Þjóðviljinn - 27.08.1958, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 27. ágúst 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Gerir íhaldið sauðskepnuna
að heilögu dýri í Reykjavík?
Vísar írá að rannsaka hve mikið tjón
sauðfé vinni á garðlöndum bæjarbúa
fhaldið og Magnús ellefti vísuöu frá tillögu Alfreös
Gíslasonar á síöasta bæjarstjórnarfundi um að rann-
sakað yröi hve miklu tjóni sauöfé ylli á garölöndum bæj-
arbúa.
Þessi samþykkt íhaldsins og
Magnúsar ellefta, ætti, ef vel
væri á haldið, að geta orðið
upphafssporið á þeirri braut
að gera sauðskepnuna að jafn
heilögu dýri hér í bæ og kýrin
er á Indlandi.
Allmargt Reykvíkinga er að
basla við fjárbúskap hér í bæn-
um og sýnir ótrúlegustu hug-
kvæmni í þeim efnum og geta
vegfarendur átt von á þvli að
frá ótrúlegustu húsum í bæn-
um heyrist rollujarmur út úr
skúrgarmi eða kassa.
Lán í óláni
Rollueigendur munu flestir
komast fyrr eða síðar að því
að Reykjaneshraunið jafnast
ekki að beitargæðum á við
Þingeyjarsýslur eða Borgar-
fjarðardali. En lán er það i
óláni að allmargir aðrir Reyk-
víkingar hafa komið sér upp
matjurtagörðum og skrúðgörð-
um, og þar getur blessuð sauð-
skepnan oft fengið væna tuggu
fyrir lítið og breytt henni í
gómsætan bita fyrir eiganda
sinn. Garðaeigendurnir una
þessum heimsóknum hinsvegar
illa, og telja tjón sitt mikið.
Hafa þeir gefið margar lýs-
ingar af því, sem ekki skulu
raktíij- hér.
Rauðhólar —
Rollukofaþorp
Alfreð Gíslason gerði mál
þetta að umræðuefni á síðasta
bæjarstjórnarfundi, en þannig
er mál með vexti að til kvað
vera nokkuð hér f bæ sem heit-
ir Fjáreigendafélag Reykjavík-
ur. Hefur félag þetta sótt um
og ámálgað mjög að fá sér-
réttindasvæði í bæjarlandinu
undir fjárhús.
íhaldið mun lengi verða
frægt lí sögu Reykjavíkurbæj-
ar fyrir meðferðina á Rauð-
hólum. Nú kvað hafa hvarflað
að því að bætá fyrir gamlar
svndir og þá hafa hugsazt að
slíkt yrði bezt gert með því
að úthluta Rauðhólum undir
fjárhúskofaþorp rollueigenda í
. bænum.
Tjónið sé rannsakað
Alfreð Gíslason er þarna á
Frestuiinn í dans-
lagakeppninni að
renna ut
Nú eru aðeins 3 vikur þar
til fresturinn til að koma
nótnahandritum í Danslaga-
keppni S.K.T. rennur út, en
þáð er 15. þessa mánaðar.
Danslagahöfundar eru livatt-
ir til að kynna sér ýtarlega
reglur keppninnar og þá ó-
vénju miklu verðlaunamögu-
leika sem 'nú'e'r um að ræða,
óg þar er getið um. Reglurnar
fást' í Bókabúð Æskunnar í
Reykjavík. — Pósthólf keppn-
innar er nr. 88, Reykjavik.
annarrf skoðun en íhaldið, og
kvaðst telja að sl'kt gæti ekki
komið til mála. Ræddi hann
mál þetta mjög hógværlega og
flutti síðan svohijóðandi til-
lögu:
„Bæjarstjórnin fehu- bæjar-
ráði að láta athuga hve mikil
brögð séu að skemmdum á
garðlöndum bæjarbúa vegna
ágengni sauðf jár, og hvort ekkl
sé ástæða til að banna með
öllu sauðfjárhald í landi bæjai-
ins.“
Rann bióðið 1 tií skyldunnar
Naumast verður því haldið
fram með rökum að þessi til-
laga Alfreðs um að rannsaka
tjónið, sé ósanngjörn, en íhald-
inu og Magnúsi ellefta rann
blóðið til skyldunnar þegar
sauðskepnan var nefnd, og
sameinuðust um að vísa tillög-
unni frá — til bæjarráðs.
Fulltrúar Alþýðubandalags-
ins greiddu tillögunni atkvæði,
— en fulltrúi Framsóknar var
milli tveggja elda: sanngim-
innar annarsvegar og þeirra
atkvæða hinsvegar, sem vera
kann að Framsókn fái frá
reykvískum rollueigendum og
sat hann því hjá.
