Þjóðviljinn - 24.08.1958, Blaðsíða 1
Lúðvík Jósepsson sjávanítvegsmálaráðherra, í viðtali við Þjóðviljann í gær:
Tólf mílna fiskveiðilandhelgin tek-
ur gildi fyrsta september 1958
Engar undanþágur fyrir erlend veiSiskip koma til greina
Ákvörðunin um 12 mílna fiskveiðilandhelgi ís-
lands verður framkvæmd mánudaginn 1. september
'1958.
Undanbagur til erlendra fiskiskipa koma þar
ekki til greina.
Með þessum afdráttarlausu yfirlýsingum lauk Lúð-
vík Jósepsson sjávarútvegsmálaráðherra viðtali við Þjóð-
viljann í gær, og svaraði ýmsum þeim áleitnu sögu-
sögnum um undanslátt í málinu er legið hafa í loftinu
undanfarna daga.
★ Enginn beðinn um
hernaðarhjálp
— Hvað segir þú um sögu-
sagnirnar um landhelgismálið
sem berast eins og skæða-
drífa frá útlöndum þessa dag-
ana?
— Þær sögusagnir munu
flestar komnar frá erlendum
blaðamöunum og er þar margt
skrýtið á ferðinni, segir ráð-
herrann. Eitt er það að við
íslendingar ættum að hafa leit-
að til Rússa um aðstoð til að
halda uppi gæzlu nýju fisk-
veiðilandhelginnar, og ættum
jafnvel von á flota þaðan.
Aílt slíkt er auðvitað til-
hæfulaust með öllu. Okkur
hefur ekkj komið til hugar
að leita tjl neinnar þjóðar
eftir heniaðarlegri hjálp.
Allar sögur um sórstakar
viðræður við Rússa í sam-
bandi við landhelgiua eru
staðleysa.
^ Frestur kemur ekki
til mála
— Sögusagnir um hugsan-
lega frestun á framkvæmdum
1. september eru sérstaldega
áleitnar.
Islendingar unnn
Ira í bridge
Á Evrópumeistaramótinu í
bridge í Osló sigruðu Islending-
ar íra í fyrradag með 64 gegn
40. Italir unnu Dani, Austur-
ríkismenn unnu Spánverja,
Egyptar Þjóðverja, Frakkar
unnu Svía, en jafntefli varð
hjá Hollendingum og Finnum.
I sjöuntdu umferð unnu
Frakkar Belgiumenn, Svíar
Egypta, Danir Spánverja, Finn-
ár Ira, Italir Englendinga og
jafntefli varð lijá Austurríkis-
mönnum og Isíéndingum.'
. 1- kyennaflokki vann Noregur
Þýzkaland, Svíþjóð Finnland,
Frakkland vann England, Dan-
mörk vann Belgíu og Austur-
ríki vann Irland. íslenzka
sveitin eat hjá.
— Já, það hafa alltaf öðru
hverju komið fram þær sögu-
sagnir að í ráði væri að
fresta framkvæmd ákvörðunar-
innar um 12 mílna fiskveiði-
landhelgi.
Enginn fótur er fyrir þeim
sögusögnum. Það hefur ekki
hvarlað að íslendingum að
fresta framkvæmd ákvörðunar-
innar. Ákvaaðin um 12 inílna
fiskveiðilandhelgi eru þegar
orðin okkur lög og þeim verð-
ur framfylgt eins og reglur
standa til.
'Ár Enqir ,,samningar"
í París
— Flestar þessar sögusagn-
ir i seinni tíð eru f einhverjum
tengslum við viðræðurnar i
París.
— Það er með öllu rangt,
sem haldið hefur verið fram,
að íslenzk stjórnarvöld taki
þátt í nokkrum ,,samningum“
í Paits eða annarsstaðar um
landhelgismálið.
Stjórnin hefur meira að segja
lýst því yfir mjög eindregið,
að hún semur ekki um málið.
