Þjóðviljinn - 24.08.1958, Síða 1

Þjóðviljinn - 24.08.1958, Síða 1
Lúðvík Jósepsson sjávanítvegsmálaráðherra, í viðtali við Þjóðviljann í gær: Tólf mílna fiskveiðilandhelgin tek- ur gildi fyrsta september 1958 Engar undanþágur fyrir erlend veiSiskip koma til greina Ákvörðunin um 12 mílna fiskveiðilandhelgi ís- lands verður framkvæmd mánudaginn 1. september '1958. Undanbagur til erlendra fiskiskipa koma þar ekki til greina. Með þessum afdráttarlausu yfirlýsingum lauk Lúð- vík Jósepsson sjávarútvegsmálaráðherra viðtali við Þjóð- viljann í gær, og svaraði ýmsum þeim áleitnu sögu- sögnum um undanslátt í málinu er legið hafa í loftinu undanfarna daga. ★ Enginn beðinn um hernaðarhjálp — Hvað segir þú um sögu- sagnirnar um landhelgismálið sem berast eins og skæða- drífa frá útlöndum þessa dag- ana? — Þær sögusagnir munu flestar komnar frá erlendum blaðamöunum og er þar margt skrýtið á ferðinni, segir ráð- herrann. Eitt er það að við íslendingar ættum að hafa leit- að til Rússa um aðstoð til að halda uppi gæzlu nýju fisk- veiðilandhelginnar, og ættum jafnvel von á flota þaðan. Aílt slíkt er auðvitað til- hæfulaust með öllu. Okkur hefur ekkj komið til hugar að leita tjl neinnar þjóðar eftir heniaðarlegri hjálp. Allar sögur um sórstakar viðræður við Rússa í sam- bandi við landhelgiua eru staðleysa. ^ Frestur kemur ekki til mála — Sögusagnir um hugsan- lega frestun á framkvæmdum 1. september eru sérstaldega áleitnar. Islendingar unnn Ira í bridge Á Evrópumeistaramótinu í bridge í Osló sigruðu Islending- ar íra í fyrradag með 64 gegn 40. Italir unnu Dani, Austur- ríkismenn unnu Spánverja, Egyptar Þjóðverja, Frakkar unnu Svía, en jafntefli varð hjá Hollendingum og Finnum. I sjöuntdu umferð unnu Frakkar Belgiumenn, Svíar Egypta, Danir Spánverja, Finn- ár Ira, Italir Englendinga og jafntefli varð lijá Austurríkis- mönnum og Isíéndingum.' . 1- kyennaflokki vann Noregur Þýzkaland, Svíþjóð Finnland, Frakkland vann England, Dan- mörk vann Belgíu og Austur- ríki vann Irland. íslenzka sveitin eat hjá. — Já, það hafa alltaf öðru hverju komið fram þær sögu- sagnir að í ráði væri að fresta framkvæmd ákvörðunar- innar um 12 mílna fiskveiði- landhelgi. Enginn fótur er fyrir þeim sögusögnum. Það hefur ekki hvarlað að íslendingum að fresta framkvæmd ákvörðunar- innar. Ákvaaðin um 12 inílna fiskveiðilandhelgi eru þegar orðin okkur lög og þeim verð- ur framfylgt eins og reglur standa til. 'Ár Enqir ,,samningar" í París — Flestar þessar sögusagn- ir i seinni tíð eru f einhverjum tengslum við viðræðurnar i París. — Það er með öllu rangt, sem haldið hefur verið fram, að íslenzk stjórnarvöld taki þátt í nokkrum ,,samningum“ í Paits eða annarsstaðar um landhelgismálið. Stjórnin hefur meira að segja lýst því yfir mjög eindregið, að hún semur ekki um málið. Hitt er svo vitað mál að ýms- ir aðilar í Atíanzhafsbandalag- inu o£’ meðal þeirra Vestur- Evrópuþjóða er stnðið hafa gegn stækkun fiskveiðiland- helgi við Island, hafa hvað eftir annað ha.fið umræður um það mál, og er auðvitað ekki á valdi íslendinga að meina þeim það, hvorki innan Atlanzhafsbandr.lagsins eða annars staðar að ræða málið. En frá í.slandi er engin sendinefnd í París og í is- lenzku r Msstjóruimii hefur það ekki komið til mála að se.inja um neinar breytingar á þeirri ákvörðun sem gerð hefur verið. 