Peter Hallberg
Framhald. af 12. siðu.
einurð. En þegar stórveldi ræð-
ir um að beita fallbyssum og
sprengjum gegn íslendingum,
vopnlausum, er þá ekki tími
til kominn fyrir okkur að
kveðja okkur hljóðs? '
Kaupfélag Rauðasands f
minnist 50 ára starfs
Sunnudaginn 24. ágúst minntist Kaupfélag Rauöa-
sands 50 ára afmælis samvinnusamtaka í Rauöasands-
hreppi og jafnframt 25 ára afmælis félagsins sjálfs.
HósmæðrakennaraskóH Islands íær
samastað í Háuhlíð 9
Var ósiarfandi vegna húsnæðisskorts
Menntamálaráöuneytiö hefur ákveöiö, aö Húsmæðra-
kennaraskóli íslands taki á ný til starfa í haust. Hefur
skólanum verið fengiö til afnota húsiö nr. 9 viö Háu-
hlíö í Reykjavík.
Húsið er eign ríkisins og
stendur á góðum stað í bænum.
Skólinn hefur ekki sökum
húsnæðisskorts starfað s.I. 2
ár, það er eitt kennslutímabil.
Ber nú þegar á, að húsmæðra-
kennara vanti við húsmæðra-
skóla landsins, en jafnframt
vex þörf fyrir húsmæðrakenn-
ara við skóla gagnfræðastigs-
ins, eftir því sem kennsiueld-
hús koma upp við framhalds-
skóla í bæjum og kauptúnum.
Húsmæðrakennaraskólinn tók
til starfa haustið 1942 og fékk
þá húsnæði í Háskóla íslands.
Þar starfaði skólinn til vors-
ins 1956, en þá var húsnæðið
tekið til afnota fvrir háskól-
ann. Frk. Helga. Sigurðardótt-
ir hefur verið skólastjóri frá
upphafi.
Námstími í skólanum er þrjú
missiri samfieytt, tveir vetur
og eitt sumar. Sumannánuð-
ina er dvalizt i Húsmæðraskóla
Suðurlands að Laugarvatni, og
er þá m.a. kennd garðyrkja.
Nýir nemendur eru teknir
í skólann annaðhvort haust.
Skólastjóri og forráðamenn
skólans telja, að húsið nr. 9
við Háuhlíð verði mjög hent-
ugt starfsemi skólans, þegar
nauðsynlegar breytingar hafa
verið gerðar á því. Má benda
á, að kennsla. getur að mestu
farið fram á einni hæð.
Stúlkur, sem liug hafa á að
hefja nám í skólanum í haust,
eru hvattar til að senda sem
allra fyrst skriflegar umsókn-
ir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, til
Helgu Sigurðardóttur, Drápu-
hlíð 42, Reykjavík. Nánari
upplýsingar um skólann eru
gefnar í síma 33442.
Fjölmennt samkvæmi hófst
um miðjan dag í félagsheimil-
inu Fagrahvammi í Örlygshöfn.
Sótti þá samkomu ungir og
gamlir víðsvegar úr hreppnum
auk nokkurra aðkominna boðs-
gesta. Reynir Ivarsson, for-
maður kaupfélagsins, setti sam.
komuna og minntist m.a. lát-
inna félaga. Ivar Ivarsson,
Kirkjuhvammi, flutti minni
samvinnufélaganna, er hér
koma við sögu, rakti itarlega
feril þeirra og gat þeirra
manna, sem mest hafa mótað
félagsstörfin frá upphafi. Að-
alfrumkvöðull að samtökunum
var séra Þorvaldur Jakobsson
li Sauðlauksdal, en fyrsti fram-
kvæmdastjóri Ólafur Thorla-
cíus í Saurbæ.
Aðrir ræðumenn á samkom-
unni voru Össur Guðbjartsson,
formaður Sláturfélagsins Ör-
lygur, er flutti kveðju félagsins
— Halldór Júlíusson, fyrrver-
andi formaður Kaupfélagsins
um margra ára skeið -— Þórð-
ur Jónsson, Hvallátrum — Sig-
urvin Einarsson, alþingismaður
— og Baldvin Þ. Kristjánsson,
framkvæmdastjóri, sem var
fulltrúi Sambands íslenzkra
samvinnufélaga við þessi há-
tíðahöld, og flutti kveðjur
sambandsins og árnaðaróskir.
þessó — Almennur söngur var
milli ræðuhaldanna, og ann-
aðist prestfrú Guðrún Jóns-
dóttir, Sauðlauksdal, undir-
leik. Er staðið var upp frá
borðum, voru sýndar kvik-
myndir, en dans stiginn um
kvöldið, og samkoman þá opin
almenningi.
Mannfagnaður þessi þótti
takast hið bezta.
Eini núlifandi félagsmaður
samvinnufélaganna frá upphafi,
búsettur í hreppnum, er frú
Kristín Magnúsdóttir, Vestur-
botni. Voru henni sendar sér-
stakar þakkir og kveðjur, en
sjálf gat hún ekki mætt vegna
ellilasleika.
Stjórn Kaupfélags Rauða-
sands skipa nú: Reynir Ivars-
son, bóndi Móbergi, formaður,
Frú Valborg Pétursdóttir,
Hvalskeri, og Þórir Stefáns-
son, bóndi, sama stað.