Hitt er svo vitað mál að ýms-
ir aðilar í Atíanzhafsbandalag-
inu o£’ meðal þeirra Vestur-
Evrópuþjóða er stnðið hafa
gegn stækkun fiskveiðiland-
helgi við Island, hafa hvað
eftir annað ha.fið umræður
um það mál, og er auðvitað
ekki á valdi íslendinga að
meina þeim það, hvorki innan
Atlanzhafsbandr.lagsins eða
annars staðar að ræða málið.
En frá í.slandi er engin
sendinefnd í París og í is-
lenzku r Msstjóruimii hefur
það ekki komið til mála að
se.inja um neinar breytingar
á þeirri ákvörðun sem gerð
hefur verið.
'fc Samningar við ein-
stök lönd óíær leið
— Enn er verið að ympra
á því að ákvörðunin um 12
mílna landhelgi hafi vei-ið tek-
in án nægilegs undirbúnings.
•— Já, allmikið hefur verið
reynt að halda þvi fram nú síð-
ustu vikurnar að afstaða okk-
ar íslendinga væri einstreng-
ingsleg, að við höfum neitað
samningum við aðrar þjóðir
og átalið að við skulum telja
Lúðvík Jósepsson
sjávarútvegsmálaráðherra
okkur hafa rétt til að ákveða
fiskveiðilandhelgina einir og
einhllða.
Það er því rétt að leggja
áherzlu á að einhliða yfirlýs-
ing okka.r um stærð fiskveiði-
Iandhelginnar er gerð af okkar
hálfu á nákvæmlega saina liátt
og nær allar þjóðir hafa gert,
þegar uin hreytingar á land-
lielgi þeirra hefur verið að
ræða.
Þegar Norðmenn breyttu
sinni landhelgi síðast, gerðu
þeir það með slíkri einhliða
tilkynningu, en höfðu ekki
samninga um málið. Og þegar
við Islendingar breyttum okk-
ar fiskveiðilndhclgi 1952, gerð-
| um við nákvæmlega hið sama.
hefur þetta verið gert undan-
farna áratugi af mörgum þjóð-
um. Enda er hitt nær ófram-
kvæmanlegt .fyrir þjóð, sem
breyta vill landhelgi sinni að
semja við hverja einstaka þjóð,
sem ákvörðunin kynni að snerta
að einhverju leyti. Við hefðum
þá t.d. orðið að hefja sérsamn-
inga við öll strandrkki Vestur-
og Norður-Evrópu, frá Portú-
gal og Spáni til Sovétríkjanna,
en þau hafa mjög ólík sjónar-
mið innbyrðis á þessu máli.
Sjá allir að sú leið er óhugs-
andi.
ísland leitaði eftir
alþjóðareglum
— En alþjóðlegir samningar?
— Eina hugsanlega leiðin til
beinna samninga um stærð
landhelginnar, áður en Islend-
ingar tóku ákvörðun sína,
hefði verið á alþjóðavettvangi,
þar sem allar þjóðir heims hafa
aðstöðu til að standa að alls-
herjarsamþykkt um landhelgis-
mál. En ekki er hægt að saka
Island um að sú leið var ekki
farin, því eftir slíku samkomu-
lagi höfum við Isleiulingar leit-
að í mörg ár.
Árið 1949 lögðum við gagn-
gert til, að alþjóðalaganefnd
Sameinuðu þjóðanna yrði falið
að gera tillögur um stærð land-
helginnar. Þær þjóðir, sem nú
standa fast á mótí ákvörðun
okkar voru andvígar þeirri til-
lögu. Þv| miður varð alþjóða-
laganefndin ekki sammála um
eina tillögu um stærð land-
helginnar.
Síðar lögðum við til að þing
Sameinuðu þjóðanna tæki af-
stöðu til málsins. Það fékkst
ekki samþykkt. I stað þess var
boðað til Genfarráðstefnunn-
Við sömdum ekki, en tiikynnt-
um oklcar ákvörðun. Þannig'
Frakkar ætla
•. Við höfðum margtekið fram
Framhald á 2. siðu
Hætta ekki við að framleiða kiarnavopn
nema komið verði á algjöru banni
Blaöið France Soir í París, sem er óháð, skýröi frá
því í gær að Frakkar muni sprengja fyrstu kjarna-
sprengju sína í næsta mánuöi eöa í byrjun október.
