Þjóðviljinn - 14.08.1958, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 14.08.1958, Qupperneq 3
Ómur fornra braga Hallfreður Örn Eiríksson cand. mag. segir frá Vestfjarðaför í leit að rímnastemmum og kvæðamönnum Á vegum menntamálaráðs og Ríkisútvarpsins hefur veriö unnið að því í sumar að safna kvæðaíögum á Vest- fjörðum í því augnamiði að finna og bjarga frá glötun stemmum er þar kynnu að geymast, en lívergi annars- staðar. Það er nú hver síðastur að safna slíku, — og líklega nokkrum árum of seint byrjað á þessu, en þó þakkar- vert að þetta er gert, þótt seiht sé. Fimmtudagur 14. ágúst 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Fylgizt með ^erðlaginu Það var annan sólskinsdag- inn eftir norðankuldann í síð- ustu viku að ég stóð allt í einu auglití til auglitis við Hallfreð Örn Eiríksson, úfin- hærðan og sólbrenndan, en þann mann hafði ég ekki séð lengi sumars. • Fornar geymdir — Hvaðan ber þig að, Hall- freður? — Af Vestfjörðum, — úr kvæðamannaleit. — Hvaða leit er nú það? — Forsaga málsins er sú að útvarpsráð samþykkti að skora á útvarpsstjóra að beita sér fyrir því að tekin yrðu rímna- iög á tónband í ákveðnum landshluta og Vestfirðir, þ. e. ísafjarðarsýslur og Barða- strandasýsla urðu fyrir valinu, því þar þótti helzt kvæða- manna von. — Hvers vegna var helzt vænzt kvæðamanna á Vest- fjörðum? Vegna þess að það er af- skekktasti landshlutinn og því þótti helzt von þess að þar finndust kvæðalög er ekki væri annarsstaðar að finna, auk þess er talið að Vestfjrðingar séu nokkuð fastheldnir á forna og góða siði. • Kveðskapur dvinandi — Nokkru síðar, heldur Hall- freður áfram, vakti útvarps- stjóri máls á þessu í mennta- málaráði, er samþykkti eftir nokkrar umræður að veita fé til þess að kosta leitina að kvæðamönnum, gegn nokkru framlagi frá útvarpsins hálfu og sæi útvarpið um upptökur sem gerðar yrðu. Úvarpsstjóri lagði til að fara í könnunarferð fyrst, án hljóð- ritunartækis og fara aftur seinna til upptökunnar. Þetta hefúr reynzt vel, því kvæðalist- in er mjög dvínandi, og marg- ir hafa ekki verið viðbúnir að kveða, án þess að fá tíma til þess að rifja kunnáttu sína og stemmur upp áður. • Á þriðja tug kvæðamanna — Og þú varst svo ráðinn stemmuleitarmaður. Hvað fannstu svo marga kvæða- menn? — Á þriðja tug kvæðamanna komst ég í kynni við. Flestir , eru karlar en þó 4 eða 5 kon- ' ur. — Heyrðirðu þetta fólk kveða? — Já, sumt af því heyrði ég kveða. — Kvað það einhver lög sem ekki eru til annarsstaðar? — Eg vil sérstaklega nefna Finnboga Bernódusson í Bol- ungavík, er kvað fyrir mig nokkrar stemmur sem senni- lega eru ekki til í neinu þekktu rímnalagasafni, • Útvarpsrímnalögin þeim framandi — Annars luku allir kvæða- menn sem ég talaði við, segir Hallfreður, upp einum munni um það, að þeir könnuðust ekki við rímnalögin sem kveðin hafa verið í útvarpið undanfar- ið, eða þekktu þau í mjög breyttri mynd. • Erfittaðfá þjóðsögur — Auk þessa aðalstarfs, seg- ir Hallfreður, reyndi ég að at- huga með þjóðsögur og þjóð- legan fróðleik, en varð raun- ar mjög lítið ágengt. Bæði er að þjóðsögum hefur verið safn- að þarna og auk þess krefs't það meiri tíma en ég hafði yfir að ráða. Þetta svæði er mjög ólíkt öðrum landsfjórðungum er ég hef dvalizt í áður, á Norður- landi og Vesturlandi, atvinnu- hættir fornlegri þar vestra. • Orðasöfnun —* Hafðirðu ekki samband við ritstjóðn orð’abókar Há- skólans áður en þú fórst um að nota ferðina til að safna orðum? — Jú, ég