Þjóðviljinn - 25.07.1958, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 25.07.1958, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. júU 1958 — ÞJÓÐVILJINN (3 Er framkvæmd frj álsíþróttamóts að i fæla áhorfendur frá mótiimmi? Þeir sem fylgzt hafa með frjálsíþróttamótum í sumar munu hafa veitt því athygli hve keppni í frjálsíþróttum gengur illa. Af einhverjum á- stæðum er Þeim raðað svo nið- Ur að oft er aðeins ein grein í gangi í einu eða jafnvel eng- in. Þessi dauðu augnablik eru vel til þeás fallin að fæla alla áhorfendur frá því að koma til þess að horfa á það sem er að gerast. Mörg afrek fljálsíþróttamanna eru það góð að margir mundu hafa gaman af því að horfa á þá í keppnj. Það virðist sem það vanti alla tækni í því að raða þessu þannig niður að alltaf sé eitthvað að gerast og að koma því svo fvfir að þessi ,,göt“ komi ekki á framkvæmd- ina. Ef við athugum nú síðasta keppnisdaginn í frjálsum í- þróttum sem var síðari dagur Reykjavíkur-meistaramótsins, þá er þar fyrst til að taka að keppnin hófst 13 mín. eftir auglýstan tima. Er slíkt algjör óþarfi þar sem allir vita um byrjunartímann, og' keppt á heigidegi. hvort hér er um að Tæða stjórnleysi starfsmanna og að þeir komi ekki til leiks eða að það sé óhiýðni kepp- enda er ekki vitað, en það er sama hvort er, það er ekki nein afsökun. Áhorfendum er boðað að mótið hefjist ó ákveðnum tlma og þeir hafa greitt að- gangseyri, og hafa því kröfu á því að við þetta sé staðið! Koma til leiks eftir 10—13 mínútur Það liðu 13 mínútur frá því byrjað var að kalla í 100 m hlauparana til þess að Iáta þá hlaupa, þangað til að þeir sá- ust færa sig úr skjólfötum til Bandarískir ræð- arar hefna sín í IMoskva Þrátt fyrir allt kalda stríðið á hinum póiitíska V'ettvangi milli austurs og vesturs, og mitt í því, skeður það, sem aldrei hefur skeð fyrr, að kapp- ræðarar frá Bandaríkjunum eru um þessar mundir í Sovét- ríkjunum í róðrarkeppni við sovétræðara. Þeir áttust fyrst vdð fyrir tveim vikum í Henley- róðrarmótinu í London og fóru þá ieikar þannig að Trud frá Leningrad vann með einni báts lengd, lið frá Washingtonhá- skólanum. Þaðan fóru Bandaríkjamenn- irnir í heimsókn til Sovét og kepptu við Trud aftur á kapp- róðrafmóti rétt fyrir utan Moskva og fóru leikar þannig að Bahdaiikjamennixnir unnu og var timi þejrra 6:18,5 en tími Rússanna 6:24,2. Framhald á 2. síðu þess að hefja hlaupið. Á meðan vrar lítið og ekkert að gerast annarsstaðar. Það var mönnum mikil ráðgáta hvað tafði hlaup- arana, og það var ekki auð- skilið hversvegna þetta hlé þurfti að vera. Tiu mínútur liðu frá því byrjað var að kalla i 1500 m hlauparana þar til þeir sáust fara.úr til þess að hefja hlaup- ið og á þeim tíma var aðeins kringlukastið í g'angi. Var verið að gefa livíldir? Þetta mót var með þeim hætti að það var stigamót þar sem um það var keppt milli félaganna hvert fengi flest stig' og það sem flest hlyti fékk svo sæmdarheitið „Bezta frjáls- íþróttafélag Reykjavíkur“. Þetta er enginn smávegis titill, enda einskis látið ófreistað að ná honum. Það virðist allt í einu ekki stórkostlegt þó ár- angurinn sé ekki sem beztur aðeins ef viðkomandi er í sæti sem gefur stig. Og það virðist þráuthugsað og- vandlega at- hugað að láta þó menn sem eru fjölhæfir keppa í sem flestum greinum, ef smávon væri að ná útá það nokkrum stigum. Samkvæmt leikskránni eru menn skráðir i allt að 8 greinum fyrir utan boðgrein- ar-! Þessir vísu menn virðast ekki sjá annað en stigin og það sem þeim viðkemur. Þeir virðast ekki koma auga á það að þetta er að misnota mennina og það á tvennan hátt: Þeir láta þó taka nærri sér í mörgum grein- um sama daginn, og sennilega mun afsökunin sú að þeir séu í það góðri æfingu að þeir þoli þetta vel, og vel má svo vera. í annan stað virðast þeir ekki koma auga á það að þeir sem keppa í mörgum greinum á svona móti standa í veginum fyrir öðrum, þeir, eða þeir sem því ráða verða óbeint til þess j að halda öðrum íþróttamönn- um, ef til vill ungum efnivið i utan við keppnina, utan við | möguleikann að komast að,j vera með. Takinarka þátttöku við ák\-eðinn fjölda greina Flestöll stigamótin hafa verið hálfgerð misnotkun á mönnum og' nærri alltaf hafa menn ver- ið óónægðir með þetta fyrir- komulag, en af einhverjum á- stæðum ekki viljað hætta við það. Ef frjálsíþróttamenn tækju upp þann