'fc Samningar við ein- stök lönd óíær leið — Enn er verið að ympra á því að ákvörðunin um 12 mílna landhelgi hafi vei-ið tek- in án nægilegs undirbúnings. •— Já, allmikið hefur verið reynt að halda þvi fram nú síð- ustu vikurnar að afstaða okk- ar íslendinga væri einstreng- ingsleg, að við höfum neitað samningum við aðrar þjóðir og átalið að við skulum telja Lúðvík Jósepsson sjávarútvegsmálaráðherra okkur hafa rétt til að ákveða fiskveiðilandhelgina einir og einhllða. Það er því rétt að leggja áherzlu á að einhliða yfirlýs- ing okka.r um stærð fiskveiði- Iandhelginnar er gerð af okkar hálfu á nákvæmlega saina liátt og nær allar þjóðir hafa gert, þegar uin hreytingar á land- lielgi þeirra hefur verið að ræða. Þegar Norðmenn breyttu sinni landhelgi síðast, gerðu þeir það með slíkri einhliða tilkynningu, en höfðu ekki samninga um málið. Og þegar við Islendingar breyttum okk- ar fiskveiðilndhclgi 1952, gerð- | um við nákvæmlega hið sama. hefur þetta verið gert undan- farna áratugi af mörgum þjóð- um. Enda er hitt nær ófram- kvæmanlegt .fyrir þjóð, sem breyta vill landhelgi sinni að semja við hverja einstaka þjóð, sem ákvörðunin kynni að snerta að einhverju leyti. Við hefðum þá t.d. orðið að hefja sérsamn- inga við öll strandrkki Vestur- og Norður-Evrópu, frá Portú- gal og Spáni til Sovétríkjanna, en þau hafa mjög ólík sjónar- mið innbyrðis á þessu máli. Sjá allir að sú leið er óhugs- andi. ísland leitaði eftir alþjóðareglum — En alþjóðlegir samningar? — Eina hugsanlega leiðin til beinna samninga um stærð landhelginnar, áður en Islend- ingar tóku ákvörðun sína, hefði verið á alþjóðavettvangi, þar sem allar þjóðir heims hafa aðstöðu til að standa að alls- herjarsamþykkt um landhelgis- mál. En ekki er hægt að saka Island um að sú leið var ekki farin, því eftir slíku samkomu- lagi höfum við Isleiulingar leit- að í mörg ár. Árið 1949 lögðum við gagn- gert til, að alþjóðalaganefnd Sameinuðu þjóðanna yrði falið að gera tillögur um stærð land- helginnar. Þær þjóðir, sem nú standa fast á mótí ákvörðun okkar voru andvígar þeirri til- lögu. Þv| miður varð alþjóða- laganefndin ekki sammála um eina tillögu um stærð land- helginnar. Síðar lögðum við til að þing Sameinuðu þjóðanna tæki af- stöðu til málsins. Það fékkst ekki samþykkt. I stað þess var boðað til Genfarráðstefnunn- Við sömdum ekki, en tiikynnt- um oklcar ákvörðun. Þannig' Frakkar ætla •. Við höfðum margtekið fram Framhald á 2. siðu Hætta ekki við að framleiða kiarnavopn nema komið verði á algjöru banni