hafði samband við þá og fór með nokkra lista er þeir hafa verið að dreifa út, um veðráttu og búfé. — Hlustaðirðu ekki eftir orð- um sem þú hafðir ekki heyrt áður? — Jú, ég heyrði nokkur orð sem ég hafði ekki heyrt áður, en eru notuð þarna almennt, en vera kann að mörg orð sem ég hef skráð sé að finna í orðabók Sigfúsar Blöndals, því ég hafði enga aðstöðu til að athuga það í ferðinni. — Hlustaðirðu eftir fram- burði? — Já, en ég fann ekki mikið af slíku. Eitt orð bera eldri menn þar vestra fram með öðrum hætti en venja er, þeir segja malning í stað má'lning. Annars litfur þetta verið at- hugað áður, m. a. gerði dr. Björn Guðfinnsson framburð- arrannsóknir þarna. • Rímur — Sálmar — Grallari — Og nú ferðu í uppskeru- ferð? — Já, ég fer fljótlega aftur í upptökuferð. Upptökur settu að geta orðið góðar, því flestir þeirra manna sem kveða eru fluttir til þorpanna. Það er svo einkennilegt að eldri mennirnir eru fluttir til þorpanna vestra en meira af ungum mönnum í sveitum. Auk rímna er ætlunin að taka upp sálmalög', sem varð- veitzt hafa afbrigðileg þarna. ívar ívarsson í Kirkjuhvammi í Rauðasandshreppi kann dá- lítið af grallaralögum eins og þau voru sungin, og það er fyrirhugað að taka þau líka upp. Hallgrímur Helgason hafði Hallfreður Örn Eiríksson tal af þessum manni fyrir tveim árum og fyrirhugaði upptöku, en .ekki orðið af því enn, og verða nú lög hans tek- in upp á vegum Ríkisútvarps- ins, Annars eru Vestfirðir á margan hátt merkilegur lands- hluti. Ef Þjóðminjasafnið hygð- ist taka þjóðlífsmyndir er þarna ýmislegt merkilegt sem er að hverfa. • Galdrar — Draugfar — Hittirðu marga galdra- menn í Arnarfirði? — Nei, galdramenn hitti ég enga; ákvæðavisu heyrði ég enga, Hinsvegar reyndi ég að safna lausavísum. — Varstu var við nokkra draugatrú? — Nei, ekki fannst mér bera á því, en þótt að slikt fyndist væri ekki víst að verið væri að flíka því. Almenningur ger- ir oft óþarflega erfitt fyrir um þjóðfræðarannsóknir, — af eintómum misskilningi. • Barðist við draug — Annars hitti ég einn mann þar vestra sem kveðst hafa barizt við draug og skýrði mér frá þeirri viðureign, og skráði ég þá frásögn hans. • Fjörulallar — Nokkur huldufólkstrú? — Nei, engin, að því er bezt varð að komizt. — Rakstu á nokkra fjöru- lalla? — Nei, enga, né nokkrar sagnir af þeim. — Þá ætti ég -líklega að benda þér á Arnfirðinginn sem eitt sinn lýsti fyrir mér hat- ramlegri skothríð á fjörulalla. Annars vii'ðist af þessari ferð þinni að öll forneskja sé nú út- Framhald á 8. síðu. Til þess að almenningur eigi auðveldara með að fyigjast með vöruverði, birtir skríf-' stofa verðlagsstjóra eftirfar- andi skrá yfir útsöluverð nokk- urra vörutegunda í Reykja- vík, eins og það reyndist vera 1. þessa mánaðar. Verðmunurinn, sem fram kemur á nokkrum tegundanna stafar af mismunandi tegund- um og / eða mismunandi inn- kaupsverði. Nánari upplýsingar um vöru- verð eru gefnar á skrifstofunni eftir því sem tök eru á, og er fólk hvatt til þess að spj'rjast fyrir, ef því þykir ástæða til. Upplýsingasími skrifstofunn- ar er 18336. Matvönir og nýlenduvörur. (Fremri dálkurinn sýnir lægsta útsöluverð, aftari hæsta verð). Rúgmjöl pr kg. 2,75 2,90 Hveiti pr. kg. 3,20 3,60 Haframjöl pr. kg. 3,10 Hjd isgrjón 5,10 Sagógrjón 4,95 5,30 Kartöflumjöl 5,85 Te 100 gr. 8,75 10,45 Kakao W. 250 gr. 11,35 14,05 Suðusúkkul. Sír. 76.80 83,40 Strásykur pr. kg. 4,45 4,95 Molasykur pr. kg. 5,85 6,45 Púðursykur pr. kg. 5,35 6,05 Rúsínur steinl. 