Kaupfélagsstjóri frá 1944
hefur verið ívar ívarsson,
bóndi, Kirkjuhvammi, og voru
honum færðar þakkir fyrir
samvizkusamlega og vel unnin
störf I þágu samtakanna.
Nýtt Mmcrki 27.
september
Hinn 27.
september n.k.
gefur Póst- og
símamála-
V
. A stjornin ut ny
frímerki með
mynd af hesti.
Verðgildi frí-
merkjanna verður kr. 2,25 og 10
aurar i óákveðnu upplagi. Teikn-
ari er Halldór Pétursson og
prentun gerð hjá fyrirtækinu
Thomas de la Rue & Co., Ltd.,
London.
Vonhrígðl Alþýöuflokksins
Ofbreí&iB
Aðalfrétt á forsíðu Alþýðu-
blaðsins s.l. sunnudag var um
setningu nýrrar reglugerðar
um Húsnæðismálastofnun rík-
isins. Eins og vænta mátti, var
Alþýðublaðið með skæting út
í ráðherra þann, sem setja átti
reglugerðina, Hannibal Valdi-
marsson. Er sá skætingur
ekki svaraverður nú frekar en
endranær. Hins vegar er þörf
að leiðrétta ýmsar missagnir
Aiþýðublaðsins um málið:
Nokkru eftir setningu nýju
iaganna um Húsnæðismála-
stofnun ríkisins, sem gera ráð
fyrir reglugerð á grundvelli
þeirra laga, fór félagsmála-
ráðuneytið fram á það við hina
nýkjörnu húsnæðismálastjórn,
að hún gerði drög að reglugerð
um Húsnæðismálastofnunina
eða léti a, m, k. ráðuneytinu í
té tillögur sínar um efni þeirr-
ar reglugerðar. Fór svo, að
húsnæðismálastjórn varð ekki
sammála um tillögur sínar til
ráðuneytisins, og voru raunar
tvenn drög að reglugerð send
ráðuneytinu. Ráðherra reyndi
lengi að koma á einingu um
'máiið, en samkomulag fékkst
ekki, og af þeim ástæðum starf-
aði húnæðismálastjórn reglu-
gerðarlaust. Þegar þrautreynt
var, að ekki næðist samkomu-
lag um reglugerðina, skar ráð-
herra sjálfur úr ágreiningsat-
riðunum og sétti reglugerðina,
en Húsnæðismálastofnunin
heyrir undir félagsmálaráðu-
neytið.
Hver voru ágreiningsatriðin?
Engin önnur en þau, hverj-
um bæri að ráða starfsfólk
til stofnunarinnar. í lögunum
segir aðeins, að ráðherra eigi
að ráða framkvæmdastjóra, en
ekkert ord um það, hver eigi
að ráða annað starfsfóik. Einn
hluti húsnæðismálastjórnarinn-
■ar vildi láta framkvæmda-
stjórann ráða anhað starfsfólk,
enda bæri hann ábyrgð á dag-
•legum framkvæmdastörfum
innan stofnunarinnar, og væri
það í samræmi við hliðstæður
annars staðar úr opinberu lífi.
Hinn hluti húsnæðismálastjórn-
arinnar vildi, að húsnæðis-
málastjórn, sjálf réði annað
starfsfólk í þágu stofnunarinn-'
ar.
Hvernig skar svo ráðherra úr
þessum ágreiningi?
Þar sem engin ákvæði voru í
iögunum sjálfum um það hver
ráða skyldi starfsfólk annað en
framkvæmdastjórann, varð ráð-
herra einfaldlega að fara eftir
ákvæðum almennra laga um
réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins nr. 38 frá 1954,
en þar segir svo í 2. gr. (Um
veitingu starfa):
,,Það fer eftir ákvæðum laga
uni hvertia starfs-grein/, hver
veita skuli, set.ia í eða ráða í
stöííur. Nú er eigi um það
mælt í lögum, og skal þá svo
meta sem sá ráðherra, er s'iarf-
inn lýtur, geri þá ráðsílöfun, en
geti þó veitt forstjóra viðkom-
andi starfsgreinar heintild til
að gera það, ef ráðstafa skal
hinum vandaminni og ábyrgð-
arminni stöðum í grein Iians.“
A grundvelli þessa almenna
ákvæðis setti ráðherra reglu-
gerðina með þeim ákvæðum,
að hann sjálfur ákvæði áölu
starfsfólksins en framkvæmda-
stjórinn xéði það.
Ráðherra hefur því farið hér
alveg rétt að og lögum sam-
kvæmt, en Alþýðuflokkurinn
hefur fengið verk í bitlinga-
hjartað sitt, þvi að kannski
hefur hann misst af tækifæri
til að ráða í nokkrar stöður,
enda er allt fullsetið í Trygg-
ingarstofnun ríkisins.