Blaöið France Soir í París, sem er óháð, skýröi frá því í gær að Frakkar muni sprengja fyrstu kjarna- sprengju sína í næsta mánuöi eöa í byrjun október. Þessi sprengja verður sprengd einhvérsstaðar á Sahara-eyði- mörkinni. Blaðið greindi einnig frá því að Frakkar væru einnig búnir að afla sér góðra upplýsingá um gerð vetnissprengjunnar. Talsmaður franska utanrík- isráðunéytisins sagði í fyrra- dag að Frakkar iriyndú því að- eins hajtta við að koma sér upp kjarnavopnabirgðum að eyðilagðar yrðu þær birgðir kjarnavopna, sem fyrir eru í heiminum og smíði kjarna- vopna yrði bönnuð. Grets Andersen ! varfyrstyfir Danska sundkonan Grete Andersen, sem búsett er í Bandaríkjunum sigraði í sund- keppninni yfir Ermasund. Hún. var réttar ellefu klukkustundir á leiðinni og hefur engin kona synt yfir sundið á jafnskömm- um tíma. Hinsvegar tókst henni ekki að hnekkja metinu sem Egyptinn Hassan Abdel Rehim setti fyrir átta árum en það er 10 klst. os 50 mín. Slærn skilyrði voru til sundsins, dimmviðri og allmiklir straum- ar á móti síðari hluta leiðar- innar. Annar að landi varð Haldun Ismen frá Tyrklandi og þriðji Brojan Das frá Pakistan. 22 keppendur komust alla leið yfir sundið en 11 gáfust upp. Verðlaunin sem Gréta fær- eru 500 sterlingspund og bikar- sem metinn er á 1000 sterlings-- pund. Samkomulag í deilu V. R. í fyrradag tókust samningar í kjaradeilu Verzlunarmannafé« iags Reykjavíkur og atvinmi- rekenda. Aðalefni liinna nýjit samninga er 5,5% grunnkaups- hækkun, en auk þess liafa ver- ið gerðar ýmsar smávægilegar breytingar á almennum ákvæð« um eidri kjarasamninga. Samkomulag þetta náðist milli samninganefndar VR og atvinnurekenda fyrir milligöngu sáttasemjara og verður borið undir almennan félagsfund. verzlunarmanna annað kvöld f VR-húsinu við Vonarstræti. — Fundurinn hefst kl. 8.30. Friðrik á betri stöðu en Fisher I 11 umferð á skákmótinu í Portoros, sem tefld var á föstu- daginn varð biðskák hjá Friðrik Ólafssyni og Fisher og hefur Friðrik betra tafl. Úrslit í hin- um skákunum urðu þessi: Aver- bach vann Sanguinetti, Tal vann Benkö, Petrosjan vann Rósetto,. Pachmann vann Cardoso og Sherwin vann Fiirter. Jafnteflí gerðu Panno og Bronstein, da Greiff og Neikirk, Matanovic og Filip, Szabo og Gligoric. Staðani eftir 11 umferð er þá þessi: 1. Petrosjan 81/2 v. 1 i 2. Tal 8 V. w 3. Averbach 7 .v. 1 4. Friðrik 6 v. og biðd 5—7. Benkö 6 V. Matanovic 6 V. ?! Pachmann 6 V. 8—9. Gligoric 6 V. j Panno 6 V. 1 10. Fisher 5V2 v. og biðo 11—12. Bronstein 51/2 V. Szabo 5V2 V. 13. Larsen 5 V. 14—15. Filip 5 V. Sanguinetti 5 V. M 16. Neikirk 4% V. 17. Sherwin 4 V. 18. Carados 4 V. * 19. Rosetto 3 V. ’ , 20. de Greiff IV2 V. \ 21. Fiirter 1 V. . f r I gær var 12. umferðin tefld! og lék Friðrik þá svörtu gegni Bronstein. í dag verða tefldait biðskákir, en í 13. umferðinníi teflir Friðrik við Averbach ogi hefur hvítt.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.