22,00 31,65 Sveskjur 70/80 19,00 32,15 Kaffi br. & mal. 43,60 Kaffibætir 21.00 Smjörl. niðurgr. 8,90 Smjörl. óniðurgr. 13,80 Fiskbollur 1/1 ds. 12,75 Kjötfarz kg. 19.00 Þvottae. Rinso 350 7,90 10,05 — Sparr 250 gr. 4,30 — Perla 250 3,65 4,30 — Geysir 250 3,65 4,05 Landbúnaðar\'örnr og fleira. Súpukjöt 1. fl. pr. kg 25,25 Saltkjöt — — 25,90 Mjólkursl.smjör, niðgr. 41, S0 — — —- óniðgr. 62,50 Saml.smjör, niðgr. kg. 38,50 — — óniðgr pr. kg. 59,18 Heimasmjör, niðgr. kg 30,00 — — óniðgr. kg. 50.60 Egg, stimpl. kg. 31,80 — óstipl. kg 29,40 Fiskur. Þorskur nýr, hausaður 2,90 Ýsa, ný, hausuð 4,00 Smálúða 8,00 Stórlúða 12.00 Saltfiskur 7,00 Fiskfarz 9,50 Kvöldferð £F.R. í KVÖLD efnir ÆFR einu sinni enn til kvöldferðar. Þær ferðir hafa allar tekizt mjög vel og eiga vaxandi vinsæld- um að fagna, en nú er faríð að líða svo nærri hausti, að þeim fer að fækka, sem hægt verður að fara á þessu sumri. Að venju verður ekki ákveðið hverf halda skal fyrr en lagt verður a.f stað. Fylkingin mun leggja til kaffi í ferðina, en þátttakendur hafi sjálfir með sér nesti. Öllum er heimil þátt- taka og ber að tilkynna hana á skrifstofu ÆFR í Tjarnar- götu 20, opið klukkan 6—7 e.h. sími 17513. Lagt verður af stað I ferðina kl. 8 e.h. frá Tjarnar- götu 20. G^ænméti. Tómatar 2. fl-. kg 26,80 Gúrkur 1. fl. kg 8,85 Ýmsar vörur. Olía til húsakyndingar ltr 1,01 Kol pr tonn 710,00 — ,ef selt er minna en 250 kg. pr. 100 kg. 72,00 Sement pr. 50 kg. 37,00 Ferðaféiag íslands: Fjailabaksferðá laugardaginn Ferðafélag Islands efnir til ferðar um Fjallabalisveg nyrðri og hefst ferðin á Laugardaginn. Farið verður alla leið austur í Núpsstaðarskóg, og er þessi leið hin margbreytilegasta. Lagt verður af stað klukkan 8 á laugardagsmorguninn og fyrsti áfangastaður Landmanna laugar, síðan um Jökuldali og Eldgjá og niður í Skaftafells- sýslu, austur Síðuna og inn í Núpsstaðaskóg -— Heimleiðis verður farin byggðaleiðin undir Eyjafjöllum. Páll Arason: Þórsnörk —Haga- vatn Ferðaskrifstofa. Páls Arason- ar efnir til tveggja ferða um næstu helgi: inn í Þórsmörk og að tíagavatni. Verður gengið á Langjökul. 9 iiámsmcnn til Bandaríkjanna S. 1. miðvikudag fóru níu íslenzkir framhaldsskólanem- endur héðan með flugvél Loft- leiða til New York. Nemendur þessir, sem eru á aldrinum 16 til 18 ára, munu stunda nám við bandaríska gagnfræða- og menntaskóla í eitt ár á vegum félagsskapar, er nefnist Ameri- can Field Service. Félagsskapur þessi veitir nemendunum styrk, sem nemur liúsnæði, fæði, skólagj"ldum, sjúkrakostnaði og ferðalögum innan Bandaríkj- anna. Meðan dvalið er í Banda- ríkjunum búa þeir hjá banda- rískum fjölskyldum í námunda við hina ýmsu skólá, sem dreifðir eru um Bandaríkin. Þetta er í annað skipti, sem íslenzkir framhaldsskólanem- endur fara vestur á vegum American Field Service, sem er í nánum tengslum við Is- lenzk-ameríska félagið í Reykja- vík varðandi allan undirbún- ing og fyrirgreiðslu til handa þeim nemendum, sem héðan eru valdir. Islenzku nemendurnir, sem fóru vestur að þessu sinni, eru: Anna Sigtryggsdóttir, Ásdís Hannesdóttir, Halldóra Frið- riksdóttir, Hrafnhildur Bryn- jólfsdóttir, Hólmfríður Egils- dóttir, allar frá Reykjavík, Magnús Sigtryggsson, Keflavík, Margrét Ingvarsdóttir, Reykja- vík, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Reykjavík og Sólveig Karvels- dóttir, Ytri-Njarðvík. (Frá ísl.-ameríska félaginu).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.