Þessi sprengja verður sprengd
einhvérsstaðar á Sahara-eyði-
mörkinni.
Blaðið greindi einnig frá því
að Frakkar væru einnig búnir
að afla sér góðra upplýsingá
um gerð vetnissprengjunnar.
Talsmaður franska utanrík-
isráðunéytisins sagði í fyrra-
dag að Frakkar iriyndú því að-
eins hajtta við að koma sér
upp kjarnavopnabirgðum að
eyðilagðar yrðu þær birgðir
kjarnavopna, sem fyrir eru í
heiminum og smíði kjarna-
vopna yrði bönnuð.
Grets Andersen !
varfyrstyfir
Danska sundkonan Grete
Andersen, sem búsett er í
Bandaríkjunum sigraði í sund-
keppninni yfir Ermasund. Hún.
var réttar ellefu klukkustundir
á leiðinni og hefur engin kona
synt yfir sundið á jafnskömm-
um tíma. Hinsvegar tókst
henni ekki að hnekkja metinu
sem Egyptinn Hassan Abdel
Rehim setti fyrir átta árum en
það er 10 klst. os 50 mín. Slærn
skilyrði voru til sundsins,
dimmviðri og allmiklir straum-
ar á móti síðari hluta leiðar-
innar.
Annar að landi varð Haldun
Ismen frá Tyrklandi og þriðji
Brojan Das frá Pakistan.
22 keppendur komust alla
leið yfir sundið en 11 gáfust
upp.
Verðlaunin sem Gréta fær-
eru 500 sterlingspund og bikar-
sem metinn er á 1000 sterlings--
pund.
Samkomulag í
deilu V. R.
í fyrradag tókust samningar
í kjaradeilu Verzlunarmannafé«
iags Reykjavíkur og atvinmi-
rekenda. Aðalefni liinna nýjit
samninga er 5,5% grunnkaups-
hækkun, en auk þess liafa ver-
ið gerðar ýmsar smávægilegar
breytingar á almennum ákvæð«
um eidri kjarasamninga.
Samkomulag þetta náðist
milli samninganefndar VR og
atvinnurekenda fyrir milligöngu
sáttasemjara og verður borið
undir almennan félagsfund.
verzlunarmanna annað kvöld f
VR-húsinu við Vonarstræti. —
Fundurinn hefst kl. 8.30.
Friðrik á betri
stöðu en Fisher
I 11 umferð á skákmótinu í
Portoros, sem tefld var á föstu-
daginn varð biðskák hjá Friðrik
Ólafssyni og Fisher og hefur
Friðrik betra tafl. Úrslit í hin-
um skákunum urðu þessi: Aver-
bach vann Sanguinetti, Tal vann
Benkö, Petrosjan vann Rósetto,.
Pachmann vann Cardoso og
Sherwin vann Fiirter. Jafnteflí
gerðu Panno og Bronstein, da
Greiff og Neikirk, Matanovic og
Filip, Szabo og Gligoric. Staðani
eftir 11 umferð er þá þessi:
1. Petrosjan 81/2 v. 1 i
2. Tal 8 V. w
3. Averbach 7 .v. 1
4. Friðrik 6 v. og biðd
5—7. Benkö 6 V.
Matanovic 6 V. ?!
Pachmann 6 V.
8—9. Gligoric 6 V. j
Panno 6 V. 1
10. Fisher 5V2 v. og biðo
11—12. Bronstein 51/2 V.
Szabo 5V2 V.
13. Larsen 5 V.
14—15. Filip 5 V.
Sanguinetti 5 V. M
16. Neikirk 4% V.
17. Sherwin 4 V.
18. Carados 4 V. *
19. Rosetto 3 V. ’ ,
20. de Greiff IV2 V. \
21. Fiirter 1 V. . f r
I gær var 12. umferðin tefld!
og lék Friðrik þá svörtu gegni
Bronstein. í dag verða tefldait
biðskákir, en í 13. umferðinníi
teflir Friðrik við Averbach ogi
hefur hvítt.