sið að binda þátt- töku manna þannig. að þeir mættu taka þátt í t. d, 3 keppn- isgreinum og svo boðhlaupum, mundi svipur mótsins verða allt annar. Hinir góðu mundu einbeita sér betur, nýir menn mundu komast að, og ef til vill fá aukinn áhuga, þeir kæmu með í það að afla félagi sínu stiga sem þeir hafa ef til vill ekki gert svo mikið af áð- ur, þeir fengju aukið sjálfs- traust og mundu í flestum til- fellum leggja meira að sér að æfa undir slíka keppni þar sem þeir vita að með þeim er reikn- að. Margt fleira mætti benda á í sambandi við framkvæmd mót- anna, sem virðjst hafa misst alla þá tækni, sem um eitt skeið var orðin töluvert mikil enda komu þá fleiri til að horfa á úrvalsmenn þeirra tíma, þó afrek þeirra séu ekkert betri en þau sem í dag má sjá. Frjálsíþróttamenn eiga það líka skilið að mót þeirra séu sett vel- á svið, þeir æfa allra manna bezt, og hvað það snert- ir leggja mest að sér og árang-- ur þeirra er líka það bezta sem við höfum upp á að bjðóa. Þetta er mál sem forráðamenn. frjáls- íþrótta verða að taka föstum tökurn og finna aðra skipan á málunum ef þeir ætla að halda vináttu við fólkið, og aðdáun þess. Frjálsar íþróttir hafa ekki efni á því að virða það vinfengi að vettugi, það hefur engin iþróttagrein. Fyrir dyrum stendur nú aðal- mót ársins í frjálsum íþróttum, s.s. Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum, sem fei farm núna um hélgina. I þetta sinn er það einnig mótið sem ef tii vill verður það sem sker að mestu úr um það hvaða menn fara til Stokkhólms til þátttöku í Evrópumeistaramótinu sem þar fer fram um 20. ágúst. Verður gaman að fylgjast með þvi hvernig' að því verður staðið, að framkvæma það. Hvort forráðamenn mótsins ins geri eins og gert var fyrir nokkuð mörgum árum að þeir tali við blaðamenn urn það sem á að gerast, augiýsi það eins og ó að gera, en frá því hefur ver- ið horfið um nokkurra ára skeið nema þá með stuttum og ómerkilegum klausum sama dag og það á að fara frarn. Það er byrjunin á því að ná til fólksins. Áframhaldið er svo úti á velli, að mótið fari þannig frarn að fólkið sem haft var samband við fyrir milligöngu blaðanna skemmti sér, í stað þess að láta sér leiðast. Að það standi sem sagt var, og með því forðast að það verði fyrir vonbrigðum. Við sjáum hvað setur. 3 Þjóðverjar hlaupa 199 m á 19.2 Á meistarakeppnjnni í Vest- ur-Þýzkalandi sem fram fór um helgina, náðist góður árangur í ýmsum greinum. Þeir Heins Fútterer og Arm- in Harry hlupu 100 m á 10.2 í undanrásum, en í úrslitum vann Manfried Germar á 10.2 en hafði í undanrásum 10.4, Arm- in Harry fékk 10.2 í úrslitunum en var sýnimun á eftir Germar. Af öðrum úrslitum má nefna: 400 m hl. Kari Kaufmann 46.9; 800 m hl. Paul Schmith 1.49.4; Hástökk Theodor Pell 2.02; 400 m grindahl. Helmut Janz 52.3; Langstökk Manfred Molzberger 7.72; Kúluvaip Hermann Lingn- au 17.12; 4x100 m ASV, Köln. 2—4 herbergja íbúð óskast til leigu. Upplýsingar í síma 17500. AÐALFUNDUR Flugíélags íslands h. í. verður haldinn í Kaupþingssalnum j Reykjavk, föstudaginn 25. júlí og hefst kl. 2 e. h. D A G S K R Á : 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar fyrir fundinn verða afhentir í skrifstofu félagsins, Lækjargötu 4. Stjórnin. TATRA—eigendur Cyiindrar og stimplar í TATRA nýkomnir. — SK0DA—verkstæðið við Kringlumýrarveg, áltmi 32881. Þjóðviljinn óskar eftir i útsölumönnum til að sjá um dreifingu og innheimtu fyrir blaðið á eftirtöldum stöðum: Patreksíirði 1 Bíldudal / ! Bolungavík ' f ^ Húsavík ^ -Tssa Rauíarhöín Eskiíirði Góð ómakslaun greidd. Upplýsingar í skrifstofu blaðs* ins, Skólavörðustíg 19, sími 17-500. Þjóðviljinn Nú geta allir eignazt listaverk w Málverkaprentanir Helgafells munu eiga mikinn þátt í þjóðar- > uppeldinu ‘ á næstu árum. Látið ungling- ana alast upp í náinní. sambúð Adð meistara Kjarval, Ásgrím, Jón Stefánsson, Scheving og aðra stórbrotna myndlistarmenn okkar. — 1 Látið börnin strax læra að kynnast mynd- list, drekka áhrif henn- ar í sig eins og móður málið. Málverkaprentair okkar ujóta sín til fulls í litlum herbergjum. Gefið krökk- unum myndirnar jafnótt og þær koma. Nú eru til myndir eftir Ásgrím, Kjarval, Jón Stefánsson, Schev- ing, Þorvald, Svavar, Þórarinn Þorláksson og Engil- berts. Helgafell, Unuhúsi Veghúsasd g 7 — (Sími 16837)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.