-
ið endurreist af miklum mynd-
arskap.
Heimsókn til Riga
Þann 5. júlí var haldið frá
Minsk flugleiðis til Riga, höf-
uðborgar Lettlands. Var
okkur samdægurs sýnd borg-
in. Heimsóttum við m.a. eitt
af sölutorgum borgarinnar.
Sendinefndin í barnagarðinuin í Minsk. Barnajárnbrautin til
hægri. Af þingmönnunwn sjást frá vinstri Alfreð Gíslason,
Karl Kristjánsson, Emil Jónsson og á bak við liaim Sigurvin
Einarsson.
við borgina. Bjuggu þar 350
fjölskyldur og stunduðu mest-
megnis nautgriparækt. Um
kvöldið var okkur sýnt fé-
lagsheimili verkalýðsfélaganna
í Minsk. Er það mikil og
vönduð bygging. Þar vorum
við viðstaddir söngskemmtun
og danssýningu.
Næsta dag var farið í heim-
sókn í geysistóra bifreiðaverk- ’
smiðju. Ég sá hana þó ekki
þar sem ég notaði þann tíma
til að heimsækja sjúkrahús.
Þann dag skoðuðum 'við einn-
ig barnajárnbraut í sérstök-
um garði, þar sem börnum er
kennd umferðarstjóm og járn-
brautarstjóm. Ókum við um
stund méð járnbrautinni, sem
er 15. km. á lengd.
Síðdegjs var okkur sýnt
striðsminjasafn borgarinnar,
en Minsk var svo að segja
gereyðilögð í styrjöldinni. Þáu
Var þar á boðstólum kjöt,
grænmeti og fiskur. Þá heim-
sóttum við einnig fiskniður-
suðuverksmiðju og klúbbhús
sjómanna í borginni. Um
kvöldið sáum við nýja óperu
eftir lettneskan höfund.
Næsta dag, 6. júlí, sem var
sunnudagur, skoðuðum við
hressingarheimili á ströndinni
utan við borgina. Var það
byggt 1936 og er ætlað 275
vistmönnum. Þarna notuðum
við einnig sjóinn og sólskinið
okkur til hressingar. Síðari
hluta dags var farið á mikla
stúdentasönghátíð, sem stúd-
entar frá ýmsum lýðveldum
Sovétríkjanna tóku þátt í. Um
kvöldið horfðum við á körfu-
knattleik milli Letta og Búlg-
ara. Var það. úrslitaleikur um
Evrópumeistaratitilinn og
unnu sovézkir leikinn..
Daginn eftir, eða 7. júlí,
heimsóttum við stærstu verk-
smiðju Lettlands, en 'hún
framleiðir útvarps- og síma-
tæki. Eru starfsmenn þar yf-
ir 10 þús. Að því loknu var
ekið í bílum 50 km. leið norð-
ur með Riga-flóa og þar
skoðum samvinnuútgerð.
Eru þaðan gerðir út vélbát-
ar sem stunda veiðar á
Eystrasalti og eru 500 sjó-
menn þátttakendur. Fiskimenn
hafa þarna góðar tekjur, ca.
20 þús. rúblur á ári. Utgerð-
in byggir þarna snotur, 4ra
herbergja nýtízku íbúðarhús
fyrir sjómennina. Kostar
hvert hús 44 þús. rúblur og
fá' sjómenn vaxtalaust lán
til 10 ára til að eignast hús-
ið. — Samvinnuútgerðin hefur
einnig byggt stórt og vandað
félagsheimili fyrir sjómenn og
skoðuðum við það. Húsið er
4 hæðir og allt með miklum
menningarbrag.
I Leningrad
Eftir dvölina í Riga, eða 8.
júlí, var flogið þaðan til Len-
ingrad á 2 klst. Það fyrsta
sem við skoðuðum þar var
feiknamikil verksm’iðja, sem
framleiðir túrbinur fyrir gufu-
og vatnsafl. Framleiðir þessi
verksmiðja m.a. allar túrbín-
ur fyrir raforkuverið mikla
við Stalingrad og veitir «m
7000 manns atvinnu. Eftir
þessa heimsókn í verksmiðj-
una var ékið um Leningrad og
okkur sýndar markverðustu
byggingar og minnismerki. M.
a. sáum við nýjan íþróttaleik-
vang, fagurt og mikið mann-
virki, sem rúmar 100 þús.
manns í sæti.
Annan dag heimsóknarinnar
til Leningrad skoðuðum við
Vetrarhöllina og „Eremitage",
en hvorttveggja er nú minja-
og listasöfn. Siðdegis var far-
ið til Peterhof, sem er mik-
ill listigarður utan við borg-
ina. I honum eru 129 gos-
brunhar af ýmsum gerðum.
Þessi garður var gereyðilagð-
ur af Þjóðverjum í umsátrinu
um Leningrad en hefur nú að
fullu verið komið í sitt fyrra
liorf.
Á leiðinni frá borgiimi og
út í Peterhof var okkur sýnd-
ur staðurinn þar sem Þjóð-
verjar komust næst Lenin-
grad í styrjöldinni en hann
er aðeins 7 km frá borgir.ni,
en eins og kunnugt er stóð
umsátrið um Leningrad á
þriðja ár.
Aftur til Moskvu
Um miðnættið 9. júlí var
Leningrad kvödd og lagt af
stað með næturhraðlest til
Moskvu. Komum við þangað
kl. 8 að morgni og dvöldum
þar nú í tvo daga. Skoðuðum
við m.a. háskólann nýja á
Leninhæðum og nýtt íbúðar-
húsahverfi í útjaðri borgar-
innar. Síðdegis heimsótti ég
stærsta geðveikrasjúkrahús
borgarinnar. Eru þar um 2000
sjúklingar.
Seinni daginn í Moskvu, 11.
júlí, áttum við fund með for-
setum beggja þingdeilda sov-
ézka þingsins í Kreml og
heimsóttum forseta Sovet-
rikjanna, Vorosiloff. Hann er
76 . ára gamall, virðulegur
maður og elskulegur í við-
móti. Síðdegis var okkur
haldið kveðjuhóf og þar af-
•henti Emil Jónsson gjöf Al-
þingis íslendinga til Æðsta-
r.áðs Sovétríkjanna, en það
var málverk af Þingvöllumi
eftir Kjarval.
Með þotu til
Hafnar
Morguninn eftir var lagt af
stað frá Moskvu til Kaup-
mannahafnar með sovézkri
þotu. Tók ferðin röska tvo
tíma. Var farið frá Moskvu
kl. 7 um morguninn og lent í
Kaupmannahöfn kl. liðlega 7,
hvorttveggja á staðartímn.
Þetta er ferðasagan í stór-
um dráttum. Með okkur frá
Moskvu til Riga var Pétur
Thorsteinsson ambassador ís-
lands í Sovétríkjunum. Þá
voru með okkur alla ferðina
einn af meðlimum Æðsta ráðs-
ins, Dudinr og tveir starfs-
menn utanríkisráðuneytisins,
auk túlks.
Móttökur allar á hverjum
stað voru með afbrigðum góð-
ar. Á hverjum flugvelli var
tekið á móti okkur af sérstöli-
um móttökunefndum og börit
eða ungar stúlkur færðu okk-
ur blómvendi ög íslen2kur
Framhald á 7. síðu.